Fréttablaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 52
ÞAÐ VORU Í RAUN SEX VIKUR FRÁ ÞVÍ ÁKVÖRÐUNIN VAR TEKIN ÞAR TIL BÚÐIN VAR OPNUÐ. Áhugasamir auglýsendur hafi samband við: Sími 550 5078 / serblod@frettabladid.is Miðvikudaginn 30. desember mun sérblaðið Heilsa fylgja Fréttablaðinu. Fjallað er um allt sem viðkemur bættri heilsu. Í blaðinu verða áhugaverð viðtöl og fróðleiksmolar sem unnið er af blaðamönnum Fréttablaðsins. Boðið er upp á auglýsingapláss í blaðinu af öllum stærðum og gerðum. Einnig er hægt að fá kynningarumfjöllun sem unnin er af blaðamanni Fréttablaðsins. Pantanir og skil á auglýsingum er til og með 29. desember. Kynningarumfjallanir þarf að panta í síðasta lagi þriðjudaginn 22. desember. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest les a d gblaði l ndsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is HEILSA Jólin byrjuðu snemma í ár hjá fagurkerunum Aroni Frey Heimissyni og Einari Guð-mundssyni sem létu lang-þráðan draum rætast og opnuðu hönnunarverslunina Mikado á Hverfisgötu 50 í síðustu viku. „Við vorum búnir að ganga með þessa hugmynd í maganum lengi en ferlið fór mun hraðar af stað en við sáum fyrir,“ segir Aron. „Það voru í raun sex vikur frá því ákvörðunin var tekin þar til búðin var opnuð.“ Það er þó ekki að sjá þegar komið er inn í verslunina þar sem nostrað hefur verið við hvern krók og kima. Aron og Einar eru báðir grafískir hönnuðir og eiga mörg sameiginleg áhugasvið. „Við höfðum lengi velt fyrir okkur hinum ýmsu atriðum eins og nafninu og vöruúrvalinu og skrifað niður merki þegar við rákumst á eitthvað fallegt, svo þetta var ekki alveg úr lausu lofti gripið,“ útskýrir Aron. Foreldrarnir hoppuðu á bátinn Á meðan parið bjó í Portúgal hafi draumurinn um verslun og sköp- unarhús iðulega skotið upp koll- inum og hugmyndin verið rædd fram og aftur. „Við vorum komnir með skýra sýn á hvert við vildum stefna á meðan við vorum úti.“ Þegar hönnuðirnir sneru aftur til heimahaganna og heimsóttu for- eldra Arons fyrir norðan komst hugmyndin á næsta stig. „Ég held að það hafi komið foreldrum mínum dálítið á óvart hversu úthugsað þetta var hjá okkur og þau sáu tæki- færi í því og slógu til.“ Þegar verslunarrýmið var komið í hús kom öll stórfjölskyldan að því að koma búðinni í lag. „Við hönn- uðum rýmið sjálfir og fjölskyldur okkar hjálpuðu með fjármagn og uppsetningu.“ Útkoman olli engum vonbrigðum og kveðst Aron vera hæstánægður með hana. Selja sögu „Okkur langaði til að skapa rými þar sem fólk geti komið, tekið sinn tíma og notið þess að upplifa vör- urnar sem við bjóðum upp á.“ Við- brögðin hafi ekki látið á sér standa. „Fólk finnur alveg að þetta er svolít- ið ferskur blær í hönnunarflórunni hér á landi og ég held að flestir taki því fagnandi.“ Vöruúrvalið er undir áhrifum frá japanskri og skandinavískri hönn- un að sögn Arons. „Okkur langaði til að vera með hluti sem hafa ekki sést hérlendis áður.“ Stefna hönnuð- anna sé að fagna einfaldleikanum og handbragði hvers og eins hlutar. „Flest sem við bjóðum upp á hefur líka langa og fallega sögu að baki sér svo fólk tekur ekki bara hluti héðan með sér heim.“ Þá er einnig er að finna íslenska hönnun og handbragð í bland við asíska og skandinavíska strauma. „Við stefnum á það að hafa f leiri íslenska hönnuði í búðinni þegar fram líða stundir.“ Styrkir sambandið Aðspurður hvort það hafi verið erfitt fyrir tvo hönnuði að koma sér Draumur að veruleika á mettíma Aron Freyr Heimisson og Einar Guð- mundsson opnuðu nýlega draumaverslun fagurkerans á Hverfisgötu. Asískir straumar í bland við skandinavískan mínímalisma koma saman í versluninni Mikado. Einar og Aron bjuggu um tíma í Lissabon en fluttu til Íslands og stofnuðu Mikado. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Blómabúðin Pastel er rekin af þeim Elínu og Sigrúnu í sama rými. saman um ákvarðanir segir Aron það vera af og frá. „Blessunarlega erum við nokkuð sammála þegar kemur að smekk í hönnun, hvort sem það sé á vöru- eða innanhúss- hönnun.“ Það hafi því aðeins styrkt sam- bandið að starfa við sama fag. „Áhugamál okkar eru svipuð og alltaf gott að fá lánuð augu þegar maður hefur verið í stóru og löngu verkefni.“ Þá sé heppilegt að deila skrif borði með aðila sem hefur einnig menntun í faginu. Sambandið hafi einnig orðið til þess að allt ferlið við opnun búðar- innar var spennandi og ánægjulegt. „Við vonum bara að allir verði jafn ánægðir með þetta og við.“ kristlin@frettabladid.is 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.