Feykir - 10.04.2019, Qupperneq 1
Það má segja að vorið hafi mætt á
Íslandið góða um helgina með sól og
brakandi blíðu enda margir vorboðar
búnir að lofa því, gæsir, álftir, þrestir,
tjaldar og hinir ýmsu sjófuglar svo
ekki sé talað um flugur sem sáu sér
ekki annað fært en fara á stjá.
Veðurstofan spáir áframhaldandi
blíðu, léttskýjuðu í dag um landið
norðanvert, en skýjað verður annars
staðar og lítilsháttar væta suðaustantil.
Hiti getur farið upp í 10 stig og jafnvel
hærra þá daga sem spáin nær til eða allt
fram að pálmasunnudegi og þurrt
verður norðanlands.
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
14
TBL
10. apríl 2019
39. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 5
BLS. 10
Jóhanna Erla Pálmadóttir
segir frá hvað hún er með á
prjónunum.
Vill auka álit fólks á
textílvinnu
BLS. 6-7
Spjallað við Israel Martin þjál-
fara Tindastóls
„Við verðum
að horfa fram á
veginn“
Vorið mætti með sól og blíðu um helgina
Blíðuveður í kortunum svo langt
sem spár ná
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.is
Það eru fleiri en mannfólkið sem fagna vorinu. Loppadís lék sér í fjöruborðinu við Ernuna á Borgarsandinum sl. sunnudag. Ekki skýhnoðri á himni og blankalogn. MYND: PF.
HÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU
Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100
www.ommukaffi.is
Norska spáin á Yr.no spáir lengra fram í
næstu viku og samkvæmt þeim spám
breytist veðrið lítið sem ekkert og sama
hitastig viðvarandi fram á fimmtudag,
skírdag.
Dalbæingar búast við páskahreti
Þriðjudaginn 2. apríl, komu saman til
fundar níu félagar í veðurklúbbnum á
Dalbæ á Dalvík og hófu fund kl. 14:05
og honum lauk hálftíma síðar.
Fundarmenn voru almennt sáttir við
hvernig til tókst með spádóminn fyrir
marsmánuð en snjó hafði ekki tekið
upp áður en snjóaði aftur og veðrið var
umhleypingasamt.
Í skeyti frá Veðurklúbbnum segir að
nýtt tungl kvikni í austri föstudaginn 5.
apríl kl 8:50 og er það páskatungl
(Gyðingatungl). „Áfram gera menn ráð
fyrir sama tíðarfari, rysjóttu og
umhleypingasömu en engin harka í
veðri. Snjórinn er ekki farinn og við
eigum eftir að fá páskahret og jafnvel
sumarmálahretið með því. Vetur er ekki
búinn enn.“ /PF
Veðurvísa apríl-maí
Í apríl sumrar aftur,
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
Pilsaþytur fagnar formlegri stofnun
Samkoma í Melsgili
með dansi og
harmóníkuspili