Feykir


Feykir - 10.04.2019, Síða 7

Feykir - 10.04.2019, Síða 7
skírnir, fermingar, brúðkaup, jarðarfarir og svo náttúrulega athafnir eins og setningu Sæluviku og þess háttar. Einnnig hafi hópurinn alltaf verið í góðu samstarfi við Byggðasafnið og haft það fyrir sið að heimsækja Glaumbæ á kvenréttindadaginn, 19. júní, og á síðasta ári þegar Sigríður Sigurðardóttir lét af störfum sem safnstjóri fór hópurinn prúðbúinn og kvaddi hana. Eins og áður segir var Pilsaþytur óformlegt félag þar til nýlega. „Við stofnuðum hóp á Facebook, ég held að félagarnir þar séu um 40 en það eru tæplega 20 sem eru í þessu nýja formlega félagi,“ segir Ásta. Það var svo hinn 10. mars sem félagið Pilsaþytur í Skagafirði var stofnað formlega og var það gert í baðstofunni í Glaumbæ sem auðvitað var vel við hæfi. Ásta segir að í sjálfu sér hafi formlegheitin ekki miklar breytingar í för með sér fyrir starfsemi hópsins, heldur sé ástæðan fyrst og fremst sú að þær séu alltaf að sýsla eitthvað með peninga og þá sé auðvitað mikið betra að hafa sérstakan bankareikning fyrir félagið á eigin kennitölu. Við vorum tíu sem mættum á stofnfundinn, átta uppáklæddar, en vorum 17 sem vorum búnar að melda okkur sem formlega stofnfélaga. Við erum því 17 sem erum félagar í dag en kannski svona tíu sem erum virkastar. Stjórnarkonur eru Ásta Ólöf Jónsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir og Sigríður Ingólfsdóttir. Til vara er Jóhanna Birgisdóttir." En fylgja félagsaðildinni einhverjar kvaðir? „Í sjálfu sér ekki. Við ákváðum að hafa félagsgjald, 1.000 krónur fyrsta árið, en ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að þetta á ekki að vera kvöð. Auðvitað er einhver kvöð fyrir þá sem eru í stjórn og ef um einhverjar uppákomur er að ræða þá fylgir því auðvitað einhver skipulagningarvinna. Og þó það séu ekki allir sem eru í Facebookhópnum formlegir aðilar þá koma bara þeir sem það vilja á uppákomur, hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki. Hins vegar getur vel verið að við verðum einhvern tíma með sér uppákomur, einungis fyrir félagsmenn, en það er bara eitthvað sem við eigum eftir að þróa.“ Sýning og ball á Sæluviku Nú ætlið þið að standa fyrir viðburði í Sæluviku, í hverju er hann fólginn? Við ætlum að vera með samkomu í Melsgili, fimmtudagskvöldið 2. maí. Þangað kemur dansflokkur frá Akureyri, dansfélagið Vefarinn, og þau ætla að sýna okkur þjóðdansa. Sýningin mun taka um 50 mínútur og á eftir verður boðið upp á kaffi og kleinur. Svo vorum við að hugsa um að efna til smá harmóníkuballs á eftir. Allir eru velkomnir og verður selt inn gegn mjög hóflegu gjaldi. Aðspurð um hvað sé fleira framundan hjá félaginu segir Ásta að líklega séu þær hættar námskeiðahaldi í bili. „En Helga Sigurbjörnsdóttir er enn að kenna og hún á þátt í mörgum búningum hér á svæðinu. Áhuginn á þjóðbúningum hefur aukist, mér finnst það. Og hann er náttúrulega töluvert mikill hér, kannski vegna þess að við erum þetta sýnilegar. Ég lendi miklu frekar í því ef ég er fyrir sunnan á samkomum að ég sé sú eina sem mæti í svona búningi. Þjóðbúningarnir tengjast auðvitað arfleifðinni og partur af því sem við erum að gera er að tengjast henni og skila til komandi kynslóða. Margar þessar ungu konur bera þessa búninga með miklum glæsibrag. En svo er auðvitað þetta, mér er alveg sama þó ég sé eins og troðin tunna þegar ég er komin í búninginn, það eru sumar sem geta ekki farið í hann því að þeim finnst þær verða of feitar í honum. Það er allt í lagi mín vegna, þær ráða því alveg, en ég verð ekkert mjórri og ekki feitari við að fara í búninginn, ég er bara eins og ég er og mér finnst gaman að fara í búninginn og þó að ég sjái fullt af konum sem eru miklu glæsilegri en ég þá breytir það því ekki að ég megi ekki nota minn búning. Mér finnst við ekkert eiga að vera með einhvern hauspoka þó það séu einhverjar aðrar flottari. Ég get alveg verið flottari í einhverju öðru en það er bara ekki eins áberandi,“ segir Ásta og glottir lítillega. Samkoma Pilsaþyts í Melsgili verður auglýst í Sæluvikudagskránni og hvetur Ásta fólk til að líta þar við og horfa á sýninguna, þiggja kaffi og meðlæti og taka svo sporið við undirleik dunandi harmóníkuspils. „Við ætlum ekki að selja dýrt inn, 1.500 kall og svo verður afsláttur ef þú mætir í þjóðbúningi eða hátíðarbúningi, þá færðu þetta á 1.000 kall. Þangað verða allir velkomnir, alveg óháð því hvort fólk klæðist þjóðbúningi eða ekki,“ segir Ásta að lokum. Frá stofnfundi Pilsaþyts 10. mars 2019. Efst er Guðrún Ingólfsdóttir, næst koma Ásta Ólöf Jónsdóttir og Guðbjörg Elsa Helgadóttir, þá Jóhanna Birgisdóttir og Birna Jónsdóttir, Hulda Þórsdóttir og Jóhanna Björnsdóttir og neðst er Rósa Róarsdóttir. Ásta Ólöf Jónsdóttir, Finnur Alexander Lazar Sorinsson og Sigurjóna Sóldís Friðriksdóttir á sýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í maí 2018. Ásta segir að búningunum megi klæðast við nánast öll tækifæri. Hér er slakað á eftir sýningu á Prjónagleði á Blönduósi. Sigurjóna Sóldís Friðriksdóttir (blár búningur) og Ásta Ólöf Jónsdóttir (rauður búningur). Sigríður Ingólfsdóttir og Ásta Ólöf Jónsdóttir, uppáklæddar í grenjandi rigningu við setningu landsmóts UMFÍ 2018. Sigríður Ingólfsdóttir og Geir Eyjólfsson á sýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í maí 2018. 14/2019 7

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.