Feykir - 22.05.2019, Qupperneq 9
Lista- og vísindasmiðjur á Norðurstrandarleið
Íbúar Norðurlands vestra
hvattir til að taka þátt
í verkefninu
Stefna á þátttakendum í fimm
fjörur á Norðurlandi vestra þann
25. maí næstkomandi. Byrjað
verður á því kl. 10 að safna
saman rusli og í framhaldinu
verða reistar vörður undir
leiðsögn listamanna frá
Listaháskóla Íslands, Nes
listamiðstöð á Skagaströnd
og Textíllistamiðstöðinni á
Blönduósi. Reiknað er með
því að dagskránni verði lokið í
síðasta lagi kl. 16. Tvær fjörur
eru staðsettar við Sauðárkrók,
ein við Hvammstanga og tvær
úti á Skaga.
Markmiðið með verkefn-
inu er að auka þekkingu
almennings á umhverfis-
málum og mengun hafsins.
Þema smiðjanna er „Varða“
en talið er að maðurinn
hafi reist sér vörður allt
frá steinöld. Textílmiðstöð
Íslands á Blönduósi stýrir
verkefninu í samstarfi við
Biopol á Skagaströnd en
tveir vísindamenn hjá Biopol
eru búnir að þræða norður-
ströndina til að skoða fjörur
þar sem rusl berst að landi.
Styrkur fékkst til verkefn-
isins bæði frá Uppbygg-
ingarsjóði og Umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu og að
sögn Lee Ann Maginnis,
verkefnisstjóra, hefur undir-
búningur verkefnisins gengið
vel. ,,Sú hugmynd kom upp
að fá ungmennasamböndin á
svæðinu með í verkefnið en
þau búa yfir miklum mann-
auð sem hægt er að nýta í
verkefnið. Sveitarfélögin hafa
líka öll tekið mjög vel í þetta og
núna er verkefnið á lokametr-
unum en verið er að afla
leyfis landeigenda til að fara í
fjörurnar.“
Í verkefninu felst að
vísindin og listirnar leggja
saman til að skapa vettvang
til að vekja athygli á þeirri
ógn sem mengun hafsins er
lífi á jörðinni. Þátttakendur
á hverjum stað ákveða undir
leiðsögn þess listafólks sem
leiðir þá vinnu hvernig þeir
skilgreina sína vörðu og með
hvaða hætti hún varpar ljósi
á eða leggur til lausn/lausnir á
mengun hafsins.
,,Nákvæm staðsetning á
fjörunum verður aðgengileg á
heimasíðu Textílmiðstöðvar-
innar, www.textilmidstod.is
og frekari upplýsingar. Ég
vil hvetja íbúa á Norðurlandi
vestra til að taka þátt í verk-
efninu með okkur og mæta
í fjörurnar. Við mælum líka
með því að þátttakendur komi
með sína eigin kaffibolla til að
minnka ruslið sem kemur frá
okkur mannfólkinu“ segir Lee
Ann að lokum.
Boðið verður upp á kaffi
og kakó á staðnum. Verkefnið
verður í framhaldinu kynnt
sem hluti af opnun Norður-
strandarleiðarinnar þann 8.
júní næstkomandi á „Degi
hafsins“.
Lee Ann á Blöndubökkum. AÐSEND MYND
20/2019 9
Snotur sem sumardagur
Feykir.is
Birkir LG Jullum / pínaó og hljómborð
„Hef nú ekki mikið um að
velja fyrir utan sálmabókina
á sunnudagsmorgnum“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Birkir á góðu götuhorni. MYND ÚR EINKASAFNI
Síðast skaust Tón-lystin út fyrir landsteinana eftir
viðfangsefni og nú endurtökum við leikinn því að þessu
sinni heilsum við upp á Birki Lúðvík Guðmundsson
Jullum sem er atvinnumaður í faginu og gerir út frá
800 manna bæ, Lyngseidet, í Lyngen-firði í Norður-
Noregi. Birkir er fæddur árið 1969 og uppalinn á
Króknum, sonur Elínar Halldóru Lúðvíksdóttur og
Guðmundar skipstjóra Árnasonar.
Píanó og hljómborð hafa leikið í höndunum á Birki frá
fyrstu tíð en hann var hljómborðsleikari í hljómsveitinni
Herramönnum frá Sauðárkróki ásamt skólabræðrum
sínum. Hann tók einnig þátt í að starta hljómsveitinni
Spútnik ásamt Stjána Gísla og sú sveit poppar upp
annað veifið þó Birkir sé víðs fjarri.
„Ég flutti til Noregs árið 2000 og var mjög heppinn
með að geta unnið áfram í tónlistinni. Ég hef ferðast
um allan Noreg, frá syðsta punkti til nyrsta punkts
(Lindesnes til Nordkapp) í fleiri ár vegna tónlistarinnar
og síðasta verkefnið sem ég hef verið að vinna að er
tónleikaröð til heiðurs Unit Five sem var vinsæl hljómsveit
frá Hammerfest í Norður-Noregi.“ Unit Five seldi yfir 250
þúsund plötur og átti sín bestu ár á milli 1978-1982.
Birkir fékk það verkefni að fá að heiðra hljómsveitina og
lýkur tónleikaröðinni ekki fyrr en á næsta ári.
Hvaða lag varstu að hlusta á? Chicago, lagið Now.
Uppáhalds tónlistartímabil? 1980-1990.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa
dagana? Eiginlega allt saman en það eru nú gömlu
góðu snillingarnir frá 1970 – 1990 sem sköpuðu veginn
fyrir mig i tónlistinni.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili?
Mest það sem var á gömlu gufunni en pabbi hlustaði á
Ivan Rebroff og líkaði líka The Platters og svo voru það
sjómannalögin að sjálfsögðu.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhal-
ið sem þú keyptir þér? Guð min góður! Fyrsta platan
sem ég eignaðist var með íslenskri barnastjörnu sem
heitir Hanna Valdis og fyrsti geisladiskurinn var með
enska dúettnum BROS. Hrein skelfing eiginlega en
það var ekki mikið úrval af diskum í Skaffó þegar fyrstu
geislaspilararnir komu í bæinn.
Hvaða græjur varstu með á þessum tíma? Stereó-
græjurnar sem ég fékk í fermingargjöf frá foreldrunum,
Marantz plötuspilari / magnari, útvarp og kasettutæki
fra Unisound og Las Vegas hátalarar. Keypt i raftækja-
versluninni hans Itta á Króknum á sínum tíma.
Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa
fílað í botn? Strax í dag með Stuðmönnum.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn eða fer
óstjórnlega í taugarnar á þér? Have You Ever Seen
the Rain med CCR. Ég hef spilað það lag aðeins
of oft í gegnum árin þegar ég hef spilað á börum og
skemmtistöðum á Íslandi og hérna í Noregi.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma
í græjunum til að koma öllum í stuð? Komnar nýjar
græjur í hús svo það verður Chicago og fín 80´s músik
í kvöld [23. apríl]. Fæ reyndar einn góðan félaga og
konuna hans í heimsókn í kvöld svo það verður smá tími
í litla hljóðverinu mínu þar sem við vinnum aðeins með
tónlistina hans og síðan verður farið upp á aðra hæð og
hlustað á góða tónlist og whiskey og nice!
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað
viltu helst heyra? Venjulega á sunnudögum fer ég i
vinnunna kl. 9 til að spila í guðsþjónustu þar sem ég
vinn sem organisti hérna i Lyngen í norður Troms-fylki.
Þannig að ég hef nú ekki mikið um að velja fyrir utan
sálmabókina á sunnudagsmorgnum ;o)
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og
skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika
og hvern tækirðu með þér? Kannski færi ég til tunglsins
... það væri svolítið öðruvísi. Ég var svo heppinn að vera
á tónleikum með sjálfum Tom Jones í Dublin fyrir fjórum
árum síðan og ferðafélagi minn er jafnan konan mín,
Søssa Jullum, að sjálfsögðu.
Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst
nýkominn með bílpróf? C'est La Vie með Robbie Nevil.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera?
Enginn! Málið var aldrei að líkjast einhverjum en það
voru margir góðir sem ég lít upp til. Eyþór Gunnars er
sá tónlistarmaður sem heillaði mig mest þegar ég var
að byrja að spila á hljómborðið. Mezzoforte eru nú
strákarnir okkar á Íslandi sem kunnu þetta. Þá var Jakob
Frímann Magnússon í Stuðmönnum líka einn af mínum
uppáhalds hljómborðsleikurum.
Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið
út? Dark Side of the Moon med Pink Floyd og Thriller
med Michael Jackson.
Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Sex
lög!? Að finna lög er ekki einfalt. Það sem ég get sagt er
að Michael Jackson, Whitney Houston og Sting eru þær
stórstjörnur sem mér líkaði best. En fyrir mér hefur öll
tónlist rétt á sér og svo er það eftir hverjum og einum að
líka það sem manni líkar.