Feykir - 22.05.2019, Side 10
Team Rynkeby hjólar til Parísar
Skagfirðingur
í íslenska liðinu
Hjólahópurinn staddur fyrir utan sundlaugina í Varmahlíð áður en hann hélt í smá skrepp á Krókinn og til baka.
Um síðustu helgi var íslenska
Team Rynkeby hjólaliðið með
æfingu á Norðurlandi og hjólaði
m.a. í Skagafirði. Team Rynkeby
er samnorrænt góðgerðastarf
þar sem þátttak-endur þess hjóla
á hverju ári til Parísar til styrktar
krabbameinssjúkum börnum og
fjölskyldum þeirra. Skagfirðingurinn
Sigurður Ingi Ragnarsson er einn
þátttakenda og segist hann hlakka
mikið til fararinnar.
Á heimasíðu Team Rynkeby kemur fram að
það var stofnað árið 2002 þegar ellefu
hjólreiðamenn sem tengdust Rynkeby
Foods í Danmörku ákváðu að hjóla til
Parísar til að sjá lok Tour de France hjóla-
keppninar. Rynkeby Foods var aðalstyrktar-
aðili ferðarinnar en önnur fyrirtæki aðstoð-
uðu einnig. Reyndar stóðu þátttakendurnir í
fyrsta Team Rynkeby-liðinu sig svo vel í að
safna styrkjum að þeir sátu eftir með
727.000 króna hagnað þegar liðið sneri
aftur til Danmerkur að viku liðinni. Team
Rynkeby gaf peningana til deildar krabba-
meinssjúkra barna við háskólasjúkrahúsið
í Óðinsvéum í Danmörku og þar með var
hefðinni komið á.
Í dag samanstendur Team Rynkeby af
2.100 hjólreiðamönnum og 500 aðstoðar-
mönnum sem skiptast í 54 lið frá Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Færeyjum,
Íslandi og frá Þýskalandi. Þátttakendurnir
eru valdir úr þúsundum umsækjenda sem
hafa fyllt út umsóknareyðublaðið á heima-
síðu Team Rynkeby.
Frá Kolding til Parísar
Einn þátttakenda er Skagfirðingurinn
Sigurður Ingi Ragnarsson. Hann segist hafa
sótt fyrst um að komast í liðið fyrsta árið
sem átti að hjóla en ekki fengið inngöngu.
„En sótti svo um sl. sumar, í byrjun ágúst en
mig vantaði einhverja áskorun til að koma
mér í og halda mér í formi. Það er auglýst
eftir hjólafólki og svo er valið úr og reynt að
velja þverskurð þjóðarinnar,“ segir Sigurður
sem hefur síðan þá æft sig á hjólinu og
safnað peningum. „Það eru allir á eins
hjólum og eins klæddir. Þátttakendur þurfa
að kaupa sér hjól og búning en við seljum
svo auglýsingar á búninginn.“
Hjólað er frá Kolding í Danmörku til
Parísar um 1250 km leið en lagt verður af
stað 29. júní og endað í París 7. júlí og segir
Sigurður verkefnið
snúast um
að safna pening fyrir krabbameinssjúk börn
í viðkomandi landi þátttakenda. „Þetta er
þriðja árið sem Ísland tekur þátt en fyrsta árið
söfnuðust um níu milljónir, í fyrra u.þ.b. 16
milljónir og vonandi náum við meiru núna.
Aðal vinnan fyrir okkur er að koma sér í form
til að geta hjólað þessa leið. Fyrsta daginn
hjólum við 150 km svo koma þrír 210 km
dagar, tveir 150 og svo síðasti dagurinn 50
km en þá hjólum við inn í París. Öll liðin hjóla
svipaðar leiðir og svo hittumst við öll liðin í
París á laugardeginum þannig að það verður
mikið um húllúmhæ þar.“ Sigurður segir
íslenska hópinn skipaðan alls konar fólki þar
sem sá yngsti er um þrítugt en elsti yfir 60.
Sumir eru vanir hjólarar en aðrir nýbyrjaðir til
þess að gera. Flestir eru af höfuðborgar-
svæðinu en aðrir koma frá Akranesi, Akureyri,
Ólafsfirði og Skagafirði.
200 km hjólaðir um helgina
Það voru liðsstjórarnir, þau Guðbjörg Þórðar-
dóttir og Viðar Einarsson ásamt vinafólki
þeirra í Danmörku, sem komu með þetta
verkefni til landsins á sínum tíma og fóru
með fyrsta liðið árið 2017. Nú er stefnt á
þriðju ferðina og hópurinn allur saman
kominn á Norðurlandi til að æfa. Sl. laugar-
dag var hjólað í Eyjafirði og daginn eftir í
Skagafirði. „Við lögðum af stað frá Húsa-
bakkaskóla í Svarfaðardal og hjóluðum inn
Eyjafjörð, fórum svokallaðan Eyjafjarðarhring
og svo aftur til baka og inn Svarfaðardal,
rúma 150 km. Þetta var geðveikt og æðislegt
veður,“ segir Guðbjörg liðstjóri þegar Feykir
ræddi við hana í Varmahlíð áður en hópurinn
lagði af stað á Krókinn en Eyjafjarðartúrinn
var liður í skylduæfingu hópsins. „Það eru
fjórar skylduæfingar sem liðið þarf að taka
áður en við leggjum af stað. Fyrst eru það 70
km, síðan 100 km og svo 150 km sem við
vorum að taka í gær og þá eigum við eftir að
hjóla 200 km skylduæfingu sem verður 1.
júní. Ég reikna með að hún verði á Suður-
landinu einhvers staðar. Nú ætlum við aðeins
að hjóla úr okkur eftir gærdaginn og snúa
pedulunum út á Krók og hitta fyrirtæki sem
hafa styrkt okkur og til baka.“
Guðbjörg segir alla vera í hörku formi og
að verða klárir fyrir stóru ferðina. „Í liðinu eru
36 hjólarar og átta manna aðstoðarteymi en
fjórir með okkur núna. Það eru fylgdarbílar
sem nesta okkur upp á leiðunum. Till dæmis
í gær voru þeir með ávexti og smurt brauð og
heita súpu í matarpásunni. Þau sjá um að
við verðum ekki svöng og komust á leiðar-
enda,“ segir liðsstjórinn sem vill minna fólk
á að liðið er með, auk heimasíðunnar team-
rynkeby.is, Facebook- og Instagram-síðu;
Team Rynkeby Ísland og símanúmer þar sem
hægt er að styrkja verkefnið. Ef hringt er í
númerið 907 1601 renna 1500 krónur til
þess, 907 1602 kr. 3000 og 5000 krónur í
númerið 907 1603. /PF
Að neðan: Sigurður Ragnars og Guðbjörg Þórðardóttir liðsstjóri.
Til vinstri: Sigurður I. Ragnarsson í fullum skrúða. MYNDIR: PF
10 20/2019