Feykir - 09.10.2019, Side 7
Nú nýverið var enn eitt popplagið
gefið út í þessum heimi
okkar. Um er að ræða lagið
Svo birti aftur til og er þetta
fyrsta lag höfundateymisins
Two Spirits Music en teymið
skipa lagahöfundurinn Héðinn
Svavarsson og Króksarinn Ólafur
Heiðar Harðarson, sonur Möggu og
Bassa, en hann sér um textagerð.
Lagið er nú fáanlegt á öllum helstu
dreifiveitum eins og Spotify og
iTunes og smellti sér raunar í 26.
sæti Vinsældalista Rásar 2 nú í
vikunni. Það er söngkonan Jóna
Alla sem syngur lagið.
Tónlistaráhuginn er Óla, sem nú
býr í Hafnarfirðinum, að sjálfsögðu
í blóð borinn en pabbi hans,
Hörður G. Ólafsson, jafnan kallaður
Bassi, fór hér í denn margan
sveitaballarúntinn með Hljómsveit
Geirmundar og Herramönnum svo
einhverjar sveitir séu nefndar en
þekktastur er hann þó sennilega
fyrir að hafa samið Eitt lag enn
sem hann og Stjórnin fóru með til
Zagreb í Eurovision 1990 og gerði
lukku.
Feykir plataði Óla til að svara
nokkrum spurningum í tilefni af
útgáfu Svo birti aftur til. Fyrst
var Óli spurður út í nafnið á
höfundateyminu. „Ástæðan fyrir
enska nafninu á samstarfinu
er að þorri laganna, sem við
höfum samið, er og mun koma
út á ensku. Two Spirits Music er
lagahöfundateymi sem varð til í
upphafi árs 2019 og hefur síðan
samið vel á þriðja tug laga. Við
urðum að koma þessu eitthvað út.
Þetta staflaðist upp.”
Hefurðu lengi fengist við textagerð?
„Já, ég hef í gegnum árin samið
nokkur hundruð texta og á orðið
mikinn lager. Verið svona hliðar-
hobbý að semja. Þá hefur Héðinn
einnig alla tíð verið í kringum
tónlist og að spila á hljóðfæri,
gítar og píanó. Þannig að þarna
var eitthvað sem átti að gerast
finnst okkur og hefur verið frábært
samstarf og bara vinátta. Auðvitað
er þetta fyrst og síðast bara
skemmtilegt hobbý.”
En hver er sagan á bak við Svo birti
aftur til?
„Saga þessa texta og lags er sú
að Héðinn óskaði eftir texta frá
mér til að senda inn í keppni
um Goslokalagið 2019, enda
Eyjamaður. Þessi texti tók reyndar
ekki langan tíma og small saman
á einni klukkustund eftir að
kallið kom. Lagið fylgdi síðan á
eftir frá Héðni sama kvöld. Flest
lögin verða til á einu kvöldi með
nokkrum símsendingum. Fá smá
hvíld og eru síðan pússuð til og
löguð.“
Um hvað er textinn? „Svo birti aftur
til fjallar um gosnóttina örlagaríku.
Atburðarás næturinnar er lýst
ásamt þeirri von og trú fólksins
að endurheimta samfélag sitt að
nýju. Síðan er lagið hugsað sem
áminning til okkar allra að það
er sama hvað á bjátar, það birtir
alltaf aftur til. Það endaði þannig
að lagið fékk tilboð um útgáfu og
útsetningu frá þeim í Eyjum en við
ákváðum að gefa það út sjálfir.
Fengum í lið með okkur frábæran
fagmann til að útsetja, Snorra
Snorrason (Idol), og frábæra
söngkonu, Jónu Öllu Axelsdóttur.“
Þess má geta að Jóna Alla er ung
söngkona frá Akranesi sem m.a.
tók þátt í Voice Ísland.
Feykir óskar þeim félögum, Héðni
og Óla, lukku á poppbrautinni.
Hefur samið nokkur
hundruð texta
Svo birti aftur til – Ólafur H. Harðarson
Ólafur H. Harðarson er í lagahöfundateymi Two Spirits Music sem varð til í upphafi
árs 2019. Mynd af FB.
Ólöf og Skúli. MYND: AÐSEND
38/2019 7
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Að ég fékk
ekki hest í fermingargjöf, heldur
snyrtikommóðu sem var í tísku þá.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Ljósmóðir.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Forláta dúkkuvagn sem ég fékk frá
útlöndum.
Besti ilmurinn? Af nýslegnu grasi í
upphafi heyskapar.
Hvar og hvenær sástu núverandi
maka þinn fyrst? Hann Skúla minn
sá ég fyrst í hesthúsahverfinu á
Selfossi fyrir rúmum 40 árum.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Súpertramp.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Í heitum potti.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Missi af öllu, horfi
afskaplega lítið á sjónvarp.
Besta bíómyndin? Stella í orlofi og
Pretty Woman.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Jón Arnar
Magnússon frændi minn skorar
hátt.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Taka til, og er fljót
að því.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Rækjusalat, segir
Skúli.
Hættulegasta helgarnammið?
Allt nammi er hættulega gott, en
magnið er hættulegast.
Hvernig er eggið best? harðsoðið.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Óþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Undirferli og lygar.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? „Það fer aldrei ver en
illa” og „það er ekkert víst að þetta
mistakist”.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Þegar ég var að ríða út með
foreldrum mínum u.þ.b. 8 ára
og talaði svo mikið að ég var hás
þegar ég kom heim.
Þú vaknar einn morgunn í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu
til í að vera og hvað myndirðu
gera? Tia Toomey crossfitmeistari
síðustu þriggja ára. Fara á æfingu
og rústa þessu.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur (og af hverju)?
Náðarstund skorar hátt, hafði mikil
áhrif á mig.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Man ekki eftir neinu.
Hvaða þremur persónum vildirðu
bjóða í draumakvöldverð (og af
hverju)?Draumakvöldverðurinn
er með fjölskyldunni, börnum
og barnabörnum. Þetta er svo
skemmtilegt fólk.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Nútíðin er alltaf
best.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Það þýðir ekki að sitja
heima og lesa.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... Til Ítalíu
Framlenging:
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Ekkert
sérstakt sem mér finnst ég þurfa
að gera nema kannski að prufa
fallhlífarstökk, ef ég lofthrædda
manneskjan, gef ekki upp öndina
við það.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Ólöf Ólafsdóttir.
ÁRGANGUR: 1956.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Skúla Einarssyni og við eigum fjögur
uppkomin börn.
BÚSETA: Tannstaðabakki, Hrútafirði.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Ólafs
Nikulássonar og Magneu Kristínar Sigurðardóttur. Fædd og
uppalin á Selfossi.
STARF/NÁM: Bóndi með verslunarpróf og fullt af námskeiðum
tengdum búskap.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Haustið með sinni veðurblíðu og væntanleg
Kínaferð.
Hvernig nemandi varstu? Dugleg og samviskusöm.
Ólöf á Tannstaðabakka