Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 14
4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 30. MAÍ 2008
Víkin-Sjóminjasafnið á Grandanum er
ungt safn í örum vexti. Safnið opnar á
Hátíð hafsins, nú um helgina, eftir
umtalsverðar endurbætur og stækkun
á sýningarrými. Umhverfið er magnað
fyrir sjóminjasafn þar sem sjór og safn
verða að órjúfanlegri einingu.
Varðskipinu Óðni hefur verið lagt við
norðurenda hússins og verður hluti af
safninu, gegnt honum við bryggjuna
er Magni, fyrsta stálskipið sem smíðað
var á Íslandi, og í kví við Daníelsslipp
liggur Gullborgin.
Sigrún Magnúsdóttir, forstöðu-
maður safnsins, er afar ánægð með
framþróunina enda er safnið og vs.
Óðinn sannarlega heimsóknarinnar
virði.
Víkin-Sjóminjasafnið var fyrst
opnað á Hátíð hafsins árið 2005 með
metnaðarfullri sýningu í um 350
fermetra stórum sal á annarri hæð í
fyrrum frystihúsi Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. „Þá opnuðum við
Togarasýningu í tilefni af því að
hundrað ár voru liðin frá því að fyrsti
íslenski togarinn kom til landsins en
togaraútgerðin gjörbylti atvinnu-
háttum. Reykjavík þróaðist þá úr
fiskiþorpi í nútímalega höfuðborg,“
segir Sigrún. Hönnuður sýningarinnar
var Björn G. Björnsson.
Togarasýningin var opin allt þar til í
september á síðasta ári þegar safninu
var lokað vegna fyrirhugaðra
framkvæmda við húsið. „Veturinn
hefur verið viðburðaríkur og ein-
kennst af móttöku Óðins, breytingum
innanhúss og skipulagningu nýrra
sýninga en vissulega reyndu
byggingaframkvæmdir stundum á
þolrifin,“ segir hún en bætir síðan við:
„Þetta er auðvitað búið að vera mikil
áskorun en afar skemmtilegt tækifæri
að byggja upp sjóminjasafn hér á
Grandanum á mörkum tveggja heima,
miðbæjarlífsins og fiskihafnarinnar.“
Varðskipið Óðinn
Vs. Óðinn er orðinn hluti af safninu
og er að honum stórkostlegur
fengur því hann er hluti af merkri
sögu sem mikilvægt er að varðveita.
Skipið kom hingað til lands í
janúar 1960 og tók því þátt í öllum
þremur þorskastríðunum. „Útfærsla
fiskveiðilögsögunnar í 12 mílur og
síðan í 50 og loks 200 mílur varð
undirstaða að velmegun Íslendinga en
við þurftum að heyja harða baráttu
við Breta og Þjóðverja til þess að ná
yfirráðum yfir fiskimiðum okkar.
Einnig þjónaði Óðinn sem björgunar-
og hjálparskip í nær fimm áratugi,“
segir Sigrún.
Sigrún segir að til greina hafi komið
að selja Óðin í brotajárn en það verða
örlög flestra skipa. „Sem betur fór
stofnuðu velunnarar skipsins
hollvinasamtök sem fengu skipið til
eignar og afhentu það síðan safninu
til varðveislu,“ segir hún
Skipið sjálft er mjög forvitnilegt að
sjá en einnig verða þar gripir sem
tilheyrðu varðskipunum, eins og sjálft
leynivopnið, togvíraklippurnar, sem
skáru botnvörpurnar aftan úr bresku
togurunum. Óðinn liggur við bryggju í
víkinni við norðurenda
Sjóminjasafnsins og við sömu bryggju
er Dráttarbáturinn Magni.
Fjölbreyttar sýningar
í fimm sölum
Sigrún segir það breyta miklu fyrir
safnið að geta boðið gesti velkomna
Stórglæsilegt og endurbætt
sjóminjasafn á Grandanum
– Varðskipið Óðinn liggur við bryggju, opinn safngestum