Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Page 16

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Page 16
6 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 30. MAÍ 2008 Jóladagskvöld 1966. Ungur piltur, nýorðinn 18 ára, baksast niður Ægisgarð, þar sem Dettifoss liggur, á móti austan hvassviðri og snjókomu. Skipið á að fara klukkan 21:00 um kvöldið. Hann fór með pjönkur sínar um borð á Þorláksmessu en nú var komið að brottför. Honum hafði tekist, er skipið kom úr síðustu ferð, að sannfæra Ragnar Ágústsson 1. stýrimann um það að Guðjón, ráðningarstjóri hjá Eimskip, hefði sent hann um borð þar sem það vantaði viðvaning í einn túr. Hann fór aftur í, hafði fengið klefa bakborðsmegin aftur við stýrisvél þar sem hann átti eftir að vera næstu þrjú árin, klæddi sig í ullarnærföt og sokka, buxur, peysu og stígvél. Nýja vinnuvettlinga hafði hann keypt fyrir jólin, VÍR stóð á handarbakinu, einnig var hann með ullarvettlinga sem móðir hans hafði prjónað handa honum. Hann fór fram í hásetamessa, þar voru fyrir þeir sem unnu á dekkinu, Sigbjörn Þórðarson, eða Simbi bátur, Ingvi Zóf timburmaður, Jónas Guðmundsson, kallaður Jolli og eða síðasti Flateyingurinn en hann var frá Flatey á Skjálfanda, Ármann Guðjóns, kallaður Mannsi, Sæbjörn Valdimars, Pétur Ottesen og Siggi Sveins. Það var hrollur í mönnum, eftir að ganga frá öllu, „dönnids“ keðjur og vírar um öll þilför, eftir að fella bómurnar og skálka lúkur. Þá þurfti að athuga með sjóbúnað í lestum, frystilestarnar voru hálffullar af rússafiski og refafóðri en eftir var að lesta frysta síld á Austfjörðum. Í endalestunum var ýmis varningur, saltfiskur í botnlestunum, niðursuðuvara og mjöl á millidekki og höfuðdekki. Helvítis rok! Utan á Dettifossi liggur flutningaskipið Baccarat og fór það klukkan 20:00. „Jæja, drengir, við skulum fara að ganga frá,“ sagði Simbi, það mátti enginn segja jæja nema hann. Úti var helvítis rok en pilturinn var hvergi smeykur, hafði farið sem vélamessi fyrr á árinu og taldi sig færan í flestan sjó. Menn skiptu með sér verkum fram á og aftur á. Hann fylgdi í humátt á eftir Jolla, fannst hann vera maður sem hægt væri að treysta. Þeir fóru að tína saman „dönnidsinn“ og leggja saman í stroffur út við lunningu og bundu hann þar þannig að hann færi ekki út um allt þó eitthvað gæfi á. Ingvi Zóf gekk frá preseningunum á lúkunum, setti járnin í og fleygaði og síðan voru bómurnar felldar og gengið frá gertum. „Takið á móti Magna,“ heyrðist kallað ofan af brúarvæng, þar stóð Eyjólfur skipstjóri og gaf þessa skipun. Jolli tók piltinn með til að láta Magna fá vír út um stefnisklussið svo hann gæti dregið skipið frá bryggjunni. „Allir í endana“ „Taka landganginn,“ kallaði Ragnar. Var nú hlaupið aftur á til að aðstoða. Var öryggisnetið tekið og seftarabönd dregin úr sefturum og þeir teknir líka. Var landgangurinn nú hífður um borð og gengið frá honum en hann féll að lunningunni við miðskipið og var festur þar. „Allir í endana, það veitir ekkert af í þessu veðri,“ sagði Ragnar. „Þú verður fram á bakkanum í endunum,“ sagði Ragnar við piltinn, „hjálpar Jolla með springinn.“ En á bakkanum voru, auk Jolla og piltsins, þeir Ingvi Zóf á ankerisspilinu og Pétur. Aftur á voru svo Ármann, Sæbjörn og Siggi. Simbi bátur fór upp í brú að stýrinu því að bátsmaðurinn stýrði alltaf í stjórntökum. „Sleppa öllu að aftan,“ heyrðist kallað í gegnum veðrið því að ekki voru talstöðvar til að bera skilaboð, einungis hálfónýtir símar. „Sleppa öllu að framan nema spring,“ var kallað og voru þá framendarnir losaðir og hífðir um borð. „Passaðu þig, Jolli, það á að keyra í springinn,“ sagði Ragnar. Það heyrðist þegar vélinni var skotið í gang og skipið seig í springinn. Vírinn titraði eins og fiðlustrengur en hélt enda öflugur sabbi á endanum. Skipið seig frá að aftan en það gekk samt erfiðlega þar sem vindurinn hélt því að bryggjunni. Það fannst að vélarafl var aukið og skipið hreyfðist meira. „Sleppa springnum,“ heyrðist kallað og Jolli losaði upp á, á pollanum. Hafnarvörður í landi sleppti og lét sabbann vaða í sjóinn. „Helvítis asninn,“ heyrðist í Jolla. „Settu vírinn fyrir ferliðuna og svo á spilkoppinn,“ kallaði Jolli. Pilturinn var ekki klár á hvað hann meinti en fékk aðstoð og Ingvi Zóf var tilbúinn að setja spilið í gang. Vel gekk að ná vírnum og sabbanum inn. Skipinu var gefin ferð aftur á til að ná því frá bryggjunni og nötraði það stafna í milli. Seig það frá og tók Magni á um leið og sneri skipinu þannig að það stefndi á hafnarkjaftinn. Var nú sett á ferð áfram og sleppti Magni fljótlega dráttarvírnum og var hann dreginn inn. Gekk vel að komast út úr höfninni og lagðist lóðsbáturinn að síðunni þar sem lóðsleiðarinn hékk og var lóðsinum síðan sleppt fljótlega og sett á fulla ferð til Stöðvarfjarðar. Lens var út flóann og fyrir Garðskaga en er komið var fyrir Reykjanes var leiðinda slampandi á móti en þó gekk ferðin vel. Var nú raðað á vaktir og var pilturinn settur á fjögur átta vaktina með Jolla en það var fyrsta stýrimanns vaktin. Var hann settur í það að kenna piltinum að stýra skipinu þó svo að það væri sjálfstýring. „Því að það er nauðsynlegt að kunna að stýra,“ sagði Jolli, „það er alveg klárt,“ sagði hann með sínum sérstaka seim á „alveg klárt“. Gekk kennslan vel og náði pilturinn fljótt góðum tökum á að stýra skipinu enda lét skipið mjög vel að stjórn og þó svo að rattinu væri snúið hart í annað hvort borðið þá snerist það sjálft á miðskips þegar því var sleppt. Kúrsinn settur á Pólland Komið var til Stöðvarfjarðar aðfaranótt 27. desember og lagst við anker þar sem mikil hreyfing var og ekki vogandi að fara að bryggju. Var beðið fram á morgun en þá ákveðið að sigla til Fáskrúðsfjarðar og var komið þangað seinni part sama dags og lestuð þar frosin síld. Daginn eftir var farið aftur til Stöðvarfjarðar og gekk þá allt vel. Þaðan var farið til Eskifjarðar og síðan Norðfjarðar og skipið fyllt þar. Frá Norðfirði var farið undir miðnætti 30. desember eftir að búið var að „klarera“ skipið og haldið áleiðis til Gdynia í Pólandi. Gekk nú allt sinn vanagang um borð í skipinu en undirbúningur áramótaveislunnar var í höndum liðsins í rekstrarsjóninni en þar stjórnaði Sæli kokkur öllu en hann leysti Tona Líndal bryta af þennan túr. Halli kokkur útbjó veislumat ásamt Haffa, sem var annar kokkur, og Dóra hrút en það viðurnefni hafði hann fengið vegna frekar stórs nefs sem prýddi andlit hans, hann var búrmaður og var smörrebröð hans spesíal. Var að sjálfsögðu veislumatur alla daga, svínakjöt, hangikjöt og fleira góðmeti. Hafði pilturinn aldrei séð annað eins. Etið var á fimm stöðum í skipinu, skipstjórinn og yfirvélstjóri borðuðu í matsal farþega sem var fremst í miðbyggingunni, aðrir yfirmenn höfðu sinn messa stjórnborðsmegin og þar fyrir aftan var hásetamessinn. Bakborðsmegin voru svo tveir litlir messar, annar fyrir rekstrarsjónina og hinn fyrir tvo dagmenn í vél. „Ka erda mar“ Pilturinn hafði árið áður verið vélamessi og þjónaði þessum tveimur dagmönnum til borðs. Það voru öðlingarnir Óli Ólsen, sem seinna varð handknattleiksdómari, og Þorvarður Björnsson, kallaður Varði, og sem seinna sást á fótboltavöllum sem dómari. Þá þurfti pilturinn að vaska upp eftir þessa heiðursmenn, þrífa klefa allra vélstjóranna og dagmannanna og búa um rúm þeirra. Einnig þurfti hann að bursta skó vélstjóranna. Allt voru þetta hinir ágætustu menn. Gestur Óskar var yfirmeistari, kallaður Gestur í vél, Sveinn Hálfdanar en hann átti fjöldann allan af skóm og þurfti pilturinn að fara með skóna út á þrjú lúku til að bursta þá . „Viðra þá,“ sagði Sveinn. Sverrir var þriðji vélstjóri, alltaf brosandi, og Einar Einars fjórði vélstjóri. „Ka ereda mar, allir eins, allt eins,“ sagði hann alltaf ef honum mislíkaði eitthvað. Þá voru snillingar aðstoðarvélstjórar, Ingjaldur Narfi, kallaður Gjaldi, Hlöðver Einars, er fórst með Suðurlandinu seinna, Svavar Sigurðs og Siggi Jóhanns. Á þriðja degi var siglt fyrir Skagen og suður Kattegat, hinkrað aðeins fyrir utan Kaupmannahöfn hjá Middelgrundsfort, teknar farmskrár og pöntunarlistar áhafnarinnar og brytans sendar í land, síðan siglt með lóðs gegnum Eyrarsund og haldið inn í Austursjóinn. Að lokum var komið að strönd Póllands og lagst fyrir ankeri þann 4. janúar klukkan 6 um morguninn. Daginn eftir var skipið tekið inn og lagst við English Kai. Fram undan var 10 til 12 daga stopp og menn tilbúnir til að taka hraustlega á því. Vinna við losun á skipinu gekk skrykkjótt, þótti drengnum vinnubrögðin frumstæð í meira lagi, síldaröskjunum raðað á handtrillur sem svo voru hífðar upp á bryggju, því næst ýtt inn í lyftu í hrörlegri frystigeymslu og þar upp á 3. eða 4. hæð. Tók það eina 7 daga að losa síldina. Jólatúr með Dettifossi 1966 Þorbjörn Sigurðsson stýrimaður. Gjaldi reynir að fóta sig á þilfarsfarmi. Dettifoss í Kotka Finnlandi. Lúðvík Karl Friðriksson stýrimaður tók myndirnar með þessari grein og eru þær birtar með góðfúslegu leyfi hans.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.