Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 22
22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 30. MAÍ 2008
Nýlega komu til Ísafjarðar og Grinda-
víkur tvö ný björgunarskip sem
Slysavarnafélagið Landsbjörg gerir út.
Þau leysa af hólmi eldri björgunarskip
á þessum stöðum og hefur
Slysavarnafélagið Landsbjörg þar með
náð því markmiði sínu að vera með
björgunarskip staðsett hringinn í
kringum landið. Það eykur mjög
öryggi sjófarenda við Ísland og er
viðbragstími vegna björgunaraðgerða
nú orðinn innan við þrjár klukku-
stundir á því hafsvæði sem
Tilkynningaskyldan nær til.
Slysavarnafélagið Landsbjörg efndi
fyrir nokkrum misserum til
átaksverkefnisins Lokum hringnum.
Nafnið vísar til þess markmiðs að
félagið og deildir þess gerðu út
björgunarskip frá helstu stöðum við
strandlengjuna. „Það markmið hefur
nú náðst og með endurnýjun björgun-
arskipanna í Grindavík og á Ísafirði
teljum við þessi mál vera komin í gott
horf, í bili að minnsta kosti,“ segir
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Fjórtán skip
Rekstur björgunarskipa hefur jafnan
verið snar þáttur í rekstri
Slysavarnafélagsins Landsbjargar og
fyrirrennara þess. Verkefnið hófst
fyrst af alvöru árið 1989 þegar
björgunarskipið Henry A.
Hálfdanarson var keypt frá
konunglega breska sjóbjörgunar-
samfélaginu, RNLI.
Á þeim tíma voru sjóbjörgunar-
samtök í Evrópu að hefja endurnýjun
á flota sínum og bauðst
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu að
kaupa notuð skip frá þessum
samtökum á afar hagstæðu verði. Í
dag er félagið með 14 björgunarskip
sem staðsett eru í Reykjavík, á Rifi,
Patreksfirði, Ísafirði, Skagaströnd,
Siglufirði, Raufarhöfn, Vopnafirði, í
Neskaupstað, Höfn, Vestmannaeyjum,
Grindavík, Sandgerði og Hafnarfirði.
Öll skipin, utan eitt, eru af Arun-gerð,
16 metra löng og 41 brúttótonn.
Nýjasta skipið var smíðað árið 1990
en það elsta er frá 1976.
Fær í flestan sjó
„Björgunarskipin eru sjófarendum
mikilvæg. Með þeim er gerlegt að
koma til hjálpar á mjög skömmum
tíma og þau eru fær í flestan sjó. Við
höfum til dæmis oftsinnis komið
smábátasjómönnum til aðstoðar og
einnig dregið til hafnar stærri skip,
allt upp í 3.000 tonna mjölflutninga-
skip,“ segir Sigurður R. Viðarsson,
starfsmaður björgunarsviðs hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Hann segir björgunarskipin hafa verið
kölluð út um það bil hundrað sinnum í
fyrra, í öllum tilvikum vegna neyðar-
eða óvissuástands. Auk þess sé
nokkuð um að útgerðarfélög óski
undir öðrum kringumstæðum eftir
aðstoð. Þær beiðnir séu metnar í
hverju tilviki um sig og sinnt ef tök
leyfa.
Kaupin á björgunarskipunum voru
fjármögnuð úr sjóðum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar og
einnig var fé safnað á viðkomandi
stöðum. Auk þess lögðu N1, Sjóvá og
Samskip mikið af mörkum. Tillegg
Samskipa var flutningur á flestum
björgunarskipa frá Bretlandi. Rekstur
skipanna er svo fjármagnaður bæði
með föstu framlagi úr ríkissjóði auk
þess sem bakhjarlar félagsins, svo sem
Samskip, legga sitt af mökrum.
„Stuðningur þessara aðila er okkur
afar mikilvægur. Við eigum víða
góðvild að mæta,“ segir Kristinn
Ólafsson.
Í takt við tímann
Pálmar Óli Magnússon,
framkvæmdastjóri hjá Samskipum,
segir fyrirtækinu hafa verið bæði
ljúft og skylt að leggja þessu
verkefni lið með því að flytja
björgunarskipin hingað heim. „Við
leggjum mikið upp úr öryggismálum
sjómanna og þekkjum mikilvægi
þess að hafa öryggismálin í
lagi. Frekari uppbygging og
endurnýjun björgunarskipaflota
Slysavarnafélagsins Landsbjargar var
nauðsynleg. Skipin þurfa að vera í
takt við tímann, geta siglt lengra út og
farið hraðar yfir. Það er ánægjulegt að
sjá af hvaða metnaði og fagmennsku
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur
tekið á þessum málum. Við hjá
Samskipum eru afar stolt af því að
hafa fengið tækifæri til þess að leggja
þessu mikilvæga verkefni lið.“
– átaksverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar í höfn.
Búið að fjölga björgunarskipum hringinn í kringum landið í 14 og
endurnýja eldri skip.
Átt þú rétt á styrk?
Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfyrirtækja. Félagsmaður,
sem unnið hefur í a.m.k. 12 mánuði skv. kjarasamningi SA/LÍÚ við Sjómanna-
samband Íslands, hjá útgerðum innan LÍÚ, og greitt til aðildarfélags Sjómenntar
á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms.
Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Sjómanna-
samband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.
Ertu búinn að vera á sjónum
í eitt ár eða meira?
Langar þig að fara á
námskeið eða í
skóla?
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDSLANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA
Sjómennt • Fjöltækniskóla Ís lands • Háteigsvegi • 105 Reykjavík • Sími 522 3300 • Fax 522 3301
Nánari upplýsingar: www.sjomennt.is • sjomennt@sjomennt.is
Öryggi sjómanna
við Ísland betur tryggt
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar og Pétur
Óli Magnússon, framkvæmdastjóri hjá Samskipum.
Björgunarskip
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar eru allt í
kringum andið.