Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Lífið á 21. öldinni er ólíkt ölluþví sem við höfum kynnstáður í mannkynssögunni. Fólk lifir lengur en nokkru sinni fyrr og með tilkomu netsins höfum við breytt því hvernig við vinnum, verslum, leitum að upplýsingum, leikum okkur, lærum og hvernig við tengjumst öðru fólki. En á sama tíma og möguleikar okkar til að tengjast öðru fólki á rafrænan máta aukast, þá virðist einmanaleiki fara vaxandi í vestrænum samfélögum. Skaðleg áhrif Einmanaleiki er sú tilfinning sem við finnum fyrir þegar við upplifum skort á félagslegum tengslum. Sá sem er einn er því ekki endilega ein- mana og sá sem er innan um aðra getur verið einmana. Eftir því sem fjöldi þeirra sem upplifa einmanaleika hefur aukist hafa einnig komið betur í ljós þau fjölmörgu skaðlegu áhrif sem þessi tilfinning getur haft á líkamlega og andlega heilsu. Það er því sér- staklega mikilvægt nú, þegar COVID-19-faraldurinn dregur úr möguleikum okkar á samveru og veldur að sama skapi alvarlegum veikindum hjá mörgum sem sýkjast, að huga að þáttum sem geta dregið úr einmanaleika. Góð ráð til að draga úr einmana- leika:  Hlúa að þeim tengslum sem fyrir eru. Tilvalið er að gera eitthvað sam- an og skapa með því góðar minn- ingar. Það eflir líka tengslin að hjálpast að við þau verkefni sem fyr- ir liggja. Á tímum samkomubanns hafa margir nýtt sér rafræna mögu- leika, s.s. myndsímtöl, til að halda persónulegum tengslum við fjöl- skyldu og vini. Þetta er hægt að nýta áfram, t.d. fyrir þá sem eiga marga vini og/eða skyldmenni sem búa er- lendis, eða þá sem ekki eiga heim- angengt af öðrum orsökum.  Mynda ný tengsl í gegnum áhuga- mál, sjálfboðastarf, eða félagsstarf. Sem dæmi um aðstæður sem bjóða upp á tengslamyndun má nefna mat- reiðslunámskeið, sjálfboðastörf hjá Rauða krossinum, eða að byrja í kór.  Leita aðstoðar vegna andlegra erfiðleika, s.s. kvíða, þunglyndis eða lágs sjálfsmats, t.d. með því að leita til viðurkennds meðferðaraðila eða nýta sér til þess gerð námskeið. Lágt sjálfsmat og aðrir andlegir kvillar gera fólki erfiðara fyrir með að mynda og viðhalda góðum tengslum, og því til mikils að vinna. Engin skömm Það er engin skömm að því að vera einmana og upplifa vanlíðan, en mikilvægt er að leita sér aðstoðar áður en vandinn eykst og verður erf- iðari viðureignar. Heilsugæslustöðin þín er tilvalið fyrsta stopp, en flestar heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á sálfræðiþjónustu fyrir alla aldurs- hópa, auk þess sem hjúkrunarfræð- ingar á heilsugæslu geta veitt ráð- gjöf og stuðningsviðtöl. Einnig eru starfandi þrjú þverfagleg geð- heilsuteymi á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og uppbygg- ing slíkra teyma stendur nú yfir um land allt. Þjónusta geðheilsuteyma er ætluð þeim sem þurfa sérhæfðari aðstoð og þéttari stuðning til lengri tíma. Auk þess má leita aðstoðar í Hjálp- arsíma Rauða krossins, eða á net- spjalli Hjálparsímans 1717.is, og að lokum má nefna vefinn Heilsuvera- .is, þar sem er að finna ýmis góð ráð. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sumar Maður er manns gaman. Einmanaleikinn er skaðlegur Heilsuráð Höfundar eru starfsmenn í Geðheilsuteymi HH suður. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Verkefnið er mikilvægt ogþakklætið mikið. Við semstörfum í Kiwanishreyf-ingunni fáum oft skilaboð frá til dæmis foreldrum barna sem hafa lent í óhöppum á reiðhjólunum sínum, þar sem hjálmarnir hafa komið í veg fyrir að verr hafi farið. Við höldum því ótrauð áfram,“ seg- ir Petrína Ragna Pétursdóttir úr Kiwanisklúbbnum Sólborg í Hafnarfirði. Á höfuð og í réttar hendur Á hverju vori frá 2004 hafa Kiwanisumdæmið Ísland-Færeyjar og Eimskip fært öllum börnum í fyrsta bekk reiðhjólahjálm að gjöf. Er þetta gert í því skyni að tryggja öryggi ungra vegfarenda. Frá upp- hafi samstarfsins hafa verið gefnir um 65.000 hjálmar, en þeir eru jafnan afhentir börnum sem eru að ljúka 1. bekk grunnskóla. Í ár verða afhentir alls 4.660 hjálmar, það er til barna sem eru fædd árið 2013, og munu Kiw- anisfélagar sjá um að koma hjálm- unum í réttar hendur og á höfuð barnanna. Oftar er þetta gert í samvinnu við grunnskólana í hverri byggð. Sums staðar eru afhendingu með því lagi skorður settar, svo sem í Reykjavík, og þá eru aðrar leiðar farnar að marki. Næstkomandi mánudag, 11. maí, byrja Kiwanisklúbbarnir í Hafnarfirði, Eldborg, Hraunborg og Sólborg, á að afhenda hjálma til allra barna sem eru í grunnskólum þar í bæ. Venjan hefur verið sú að hóa saman í einu öllum börnum í árganginum sem hjálmana fær. Vegna reglna um fjöldatakmark- anir verða hóparnir hins vegar minni í ár. Afhendingin fram í Kiw- anishúsinu í Hafnarfirði að Hellu- hrauni 22 og á mánudaginn mæta þangað 1. bekkjarnemendur úr Engidals- og Víðidalsskólum. Svo rekur kapallinn sig áfram og síð- ustu krakkar koma í hús næstkom- andi föstudag. Til viðbótar því sem að framan er nefnt verða 200 reið- hjólahjálmar afhentir börnum á Grænlandi og 84 slíkir fara til krakka í Íslendingabyggðunum í Manitobafylki í Kanada. „Þetta er ákaflega skemmtilegt og gefandi verkefni. Væri þó aldrei framkvæmanlegt nema því aðeins að við njótum stuðnings Eimskips, sem leggur okkur til hjálma og flutning á þeim. Kiwanisfólk af- hendir þá svo til barna og foreldra, sem þetta kunna vel að meta. Við viljum hjálm á öll höfuð,“ segir Petrína Ragna Pétursdóttir. Hjálmar á öll höfuð Örugg! Kiwanismenn gefa öllum börnum í 1. bekk grunnskóla reið- hjólahjálma. 4.660 stykki í ár og þakklætið er mik- ið og einlægt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kiwanis „Þetta er ákaflega skemmtilegt og gefandi verkefni,“ segir Petr- ína Ragna Pétursdóttir um hjálmaverkefnið sem unnið er með Eimskip. Öruggar Hjólastelpur á heimleið úr skólanum sínum með hjálm á höfði. Afhending Sumarið með öllum hjólaferðunum er fram undan. Hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna sem Íþrótta- og Ólympíusamband Ís- lands stendur fyrir hófst í gærmorg- un með athöfn í Laugardalnum í Reykjavík. Þetta verkefni stendur fram til 26. maí og á þeirri tíð eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér umhverfisvænar og hag- kvæmar samgöngur með því að ganga eða hjóla rétt eins og for- ystufólk í þjóðmálunum gerði við setninguna í gær. Í vinnustaðakeppni Hjólað í vinn- una er keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta kflokkum út frá stærð vinnu- staða. Að auki er kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um ann- ars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði. Hjólreiðar eru í miklum vexti um þessar mundir, skv. frétt frá Reykja- víkurborg. Þeim sem hjóluðu um El- liðaárdalinn fjölgaði úr 11 þúsund í 25 þúsund í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Á Ægisíðu fjölg- aði hjólandi fólki úr tæplega 4.000 í apríl í fyrra í rúmlega 24 þúsund í ár. Verkefnið Hjólað í vinnuna hófst í gær Tekið á rás og hjólreiðar í Reykjavík verða æ vinsælli Ljósmynd/Aðsend Hjólað Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn við setningu verkefnisins í gær. VRóskar eftir tilboðum fyrir félagsmenn VR óskar eftir samstarfi við ferðaþjónustuaðila sem hafa áhuga á að veita félagsmönnumVR tilboð eða afslætti fyrir sumarið 2020. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 1. júní 2020. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: – Merki eða mynd til birtingar á vef VR – Stutt lýsing – Tengill á vefsíðu – Gildistími tilboðs Tilboð verða birt á vef VR – vr.is/tilbod VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.