Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Tímapantanir í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Hið gamalgróna Laxárfélag, sem hefur haft veiðiréttinn á stórum hluta Laxár í Aðaldal á leigu í áttatíu ár, mun ekki framlengja samning sinn um leiguna eftir sumarið í sum- ar. Upplýst var um lok samningsins í Sporðaköstum á Mbl.is en þar með lýkur lengsta viðskiptasambandi um leigu á laxveiðiá hér á landi. Laxárfélagið er sett saman úr þremur svokölluðum deildum sem eru kenndar við Akureyri, Húsavík og Reykjavík. Hafa félagar vitað mörg ár fram í tímann hvaða veiði- daga þeir eiga í ánni, tvisvar á sumri hver. Hafa hlutir í félaginu verið seldir fyrir háa upphæð, enda hefur veiði í Laxá löngum verið eftirsótt en hefur þó verið dræm síðustu ár. Stórlaxavonin er hvergi meiri í lax- veiðiám landsins en fjöldi veiddra fiska hefur dregist saman. Hefur stjórn Laxárfélagsins greint Veiði- félagi Laxá í Aðaldal frá því að samningurinn verði ekki endurnýj- aður eftir sumarið, eftir að samn- ingaviðræður skiluðu engu. Jón Helgi Björnsson frá Laxa- mýri, formaður veiðifélagsins, stað- festi lok samningsins í samtali við Eggert Skúlason á Mbl.is. „Þetta er náttúrlega ekki óskatíminn til að standa í svona breytingum þegar óvissa í þjóðfélaginu er svo mikil. Laxá mun hins vegar áfram renna og lax mun áfram ganga í hana og menn vilja áfram veiða í henni og þetta mun allt finna sér einhvern farveg.“ Hann bætti við að auðvitað væri þetta ekki óskatími til að skipta um leigutaka. Laxárfélagið á Vökuholt Heyrst hefur af bollalengingum um mögulega sameiningu veiði- svæða í ánni, en annað vinsælt svæði í ánni er kennt við Nesveiðar. Þá mætti mögulega nota hið stóra veiði- heimili Vökuholt, sem er í landi Laxamýrar, fyrir allt svæðið. Jón Helgi segir ýmislegt rætt en vill ekkert segja um það. „Fyrst er að klára þennan viðskilnað Laxár- félagsins og svo fara menn að vinna í framtíðinni. Við erum að ræða alla möguleika og það er allt opið í þeim efnum,“ segir Jón Helgi. „Það sem við stöndum hins vegar frammi fyrir er að þetta þarf að liggja fyrir í haust, hvert framhaldið verður, sérstaklega upp á sölu fyrir sumarið 2021.“ Og þegar spurt er hvort það komi til greina að bjóða svæðið út í óbreyttri mynd svarar hann að allt sé til skoðunar en ítrekar að engar ákvarðanir hafi verið teknar.“ Dræm veiði síðustu ár Það kemur mögulega til með að flækja málin við Laxá að Laxár- félagið á hið vel búna veiðihús Vöku- holt og bátana sem notaðir eru. Margir félagar í Laxárfélaginu haft haft orð á því að fráfall Orra Vigfússonar sumarið 2017 hafi markað upphafið að þessum enda- lokum, en auk þess að vera lykil- maður í starfsemi félagins um langt skeið var hann einnig með veiðileyfi margra félaga í umboðssölu og þá mikið til erlendra veiðimanna. Í umfjölluninni um málið á Mbl.is er líka rætt við Jón Helga Vigfússon, bónda á Laxamýri og veiðileiðsögu- mann við ána í fjölda ára. Hann segir félagsmenn Laxárfélagsins hafa ver- ið að eldast og kannski sé ein ástæða þessara lykta sú að ekki hafi tekist að endurnýja félagið sem skyldi. Í sumar verður veitt í ánni með óbreyttu sniði, í síðasta sinn. Veiðin í Laxá hefur verið döpur síðustu ár, aðeins 501 lax í fyrra á 17 stangir. 608 og 709 laxar árin þar á undan en síðasta áratug hefur veiðin fimm sinnum farið yfir þúsund laxa. efi@mbl.is Laxárfélagið yfirgefur Laxá  Breytingar í Aðaldal eftir 80 ára sögu Morgunblaðið/Einar Falur Breytingar Jón Helgi og Halla Bergþóra Björnsbörn frá Laxamýri með fyrsta lax sumarsins 2016 í Laxá, neðan Æðar- fossa. Jón Helgi er formaður veiðifélags árinnar og staðfestir að síðasta veiðisumar Laxárfélagsins sé að hefjast. Morgunblaðið/Einar Falur Stórlax Halla Bergþóra glímir við lax í Fosspolli neðan Æðarfossa. Land- eigendur þurfa að semja við nýja leigutaka eða finna annað fyrirkomulag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.