Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Í umfangsmiklum prófunum á veirulyfinu Remdesivir þykir það hafa flýtt bata sjúklinga sem smit- ast hafa af kórónuveirunni, COVID-19. Er þar með komið fram fyrsta lyfið sem að sönnu kemur að gagni gegn veikinni. Remdesivir var upphaflega þróað gegn veirum eins og SARS og MERS. En hvað er svo Remdesivir? Um er að ræða tilraunalyf með breiða verkun gegn veirum, fram- leitt af bandaríska lyfjarisanum Gilead Sciences sem fyrstur þróaði lyf gegn ebóluveirunni sem veldur blæðingarsótt. Í rannsókn á prím- ötum árið 2016 þótti það gefa viss- ar vonir og í framhaldi af því var lyfið metið í samanburði við tvö önnur í umfangsmikilli rannsókn sem fram fór í Lýðveldinu Kongó. Var það hins vegar lagt á hilluna því það þótti ekki auka á batahorf- ur sjúklinga eins mikið og hin mót- efnin tvö, tvö ónæmiskerfismótefni sem framleidd voru í tilraunastofu en voru eins og prótín sem mynd- ast í líkamanum þegar í hann berst mótefnavaki. Í febrúar síðastliðnum tilkynnti Ofnæmis- og sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (NIAID) að stofn- unin hefði dustað rykið af Remde- sivir til að prófa það gegn SARS- CoV-2, sýklinum sem veldur CO- VID-19. Var skýringin sögð sú að það hefði gefið viss fyrirheit í próf- unum gegn kórónuveirunum SARS og MERS í dýratilraunum. Hversu skilvirkt er það? Um nýliðin mánaðamót skýrði NIAID svo frá tilraunum sem náðu til á annað þúsund manns sem lagðir voru inn á spítala vegna veikinnar. Niðurstaða þeirra var að kórónuveirusjúklingar með önd- unarerfiðleika voru mun fljótari að ná sér en þeir sem gefin var lyf- leysa. Munaði þar 31% í tíma. „Þó svo niðurstaðan sé greini- lega jákvæð tölfræðilega séð er ár- angurinn í hófi,“ sagði Anthony Fauci, stjórnandi NIAID- stofnunarinnar, við fréttasjón- varpsstöðina NBC News. Með öðr- um orðum, þótt það geri menn heila af sjúkdómi sínum telst lyfið þó engin kraftaverkalausn. Það hefur „sannað hugmyndina að baki því“ sem gæti svo rutt betri lyfjum leiðina, á sama hátt og fyrstu lyfin sem þróuð voru gegn HIV- hættunni á níunda áratugnum og voru hvergi nándar nærri eins skil- virk og slík lyf nú til dags. Niðurstaðan bendir til að Remdesivir gæti lækkað dán- artíðnina – úr 11,7% í 8,0% – en hermt er að taka beri þessar tölur með varúð því þær séu ekki nógu stærðfræðilega marktækar. Mismunandi niðurstaða Uppgötvanirnar í bandarísku til- rauninni voru kynntar sama dag og niðurstöður smærri tilraunar birt- ust í breska læknablaðinu Lancet. Var því slegið föstu í henni að töl- fræðilega væri engin hagsbót af Remdesivir. Hún náði aðeins til rúmlega 200 manns í Wuhan í Kína sem valdir voru með slembiúrtaki, sem þykir vera æðsta regla gild- ismatsfræðanna. Máli skiptir þó að þessari rannsókn varð að hætta fyrr en ráð var fyrir gert. Ástæðan var sú að ekki fundust nógu margir sjúklingar og því var hún um fimm sinnum minni að umfangi en NIAID-rannsóknin. „Fjöldinn er of lítill til að draga stórar ályktanir,“ sagði Stephen Evans, sérfræðingur í lyfjafarald- ursfræðilegri tölfræði við London School of Hygiene & Tropical Medicine; skóla sem lætur sig hitabeltissjúkdóma varða. Hvenær fáanlegt? Remdesivir hefur nú þegar verið gefið sjúklingum um heim allan, bæði í klínískum tilraunum og utan spítalanna. Framleiðandinn, Gile- ad, hefur svarað „samúðarfullum“ beiðnum um notkun lyfsins til að fá neyðaraðgang fyrir það inn á ýmis landsvæði. Búist er við að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) gefi fyrir sitt leyti leyfi til notk- unar lyfsins í neyðarskyni sem myndi auka enn á notkunarmögu- leika þess áður en það öðlast fulla viðurkenningu sem læknislyf. „Ég ræddi við forstjóra FDA og þar vinna menn hörðum höndum. Bú- ast má við ákvörðun von bráðar,“ sagði áðurnefndur Fauci. Þar sem um flókið lyf er að ræða í framleiðslu og það gefið sem stungulyf en ekki í pilluformi hafa vaknað spurningar um hvort tak- marka þurfi framboð þess til að byrja með. Í opnu bréfi sem Daniel O’Day, stjórnarformaður Gilead, skrifaði fyrir helgi sagði hann að þá þegar hefðu 1,5 milljónir skammta verið fullgerðar eða nán- ast tiltækar. „Okkur hafði talist svo til að þetta dygði til meðferðar á 140.000 manns, miðað við 10 daga með- ferð,“ sagði O’Day og bætti því við að aðrar rannsóknir hefðu sýnt fimm daga meðferð allt eins skil- virka og tíu daga. Því mætti ná til fleiri en hann sagði fyrirtækið hafa ákveðið að gefa allt það Remdesiv- ir sem það réði nú yfir. Fyrirtækið er að skoða möguleika á að þróa lyfið sem úðalyf en engar vísbend- ingar gefnar um hvenær mætti vænta þess til notkunar. Hvernig vinnur það? Remdesivir er í flokki lyfja sem ráðast beint til atlögu gegnum vír- usum. Það heyrir svonefndum núkleótíðum til sem herma eftir adenósíni, sem er eitt af fjórum undirstöðuefnum kjarnsýranna RNA og DNA. „Vírusinn gætir sín ekki á því hvað hann gengur inn í,“ sagði veirufræðingurinn Benjamin Neuman, við Texas A&M háskól- ann bandaríska. „Þeir reyna að flýta sér sem mest og bitnar hrað- inn á varúðinni.“ Remdesivir laumar sjálfu sér á lævísan hátt inn í erfðamengi kór- ónuveirunnar í stað adenósínsins sem slekkur á fjölgun veirunnar. Við athöfnina í síðustu viku sagði yfirlæknir Gilead-lyfjarisans að sjúklingar í tilraununum sem sýnt hefðu styttri sjúkdómseinkenni virtust hafa svarað lyfjagjöfinni betur. Þeir sem veikari voru hefðu einnig haft einhvern ávinning af lyfinu. Þetta væri sakir þess að veiran hrindir af stað óeðlilegum ónæmisviðbrögðum, umfrym- isskiptingu, sem skaðað geta lung- un. „Með því að takmarka eftir- myndun veirunnar minnkar bólg- an, færri verða fyrir lungnaskaða og þeir losna fyrr en ella úr öndunarvélinni,“ sagði Parsey. Sjúkir komast fyrr á fætur  Lyfið Remdesivir laumar sjálfu sér á lævísan hátt inn í erfðamengi kórónu- veirunnar í stað adenósínsins og slekk- ur á tímgunarferli veirunnar Önnur lyf og meðferðir sem verið er að rannsaka Önnur veirulyf sem verið er að rannsaka eru: Efla viðbrögð ónæmiskerfisins Beisla ónæmiskerfið Remdesivir gegn kórónuveiru Heimildir: newsscientist.com/covid19treatmentguidelines.nih.gov/gilead.com Veirulyf: stöðvar eða hægir á því að veiran myndi eftirmyndir af sjálfri sér Líftæknifyrirtæki, á borð við Ab- Cellera í Kanada og Regeneron í Bandaríkjunum hafa fundið mótefni sem lofa góðu Bandarísk stjórnvöld samþykktu 1. maí að nota mætti lyfið við kórónuveirusýkingu Svissneska fyrirtækið Roche rann- sakar áhrif liðagigtarlyfsins tocilizumab, en það örvar cytokine-prótein sem hraða viðbrögðum ónæmiskerfisins Einnig er verið að rannsaka áhrif annars gigtarlyfs, sarilumab Rannsóknir standa einnig yfir á því að nota blóðvökva úr sjúkling- um sem hafa náð bata Hydroxychloroquine, notað við malaríu og sjálfsónæmi, einnig er verið að rannsaka hugsanleg áhrif þess á veirur Remdesivir: ræðst gegn fjölföldun veirunnar Greina mótefni sem bregðast við kórónuveirunni og nýta þau Vinnur gegn ýktum og skaðlegum viðbrögðum ónæmiskerfisins, svonefndum cytokine-stormum Lungnablöðrur Venjuleg ónæmis- viðbrögð Skaðleg við- brögð Bólgur AFP Veirulyf Lyfið Remdesivir sem not- að er við kórónuveirusýkingu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.