Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Er ekki kjörið að grilla um helgina?
Úrval af kjöti á grillið – Kíktu við!
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Óvæntur úrskurður þýska stjórn-
lagadómstólsins í fyrradag hefur
hleypt mikilli óvissu í tilraunir Evr-
ópusambandsins til þess að finna
sameiginlega lausn fyrir ríki evru-
svæðisins á kórónuveirukreppunni.
Stjórnlagadómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að Seðlabanki Evr-
ópu hefði líklega farið gróflega fram
úr heimildum sínum við kaup á
skuldabréfum vegna kórónuveirunn-
ar, en upphæð þeirra nemur nú um
2.200 milljörðum evra. Um leið hefði
bankinn óbeint seilst inn í fjárveit-
ingarvald þýska sambandsþingsins.
Gaf dómstóllinn bankanum þrjá
mánuði til þess að sanna að meðal-
hófi hefði verið fylgt við skuldabréfa-
kaupin, ellegar yrði Seðlabanka
Þýskalands meinað að taka frekari
þátt í magnbundinni íhlutun evr-
ópska bankans.
Niðurstaða dómstólsins kemur á
einkar óheppilegum tíma fyrir fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
sem leggur nú allt kapp á að finna
sameiginlega lausn á kórónuveiru-
kreppunni.
„Söguleg kreppa“ framundan
Verkefnið er brýnt, því fram-
kvæmdastjórnin varaði í gær við því
að samdráttur á evrusvæðinu myndi
ná um 7,7% á þessu ári, sem aftur
myndi leiða af sér „sögulega
kreppu“. Um leið er spáð örum hag-
vexti á næsta ári, upp á 6,3%, en
framkvæmdastjórnin varaði við því
að batinn myndi ekki dreifast jafnt á
evruríkin.
Sagði Paolo Gentiloni, fram-
kvæmdastjóri sambandsins í efna-
hagsmálum, að ef sum ríki svæðisins
drægjust um of aftur úr öðrum gæti
það hæglega ógnað framtíð evrunn-
ar og innri markaði Evrópusam-
bandsins, en að um leið væri hægt að
koma í veg fyrir hana með sameigin-
legum aðgerðum.
Vandinn er ekki síst sá, að Evr-
ópusambandsríkin í „norðri“, eins og
Holland og Þýskaland, eru í mun
betri stöðu til þess að veita innspýt-
ingu í hagkerfi sín en ríki eins og
Ítalía og Spánn, sem einnig hafa far-
ið verr út úr faraldrinum heldur en
ríkin í norðri. Á sama tíma hafa Hol-
lendingar og Þjóðverjar verið heldur
tregir til þess að grípa til sameigin-
legra aðgerða á vettvangi Evrópu-
sambandsins, sem gæti þýtt að
skuldir ríkjanna í suðri vegna kór-
ónuveirunnar myndu enda á þeirra
herðum.
Sett ofan í við dómstól ESB
Til að greiða úr þeirri pattstöðu
hefur Seðlabanki Evrópu gripið til
þess ráðs að veita ríkulegar innspýt-
ingar upp á milljarða evra og keypt
skuldabréf á móti í stórum stíl, en
þau kaup eru nú í uppnámi vegna
niðurstöðu stjórnlagadómstólsins.
Það vakti sérstaka athygli að fyrir
utan „viðvörunarskot“ stjórnlaga-
dómstólsins þýska í átt að Seðla-
banka Evrópu, setti hann einnig ofan
í við dómstól Evrópusambandsins og
sagði að afstaða hans til meðalhófs í
þessu efni væri „óskiljanleg“ og í
engu samræmi við afstöðu dómstóls-
ins á nánast öllum öðrum sviðum
Evrópuréttar. Ályktaði stjórnlaga-
dómstóllinn því sem svo að dómarar
Evrópudómstólsins hefðu farið út
fyrir lagalegar heimildir sínar.
Þetta er í fyrsta sinn frá upphafi
Evrópusamrunans árið 1957 sem
stjórnlagadómstóllinn kemst að
þeirri niðurstöðu að ákvarðanir og
gerðir evrópskra stofnana hafi brot-
ið í bága við þýsku stjórnarskrána,
en stjórnlagadómstóllinn hefur aldr-
ei viðurkennt að lög og reglur Evr-
ópusambandsins séu rétthærri en
þýska stjórnarskráin.
Um leið benti stjórnlagadómstóll-
inn á það sérstaklega í úrskurði sín-
um að Lissabon-sáttmálinn hefði
ekki sett lög ESB ofar lögum aðild-
arríkjanna, og að Evrópusambandið
væri ekki sambandsríki.
Hörð rimma framundan?
Sú ályktun kallaði á svar frá
Brussel, og sagði talsmaður fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins það vera skoðun sambandsins, að
lög þess væru rétthærri lögum aðild-
arríkjanna, og að ríki þess hefðu fall-
ist á að vera bundin af úrskurðum
dómstóls Evrópusambandsins.
Framundan gæti því verið hörð laga-
leg rimma um stöðu Evrópuréttar
innan Þýskalands, eins helsta for-
ysturíkis Evrópusambandsins.
Um leið virðist nokkuð ljóst, að til-
raunir til þess að leysa kórónuveiru-
kreppuna með útgáfu sameiginlegra
„kórónuskuldabréfa“ muni rekast á
þýsku stjórnarskrána og komi því
ekki til greina.
Ríkisstjórnir Spánar og Ítalíu
gætu því verið nauðbeygðar til þess
að sækja um neyðarlán til Seðla-
banka Evrópu, en þær hafa verið
tregar til þess að stíga slík skref,
ekki síst í ljósi þess fordæmis sem
Grikklandskreppan 2012 gaf, þar
sem harðir skilmálar fylgdu neyðar-
láni bankans.
Úrskurður stjórnlagadómstólsins
hefur því leitt til stórra spurninga
um framvinduna innan Evrópusam-
bandsins og hvernig það muni leysa
úr þeirri stöðu sem kórónuveiru-
faraldurinn færði því.
Óttast um framtíð evrunnar
Allt stefnir í harðan samdrátt innan evrusvæðisins Stjórnlagadómstóll
Þýskalands vekur á sama tíma erfiðar spurningar um hvernig bregðast megi við
AFP
Þinghald Stjórnlagadómstóll Þýskalands setti ofan í við Seðlabanka Evrópu fyrir skuldabréfakaup sín.
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti tilkynnti í
gær að sér hefði
snúist hugur og
að stýrihópur
Hvíta hússins í
baráttunni gegn
kórónuveirunni
yrði ekki leystur
upp á næstunni.
Trump sagði í
fyrradag að stýrihópurinn myndi
mögulega hætta störfum strax um
næstu mánaðamót, en í gær sagði
forsetinn hópinn hafa staðið sig frá-
bærlega og því væri þörf á að stýri-
hópurinn héldi áfram og einbeitti
sér að því að koma Bandaríkjunum
aftur á skrið eftir faraldurinn á
öruggan hátt.
Trump hefur áður varað við því
að efnahag Bandaríkjanna standi
ógn af því að sóttvarnaraðgerðum
verði haldið of lengi til streitu, en
deilt er um það vestanhafs hvenær
rétti tíminn til að aflétta þeim sé.
Stýrihópurinn ekki
leystur upp í maí
Donald
Trump
BANDARÍKIN
Bandaríski auð-
kýfingurinn Elon
Musk og söng-
konan Grimes til-
kynntu í gær að
þau hygðust
nefna nýfætt
barn sitt því
óvenjulega nafni
X Æ A-12 Musk.
Ekki fylgdi til-
kynningunni
hvernig ætti að bera nafnið fram,
og ekki er vitað um kyn barnsins.
Musk greindi frá nafngiftinni á
samskiptamiðlinum Twitter, þar
sem hann hefur stundum ákveðið
að bregða á leik og töldu sumir
fylgjendur Musks að hér væri um
grín að ræða. Móðirin bætti þó um
betur og útskýrði fyrir hvað hver
hluti nafnsins ætti að standa, en Æ-
ið sagði hún vera „álfaskrift“ fyrir
japanska orðið Ai, sem þýðir ást, en
það gæti einnig staðið fyrir AI, eða
gervigreind.
Segja barn sitt
heita X Æ A-12
Elon
Musk
BANDARÍKIN
Kínversk stjórnvöld gagnrýndu
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á nýjan leik í gær og
sögðu hann ekki búa yfir „neinum
gögnum“ sem gætu sannað að kór-
ónuveirufaraldurinn ætti rætur sín-
ar að rekja til veirurannsóknastofu í
Wuhan-borg.
Hua Chunying, talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins, sagði
að Pompeo hefði talað mikið en ekki
lagt fram nein gögn, þar sem engin
gögn væru fyrir hendi.
„Ég tel að vísindamönnum og heil-
brigðisstarfsfólki ætti að vera falin
þessi spurning, en ekki stjórnmála-
mönnum sem ljúga til að ná fram
markmiðum sínum á heimaslóð,“
sagði hún á blaðamannafundi ráðu-
neytisins. Hvatti hún jafnframt
Bandaríkjastjórn til þess að hætta
að beina spjótum sínum að Kína og
einbeita sér að því að bjarga banda-
rískum mannslífum.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, hefur lýst því yfir að hún bíði
eftir því að geta tekið þátt í rann-
sóknum á uppruna kórónuveirunnar
innan Kína og því hvernig hún náði
að fara úr dýrum og yfir í menn.
Chun Yen, sendiherra Kínverja
hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf,
sagði hins vegar í gær að Kínverjar
myndu ekki bjóða alþjóðlegum sér-
fræðingum til landsins til að rann-
saka uppruna kórónuveirunnar, fyrr
en „lokasigurinn“ yfir faraldrinum
hefði náðst.
„Það er ekki svo að við séum með
ofnæmi fyrir rannsóknum, fyrir-
spurnum eða skoðunum,“ sagði
Chen, heldur væru Kínverjar nú að
einbeita sér að því að sigrast á far-
aldrinum. Þá þyrfti rannsókn á upp-
hafi veirunnar að fara fram við „rétt
andrúmsloft“, þar sem ítrekaðar
ásakanir í garð Kínverja hefðu náð
að menga það.
Deila enn um
upphaf veirunnar
Engin rannsókn
fyrr en faraldr-
inum lýkur
AFP
Veirur Rannsóknarstofan í Wuhan
hefur orðið að bitbeini stórveldanna.