Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 33
33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Á vaktinni Það ber margt fyrir augu í Mjóddinni í Reykjavík og þessi fylgdist grannt með. Eggert Borgin hefur ekki safnað forða í hlöður sínar. Í mesta tekjugóðæri Íslandssögunnar hafa skuldir hækkað gríðar- lega. Á síðasta góðærisárinu hækkuðu skuldir samstæð- unnar um 21 milljarð. Útgjöld hækkuðu um 7% og laun um 8%. Fjárfestingar langt um- fram tekjur. Eina einingin sem skilar góðum hagnaði er félagið Félagsbústaðir. Þar á bæ er hagnaðurinn 4,5 milljarðar á síðasta ári. Hagnaðurinn er nákvæmlega sama tala og heildartekjur þessa „óhagnaðardrifna“ hlutafélags. Bókfærður hagnaður Fé- lagsbústaða er ekki ósvipaður og hagnaður Orkuveitunnar eins og hún leggur sig. Þrátt fyrir þennan mikla hagnað hækka skuldir Félagsbústaða um meira en fimm milljarða. Hvernig má það vera? Þegar nánar er að gáð kemur í ljós að endurmat á virði fé- lagslegs húsnæðis er hækkað um 4.800 milljónir á síðasta ári. Eignir sem ekki stendur til að selja. Samtals er búið að end- urmeta félagslegar íbúðir borgarinnar um 57 milljarða króna. Eigið fé samstæðu borgarinnar er þessum 57 milljörðum hærra en annars væri. Þetta er froða. „Af- gangur“ af rekstri borgarinnar hefur aldrei skilað sér inn á bankabókina síðustu árin. Þess vegna hafa skuldir hækkað svona mik- ið. Skuldir og skuldbindingar samstæðu borgarinnar standa nú í 324 milljörðum. Græn skuldabréf og félagsleg skuldabréf eru líka skuldir. Hold er mold hverju sem það klæðist. Biðja samt um ríkisaðstoð Síðasta ár var fyrsta heila ár núverandi meirihluta í borgar- stjórn. Af orðum borgarstjóra mætti ætla að borgin stæði sterkt og væri í góðum færum til að mæta mótlætinu. Sterk fjárhagsstaða. Það er því mót- sagnakennt þegar borgarstjóri kallar nú eftir ríkisaðstoð og fjárhagsaðstoð Seðlabankans. Hann er í ósamræmi við eigin málflutning um að allt sé í himnalagi. Borgin glímir ekki við tekjuvanda enda eru skattar og gjöld í hæstu hæðum. Ekkert sveitarfélag á höf- uðborgarsvæðinu er með jafn hátt útsvar og borgin. Vandi borgarinnar er útgjaldavandi og þess vegna hafa skuldir hækkað um tugi milljarða síðustu árin. Góðærisárin. Lausnin felst ekki í frekari skuldsetningu borgar- innar. Hvað þá að fjárfesta fyrir milljarða í malbikunarstöð við Esjumela eins og fyrir- hugað er. Leiðin fram á við er að borgin ein- beiti sér að kjarnastarfsemi sinni, hagræði og nútímavæði þungt stjórnkerfið. Liðki til og létti byrðar. Það er leiðin upp á við. Eftir Eyþór Arnalds » „Afgangur“ af rekstri borg- arinnar hefur aldrei skilað sér inn á bankabókina síðustu árin. Þess vegna hafa skuldir hækkað svona mikið. Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Froða í stað forða Í dag fer fram á Alþingi um- ræða um skýrslu utanríkis- og þróunarsamvinnuráherra en þessi árlega skýrslugjöf til Al- þingis er gott tilefni til þess að ræða um stöðu og hlutverk utan- ríkisþjónustunnar á hverjum tíma. Áttatíu ára afmæli utanrík- isþjónustunnar 10. apríl síðastlið- inn var fagnað í skugga COVID-- 19-heimsfaraldursins sem hafði riðið yfir heimsbyggðina af full- um þunga. Þjóðir heims stóðu ekki einungis frammi fyrir alvarlegri heilsu- farsógn heldur hugsanlega mestu heims- kreppu okkar tíma. Miklar breytingar hafa átt sér stað á utanríkisþjónustunni á þeim áttatíu árum sem liðin eru frá því að Íslendingar tóku þá gæfuríku ákvörðun að taka meðferð utan- ríkismála í eigin hendur en þrátt fyrir þær, eins og sú yfirgripsmikla skýrsla sem ég kynni Alþingi í dag ber með sér, þá er meg- inhlutverkið enn hið sama; að standa vörð um hagsmuni lands og þjóðar á erlendum vett- vangi. Umbætur skipta sköpum Skipulega hefur verið unnið að því að gera umbætur á íslensku utanríkisþjónustunni á undanförnum árum þannig að hún verði betur í stakk búin að mæta áskorunum samtímans. Líkt og við Íslendingar, og raunar heims- byggðin öll, höfum fengið að reyna síðustu mánuði og vikur getur stormur skollið á fyr- irvaralaust. Utanríkisþjónustan hefur staðið vaktina ötullega síðustu vikur og sýnt í verki að hún var í stakk búin til þess að takast á við þessar erfiðu aðstæður. Aukinn sveigjanleiki og áhersla á upplýsingaöflun og upplýsinga- gjöf eru á meðal þeirra umbóta sem reynst hafa vel og hafa gert okkur kleift að vinna að því sem einn maður að aðstoða hátt í 12 þús- und Íslendinga sem voru erlendis þegar far- aldurinn braust út. Starf kjörræðismanna um allan heim hefur sömuleiðis skipt sköpum í þessari vinnu. Heimsfaraldurinn hefur reynt mjög á sam- starf milli þjóða og því miður hefur reyndin í sumum tilfellum orðið sú að samstaða og sam- starf hefur látið í minni pokann fyrir öðrum sjónarmiðum. Í fleiri tilvikum þó hefur eining ríkt á meðal helstu samstarfsríkja um að standa vörð um alþjóðlegt samstarf og af verkefnum borgaraþjónustunnar að undan- förnu að dæma er ljóst að norrænt samstarf hefur ríkulega sannað gildi sitt. Verkefni síðustu vikna hafa verið ærin. Hörð samkeppni hefur ríkt á heimsvísu um nauðsynjavörur fyrir heilbrigðisgeirann og hefur utanríkisþjónustan lagt sig fram um að liðka fyrir innflutningi á þeim vörum. Sendiráð Íslands í Kína hefur greitt fyrir kaupum og flutningum á vörum þaðan og með samstilltu átaki innan stjórnsýslunnar tókst á met- hraða að ganga frá samningum um sameiginleg innkaup á lækn- ingavöru í Brussel og komaí veg fyrir að Evrópusambandið setti á útflutningsbann til EFTA- ríkjanna á tilteknum hlífðarbún- aði fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Útflutningshagsmunir í fyrirrúmi Á tímum COVID-19-heimsfaraldursins hef- ur utanríkisþjónustan einnig aðstoðað fjöl- mörg íslensk fyrirtæki. Sem dæmi má nefna aðstoð við Eimskip til að koma áhöfn nýs Dettifoss, alls 17 manns, inn til Kína svo að sigla megi skipinu, sem hefur verið í byggingu í Kína og er nú stærsta skip flota Eimskipa- félagsins, til Íslands. Þá hefur ráðuneytið unn- ið með Íslandsstofu að kortlagningu á því hvernig aðstoða megi hátæknifyrirtæki við að yfirstíga ferðatakmarkanir fyrir sérfræðinga svo þeir geti staðið við þjónustusamninga og, í samráði við önnur ráðuneyti og hagsmuna- aðila, leitað lausna á því hvernig hægt verði að útfæra ferðatakmarkanir svo kvikmyndafram- leiðsla geti farið hér fram. Þær breytingar sem gerðar voru nýlega á skipulagi og starf- semi Íslandsstofu hafa einnig reynst heilla- drjúgar við þessar erfiðu aðstæður. Snarpara viðbragð og náið samráð stjórnsýslunnar og atvinnulífsins á vettvangi Íslandsstofu er mik- ilvægara en nokkru sinni í yfirstandandi þrengingum. Ég hef ákveðið að beina kröftum utanríkisþjónustunnar í enn auknum mæli að útflutningshagsmunum Íslands á komandi vikum og mánuðum og mun sú ákvörðun birt- ast í forgangsröðum verkefna utanríkisráðu- neytisins. Við munum komast út úr þessum þrengingum en það mun ekki gerast sjálf- krafa. Aukin útflutningsverðmæti munu ráða úrslitum í þeim efnum, hér eftir sem hingað til. Forystuhlutverk á alþjóðavettvangi Í skýrslu minni til Alþingis nú er að finna heildstætt yfirlit yfir verkefni utanríkisþjón- ustunnar síðasta árið og það yfirlit undir- strikar hversu langt við höfum náð á þeim áttatíu árum sem liðin eru frá því við tókum þessi mál í okkar eigin hendur. Um síðustu áramót lauk átján mánaða setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Þar tók Ísland að sér forystuhlutverk í mannrétt- indamálum og vakti framganga okkar á stóra sviðinu verðskuldaða eftirtekt. Mannréttindi hafa alltaf verið fyrirferðarmikil í utanríkis- stefnu Íslands og á vettvangi mannréttinda- ráðsins heyrðist rödd okkar vel. Frumraun Ís- lands í ráðinu var að hluta til prófsteinn á getu íslensku utanríkisþjónustunnar til þess að tak- ast á við stór og vandasöm verkefni en segja má að Ísland hafi staðist þá prófraun með miklum sóma. Norræn samstaða í öryggis- og varnarmálum Sem fyrr er aðild Íslands að Atlantshafs- bandalaginu, ásamt tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin, hornsteinn í íslenskri utanrík- isstefnu þegar kemur að öryggis- og varnar- málum. Breytt öryggisumhverfi í Evrópu krefst aukins viðbúnaðar í okkar heimshluta og skýrir það umtalsverðar framkvæmdir á flugskýlum og öðrum mannvirkjum á örygg- issvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Að sama skapi hefur samvinna Íslands við aðrar Norð- urlandaþjóðir orðið umfangsmeiri og nánari. Bæði Svíar og Finnar eiga mikið og gott sam- starf við Atlantshafsbandalagið, þótt þær þjóðir standi utan bandalagsins. Það undir- strikar öðru fremur þá sameiginlegu öryggis- hagsmuni sem undir eru fyrir Norðurlanda- þjóðirnar. Undanfarið ár höfum við Íslendingar stýrt starfi Norðurskautsráðsins en ráðið er mik- ilvægasti samráðsvettvangurinn um málefni norðurslóða. Formennska Íslands hefur gefið tækifæri til þess að halda á lofti áherslumálum er lúta að sjálfbærri þróun: málefnum hafsins, loftslagsmálum og endurnýjanlegri orku. Ís- lensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að frið- samlegt samstarf og samvinna sé í öndvegi í samstarfi aðildarríkjanna. Þrátt fyrir aukna spennu á svæðinu hefur hingað til tekist að halda ágreiningsefnum stórvelda utan við þetta samstarf. Það er okkur kappsmál að svo verði áfram. Mikilvægustu markaðir í forgangi Á síðasta ári lagði ég á Alþingi í fyrsta sinn fram sérstaka skýrslu um EES-samninginn en fram að því hafði umfjöllun um samninginn verið hluti af reglulegri skýrslu utanríkis- ráðherra. Þessi nýbreytni undirstrikar mikil- vægi þessa einstaka samnings sem gjörbreytt hefur íslensku viðskiptaumhverfi allt frá gild- istöku hans fyrir aldarfjórðungi. Forsenda þess að lífskjör Íslendinga haldist áfram góð eru farsæl utanríkisviðskipti. Í því skyni hefur utanríkisráðuneytið lagt áherslu á að byggja upp enn nánara samstarf við Bandaríkin sem mynda stærsta einstaka markað íslenskra út- flytjenda. Á eftir Bandaríkjunum er Bretland mikilvægasta viðskiptaland Íslands og því hef- ur rík áhersla verið lögð á hagsmunagæslu Ís- lands vegna útgöngu Breta úr Evrópusam- bandinu. Samskipti þjóðanna hafa alla tíð verið náin en senn mun Ísland hefja samn- ingaviðræður við Breta um framtíðarsam- skipti þjóðanna. Ný hugsun í þróunarsamvinnu Innan utanríkisráðuneytisins hefur þróun- arsamvinna fengið aukið vægi. Ný þróunar- samvinnustefna var samþykkt á Alþingi fyrir ári en í henni endurspeglast áherslur Íslands um að nýta þá sérþekkingu sem við búum yfir á fjölmörgum sviðum við uppbyggingu innviða og atvinnuvega í þróunarlöndum í samvinnu við íslenskt atvinnulíf. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar hafa framlög til þróunar- samvinnu vaxið hröðum skrefum síðustu ár. Meira máli skiptir þó til lengri tíma sú hug- arfars- og stefnubreyting sem er að verða í þessum málum með aukinni þátttöku einka- aðila í þróunarsamvinnu. Án þátttöku atvinnu- lífs og einkaaðila munu þau markmið sem þjóðir heims hafa sett sér í þessum málum aldrei nást. Um þetta er að skapast skilningur og samstaða meðal ríkja heims og það er svo sannarlega mikilvægt. Aukin aðkoma Íslands- stofu að verkefnum á sviði þróunarsamvinnu er til marks um þessa áherslubreytingu af okkar hálfu en það er vonandi einungis vísir að því sem koma skal. Fyrir tveimur árum fögnuðum við Íslend- ingar aldarafmæli fullveldisins. Fullveldið var forsenda þeirra efnahagslegu framfara sem við nutum á 20. öldinni og eru grundvöllur þeirra lífskjara sem við njótum í dag. Ein mik- ilvægasta varðan á þeirri vegferð var þegar við tókum utanríkismálin í eigin hendur fyrir réttum áttatíu árum. Þá, eins og nú, voru að- stæður í heiminum krefjandi fyrir litla þjóð í ólgusjó heimssögulegra atburða. Við slíkar að- stæður er mikilvægt að geta treyst á öfluga utanríkisþjónustu til að gæta hagsmuna lands og þjóðar á alþjóðavettvangi. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson »Utanríkisþjónustan hefur staðið vaktina ötullega síð- ustu vikur og sýnt í verki að hún var í stakk búin til þess að takast á við þessar erfiðu að- stæður. Guðlaugur Þór Þórðarson Öflug utanríkisþjónusta sjaldan mikilvægari Höfundur er utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.