Morgunblaðið - 07.05.2020, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
Á vaktinni Það ber margt fyrir augu í Mjóddinni í Reykjavík og þessi fylgdist grannt með.
Eggert
Borgin hefur ekki safnað
forða í hlöður sínar. Í mesta
tekjugóðæri Íslandssögunnar
hafa skuldir hækkað gríðar-
lega. Á síðasta góðærisárinu
hækkuðu skuldir samstæð-
unnar um 21 milljarð. Útgjöld
hækkuðu um 7% og laun um
8%. Fjárfestingar langt um-
fram tekjur. Eina einingin sem
skilar góðum hagnaði er félagið
Félagsbústaðir. Þar á bæ er
hagnaðurinn 4,5 milljarðar á síðasta ári.
Hagnaðurinn er nákvæmlega sama tala og
heildartekjur þessa „óhagnaðardrifna“
hlutafélags. Bókfærður hagnaður Fé-
lagsbústaða er ekki ósvipaður og hagnaður
Orkuveitunnar eins og hún leggur sig. Þrátt
fyrir þennan mikla hagnað hækka skuldir
Félagsbústaða um meira en fimm milljarða.
Hvernig má það vera? Þegar nánar er að
gáð kemur í ljós að endurmat á virði fé-
lagslegs húsnæðis er hækkað um 4.800
milljónir á síðasta ári. Eignir sem ekki
stendur til að selja. Samtals er búið að end-
urmeta félagslegar íbúðir borgarinnar um
57 milljarða króna. Eigið fé samstæðu
borgarinnar er þessum 57 milljörðum
hærra en annars væri. Þetta er froða. „Af-
gangur“ af rekstri borgarinnar hefur aldrei
skilað sér inn á bankabókina síðustu árin.
Þess vegna hafa skuldir hækkað svona mik-
ið. Skuldir og skuldbindingar samstæðu
borgarinnar standa nú í 324 milljörðum.
Græn skuldabréf og félagsleg skuldabréf
eru líka skuldir. Hold er mold hverju sem
það klæðist.
Biðja samt um ríkisaðstoð
Síðasta ár var fyrsta heila ár
núverandi meirihluta í borgar-
stjórn. Af orðum borgarstjóra
mætti ætla að borgin stæði
sterkt og væri í góðum færum
til að mæta mótlætinu. Sterk
fjárhagsstaða. Það er því mót-
sagnakennt þegar borgarstjóri
kallar nú eftir ríkisaðstoð og
fjárhagsaðstoð Seðlabankans.
Hann er í ósamræmi við eigin
málflutning um að allt sé í
himnalagi. Borgin glímir ekki
við tekjuvanda enda eru skattar og gjöld í
hæstu hæðum. Ekkert sveitarfélag á höf-
uðborgarsvæðinu er með jafn hátt útsvar og
borgin. Vandi borgarinnar er útgjaldavandi
og þess vegna hafa skuldir hækkað um tugi
milljarða síðustu árin. Góðærisárin. Lausnin
felst ekki í frekari skuldsetningu borgar-
innar. Hvað þá að fjárfesta fyrir milljarða í
malbikunarstöð við Esjumela eins og fyrir-
hugað er. Leiðin fram á við er að borgin ein-
beiti sér að kjarnastarfsemi sinni, hagræði og
nútímavæði þungt stjórnkerfið. Liðki til og
létti byrðar. Það er leiðin upp á við.
Eftir Eyþór
Arnalds
» „Afgangur“ af rekstri borg-
arinnar hefur aldrei skilað
sér inn á bankabókina síðustu
árin. Þess vegna hafa skuldir
hækkað svona mikið.
Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna
í borgarstjórn.
Froða í stað forða
Í dag fer fram á Alþingi um-
ræða um skýrslu utanríkis- og
þróunarsamvinnuráherra en
þessi árlega skýrslugjöf til Al-
þingis er gott tilefni til þess að
ræða um stöðu og hlutverk utan-
ríkisþjónustunnar á hverjum
tíma. Áttatíu ára afmæli utanrík-
isþjónustunnar 10. apríl síðastlið-
inn var fagnað í skugga COVID--
19-heimsfaraldursins sem hafði
riðið yfir heimsbyggðina af full-
um þunga. Þjóðir heims stóðu
ekki einungis frammi fyrir alvarlegri heilsu-
farsógn heldur hugsanlega mestu heims-
kreppu okkar tíma. Miklar breytingar hafa átt
sér stað á utanríkisþjónustunni á þeim áttatíu
árum sem liðin eru frá því að Íslendingar tóku
þá gæfuríku ákvörðun að taka meðferð utan-
ríkismála í eigin hendur en þrátt fyrir þær,
eins og sú yfirgripsmikla skýrsla sem ég
kynni Alþingi í dag ber með sér, þá er meg-
inhlutverkið enn hið sama; að standa vörð um
hagsmuni lands og þjóðar á erlendum vett-
vangi.
Umbætur skipta sköpum
Skipulega hefur verið unnið að því að gera
umbætur á íslensku utanríkisþjónustunni á
undanförnum árum þannig að hún verði betur
í stakk búin að mæta áskorunum samtímans.
Líkt og við Íslendingar, og raunar heims-
byggðin öll, höfum fengið að reyna síðustu
mánuði og vikur getur stormur skollið á fyr-
irvaralaust. Utanríkisþjónustan hefur staðið
vaktina ötullega síðustu vikur og sýnt í verki
að hún var í stakk búin til þess að takast á við
þessar erfiðu aðstæður. Aukinn sveigjanleiki
og áhersla á upplýsingaöflun og upplýsinga-
gjöf eru á meðal þeirra umbóta sem reynst
hafa vel og hafa gert okkur kleift að vinna að
því sem einn maður að aðstoða hátt í 12 þús-
und Íslendinga sem voru erlendis þegar far-
aldurinn braust út. Starf kjörræðismanna um
allan heim hefur sömuleiðis skipt sköpum í
þessari vinnu.
Heimsfaraldurinn hefur reynt mjög á sam-
starf milli þjóða og því miður hefur reyndin í
sumum tilfellum orðið sú að samstaða og sam-
starf hefur látið í minni pokann fyrir öðrum
sjónarmiðum. Í fleiri tilvikum þó hefur eining
ríkt á meðal helstu samstarfsríkja um að
standa vörð um alþjóðlegt samstarf og af
verkefnum borgaraþjónustunnar að undan-
förnu að dæma er ljóst að norrænt samstarf
hefur ríkulega sannað gildi sitt.
Verkefni síðustu vikna hafa verið ærin.
Hörð samkeppni hefur ríkt á
heimsvísu um nauðsynjavörur
fyrir heilbrigðisgeirann og hefur
utanríkisþjónustan lagt sig fram
um að liðka fyrir innflutningi á
þeim vörum. Sendiráð Íslands í
Kína hefur greitt fyrir kaupum
og flutningum á vörum þaðan og
með samstilltu átaki innan
stjórnsýslunnar tókst á met-
hraða að ganga frá samningum
um sameiginleg innkaup á lækn-
ingavöru í Brussel og komaí veg
fyrir að Evrópusambandið setti
á útflutningsbann til EFTA-
ríkjanna á tilteknum hlífðarbún-
aði fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Útflutningshagsmunir í fyrirrúmi
Á tímum COVID-19-heimsfaraldursins hef-
ur utanríkisþjónustan einnig aðstoðað fjöl-
mörg íslensk fyrirtæki. Sem dæmi má nefna
aðstoð við Eimskip til að koma áhöfn nýs
Dettifoss, alls 17 manns, inn til Kína svo að
sigla megi skipinu, sem hefur verið í byggingu
í Kína og er nú stærsta skip flota Eimskipa-
félagsins, til Íslands. Þá hefur ráðuneytið unn-
ið með Íslandsstofu að kortlagningu á því
hvernig aðstoða megi hátæknifyrirtæki við að
yfirstíga ferðatakmarkanir fyrir sérfræðinga
svo þeir geti staðið við þjónustusamninga og, í
samráði við önnur ráðuneyti og hagsmuna-
aðila, leitað lausna á því hvernig hægt verði að
útfæra ferðatakmarkanir svo kvikmyndafram-
leiðsla geti farið hér fram. Þær breytingar
sem gerðar voru nýlega á skipulagi og starf-
semi Íslandsstofu hafa einnig reynst heilla-
drjúgar við þessar erfiðu aðstæður. Snarpara
viðbragð og náið samráð stjórnsýslunnar og
atvinnulífsins á vettvangi Íslandsstofu er mik-
ilvægara en nokkru sinni í yfirstandandi
þrengingum. Ég hef ákveðið að beina kröftum
utanríkisþjónustunnar í enn auknum mæli að
útflutningshagsmunum Íslands á komandi
vikum og mánuðum og mun sú ákvörðun birt-
ast í forgangsröðum verkefna utanríkisráðu-
neytisins. Við munum komast út úr þessum
þrengingum en það mun ekki gerast sjálf-
krafa. Aukin útflutningsverðmæti munu ráða
úrslitum í þeim efnum, hér eftir sem hingað
til.
Forystuhlutverk á alþjóðavettvangi
Í skýrslu minni til Alþingis nú er að finna
heildstætt yfirlit yfir verkefni utanríkisþjón-
ustunnar síðasta árið og það yfirlit undir-
strikar hversu langt við höfum náð á þeim
áttatíu árum sem liðin eru frá því við tókum
þessi mál í okkar eigin hendur. Um síðustu
áramót lauk átján mánaða setu Íslands í
mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Þar
tók Ísland að sér forystuhlutverk í mannrétt-
indamálum og vakti framganga okkar á stóra
sviðinu verðskuldaða eftirtekt. Mannréttindi
hafa alltaf verið fyrirferðarmikil í utanríkis-
stefnu Íslands og á vettvangi mannréttinda-
ráðsins heyrðist rödd okkar vel. Frumraun Ís-
lands í ráðinu var að hluta til prófsteinn á getu
íslensku utanríkisþjónustunnar til þess að tak-
ast á við stór og vandasöm verkefni en segja
má að Ísland hafi staðist þá prófraun með
miklum sóma.
Norræn samstaða í
öryggis- og varnarmálum
Sem fyrr er aðild Íslands að Atlantshafs-
bandalaginu, ásamt tvíhliða varnarsamningi
við Bandaríkin, hornsteinn í íslenskri utanrík-
isstefnu þegar kemur að öryggis- og varnar-
málum. Breytt öryggisumhverfi í Evrópu
krefst aukins viðbúnaðar í okkar heimshluta
og skýrir það umtalsverðar framkvæmdir á
flugskýlum og öðrum mannvirkjum á örygg-
issvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Að sama
skapi hefur samvinna Íslands við aðrar Norð-
urlandaþjóðir orðið umfangsmeiri og nánari.
Bæði Svíar og Finnar eiga mikið og gott sam-
starf við Atlantshafsbandalagið, þótt þær
þjóðir standi utan bandalagsins. Það undir-
strikar öðru fremur þá sameiginlegu öryggis-
hagsmuni sem undir eru fyrir Norðurlanda-
þjóðirnar.
Undanfarið ár höfum við Íslendingar stýrt
starfi Norðurskautsráðsins en ráðið er mik-
ilvægasti samráðsvettvangurinn um málefni
norðurslóða. Formennska Íslands hefur gefið
tækifæri til þess að halda á lofti áherslumálum
er lúta að sjálfbærri þróun: málefnum hafsins,
loftslagsmálum og endurnýjanlegri orku. Ís-
lensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að frið-
samlegt samstarf og samvinna sé í öndvegi í
samstarfi aðildarríkjanna. Þrátt fyrir aukna
spennu á svæðinu hefur hingað til tekist að
halda ágreiningsefnum stórvelda utan við
þetta samstarf. Það er okkur kappsmál að svo
verði áfram.
Mikilvægustu markaðir í forgangi
Á síðasta ári lagði ég á Alþingi í fyrsta sinn
fram sérstaka skýrslu um EES-samninginn
en fram að því hafði umfjöllun um samninginn
verið hluti af reglulegri skýrslu utanríkis-
ráðherra. Þessi nýbreytni undirstrikar mikil-
vægi þessa einstaka samnings sem gjörbreytt
hefur íslensku viðskiptaumhverfi allt frá gild-
istöku hans fyrir aldarfjórðungi. Forsenda
þess að lífskjör Íslendinga haldist áfram góð
eru farsæl utanríkisviðskipti. Í því skyni hefur
utanríkisráðuneytið lagt áherslu á að byggja
upp enn nánara samstarf við Bandaríkin sem
mynda stærsta einstaka markað íslenskra út-
flytjenda. Á eftir Bandaríkjunum er Bretland
mikilvægasta viðskiptaland Íslands og því hef-
ur rík áhersla verið lögð á hagsmunagæslu Ís-
lands vegna útgöngu Breta úr Evrópusam-
bandinu. Samskipti þjóðanna hafa alla tíð
verið náin en senn mun Ísland hefja samn-
ingaviðræður við Breta um framtíðarsam-
skipti þjóðanna.
Ný hugsun í þróunarsamvinnu
Innan utanríkisráðuneytisins hefur þróun-
arsamvinna fengið aukið vægi. Ný þróunar-
samvinnustefna var samþykkt á Alþingi fyrir
ári en í henni endurspeglast áherslur Íslands
um að nýta þá sérþekkingu sem við búum yfir
á fjölmörgum sviðum við uppbyggingu innviða
og atvinnuvega í þróunarlöndum í samvinnu
við íslenskt atvinnulíf. Í samræmi við stefnu
ríkisstjórnarinnar hafa framlög til þróunar-
samvinnu vaxið hröðum skrefum síðustu ár.
Meira máli skiptir þó til lengri tíma sú hug-
arfars- og stefnubreyting sem er að verða í
þessum málum með aukinni þátttöku einka-
aðila í þróunarsamvinnu. Án þátttöku atvinnu-
lífs og einkaaðila munu þau markmið sem
þjóðir heims hafa sett sér í þessum málum
aldrei nást. Um þetta er að skapast skilningur
og samstaða meðal ríkja heims og það er svo
sannarlega mikilvægt. Aukin aðkoma Íslands-
stofu að verkefnum á sviði þróunarsamvinnu
er til marks um þessa áherslubreytingu af
okkar hálfu en það er vonandi einungis vísir
að því sem koma skal.
Fyrir tveimur árum fögnuðum við Íslend-
ingar aldarafmæli fullveldisins. Fullveldið var
forsenda þeirra efnahagslegu framfara sem
við nutum á 20. öldinni og eru grundvöllur
þeirra lífskjara sem við njótum í dag. Ein mik-
ilvægasta varðan á þeirri vegferð var þegar
við tókum utanríkismálin í eigin hendur fyrir
réttum áttatíu árum. Þá, eins og nú, voru að-
stæður í heiminum krefjandi fyrir litla þjóð í
ólgusjó heimssögulegra atburða. Við slíkar að-
stæður er mikilvægt að geta treyst á öfluga
utanríkisþjónustu til að gæta hagsmuna lands
og þjóðar á alþjóðavettvangi.
Eftir Guðlaug
Þór Þórðarson »Utanríkisþjónustan hefur
staðið vaktina ötullega síð-
ustu vikur og sýnt í verki að
hún var í stakk búin til þess að
takast á við þessar erfiðu að-
stæður.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Öflug utanríkisþjónusta sjaldan mikilvægari
Höfundur er utanríkis- og
þróunarsamvinnuráðherra.