Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 35

Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 35
UMÆRÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is Cuero Mariposa Hannaður árið 1938 af: Bonet, Kurchan & Ferrari Leður stóll verð 149.000,- Leður púði verð 13.900,- Undanfarna daga og vikur hefur orðið gíf- urleg aukning í notk- un fjarfunda, fjar- námskeiða og ráðstefna á netinu. Tækni sem reyndar hefur lengi vel verið til staðar hefur nú loks fengið hljóm- grunn. Umbreytingarnar sem eiga sér stað með nýtingu fjarfunda- tækninnar leysa ýmis vandamál fólks, svo sem að geta unnið að heiman. Þessar lausnir hafa nú sýnt sig vera á margan hátt skil- virkari en hinar hefðbundnu leiðir til að funda og miðla upplýsingum og þekkingu. Þarf alltaf ógn til að hreyfa við skynseminni? Oft þegar harðnar á dalnum í samfélaginu er gripið til setningar- innar „neyðin kennir naktri konu að spinna“, því þá nær nýsköpun oft hæstu hæðum. Að okkar mati á þetta ekki alltaf við í nútíma sam- félagi. Síðustu áratugir hafa ein- kennst af mikilli nýsköpun og um- breytingum en mismunandi svið og geirar samfélagsins hafa hins vegar tekið misjafnlega vel í nýjungar. Ríkjandi viðhorf og starfshættir verða oft til þess að nýjungar eru seinteknar. Fyrirtæki og stofnanir eiga erfitt með að fylgja breyt- ingum eftir, hvað þá að verða leið- andi í að innleiða þær. Þetta á t.d. að hluta til við um fyrirkomulag menntunar hér á landi. Áskoranir menntastofnana og yfirvalda menntamála eru miklar um þessar mundir, ekki hvað síst hvað varðar tækni og samfélagslegar breyt- ingar. Það er nokkuð ljóst að ein af af- leiðingum faraldursins sem nú stendur yfir hefur og mun hreyfa við og gerbreyta viðhorfum og starfsháttum menntastofnana, kennara og skólayfirvalda. Menntun árið 2028 Á síðasta ári kom út skýrsla Framtíðarseturs Íslands, „Mennta- greining á grunn- og framhalds- skólastigi fyrir viðmiðunarárið 2028. Straumar og munstur í menntun“. Skýrslan byggist á könnun sem gerð var meðal kenn- ara og stjórnenda á grunn- og framhaldsskólastiginu. Markmið skýrslunnar var að skapa umræðu um þróun skólamála í ljósi hugs- anlegra tækni- og samfélagsbreyt- inga. Undanfarnar vikur höfum við skynjað miklar breytingar á skóla- starfi, bæði við miðlun þekkingar og mat á námsárangri vegna ástandsins sem skapast hefur í kjölfar Covid-19. Er athyglisvert í því sambandi að rýna framan- greinda skýrslu Framtíðarseturs- ins, en þar eru meðal annars dregnar eftirfarandi niðurstöður: „Það er umhugsunarefni að svar- endur telja ekki meiri líkur á, en raun ber vitni, að nám muni færast meira frá hefðbundnum skólastof- um og að nemendur verði skyldaðir til að nýta snjalltæki í skólastarfi. Í báðum tilvikum draga svör kennara líkurnar niður. Sú breyting hefur orðið síðustu tíu ár að stór hluti þekkingar í heiminum er tiltækur með nokkrum smellum á vefnum, hverjum þeim sem hefur aðgang að snjalltæki. Það hefur gefið öllum skólastigum veruleg tækifæri til að breyta og efla þekkingarmiðlun og það mun eingöngu eflast í náinni framtíð. Hluti þessarar þróunar er fjarnám sem nú þegar er stór þátt- ur í námi á flestum skólastigum, og þá sérstaklega í dreifðari byggðum landsins. Sú þróun og reynsla ætti að ýta enn frekar á slíka þróun, það er að segja að ná fram frekari skilvirkni á miðlun námsefnis eftir þörfum nemenda.“ Framtíðin í takt við nútímann Það sem svarendur töldu líkleg- ast að myndi einkenna náms- umhverfið árið 2028 er sambærilegt við þá stöðu sem einkenndi að mörgu leyti námsumhverfið fyrir COVID-19. Þessi niðurstaða vekur ýmsar spurningar um framþróun í skólastarfi. Það var þó ánægjulegt að svarendur könnunarinnar töldu að árið 2028 yrði rík áhersla í skólastarfi á gagnrýna hugsun, sköpun og að námsgreinar yrðu samþættar og verkefnamiðaðar. Þegar svarendur voru beðnir að forgangsraða áhrifamestu breyting- aröflunum í námi næstu fimm árin voru efstu þættirnir: Gagnrýnin hugsun, sköpun, verkefnamiðað nám, hugverkavernd og fagleg for- ysta. Stafræn þróun og miðlun lenti í níunda sæti. Stafræn leiðsögn sem hluti af vendinámi (e. flipped classroom) lenti í ellefta sæti. Það er einnig athyglisvert að nýting tæknilegra atriða er síðast í for- gangsröðun svarenda, ekki hvað síst kennara. Tækniatriðin sem rekja lestina eru forritun, snjall- tæki, skýlausnir, gervigreind og sýndar- og gagnaukinn veruleiki (e. augmented reality). Margt er gott en betur má ef duga skal Það er góðs viti að lögð verði rík- ari áhersla en verið hefur á sköpun og gagnrýna hugsun og þá kennslu- þætti sem efla nemendur. Hins vegar er nauðsynlegt að leyfa tækni að aðstoða kennara við að nálgast einstaklinginn, nemandann, á forsendum hans og það gerist ekki nema fjölbreytt sjónarmið fái að njóta sín og sú tækniþróun verði samþætt núverandi námi. En burtséð frá beinum áhrifum tækninotkunar á námsárangur þyk- ir nokkuð ljóst að tækni í námi og kennslu hefur að jafnaði jákvæð áhrif á áhuga og virkni nemenda í skólastarfi. Enn fremur hafa kenn- arar nýtt tæknina til þess að ein- staklingsmiða nám og tengja við fé- lagslegan veruleika nemenda með góðum árangri og er það mjög í samræmi við þær námskenningar sem hafa verið ríkjandi í skóla- starfi, s.s. kenningar Deweys, Piag- ets og annarra þekktra mennta- frömuða. Fagleg forysta og fyrirmyndardæmi Vissulega eru til góð dæmi um innleiðingar á nýjum starfsháttum í skólum hér á landi. Nefna má sem dæmi námsbraut Tækniskólans, K2, og svo skólastarf „NÚ – Ný framsýn menntun á grunnskóla- stigi“. Í öðrum skólum hafa fram- sæknir kennarar og stjórnendur tekið upp nýjungar og verið að fikra sig áfram á braut öflugrar þekkingarmiðlunar. Aðalnámskrá menntayfirvalda og stefnumótun málaflokksins rúmar þær breytingar sem eru að verða og eru fyrirsjáanlegar. Málið snýst fyrst og fremst um þær umbreyt- ingar á starfsháttum skóla og kenn- ara með nýtingu tækninnar, ekki hvað síst í tengslum við fjórðu iðn- byltinguna. Þar þurfa yfirvöld menntamála bæði í sveitarfélögum og á landsvísu að bregðast strax við með faglegri forystu og gera menntastofnunum kleift að rækta skyldur sínar gagnvart nemendum. Framtíð menntunar og fagleg forysta með breyttum viðhorfum Eftir Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson »Ein af afleiðingum faraldursins sem nú stendur yfir hefur og mun hreyfa við og ger- breyta viðhorfum og starfsháttum mennta- stofnana, kennara og skólayfirvalda. Karl Friðriksson Höfundar eru sérfræðingar í framtíðarfræðum. Framtíðarsetur Íslands. Sævar Kristinsson FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.