Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 36

Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 TIL LEIGU GRANDINN EYJARSLÓÐ 3 Upplýsingar gefur Ólafur í síma 892 5064 163m2 Atvinnuhúsnæði á jarðhæð með stórri innkeyrsluhurð. Næg bílastæði. Laus 1. júlí n.k. eða síðar skv. samkomulagi. 135m2 jarðhæð sem er einn salur með einum léttum millivegg. Frábært útsýni til norðausturs og næg bílastæði. Möguleiki á að setja upp innkeyrsluhurð. Laus 1. júní n.k. eða síðar skv. samkomulagi. EYJARSLÓÐ 9TIL LEIGU GRANDINN Ljóst er að yfir- standandi heims- faraldur mun hafa víð- tækar efnahagslegar afleiðingar. Ríkisstjórn Íslands hefur gripið til umfangsmikilla að- gerða svo hefta megi útbreiðslu veirunnar, standa vörð um af- komu heimilanna og undirbúa kröftuga sókn fyrir íslenskt atvinnulíf. Margir hafa beðið aðgerða frá Reykjavíkur- borg sem tryggt gætu vernd og við- spyrnu fyrir fólk og fyrirtæki. Í marsmánuði kynnti Reykjavík- urborg fyrstu aðgerðir vegna COVID-19. Aðgerðirnar voru hóf- stilltar og raunhæfar og um þær skapaðist sæmileg sátt. Frá þeim tíma hafa sviðsmyndir breyst – fram undan er dýpri efnahagslægð en nokkurn gat grunað. Hafi einhver talið aðgerðirnar máttlausar í upp- hafi má sannarlega fullyrða nú að þær séu máttvana innlegg í alvarlega stöðu borgarinnar. En hvers vegna gerði borgin ekki meira? Öðru fremur sterkur fjár- hagur? Árið 2017 höfðu tekjur borgar- innar aukist um 30 milljarða árlega frá upphafi kjörtímabils. Samhliða jókst skuldsetning um 30 milljarða. Tekjugóðærið var ekki nýtt til skuldaniðurgreiðslu. Borgarstjóri bjó ekki í haginn fyrir mögru árin. „Í stað þess að skapa svigrúm til fjárfestinga í framtíðinni ætlar borg- arstjórinn að fjárfesta eins og aldrei fyrr á toppi hagsveiflunnar og skera svo harkalega niður eftir því sem um hægist og þörf fyrir slíkar fjárfest- ingar eykst.“ Þessi réttmætu um- mæli lét borgarfulltrúinn Pawel Bartoszek falla árið 2018, stuttu áður en hann gekk til meirihlutasamstarfs við borgarstjóra. Á dögunum fullyrti borgarstjóri að ársreikningur Reykjavíkurborgar 2019 sýndi öðru fremur sterkan fjár- hag borgarinnar eftir síðasta ár. Borgarstjóri sparar ekki stóru orðin þegar fjárhagur borgarinnar er ann- ars vegar. Það er gömul saga og ný. Ársreikningurinn ber hins vegar fjárhag borgarinnar ekki fagurt vitni. Þrátt fyrir tekjuaukningu síð- asta árs jókst skuldsetning borgar- innar um 21 milljarð. Launakostn- aður hækkaði samhliða fjölgun stöðugilda og rekstrarkostnaður jókst um 9%. Báknið stækkar í tekjugóðæri og tækifæri til skulda- niðurgreiðslu eru vannýtt. Nú hefur lukkan snúist skyndilega og svigrúm til aðgerða lítið. Baggi á borginni? Nýlega birti Reykjavíkurborg nið- urstöður ábatagreiningar vegna ferðaþjónustu í Reykjavík. Komst borgin að þeirri niðurstöðu að kostn- aður Reykjavíkur af ferðamönnum næmi 8,3 milljörðum króna árlega umfram tekjur. Blaut tuska í andlit atvinnugreinar sem skilar meiri gjaldeyristekjum en sjávarútvegur- inn og stóriðjan samanlagt. Þúsundir starfsmanna ferðaþjónustu sitja undir þeim þunga krossi að vera álitnar fjárhagslegur baggi á borg- inni. Að venju er auðvelt að hrekja töl- fræðiæfingar borgarstjóra. Árið 2015 greindi Deloitte opinberar tekjur og gjöld vegna ferðamanna. Varlega áætlaðar niður- stöður þess árs sýndu 11 milljarða nettótekjur sveitarfélaga af ferða- mönnum. Frá þeim tíma hafa tekjurnar aukist jafnt og þétt. Borgarstjóri er vissu- lega í vanda með eigið tölfræðiævintýri. Full- yrðingar hans gefa til kynna að nú, þegar ferðaþjónustan liggur niðri, ætti hagur borg- arsjóðs að hafa vænkast sem sam- svarar 8,3 milljörðum. Það kæmi sér sannarlega vel – nú á þessum við- sjárverðu tímum – ef rétt reyndist. Ráðumst í raunhæfar aðgerðir Langt er liðið frá fyrstu aðgerðum borgarinnar. Frá þeim tíma hafa sviðsmyndir breyst og efnahags- lægðin dýpkað. Reykjavíkurborg þarf að stíga inn í viðkvæmt efna- hagsástand með ábyrgum og raun- hæfum hætti. Við þurfum að létta álögum af fólki og fyrirtækjum. Undirrituð telur rétt að hverfa frá arðgreiðsluáformum Orkuveitunnar og lækka orkureikn- inga heimilanna. Jafnframt að fast- eignaskattar á atvinnuhúsnæði verði lækkaðir strax. Ráðist verði í sölu dótturfyrirtækja sem standa í sam- keppnisrekstri, Gagnaveitunnar og Malbikunarstöðvarinnar Höfða. Við- ræður verði hafnar við stærstu vinnustaði borgarinnar um sveigjan- legri vinnutíma, svo létta megi um- ferðarálagi, líkt og reynsla undanlið- inna missera hefur sýnt. Við þurfum að tryggja afkomu heimilanna með atvinnuskapandi að- gerðum. Undirrituð telur rétt að bjóða út rekstur nýrra leikskóla- deilda og gefa einkaframtakinu tækifæri til samfélagslegrar verð- mætasköpunar. Tryggja þarf áfram- haldandi húsnæðisuppbyggingu með auknu svigrúmi á bygg- ingamarkaði og áfangaskiptum greiðslum af byggingarétti. Við þurfum að styðja við aukna aðsókn á göngu- og hjólastígum borgarinnar með frekari uppbyggingu og upp- hitun stíga. Við þurfum að ganga til liðs við einkaframtakið um heilsuefl- ingu fyrir eldri borgara og grunn- skólabörn. Við horfum fram á djúpa efna- hagslægð vegna áhrifa COVID-19. Fyrirtæki róa lífróður, ferðaþjón- ustan er í dauðateygjunum og af- komu heimilanna er ógnað. Við- fangsefnin fram undan eru flókin og brýn og margir reiða sig á fumlaus viðbrögð stjórnmálanna. Við þurfum að gera meira og við þurfum að gera betur. Við þurfum að tryggja fólki og fyrirtækjum örugga afkomu og öfluga viðspyrnu – standa vörð um frjálst og réttlátt samfélag – og tryggja frjóan jarðveg fyrir sókn og framfarir. Þannig vinnum við sam- félaginu gagn. Sókn og framfarir í Reykjavík Eftir Hildi Björnsdóttur Hildur Björnsdóttir » Tryggjum örugga af- komu og öfluga við- spyrnu – stöndum vörð um frjálst og réttlátt samfélag – og tryggjum frjóan jarðveg fyrir sókn og framfarir. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. hildurb@reykjavik.is Það er notalegt að koma á Þingvöll núna í blússandi sól- skini og hunangsflugurnar komnar á kreik. Hitinn slefar í tíu stig og vatnið merlar í andvaranum. Jörðin er enn í „jarðarlitunum“, eins og byggingarnar á Hakinu, og birkið bíður átekta. Ekkert er íslenskara en birkið, og það þekkir sitt land. Aldrei færi það út í neina ævintýramennsku eða oflæti. Það hefur þraukað með þjóðinni og þegar það laufgast og ilmar þá er komið sum- ar og gaman að vera Íslendingur. Það er gamall og nýr sannleikur að Þingvellir kynda undir þjóðerniskenndinni og það er ekkert ljótt við það. Það er engin sæla að vera landlaus þjóðleysingi og hvergi höfði að að halla. Steph- an G. hafði reynslu af því og gat lýst tilfinningunni, því að hann var skáld. „Ég á orðið einhvern veginn ekkert föð- urland,“ sagði hann á efri árum er hann leit til baka. Meðan við eigum Þingvelli og ræktum sambandið eigum við föðurland. Með það í huga snúum við heim eftir góð- an dag. Hunangsflugurnar eru horfnar af vettvangi og það kular. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Þingvellir í endurliti Föðurland Sumarið er á næsta leiti. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.