Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
20% afsláttur af
vorhreingerningu!
Gluggatjöld, áklæði og mottur til 15. maí 2020
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 • haaleiti@bjorg.is
Lumar þú á herðatrjám?
Við tökum vel á móti þeim
og endurnýtum.
Ísland er vettvangur endalausra
ævintýra fyrir þá sem vilja ferðast
fyrir eigin afli og njóta fjalladýrðar
og náttúru sem við erum svo rík af.
Möguleikar til að stunda útivist á
fjöllum eru fjölmargir. Fjallgöngur,
fjallahlaup, sleðaferðir, jeppaferðir,
hestaferðir, gönguskíði og þannig
mætti lengi telja. Fjallaskíðun er ein
tegund af útivist og hefur notið sí-
fellt meiri vinsælda á síðustu árum.
Fjallaskíðaferðir Ferðafélags Ís-
lands hafa notið mikilla vinsælda.
Tómas Guðbjartsson, einn af
fjallaskíðafararstjórum FÍ, segir
ástæðuna einfalda.
„Þú kemst hraðar yfir og nærð
meiru út úr deginum. Oft er auðveld-
ara að ganga á fjallaskíðum en í
gönguskóm í snjó, ekki síst ef um
lausamjöll eða blautan snjó er að
ræða. Fjallaskíðin fara betur með
líkamann, ekki síst á leiðinni niður,
en þau minnka álag á hné, ökkla og
mjaðmir. Svo er ferðin niður eins
konar rúsína í pylsuendanum sem
erfitt er að toppa. Svona heilt yfir
ættu allir sem hafa gaman af vetrar-
og vorferðum að íhuga fjallaskíði.
Búnaðurinn er vissulega dýr en
kostnaður fer lækkandi. Og þetta er
góð fjárfesting sem endist,“ segir
Tómas.
Það er að ýmsu að huga í aðdrag-
anda ferðar en réttur útbúnaður er
mikilvægastur.
„Athuga þarf að skinn undir skíð-
in gleymist ekki og að þau passi á
skíðin,“ segir Tómas. „Það þarf líka
að passa að skórnir séu rétt stilltir
fyrir skíðin og að stafir séu í lagi.
Síðan má ekki gleyma réttum fatn-
aði og hlýjum aukavettlingum og
hlýrri húfu en líka sólgleraugum og
skíðagleraugum. Að minnsta kosti
þrjú lög eiga við í öllum vetrar-
ferðum.“
Í ferðum Ferðafélags Íslands er
lögð áhersla á öryggið í öllum
ferðum, ekki síst þegar um vetr-
arferðir á fjöllum að ræða og gera
verður ráð fyrir því að veður geti
skipast í lofti og ýmsar hættur
leynst í íslenskri náttúru allt árið um
kring.
„Í fyrsta lagi þurfa allir þátttak-
endur að hafa ýli, snjóflóðastöng og
létta skóflu meðferðis,“ segir Tómas.
Í jöklaferðum er farið í öryggislínu
enda sprungur víða í jöklum og eng-
inn ætti að fara í jöklagöngu nema
með reyndum fararstjórum og með
allan öryggisbúnað meðferðis.
Ísland er vettvangur
endalausra ævintýra
fyrir þá sem vilja ferðast
fyrir eigin afli og njóta
fjalladýrðar og náttúru
sem við erum svo rík af.
Möguleikar til að stunda
útivist á fjöllum eru fjöl-
margir. Fjallgöngur,
fjallahlaup, sleðaferðir,
jeppaferðir, hestaferðir,
gönguskíði og þannig
mætti lengi telja.
Ljósmyndir/FÍ myndabanki
Magnaðir kraftar Snæfellsjökull er vinsæll á meðal fjallaskíðafólks.
Fjallaskíðaferðir njóta
vaxandi vinsælda
Alsæla Tómas segir að fátt
jafnist á við fjallaskíðaferðir.
Auknar vinsældir Æ fleiri
stunda fjallaskíðamennsku.
Ferðalög á