Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 43

Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 ✝ Jónína BryndísJónsdóttir fæddist í Katanesi á Hvalfjarðarströnd 29. maí 1923. Hún lést á dvalarheim- ilinu Höfða á Akra- nesi 28. apríl 2020. Foreldrar henn- ar voru Ólöf Jóns- dóttir, f. 7.5. 1892, d. 20.4. 1983, og Jón Ólafsson, bóndi í Katanesi á Hvalfjarðarströnd, f. 12.5. 1896, d. 22.12. 1971. Systkini Jónínu voru Ólafur Jónsson, f. 10.6. 1922, d. 1.9. 2004, samfeðra voru Valgarður L. Jónsson, f. 14.11. 1916, d. 1.8. 2010, Guðrún Jónsdóttir, f. 12.2. 1918, d. 22.2. 1988, og Aðalbjörn Jónsson, f. 25.11. 1919, d. 9.1. 2006. Söndru Margréti, f. 1975, Jónu Björk, f. 1981, og Agnar, f. 1986, og tíu barnabörn. 4. Björg, f. 1960, maki Þór Arnar Gunn- arsson. Þau eru búsett í Reykja- vík. 5. Jón, f. 1964, bjó á Akra- nesi og lést árið 2017. Jónína ólst upp í Katanesi, fór í húsmæðraskóla á Staðarfelli í Dalasýslu. Eftir að hún kynntist Agnari bjuggu þau í Hafnarfirði og Reykjavík í nokkur ár. Árið 1953 fluttu þau á Akranes og bjuggu þar eftir það. Jónína var alla tíð húsmóðir en vann jafn- framt við síldarsöltun á haustin í nokkur ár, við fiskvinnslu hjá Haraldi Böðvarssyni & Co., við saumaskap og síðustu árin, þangað til að hún varð að hætta vegna aldurs, vann hún á sam- býlinu við Vesturgötu á Akra- nesi. Hún var í kór eldri borgara og var virk í félagsstarfi eldri borgara á Akranesi í mörg ár. Útför Jónínu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 7. maí 2020. Athöfnin hefst klukkan 13 og er henni streymt á www.akraneskirkja.is. Jónína Bryndís giftist 30.12. 1948 Agnari Jónssyni frá Mógilsá á Kjalar- nesi, f. 23. apríl 1926, d. 20. janúar 2006. Börn Jónínu og Agnars eru: 1. Guðjón Smári, f. 1948, búsettur á Egilsstöðum. Hann á þrjú börn, Stefán, f. 1968, Bryndísi, f. 1973, og Davíð, f. 1982, og fjög- ur barnabörn. 2. Guðfinna Björk, f. 1953, maki Sigurður Sævar Sigurðsson. Þau eru bú- sett í Kópavogi og eiga tvo syni, Ásgrím, f. 1980, og Styrmi, f. 1989, og fjögur barnabörn. 3. Ólöf, f. 1957, maki Sigurjón Skúlason. Þau eru búsett á Akranesi og eiga þrjú börn, Elsku amma Jóna. Við eigum margar góðar minn- ingar með þér. Efst í huga okkar er hversu blíð og góð þú varst við alla, vildir alltaf að fólkinu þínu liði vel. Þegar við komum í heimsókn til þín vildir þú alltaf gefa okkur eitthvað gott að borða, mjög oft súkkulaðikex og súkkulaðirúsín- ur. Við lékum okkur með gamla dótið hans Jonna og nutum þess að vera hjá þér. Sesar hafði mikla matarást á þér, enda fékk hann ekkert þurrfóður er hann kom í heimsókn til þín. Þú gafst honum með þér vöfflu með sultu og rjóma, kex, ís og margt fleira. Þegar við báðum þig að gefa hon- um ekki af því hann gæti fengið í magann áttir þú erfitt með að hætta og gafst honum yfirleitt tvo til þrjá bita í viðbót. Hann stillti sér líka alltaf upp við hliðina á þér því það var besti möguleiki hans á góðgæti. Takk fyrir allar góðu samverustundirnar, við elskum þig. Kveðja, Arna Björg, Gabríel Andri og Héðinn. Elsku amma Jóna. Ég er svo þakklát fyrir að hafa haft þig svona lengi hjá mér. Þú kenndir mér svo margt og varst mín fyrirmynd í svo mörgu. Heil- ræðin frá þér voru mörg og sum mjög skemmtileg, þú varst til dæmis alveg sannfærð um að súkkulaðirúsínur væru hollar og sagðir það oft við gestina þína ef fólk var eitthvað að halda í við sig, enda fór enginn svangur út frá þér. Ég minnist þeirra stunda sem ég átti hjá ykkur afa á Vallholtinu, að sulla í vaskinum inni á baði eða að hjálpa þér í eldhúsinu. Þú hafð- ir alltaf tíma fyrir mig. Ég var svo lánsöm að búa í nokkur ár í sömu götu og þú, aðeins eitt hús á milli okkar. Ég og systkini mín fórum reglulega yfir til þín til að athuga hvað væri í matinn, ef það bauðst eitthvað betra hjá þér en heima þá var skutlast aftur heim og kallað: „Ég borða hjá ömmu!“ Ef ég var eitthvað óþekk og átti von á skömmum þá tók ég sprettinn yfir til þín því ég vissi að þú myndir bjarga mér frá skömmum. Mér fannst gott að geta alltaf farið til ykkar afa þegar ég var búin í skól- anum og mamma og pabbi voru enn í vinnu. Þegar ég byrjaði í fjöl- braut bjugguð þið beint á móti skólanum, þá var gott að hlaupa yfir til ykkar og fá eitthvað gott í hádegismat. Eftir matinn slakaði ég stundum á í sófanum, ef ég dottaði varst þú komin um leið til að breiða yfir mig teppi og segja mér að hvíla mig bara. Þegar ég ákvað að læra hjúkrunarfræði varst þú svo stolt af mér, þú sagðir mér að þig hefði alltaf langað til að verða hjúkrunarkona og að þetta starf væri tilvalið fyrir mig. Þú varst ekki mikið fyrir hangs, einn seinnipart að vori kom ég í kaffi til þín, þú komin vel yfir nírætt, þú baðst mig um að sækja sláttuvél- ina fyrir þig í skúrinn. Ég var eitt- hvað þreytt og sagði að klukkan væri nú orðin svo margt, hvort þú vildir ekki bara slá á morgun, þú hélst nú ekki og sagðir við mig: „Á morgun segir sá lati!“ Ég sótti vél- ina fyrir þig, annars hefðir þú hringt í einhvern annan eða náð í hana sjálf. Þú varst ósérhlífin og hörð við sjálfa þig, vildir aldrei leyfa þér að leggjast í kör þó margt gengi á, ef þú áttir erfiða daga varstu alltaf fljót að rífa þig upp, hitta vini og fjölskyldu, gera leikfimisæfingar, spila, fara á kór- æfingu, fara í púttið og fleira. Ég sakna þín svo mikið, elsku amma mín. Það hefur verið erfitt að mega ekki heimsækja þig síð- ustu vikur, erfitt að fá ekki að knúsa þig og snerta. Það er svo dýrmætt að börnin mín hafi fengið að alast upp í kringum þig, fá knús og faðmlög og ekki má gleyma gotteríinu, iðulega komu þau út frá þér með poka af súkkulaðirús- ínum eða kexi. Ég vona að mér hlotnist sá heiður að verða amma einn daginn, þú settir markið ansi hátt en ef ég kemst með tærnar þar sem þú hafðir hælana í þeim málum verð ég sátt, þú varst ein- faldlega heimsins besta amma. Það er ég viss um að afi og Jonni hafa tekið vel á móti þér í sumarlandinu, þar hafa vafalaust verið fagnaðarfundir. Takk fyrir allt, ég verð alltaf litla dúkkan hennar ömmu sinnar. Ástar- og saknaðarkveðjur. Þín Jóna Björk. Amma. Fyrirmynd mín í lífinu, vissi hvað skipti máli og hvað ekki. Hélt utan um fólkið sitt og gaf af sér til þeirra sem hún hitti á lífs- leiðinni. Amma átti alltaf tíma fyrir okk- ur barnabörnin, við máttum alltaf vera með í því sem hún var að gera. Sérstaklega man ég eftir að stússa með henni í eldhúsinu, snúa kleinum og baka kökur. Það var alltaf eitthvað gott til í búrinu hjá ömmu enda var hún mikill sælkeri sjálf. Í hvert sinn sem gesti bar að garði hlóð hún borðið af veiting- um, gaukaði góðgæti að ungviðinu og lét sér í léttu rúmi liggja hvað nútímaforeldrum fannst um það. Vorinu fylgdu alltaf sumar- blómin en þetta vorið mun amma ekki nýta sína grænu fingur. Ég mun hugsa til hennar þegar ég bardúsa í beðinu, þannig varði hún mörgum dögum á sumrin að dytta að blómunum sínum, sérstaklega þegar vel viðraði því amma elskaði að láta sólina leika um sig. Henni féll sjaldan verk úr hendi og sagði oft „á morgun segir sá lati“. Mér er minnisstætt þegar við fjöl- skyldan komum á sumardegi til hennar, þá var hún komin á tíræð- isaldur, hún var að ryksuga og bóna bílinn sinn og fannst ekkert sjálfsagðara, „ég hef ekkert betra að gera“. Amma var félagsvera og var með fulla dagskrá eftir að hún hætti að vinna, alveg fram undir það síðasta, spilamennska, hann- yrðir, kórsöngur, pútt og ferðalög með eldri borgurum. Henni fannst þetta samt ekki nóg og leiddist um helgar, fannst ómögulegt hvað var lítil dagskrá þá. Amma var líka mikil skvísa, fannst gaman að vera tilhöfð, elskaði að vera í kringum fólkið sitt og gjafmildi hennar var mikil. Tilhlökkunin að opna jóla- og afmælispakka frá ömmu og afa var alltaf mikil, þar kenndi ýmissa grasa, dót, föt og handavinna sem hún hafði unnið og alltaf nammi. Lífið var ekki bara dans á rós- um fyrir ömmu og hún vék sér ekki undan ábyrgð, var ósérhlífin. Það var raun að eignast fatlað barn en amma átti alltaf nóg hjartarúm. Þegar móðir hennar þurfti aðhlynningu og húsaskjól tóku þau afi hana að sér. Um tíma var amma með veika móður sína og Jonna heima og sinnti þeim báðum af natni. Hún barmaði sér ekki og Jonni var sólargeislinn í lífi hennar sem hún helgaði sig að annast um. Amma fór að vinna á sambýlinu þegar Jonni flutti þangað og var dáð af heimilisfólk- inu á Vesturgötunni. Amma gat verið hnyttin í til- svörum og hafði húmorinn í lagi, hláturmild og hlý, við tókum ófá hlátursköstin saman. Amma hafði smitandi hlátur og oft hlógum við svo mikið að við bókstaflega grét- um úr hlátri saman. Það var held- ur enginn afsláttur gefinn, maður fékk að heyra hennar skoðun á málum og því var ekki pakkað inn í gjafapappír. Hún var hrein og bein og ég kunni vel að meta þann eiginleika hennar. Alla tíð fann ég fyrir umhyggjunni sem hún bar í brjósti, ég er þakklát fyrir að hafa haft ömmu nálægt mér svo lengi í lífinu, þakklát fyrir hversu lengi hún hélt heilsunni og að börnin mín fengu að kynnast þessari ynd- islegu konu sem amma mín var. Ég verð alltaf ömmustelpan þín og mun leggja mig fram um að líkjast þér í hvívetna, góða ferð í sumarlandið, elsku amma. Sandra Margrét. Jónína Bryndís Jónsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, PÁLL HELGASON Eskifirði, lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 28. apríl. Útför hans fer fram laugardaginn 9. maí í Eskifjarðarkirkju. Vegna takmarkana verða eingöngu nánasta fjölskylda og vinir viðstödd útförina. Erna Helgadóttir Rögnvar Ragnarsson Kristbjörg María Helgadóttir Snorri Jónsson og frændsystkini Elskuleg móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR Rúna, verslunarkona og húsmóðir, lést á heimilinu sínu föstudaginn 24. apríl. Í ljósi aðstæðna verður eingöngu nánasta fjölskylda viðstödd útförina, sem fer fram fimmtudaginn 14. maí. Rúna Rut Ragnarsdóttir Tómas Ingason Guðmundur Arnarson Sigurrós Hreiðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGA BJÖRG RAGNARSDÓTTIR húsmóðir á Sauðhúsvelli, Vestur-Eyjafjöllum, lést laugardaginn 2. maí á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey frá Ásólfsskálakirkju. Þeim sem milja minnast hennar er bent á SOS-barnaþorpin. Sigmar Sigurðsson Einar Sigmarsson Rúnar Sigmarsson Unnur Sigmarsdóttir Þorsteinn Eyþórsson Sigurrós Sigmarsdóttir Arnar Svarfdal Þorkelsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og fóstursystir, SVANHILDUR KJARTANS, Patreksfirði, verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 9. maí klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd útförina. Útförinni verður streymt á youtube.com undir Patreksfjarðarkirkja. Aðalbjörn Þ. Jónsson Anna Torfadóttir Jóhann H. Jónsson Evlalía S. Kristjánsdóttir Daníel H. Jónsson Soffía S. Jónsdóttir Karólína G. Jónsdóttir Halldór Gunnarsson Bergþór G. Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Guðrún Jensdóttir Halldór Steingrímsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR H. SIGURGEIRSSON, lést á HSU Selfossi þriðjudaginn 5. maí. Sigríður K. Dagbjartsdóttir Dagbjört Eiríksdóttir Heiða Eiríksdóttir Erla Eiríksdóttir tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR JÓNA GUNNARSDÓTTIR söngkennari, Hafnarbraut 9, Kópavogi, lést laugardaginn 2. maí á Landspítalanum við Hringbraut. Vegna samkomutakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir útförina sem fer fram 15. maí klukkan 15. Athöfninni verður streymt á eftirfarandi slóð: youtu.be/Qm4h38HAjNE Ingi Kr. Stefánsson Gunnar Trausti Ingason Jón Kristinn Ingason Fida Abu Libdeh Hanna R. Ingadóttir Bjarni Þór Pétursson og barnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.