Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 46

Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 ✝ Oddur K. Sæ-mundsson fæddist í Reykjavík 12. maí 1950. Hann lést á líknardeild HSS í Keflavík laugardaginn 25. apríl 2020. Foreldrar Odds voru Jónína Sóley Oddsdóttir, f. 13.2. 1920, d. 16.5. 2016, og Sæmundur Þor- lákur Jónsson, f. 22.2. 1915, d. 18.10. 1980. Systur Odds eru Sigurveig, f. 9.6. 1944, og Jóna, f. 19.3. 1958. Sóley og Sæmund- ur slitu samvistum. Hálfbræður Odds samfeðra eru: Sæmundur Þór, f. 30.9. 1963, d. 17.10. 2015, og Eiríkur, f. 15.11. 1965. Seinni maður Sóleyjar var Björn Kjart- ansson, f. 9.2. 1925, d. 8.12. 1998, og reyndist hann Oddi mjög vel. Eftirlifandi eiginkona Odds er Jónína Guðmundsdóttir frá Hvanneyri, f. 10.4. 1951. Þau 15 ára aldurs er hann fluttist með móður sinni og systrum til Reykjavíkur. Ræturnar voru þó alltaf í Keflavík og fór hann fljótlega á sjóinn þaðan. Árið 1969 útskrifaðist Oddur úr Stýrimannaskólanum í Reykja- vík, þá 19 ára gamall, og byrjaði fljótt í útgerð með æskufélaga sínum og skólabróður Hilmari Magnússyni. Þeirra samstarf varði megnið af starfsævinni við útgerð og einnig fiskverkun. Oddur var farsæll og fengsæll skipstjóri allan sinn feril og átti sjórinn hug hans mestan. Er dró úr sjósókn Odds gafst meiri tími fyrir félagsstörf og gekk hann til liðs við Oddfellow- regluna árið 1991. Þá var hann stjórnarmaður í knatt- spyrnudeild Keflavíkur um 12 ára skeið, en sjálfur hafði hann ungur æft fótbolta og verið lið- tækur í sínu liði. Fótboltaáhug- inn entist allt lífið. Síðustu árin var áhuginn mestur á sístækk- andi hópi barnabarnanna, end- urbótum á sumarbústaðnum og ferðalögum á meðan heilsan leyfði. Í ljósi þjóðfélagsaðstæðna fer útför Odds fram í kyrrþey en minningarathöfn verður auglýst og haldin síðar. gengu í hjónaband 19.10. 1971 og bjuggu ávallt í Keflavík. Börn þeirra eru: 1) Helga Jóhanna, f. 4.7. 1973, eiginmaður hennar er Einar Jónsson. Synir Helgu og Hjalta Páls Sigurðssonar eru: Oddur Fannar og Tómas Ingi, f. 14.3. 2004. Synir Einars eru Haukur, Ástþór og Breki. 2) Guðmundur Jóhannes, f. 1.5. 1975. Eiginkona hans er Guðrún Mjöll Ólafsdóttir og eiga þau þrjú börn. Þau eru: Hulda Sól- lilja, f. 28.6. 2002, Ólafur Oddur, f. 8.5. 2007, og Jónína Sóley, f. 15.12. 2008. 3) Sæmundur Jón, f. 23.2. 1981. Eiginkona hans er Edda Björk Pétursdóttir og eru börn þeirra Saga Björk, f. 22.7. 2011, Oddur Logi, f. 16.5. 2015, og Aron Pétur, f. 13.7. 2019. Oddur ólst upp í Keflavík til Elsku pabbi. Mig langaði að segja þér frá því að í vikunni var ég að leika við börnin mín þegar hinn fjögurra ára Oddur Sæmundsson fékk þá áskorun frá systur sinni að leika afa Odd. Sá litli varð samstundis beinn í baki og á hann kom vin- gjarnlegt bros. Svo gekk hann um hnarreistur og hló, bar höfuðið hátt og lagði til að við hjálpuðum honum að vinna svolítið. Þetta var lýsandi fyrir svo margt, enda varstu að berjast við illvígt krabbamein stærstan hluta þess tíma sem þú náðir með litla nafna þínum. Við systkinin rituðum aðra grein saman og erum þakklát fyr- ir það að góðu og hlýju fjölskyldu- minningarnar okkar eru efni í heila bók, en með þessum grein- arstúf langaði mig að þakka þér sérstaklega fyrir allt það sem þú kenndir okkur. Þú hefur reynst okkur frábær faðir, mikil fyrir- mynd og góður vinur. Þú varst maður gilda og miðlaðir þeim til okkar með fordæmi og jákvæðni. Þú varst mikill fjölskyldumaður og traustur vinur. Þú mótaðir við- horf okkar og gafst okkur verk- færi til að sigrast á hvers kyns mótlæti. Þú varst frægur fyrir eljusemi og dugnað en varst einn- ig útsjónarsamur og skynsamur. Einstakt baráttuþrekið skein í gegn síðustu vikurnar og aldrei skorti blíðuna og þakklætið þegar við stóðum þétt saman í gegnum erfiða daga og nætur í Heiðar- horninu sem þú byggðir sjálfur undir fjölskylduna ungur að ár- um. Þín verður sárt saknað. Gildi þín, fordæmi og arfleifð munu lifa áfram í gegnum afkomendur þína. Við munum ganga áfram bein í baki og þú munt aldrei ganga einn. Sæmundur (Sæmi). Á sumardaginn fyrsta tíðkaðist að sjómenn færðu eiginkonum sínum hlutinn sinn. Þeirri hefð fylgdi pabbi samviskusamlega á sokkabandsárum hans og mömmu enda rómantískur með eindæmum. Á sumardaginn fyrsta í ár sat hann snemma morguns á rúmstokknum og horfði í hinsta sinn út um svefn- herbergisgluggann heima, er sól- in varpaði geislum sínum á Faxaflóann og fjallahringinn á Reykjanesinu, Esjuna og Akra- fjallið og smábátur lagði í róður. Við systkinin sátum á rúmstokkn- um með honum og nutum útsýnis æskuheimilisins. Vertíðarlokin urðu fyrr en óskað var en pabbi steig ölduna með reisn fram á síð- asta dag. Einstakur fjölskyldu- maður, hjartahlýr, ljúfur, harð- jaxl, dugnaður, fyrirmynd og húmoristi eru orðin sem lýsa hon- um best. Oddur á Stafnesinu og Kallinn voru nöfnin sem maður vandist að heyra þegar um hann var rætt. Því fylgdi ákveðin at- hygli að vera barn hans á ung- lingsárunum enda skipstjóri á einu fengsælasta fleyi flotans, virtur og eftirsóttur leiðtogi. Á sjónum var hann kröfuharður en aldrei ósanngjarn og á sú lýsing einnig vel við hann í uppeldinu. Við eldri krakkarnir áttum ekki að láta okkur detta í hug að fara í bæjarvinnuna eins og hún var þá kölluð, við skyldum læra að vinna og það vel. Við vorum því ung far- in að vinna í saltfiski eða skreið á sumrin, og síðar sem hásetar á Stafnesinu í skólafríum, þó ýms- um sögum fari nú af frammistöðu okkar þar. Pabbi var mikill fjör- kálfur og vinur okkar systkina. Hann var okkar helsti stuðnings- maður í íþróttunum og fylgdi okk- ur vel eftir. Laxveiði stundaði hann lengi vel af kappi og kenndi réttu tæknina við flugukastið. Verslunarmannahelgarnar þar sem útihátíðin „Oddurinn“ hefur verið haldin í Borgarfirði skipta nú tugum. Aðrar útihátíðir skiptu unglingana litlu máli þegar boðað var til Oddsins, þar voru allir vinir okkar velkomnir og mikið líf og fjör. Pabbi var stoltur af krökk- unum sínum þó ekki væri hann mikið fyrir að segja okkur það beint. Það var frekar að við frétt- um það eða heyrðum á tal hans við vini og ættingja. Tengdabörnin urðu hans eigin börn og vináttan sterk. Barnabörnin áttu í honum þann besta afa sem hugsast getur enda naut hann samvista við þau og tengdist náið hverju og einu. Í veikindunum sáum við svo glöggt ástina og virðinguna sem hann bar til mömmu sem annaðist hann af mikilli alúð. Þó ekki hafi alltaf verið siglt á lygnum sjó er sjóferð þeirra saman í 53 ár vitnisburður um samheldni og djúpa ást sem aldrei deyr. Við systkinin erum sammála um að pabbi lifði mikla ævi þó árin hafi ekki náð að verða 70. Við vorum vel nestuð út í lífið með sterka fyrirmynd, dýrmæt gildi og samhenta fjölskyldu sem nýtur þess að vera í samvistum hvert við annað þrátt fyrir að höf- in skilji að. Fyrir það þökkum við af alhug og minnumst einstaks föður með hlýju. Þú ert aldrei einn á ferð, elsku pabbi. Fyrir hönd okkar systkinanna, Helga Jóhanna. Elsku tengdapabbi og allra besti vinur minn hefur kvatt allt of snemma. Fyrir 14 árum þegar ég kynntist Oddi fyrst var ég frekar smeykur við þennan mikils metna, gráhærða og hávaxna mann, enda var búið að segja mér að það yrði ekki auðvelt að fá sam- þykki hans til að eiga dóttur hans. Mig grunaði ekki þá að ég ætti eftir að eignast í honum svona traustan og góðan vin. Ég gat rætt allt við tengdapabba og hann við mig. Ég gat leitað eftir aðstoð við hvað sem var og alltaf sagði hann „við skulum bara gera þetta“ og áður en maður vissi var verkið hafið. Við höfum dyttað að svo mörgu saman, hvort sem það var heima fyrir, í bústöðunum okkar í Borgarfirðinum, Sæ- mundarkoti og Sælukoti, um borð í Ugganum á Mallorca eða Staf- nesinu. Við gátum alltaf komist að einhvers konar samkomulagi um það hvernig væri best að gera hlutina, þó að tengdapabbi hefði nú oftast vinninginn eftir nokkrar umræður. Við gátum alltaf haft gaman af því sem við gerðum. Við töluðum saman í síma nánast dag- lega ef við hittumst ekki og þá var rætt um fótbolta og eins um næstu verkefni eða ferðalögin fram undan. Við náðum að fara saman á nokkra leiki, á EM í Frakklandi og í ensku deildinni þar sem stuðningur við Liverpool var nánast trúarbrögð og lét ég Arsenalmaðurinn mig hafa það enda félagsskapurinn einstakur. Núna spjöllum við bara saman þegar okkur langar til og ég tek morgunkaffið í sveitinni á sama tíma og það er bolli fyrir tengda- pabba eins og alltaf. Ég á eftir að sakna Odds mikið en yndisleg minning um besta, sterkasta og traustasta vin minn lifir með mér um alla ævi. Takk fyrir að taka mér svona vel, elsku gráni minn, og ég lofa að passa upp á stelpuna þína og stubbana ásamt verkefnalistanum sem við gerðum, þú verður með mér í þeim verkum eins og öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Einar. Þegar ég kynntist eiginmanni mínum, Guðmundi J. Oddssyni, fyrir 26 árum, eignaðist ég um leið besta tengdapabba sem hægt er að hugsa sér. Oddur og Jónína tóku mér svo sannarlega opnum örmum frá fyrsta degi. Oddur vildi veg okkar allra sem mestan og lagði sig fram um að kynnast hverju og einu barnabarni vel. Það er minnisstætt þegar Oddur og móðir mín skiptust á að sjá um frumburð okkar, Huldu Sóllilju, í nokkra mánuði þegar ég hélt aft- ur til vinnu eftir fæðingarorlof. Hann talaði oft með stolti um þennan ánægjulega tíma. Hann tók litlu prinsessuna með sér hvert sem hann fór, meðal annars á LÍÚ-fundi, á netasöluna og að hitta vini sína á Kaffi París á með- an hún svaf vært í vagninum. Þessi tími tengdi þau órjúfanleg- um böndum alla tíð. Það er með mikilli gleði og þakklæti sem ég hugsa til allra samverustundanna sem við fjöl- skyldan höfum átt með Oddi og Jónínu. Það var mikið ævintýri að sigla með þeim margsinnis á bátn- um Ugga um Mallorca, Menorca, Ibiza og Formentera. Frakk- landsferðin og 60 ára afmælisferð Odds til Mallorca voru líka ógleymanlegar. Veiðiferðir í Norðurá, sem hann kallaði feg- ursta áa, þar sem hann kenndi mér fyrstu handtökin í laxveiði. Þær voru ófáar sumarbústaðar- ferðirnar í Norðurárdal, sælureit Odds og Jónínu. Seinna þegar við eignuðumst okkar eigin bústað voru þau dugleg að koma og njóta samverustunda með okkur og börnunum þar. Ekki má gleyma ótal heimsóknum þeirra hjóna á heimili okkar í Englandi. Þar nutu þau þess að fylgjast með skóla- og tómstundastarfi barnabarnanna. Oddur var alltaf kátur, einlæg- ur og hlýr og stutt í kímnigáfuna. Þannig mun ég minnast hans. Þegar ég spurði börnin okkar hvað einkenndi afa sögðu þau að hann hefði alltaf látið þau hlæja og viljað hafa þau sem mest í fanginu þegar hann var með þeim. Elsku tengdapabbi, ég kveð þig með tárum og miklum söknuði en veit að nú ertu sem betur fer laus við verkina. Ég er óendanlega þakklát fyrir allar dýrmætu minn- ingarnar sem við eigum um þig og munu ylja okkur um ókomna tíð. Takk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Guðrún Mjöll. Takk fyrir allt, afi minn. Ég mun alltaf elska þig. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Blessuð sé minning þín. Þín afastelpa, Hulda Sóllilja. Oddur K. Sæmundsson  Fleiri minningargreinar um Odd K. Sæmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Helga Valtýs-dóttir fæddist 21. júlí árið 1928. Hún andaðist á Hrafnistu í Hafn- arfirði 19. apríl 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ásta Guðjóns- dóttur og Valtýr Brandsson í Vest- mannaeyjum. Helga var elst í röð 13 systkina. Að henni genginni eru nú sex á lífi af þessum hópi: Jóhanna, Sveinn, Brandur, Jón, Óskar og Kristín. Látin eru Ása, Ástvald- ur, Auðberg Óli, Sigríður, Vil- borg sem dó tveggja ára að aldri auk einnar systur sem lést óskírð í fæðingu. Helga giftist 15. október árið 1967 Birni Björns- syni húsasmíða- meistara. Helga eignaðist þrjár dætur: Ástu Jónasdóttur, f. 22. október 1947. Hún er gift Hallgrími Júlíussyni og börn þeirra eru Þor- steinn, Júlíus og Þóra. Sigríður Björnsdóttur, f. 14. maí 1971, gift Páli Ásmari Guð- mundssyni og þau eiga börnin Björn Andra og Helgu Sif. Birna Björnsdóttir, f. 27. maí 1972, í sambúð með Anthony Mills og eiga þau börnin Hildi Evu og Tómas Ara. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu fór útför Helgu fram í kyrr- þey í Garðakirkju 29. apríl 2020. Nú höfum við kvatt elsku mömmu eftir gott og farsælt líf. Það sem einkenndi hana var dugnaður, gleði og húmor. Hún var alltaf að og tók til hendinni og sat ekki aðgerðalaus enda úr stórum systkinahópi í Vest- mannaeyjum þar sem allir þurftu að hjálpast að. Mamma var mjög félagslynd í eðli sínu og glöð. Ung tók hún þátt í starfi kvenfélagsins í Eyj- um og varð síðan virkur þátttak- andi í kvenfélaginu Heimaey í Reykjavík, – stundaði fundi, vann fyrir basarinn og kaffisöluna. Hún lagði mikla áherslu á að hreyfa sig, gekk mikið og stund- aði sund. Hún var í sundklúbbn- um Vatnaliljurnar þar sem marg- ar hressar konur hittast og synda á hverjum morgni í sundlaug Garðabæjar. Í þeim félagsskap eignaðist hún góðar vinkonur og gat sameinað hreyfingu og góðan félagsskap. Hún naut þess alltaf að klæða sig vel og hafa sig til. Hún var reglumanneskja, lagði mikla áherslu á að gengið væri frá hlut- unum strax, já ekki bíða með það og vel væri gengið frá öllu. Barnabörnin lærðu fljótt af ömmu sinni að brjóta saman fötin og ganga vel frá skóm. Hún bjó yfir mikilli góð- mennsku og var stöðugt að hugsa um aðra og þá sem minna máttu sín. Alltaf tilbúin að hjálpa öðr- um. Fjölskyldan var þó henni allra mikilvægust og kærust og passaði hún vel upp á hana. Hún hafði mikinn lífskraft og lífsvilja og var ekkert á því að gefast upp þrátt fyrir að heilsan væri farin að gefa sig seinustu tvö árin. Hún dvaldi á Hrafnistu síðasta eina og hálfa árið þar sem pabbi var hennar stoð og stytta. Einn mikilvægur þáttur í að varðveita lífskraftinn var húmorinn. Hún gat alltaf séð skondnar hliðar á hlutunum, brosað og hlegið. Þegar við horfum til baka fyll- umst við söknuði en finnum einn- ig fyrir sterkri þakklætiskennd. Elsku mamma. Takk fyrir allt sem við lærðum af þér. Takk fyrir að vera dyggasti aðdáandi okkar og fjölskyldna okkar og verndari sem alltaf var hægt að treysta á. Takk fyrir alla athyglina og tímann sem þú gafst okkur og börnum okkar. Takk fyrir að kenna okkur mikilvægi kærleika, sanngirni og sjálfstæðis. Takk fyrir gleðina. Við varðveitum endalausar góðar minningar í hjörtum okk- ar. Þínar Sigríður og Birna. Helga Valtýsdóttir, svilkona mín og vinkona, var fædd í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Þar eignað- ist hún dótturina Ástu Maríu ung að aldri. Helga fór snemma að vinna enda mikill dugnaðarfork- ur. Það sem einkenndi Helgu öðru fremur var mikil lífsgleði og létt lund. Hún var afar félagslynd og vinkonurnar voru margar enda sótti fólk í félagsskap hennar. Þessir eiginleikar fundust mér einnig einkenna fólkið hennar í Vestmannaeyjum. Þegar það kom saman var alltaf glatt á hjalla og mikið hlegið og aldrei nein lognmolla í kringum ætt- ingjana í fjölskylduboðum. Þegar ég kynnist manninum mínum Friðgeiri, bróður Björns, bjuggu þau Helga í Hraunbæn- um en byggðu síðan fljótlega fal- legt og vandað einbýlishús í Garðabænum og bjuggu þar æ síðan. Þaðan eigum við fjölskyld- an margar góðar minningar. Ég gladdist mjög þegar Helga sagði mér frá því að hún væri ófrísk og ætti von á sér í maí 1971 og ekki var gleðin minni þegar ég gat tilkynnt henni að ég ætti von á barni þremur mánuðum síðar. Það voru þær Sigríður og Krist- ín. Síðan gerðist hið ótrúlega að árið eftir fæddust aftur tvær stelpur, þær Birna og Guðlaug. Fjórar litlar stelpur komnar í heiminn á tveimur árum, stelpur sem verið hafa nánast eins og systur alla tíð og fylgst að í gegn- um lífið. Á þessum árum kenndi ég við Gagnfræðaskóla Garðahrepps. Þegar dætur mínar, Kristín og Gulla, fóru í Ísaksskóla kenndi ég fyrir hádegi og bauðst Helga þá til að passa þær á meðan en þær áttu að mæta í skólann eftir há- degi. Þannig var þetta í fjóra vet- ur. Það var ómetanleg hjálp á all- an hátt að vita af þeim í öryggi og umhyggju Helgu og Björns og verður seint fullþakkað. Reyndar var það svo að þau voru alltaf tilbúin að passa og engir betri til að biðja um greiða. Ýmsar aðrar minningar koma upp í hugann. Þar má nefna jólaboðin þegar spilað var eftir matinn, fullorðna fólkið vist og þeir yngri með nýj- asta borðspilið. Helga og faðir minn vildu alltaf spila saman, bæði mikið spilafólk og unnu líka oftast. Við höfðum þau nú sterklega grunuð um að vera með einhverj- ar bendingar sín á milli. Á seinni árum tók Helga iðu- lega þátt í félagsvist eldri borg- ara í Garðabæ. Eftir að Helga veiktist rædd- um við ósjaldan um gæfu okkar í lífinu, hversu stoltar við gætum verið af fjölskyldum okkar. Björn var kletturinn í lífi Helgu og sýndi það og sannaði þegar hann var stóran hluta dagsins hjá henni á hjúkrunarheimili Hrafn- istu í Hafnarfirði. Vinátta okkar Helgu var dýr- mæt og er hennar nú sárt saknað. Við Friðgeir og fjölskylda okkar sendum Birni og fjölskyldu inni- legustu samúðarkveðjur. Margrét Guðlaugsdóttir. Helga Valtýsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, BEINTEINS SIGURÐSSONAR húsasmíðameistara, Álfabergi 28. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Ölduhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaklega góða umönnun. Ásta Óla Gunnarsdóttir Gunnar Á. Beinteinsson Þuríður E. Gunnarsdóttir Ásta Björk, Auður Ýr og Helga Sif

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.