Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
75 ára Benno er fædd-
ur í kjallara í Prag undir
skothríð frá SS-sveit-
unum og ólst upp í
Prag. Hann fluttist til Ís-
lands 1956 og býr í
Vestmannaeyjum.
Benno vann ýmis störf,
m.a. sem vélamaður á golfvöllum og bif-
reiðaverkstæðum og er myndlistarmaður.
Maki: Unnur Jóna Sigurjónsdóttir, 1951,
fyrrverandi fiskvinnslukona.
Dætur: Helga, f. 1969, og Súsanna, f.
1974. Barnabörnin eru fimm.
Foreldrar: Jarmila Lukesova Friðriks-
dóttir, f. 1926, d. 1991, skrifstofumaður,
og Benno Juza. Stjúpfaðir var Ægir Ólafs-
son, f. 1912, d. 2005, stórkaupmaður í
Reykjavík.
Benno Jiri Juza
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skilaboð sem þér berast kunna að
reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eft-
ir þeim. Ef þú ert opin/n fyrir því að láta
smámuni dagsins hafa áhrif á þig upplifirðu
ótrúeg augnablik.
20. apríl - 20. maí
Naut Það skiptir engu máli hvernig viðrar
hið ytra ef þið gætið þess að hafa sól í sinni.
Hugsaðu bara um daginn í dag, ekki hafa
áhyggjur af morgundeginum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Oft er skammt á milli hláturs og
gráts. Aðgæsluleysi nú getur reynst þér dýr-
keypt því oft er erfitt að vinna aftur það sem
tapast hefur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú hefur efni á því að láta eitthvað
eftir þér skaltu gera það. Þér verður trúað
fyrir leyndarmáli sem á eftir að breyta miklu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur í svo mörg horn að líta að þér
finnst þú varla geta sinnt öllu sem þarf að
gera. Reyndu að einfalda líf þitt, það er alveg
hægt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú vilt ekki taka þátt í vissu verkefni,
láttu vita af því. Þú ættir að hafa vaðið fyrir
neðan þig og panta þá hluti sem þú heldur
að þig vanti fljótlega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hættu að gera lítið úr sjálfum/sjálfri
þér; þú ert ekki verri en hver annar. Þér líður
best þegar þú hefur hæfilega mikið að gera.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fátt er betra en góðir vinir,
leggðu þig fram um að eiga með þeim
ánægjulega stund. Hvíldu þig ef þreyta hrjáir
þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Líttu á jákvæðu hliðina á erf-
iðum samskiptum. Það má læra af öllu. Not-
aðu næsta mánuð til að koma lagi á heim-
ilið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólk hlýðir þér því skipanir þínar
eru lög. Gættu að því hvert hvatvísin leiðir
þig í dag því það er hætt við ruglingi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að segja nei.
Leyfðu málum að hafa sinn gang og reyndu
ekki að þrýsta á þau með neinum hætti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur þörf fyrir að kafa til botns í
hlutunum. Leggðu áherslu á að fara í stutt
ferðalag til að dreifa huganum. Þú ert eins
og kötturinn; kemur alltaf niður standandi,
hvað sem gerist.
nokkur ár félagsskap sem nefndur
var „Huggun heimspekinnar“ en þar
kom saman áhugafólk um heimspeki
einu sinni í mánuði og ræddi heim-
spekileg mál. „Oftast var einhver
sem var að ljúka námi fenginn til að
kynna sína BA- eða MA-ritgerð og
fylgdu oft líflegar umræður í kjölfar-
ið.“ Pétur Gauti var í stjórn Félags
leiðsögumanna 2006-2010 og svo aft-
ur 2017 til dagsins í dag. Árið 2019
var hann kjörinn formaður félagsins,
sem nú heitir Leiðsögn (stéttarfélag
leiðsögumanna). Hann hefur líka
unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir félag-
ið í ýmsum nefndum.
Árið 2005 kynntist Pétur Gauti
Magneu Tómasdóttur í fræðsluferð
á vegum fræslunefndar Félags leið-
sögumanna að Skógum undir Eyja-
fjöllum. Árið 2014 giftu þau sig úti í
Viðey á sumardaginn fyrsta. „Það
var þjóðráð að velja þann dag. Ég
hef þá tvo sénsa til að muna brúð-
kaupsdaginn, þ.e. 24. apríl eða
sumardaginn fyrsta.“
Frá 2004 hefur Pétur Gauti verið
trúnaðarstörfum, var formaður
Soffíu (félags heimspekinema) á
námsárunum í HÍ, og formaður
Pedagoggs (félags kennslufræði-
nema). Pétur Gauti hélt úti í all-
P
étur Gauti Valgeirsson er
fæddur 7. maí 1970 í
Reykjavík en ólst upp í
Njarðvík. Hann lauk
stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja 1990 og BA-
prófi í heimspeki frá Háskóla Ís-
lands 1995. Hann flutti til Prag í
Tékklandi og lærði þar tékknesku í
eitt ár og lauk svo MA-prófi í heim-
speki frá Karlsháskóla (Univerzita
Karlova) 1998.
„Karlsháskóli var stofnaður af
Karli IV. 1348 og er einn af elstu há-
skólum í heimi,“ segir Pétur Gauti.
„Karl IV. (1316-1378) var konungur
Bæheims og keisari hins Heilaga
rómverska keisaradæmis. Margir
frægir menn hafa tengst Karls-
háskóla, frægastur er eflaust Albert
Einstein sem kenndi þar í upphafi
20. aldar.“ Pétur Gauti lærði síðan
leiðsögn við Leiðsöguskóla Íslands
og útskrifaðist þaðan 2000. Hann
lauk einnig námi í kennslufræði við
HÍ 2004.
„Ég hef sinnt ýmsum störfum. Á
menntaskólaárum og árunum þar á
eftir vann ég við ýmis störf í Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur, mest við raf-
suðu og rafvirkjastörf. Eftir heim-
komuna frá Prag starfaði ég við
þýðingar og staðfærslu hugbúnaðar
(m.a. Windows 95) fyrir Navision
(síðar Sprok) og einnig fékkst ég við
kennslu í heimspeki hjá öldunga-
deild MH eftir að hafa öðlast
kennsluréttindi. Meðal annarra
starfa má nefna plötusnúð, slöngu-
báts-stýrimann (Zodiac), kokk,
barþjón og málara.“
Pétur Gauti hefur verið leiðsögu-
maður í fullu starfi allt árið síðan
laust eftir síðustu aldamót. Ekki
bara með ferðamenn á leið í rútu
hringinn um landið heldur líka í
jeppum um hálendið og skipa-
farþega á litlu skemmtiferðaskipi
sem siglir hringinn. „Bæði landið og
miðin eru því starfsumhverfið. Leið-
sögn er mjög fjölbreytt og gefandi
starf, maður kynnist allskonar fólki
frá öllum heimshornum og kynnist
mörgum mjög eftirminnilegum
karakterum, bæði kollegum og
gestum.“
Pétur Gauti hefur sinnt ýmsum
virkur áhugaljósmyndari og hefur
einna helst tekið myndir af landslagi
og fuglum, og svo líka af norður-
ljósum.
„Það hefur verið mikið álag síð-
ustu vikur vegna ástandsins vegna
COVID-19, enda hafa næstum allir
leiðsögumenn misst vinnuna og
langt í að ný verkefni komi inn í
þann geira. Margir hafa leitað til fé-
lagsins með allskonar spurningar og
fyrirspurnir og við höfum reynt eftir
bestu getu að greiða úr þeim. Jafn-
framt höfum við verið að vekja at-
hygli á því að þessi nýja kreppa
kemur mjög illa við ferðaþjónustuna
í heild og sérstaklega leiðsögumenn
sem oftast eru launþegar í tíma-
bundnum ráðningum (ferðaráðning)
og eiga því ekki uppsagnarfrest né
möguleika á hlutabótaleið. Svo er
tekjutenging atvinnuleysisbóta við
slökustu mánuði ársins hjá mörgum.
Þetta finnst okkur vera brot á jafn-
ræðisreglum og mjög ósanngjarnt.“
Pétur Gauti ætlar að njóta afmæl-
isdagsins í faðmi fjölskyldunnar og
Pétur Gauti Valgeirsson, leiðsögumaður og formaður Leiðsagnar – 50 ára
Ljósmynd/Jóhanna Þorkelsdóttir
Fjölskyldan Pétur Gauti, Hallgrímur Orri, Kolbeinn Tumi og Magnea á brúðkaupsdeginum 24. apríl 2014.
Í forsvari fyrir leiðsögumenn
Ljósmyndarinn Pétur Gauti að
mynda í eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi.
40 ára Gísli er Pat-
reksfirðingur, fæddur
þar og uppalinn. Hann
er eigandi Aksturs og
köfunar og er aðallega
í flutningum kringum
laxeldi og rekur tólf
bíla.
Maki: Guðlaug Arnarsdóttir, f. 1985,
kennari.
Synir: Ísar Smári, f. 2007, og Brimar
Jökull, f. 2011. Gísli vonast eftir þriðja
barninu í afmælisgjöf. Stjúpbörn eru Diljá
Ögn, f. 2003, af fyrra sambandi og Illugi,
f. 2009, sonur Guðlaugar.
Foreldrar: Ásgeir Einarsson, f. 1952, kaf-
ari og bílstjóri, og Bylgja Dröfn Gísladótt-
ir, f. 1955, félagsráðgjafi. Þau eru búsett
á Akranesi.
Gísli Ásgeirsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is