Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 54

Morgunblaðið - 07.05.2020, Síða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 KÖRFUBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Körfuknattleikskonan Hildur Björg Kjartansdóttir hefur sett stefnuna á atvinnumennsku á nýjan leik, en hún gekk til liðs við KR fyrir síðasta tímabil frá spænska félaginu Celta Vigo. Hildur, sem er 25 ára gömul, á að baki 32 A-landsleiki fyrir Ísland frá árinu 2013, en hún lék með Snæfelli í fimm ár, frá 2009-2014, áður en hún fór í skóla í Bandaríkjunum og það- an í atvinnumennsku á Spáni þar sem hún samdi við Leganés árið 2017. KR var í öðru sæti úrvalsdeildar- innar þegar tímabilinu var aflýst vegna kórónuveirunnar, en liðið fór alla leið í úrslit bikarkeppninnar í ár þar sem KR tapaði fyrir Skallagrími í úrslitaleik í Laugardalshöll, 66:49. „Ég get alveg viðurkennt það að maður var frekar leiður um tíma eft- ir að tímabilið var blásið af frekar snögglega,“ sagði Hildur Björg í samtali við Morgunblaðið. „Við vor- um á góðu skriði fannst mér og við áttum enn eftir að toppa. Við vorum svona hægt og rólega að pússa okkur betur og betur saman og vorum komnar á mjög góðan stað undir lok- in. Þá vorum við líka að endurheimta leikmenn aftur inn í hópinn úr meiðslum og það sem var í raun mest svekkjandi við þetta allt saman var að við fengum aldrei að sjá hversu góðar við hefðum getað orðið. Að sama skapi voru það ekki bara við sem þurftum að sætta okkur við þessa niðurstöðu heldur öll liðin á landinu og þessi ákvörðun sem var tekin var sú besta í stöðunni, úr því sem komið var.“ Valsliðið hálfgerð grýla Hildur gekk til liðs við KR fyrir síðasta tímabil, en markmið liðsins fyrir leiktíðina var fyrst og fremst að berjast við meistaralið Vals um þá titla sem í boði voru. Þrátt fyrir að KR hafi tapað öllum fjórum deildar- leikjum sínum gegn Valsliðinu síð- asta vetur er Hildur sannfærð um að eftir undanúrslitaleik bikarkeppn- innar, þar sem KR vann Val 104:99- sigur í Laugardalshöll, hafi trúin kviknað í Vesturbænum. „Við vorum í góðri stöðu að berj- ast við Valsliðið um Íslandsmeist- aratitilinn að mínu mati. Sigurinn okkar í undanúrslitum bikarkeppn- innar gegn þeim var mjög stór því fram að þeim leik höfðum við verið í mjög jöfnum og spennandi leikjum við þær allt til enda og bestu leikir deildarinnar voru viðureignir KR og Vals í vetur. Fram að undanúrslitaleiknum höfum við mætt þeim þrívegis í deildinni og alltaf tapað, þannig að Valsliðið var orðið að hálfgerðri grýlu fyrir okkur, á leið inn í undan- úrslitin. Það vantaði samt alltaf bara herslumuninn upp á hjá okkur í þessum deildarleikjum og það kom loksins í Laugardalshöllinni, sem var hrikalega sætt. Við sáum það líka í þeim leik að við gátum lagt þær að velli og eftir það varð trúin miklu meiri í hópnum um að við gætum landað þeim stóra.“ Opin fyrir öðru ári á Íslandi Hildur Björg vill reyna fyrir sér sem atvinnumaður á nýjan leik en ítrekar að kórónuveiran gæti sett strik í reikninginn. Mörg erlend lið eru í fjárhagsvandræðum þessa dag- ana vegna efnahagsástandsins sem skapast hefur vegna veirunnar og segir Hildur að það komi vel til greina að spila í eitt ár til viðbótar hér á landi. „Eins og staðan er í dag er ég bara að skoða mín mál og þá kosti sem í boði eru. Ég hef átt í einhverjum við- ræðum, meðal annars við KR, og ég er líka með önnur tilboð á borðinu. Ég hef hug á því að leika erlendis en það er mjög óljóst allt saman hvað verður vegna ástandsins í heiminum í dag. Umboðsmaðurinn minn er að skoða hvaða möguleikar eru í boði erlendis þá en ég er líka að meta það sjálf hvort ég taki eitt ár í viðbót hérna heima eða fari strax út. Það er svo erfitt að spá fyrir um framtíðina, þar sem mörg lið eru í fjárhags- vandræðum vegna efnahags- ástandsins sem skapast hefur vegna kórónuveirunnar. Ég er ekki hrifin af óvissunni og ég er þannig gerð að ég vil vera með það á hreinu hvað sé að fara að taka við hjá mér. Þegar ég er komin með eitthvað í hendurnar sem ég er bæði sátt við og vil gera mun ég vilja ganga frá því sem allra fyrst. Ég vil finna fyrir ákveðnu öryggi varðandi framtíðina og ég á allt eins von á því að mál mín muni skýrast á næstu dögum. Þegar allt kemur til alls mun ég taka þá ákvörðun sem er skyn- samlegust fyrir mig persónulega á þessum tiltekna tímapunkti,“ bætti Hildur Björg við í samtali við Morg- unblaðið. Vonast til að leika aftur erlendis  Landsliðskonan Hildur Björg Kjartansdóttir heldur öllu opnu Ljósmynd/KKÍ/Jónas Úrslitaleikur Hildur Björg Kjartansdóttir í úrslitaleik bikarkeppninnar í vetur með KR gegn Skallagrími. Hún gæti leikið áfram með KR. Handknattleiksmaðurinn Sigur- bergur Sveinsson hefur lagt skóna á hilluna, en hann er 32 ára og lék síðustu fjögur ár ferilsins með ÍBV í Vestmannaeyjum. Sigurbergur staðfesti þetta við Stöð 2 sport í gær. Sigurbergur gat lítið spilað í vetur vegna meiðsla, en lék þó með ÍBV þegar liðið vann Stjörnuna í úrslitaleik bikarkeppninnar. Reyndist það síðasti leikur hans á ferlinum. Sigurbergur lék áður með Haukum, Rheinland, Hann- over-Burgdorf, Basel, Erlangen og Tvis Holstebro. Sigurbergur kvaddi með bikar Ljósmynd/Sigfús Gunnar Hættur Sigurbergur Sveinsson varð bikarmeistari með Eyjamönnum. Ágúst Jóhannsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari færeyska kvennalandsliðsins í handknattleik sem hefur náð góðum árangri í undankeppni HM og EM undir hans stjórn síðustu tvö ár. Ágúst skýrði frá þessu á Stöð 2 Sport í gær. Ástæðan væri annars vegar sú að hann kæmist ekki í verkefni vegna kórónuveirunnar og hinsvegar vildi færeyska handknattleikssambandið að hann flytti til Færeyja. Ágúst heldur áfram hjá Val en kvennalið félagsins varð þrefaldur meistari undir hans stjórn í fyrra. Hættur með landslið Færeyja Ljósmynd/Sigfús Gunnar Valur Ágúst Jóhannsson getur nú einbeitt sér alveg að Valsliðinu. 7. maí 1982 Guðrún Ingólfsdóttir setur Ís- landsmet kvenna í kringlu- kasti þegar hún kastar 53,86 metra á móti í Reykjavík og bætir fyrra met sitt um meira en tvo metra. Þetta met hennar stóð í 36 ár en Thelma Lind Kristjánsdóttir sló það árið 2018 þegar hún kastaði 54,69 metra á móti í Borgarnesi. 7. maí 1995 Eyjólfur Sverrisson er tyrk- neskur meistari í knattspyrnu með Besiktas sem sigrar Gaziantepspor, 2:0, og er með átta stiga for- skot þegar tvær umferðir eru eftir. Eyjólfur, sem skoraði níu mörk í 33 leikjum fyrir liðið í deildinni á tímabilinu, var þar með meistari í öðru landi sínu, en áður vann hann þýska meist- aratitilinn með Stuttgart árið 1992. 7. maí 1995 Ísland sigrar Bandaríkin, 27:16, í fyrsta leiknum á heimsmeistaramóti karla í handknattleik sem haldið er á Íslandi, frammi fyrir 5.000 áhorfendum í troðfullri Laugardalshöll. Valdimar Grímsson skorar sjö mörk fyrir íslenska liðið og Patrek- ur Jóhannesson sex. 7. maí 2005 Guðjón Valur Sigurðsson er EHF-Evrópumeistari í hand- knattleik eftir ævintýralegan sigur Essen á Magdeburg í seinni úrslitaleik þýsku Íslend- ingaliðanna. Magdeburg, undir stjórn Al- freðs Gíslasonar og með Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason í liðinu, vann fyrri leikinn 30:22. Essen vinnur þann seinni, 31:22, með marki á lokasekúndunni. Guðjón Valur skorar 5 mörk fyrir Essen og krækir í fjögur vítaköst. Sigfús skorar eitt mark í leiknum.  Í þessum dálki í blaðinu í gær var sagt að met Ragn- heiðar Ólafsdóttur í 1.500 m hlaupi kvenna stæði enn. Aníta Hinriksdóttir sló það met árið 2017 en met Ragn- heiðar í 3.000 m hlaupi frá árinu 1987 stendur hins vegar enn. Á ÞESSUM DEGI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þjóðverjar tóku í gær forystu- hlutverkið í því að koma knattspyrn- unni í Evrópu í gang á ný eftir kór- ónuveirufaraldinn þegar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gaf knattspyrnuforystunni í landinu heimild til að hefja keppni á ný um miðjan maí. Merkel tók fram að þessa ákvörð- un væri hægt að endurskoða og fót- boltinn gæti verið stöðvaður á ný ef mörg smit myndu blossa upp í kjöl- farið á þessari afléttingu. Þjóðverjar munu staðfesta í dag hvenær tímabilið heldur áfram hjá þeim en reiknað er með því að það verði strax um aðra helgi, dagana 15.-17. maí. Þá verði leikin 26. um- ferðin af 34 í tveimur efstu deildum karla og væntanlega 17. umferðin af 22 í efstu deild kvenna. Sex Íslendingar leika í þessum deildum, Alfreð Finnbogason með Augsburg, Samúel Kári Friðjónsson með Paderborn, Guðlaugur Victor Pálsson með Darmstadt, Rúrik Gíslason með Sandhausen, Sara Björk Gunnarsdóttir með Wolfsburg og Sandra María Jessen með Lever- kusen. Danir skýrðu frá því í gær að þeir væru í náinni samvinnu við Þjóð- verja varðandi aðferðafræðina en mjög ítarlegt eftirlit með heilsu leik- manna verður lykillinn að því að geta haldið áfram keppni. Dönum er mikið í mun að geta byrjað sem fyrst aftur en liðin í úrvalsdeild karla, þar sem átta Íslendingar leika, eiga eftir að spila á bilinu átta til þrettán leiki, eftir því hvort þau verða í efri eða neðri hluta deildarinnar. Englendingar, Spánverjar og Ítal- ir eru áfram með skýrar áætlanir um að ljúka sínum tímabilum en þessar þjóðir hafa farið mun verr út úr kórónuveirunni en Þjóðverjar. Þær eiga allar lengra í land með að koma fótboltanum af stað. Á Eng- landi er búist við niðurstöðu á mánu- daginn kemur og stefnt á að æfingar hefjist 18. maí. Spánverjar stefna á að byrja að spila 12. júní og hófu læknisskoðanir á leikmönnum í gær. Fleiri þjóðir eru í startholunum. Serbar og Króatar hafa tilkynnt að þar fari fótboltinn af stað á ný fyrir mánaðamót og Tyrkir ætla að halda áfram 12. júní. Færeyingar eru þó skrefinu á undan öllum því fyrsta umferðin í úrvalsdeild nágranna okkar verður spiluð á laugardaginn kemur. Þjóðverjar hafa tekið forystuna  Angela Merkel gefur græna ljósið með fyrirvara um endurskoðun AFP Augsburg Alfreð Finnbogason spil- ar líkast til mjög fljótlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.