Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Góð blanda fyrir
meltingarveginn
Öll sykurlöngun hefur minnkað
Í mörg ár fann ég fyrir óþægindum í maga. Ég upplifði það yfirleitt þegar líða tók á daginn,
varð útblásin og leið ekki vel. Ég taldi það líklegt að um óþol væri að ræða. Fyrir rúmum
þremur árum var mér bent á Bio Kult Candéa hylkin og hef tekið staðfastlega tvö hylki á dag
með stærstu máltíðum dagsins.
Öll sykurlöngun hefur minnkað, en áður fyrr drakk ég mikið sykraða gosdrykki. Ég hef náð
að halda mér í kjörþyngd og þakka ég það daglegri inntöku Bio-Kult, sem fær að ferðast með
mér hvert sem ég fer. Kolbrún
Dagleg inntaka getur styrkt
náttúrulegar varnir líkamans gegn
Candea sveppasýkingu.
Öruggt og hentar vel fyrir alla, einnig fyrir
barnshafandi konur, mjólkandi mæður og
börn.
Bio-Kult Candéa
n Er öflug blanda af sjö mismunandi gerlastofnum
n Inniheldur hvítlauk og greipkjarnaþykkni
n Virkni er stutt af klínískum rannsóknum
n Hentar grænmetisætum
n Glútenlaus
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dagblaðið Los Angeles Times
fjallaði nýverið um Ísland sem væn-
legan tökustað í áhugaverðri grein
og ræddi m.a. við Einar Hansen
Tómasson, verkefnastjóra hjá Ís-
landsstofu, en hann ber einnig hinn
virðulega enska
titil „film com-
missioner“ sem
blaðamaður
treystir sér ekki
til að þýða í
stuttu máli.
Stendur í
greininni að kvik-
myndaver og
-framleiðendur í
Los Angeles,
New York og
Evrópu séu nú í auknum mæli að
leita að vænlegum tökustöðum er-
lendis vegna faraldursins, séu að
skoða hvar sé öruggast að vera.
Þykir Ísland nú með öruggari lönd-
um og freistandi að taka upp hér á
landi en hér hafa fokdýrar Holly-
wood-myndir og sjónvarpsþáttaraðir
verið teknar upp, eins og frægt er
orðið, og nægir að nefna Game of
Thrones, Prometheus, Noah og The
Secret Life of Walter Mitty.
Beint til Íslands með leiguflugi
Einar segir starf sitt fólgið í því að
reyna að fá slík verkefni til landsins
en þjónustufyrirtækja að vinna þau.
„Ég er að taka fundi, sjá um mark-
aðssetningu og byggja upp brandið,“
útskýrir hann.
Einar segist hafa sent hugmynd á
landlæknisembættið um að sér-
stakar reglur yrðu settar hér á landi
fyrir erlent starfsfólk við tökur.
„Þetta er líklega sá hópur sem auð-
veldast er að fá inn í landið í dag,“
segir Einar, erlend tökulið geti flogið
beint hingað með Icelandair, farið
strax á hótel og þaðan á tökustað.
Þar geti þau starfað óáreitt og án
samveru við aðra.
Spurður að því hvort hugmyndin
sé þá að taka sýni úr kvikmynda-
gerðarfólki þegar það komi til lands-
ins, til að fyrirbyggja kórónuveirus-
mit, segir Einar ýmsar hugmyndir
uppi en heppilegast væri að allir
færu í sýnatöku einum degi eða
tveimur fyrir Íslandsferðina.
Hann segist hafa sent tillögu til
landlæknisembættisins og verið beð-
inn í framhaldi um að skrifa niður
hugmynd að viðmiðunarreglum.
Hann hafi þá fengið stjórn Samtaka
íslenskra kvikmyndaframleiðenda til
liðs við sig. „Við sátum inni í fundar-
herbergi í heilan dag, skrifuðum við-
miðunarreglur og skiluðum þeim inn
til landlæknisembættisins, sem er að
fara yfir málið. Það eru því í raun
engar fréttir hvað það varðar,“ segir
Einar og vonar það besta.
Tíu þúsund gistinætur
„Ástæðan fyrir því að við erum að
gera þetta er að það er svo margt
undir. Erlend tökulið kaupa svo
margar gistinætur,“ segir Einar og
nefnir sem dæmi um stórt verkefni
kvikmynd Clints Eastwood, Flags of
Our Fathers, sem tekin var upp hér
á landi árið 2005. Tökulið myndar-
innar var fjölmennt og um tíu þús-
und gistinætur voru keyptar fyrir
það. „Það var bara eitt verkefni og
þú ert kannski með hundrað bíla-
leigubíla, marga trukka og þetta eru
störf fyrir íslensk tökulið líka. Þess
vegna vorum við að skrifa viðmið-
unarreglur um hvernig samskipti ís-
lenska og erlenda tökuliðsins ættu
að vera. Passa þarf upp á tveggja
metra regluna, að sem minnst sam-
skipti séu og að á staðnum sé mögu-
legt að vera með grímur, hanska og
spritt og þvo vel á sér hendurnar,“
nefnir Einar.
Mikil kynningaráhrif
„Það eru milljarðar undir, ef allt
gengur upp, því kynningaráhrifin
eru mjög sterk af þessum kvikmynd-
um. Í rannsóknum sem Ferðamála-
stofa hefur staðið fyrir á undanförn-
um árum kemur skýrt fram að um
20% túrista eru svokallaðir „film“-
túristar, þeir fengu hugmyndina að
Íslandsferðinni af því að horfa á Ís-
land í kvikmynd,“ bendir Einar á.
Kvikmyndir og aðrir sjónrænir miðl-
ar séu því afar mikilvægir þegar
kemur að áhuga fólks á landi og þjóð
og ferðamennsku.
–Er mikill áhugi erlendis á Íslandi
sem tökustað núna eða er allt stein-
dautt?
„Það er mjög mikið verið að
spyrja um Ísland sem tökustað, bæði
fyrir verkefni sem á að skjóta í ár og
á næsta ári. Ég er í samtali um mörg
verkefni fyrir bæði árin,“ svarar
Einar og þegar hann er spurður að
því hvort tökulið séu væntanleg í
sumar svarar hann „vonandi“.
„Ég er með aðila sem vill vera hér
í lengri tíma ef hægt er að koma til
landsins og ef hann fær réttu aðstöð-
una. Ýmsir framleiðendur eru að
tala við mig og ég er bara í dag að
taka þrjá Skype-fundi með erlendum
framleiðendum,“ segir Einar. Þessi
áhugi sé mjög jákvæður og mikil-
vægt tækifæri fyrir landið. „Þetta
gæti styrkt okkur.“
Milljarðar undir ef allt gengur upp
Stjarna Ben Stiller leikstýrði og fór með aðalhlutverkið í The Secret Life of Walter Mitty, sem var tekin upp að
mestu á Íslandi. Hér sést Stiller með hjólabretti í íslenskri náttúru, tilbúinn að renna sér að ónefndum stað.
Ævintýri Sjónvarpsþættirnir Game of Thrones voru teknir upp að hluta hér
á landi og vöktu mikinn áhuga áhorfenda á landinu sem áfangastað.
Hugmyndir eru uppi um að leyfa erlendum tökuliðum kvikmynda eða sjónvarpsþátta að koma til
landsins að uppfylltum skilyrðum Landlæknisembættið er nú með viðmiðunarreglur til skoðunar
Einar Hansen
Tómasson
Fyrirtæki í sjón-
varpsþátta- og
kvikmyndagerð
hér á landi hafa í
nógu að snúast.
Hafði Morgun-
blaðið samband
við nokkur þau
helstu til að for-
vitnast um hvað
væri fram undan,
en á næstu síðu er
fjallað um það sem fyrirtækið
Glassriver er með á prjónunum.
Frá Zik Zak fengust þær upplýs-
ingar að tökur hæfust, að öllu
óbreyttu, í ágúst á kvikmyndinni
Svar við bréfi Helgu sem byggð er á
samnefndri bók Bergsveins Birgis-
sonar. Henni verður leikstýrt af Ásu
Helgu Hjörleifsdóttur, sem skrifaði
líka handritið með Bergsveini og
Ottó Geir Borg, og er verkefnið unn-
ið í samtarfi við hollensk og eistnesk
framleiðslufyrirtæki. Önnur verkefni
eru í meiri óvissu, skv. svari frá Zik
Zak.
Systrabönd í lok maí
Af Saga Film er það að frétta að
tökur hefjast í lok maí á þáttaröðinni
Systrabönd í leikstjórn Silju Hauks-
dóttur. Verða þættirnir sýndir í Sjón-
varpi Símans á næsta ári og eru unn-
ir í samstarfi við Sky
Studios/NBCUniversal, Viaplay á
Norðurlöndum,
Lumiere. Hlutu
einnig stuðning
frá
Kvikmyndamið-
stöð Íslands. Hún
segir af 13 ára
stúlku sem hverf-
ur sporlaust og 20
árum síðar finnast
jarðneskar leifar
hennar og þrjár
æskuvinkonur neyðast til að horfast í
augu við fortíð sína.
Annað verkefni er Wolka, íslensk-
pólsk kvikmynd sem er samfram-
leiðsluverkefni með pólsku fram-
leiðslufyrirtæki. Hún verður tekin
upp í haust og leikstjóri hennar verð-
ur Árni Ólafur Ásgeirsson. Eitt verk-
efni til viðbótar er í pípunum hjá
Saga Film en ekki má segja frá því að
svo stöddu.
Sumarljós hjá Pegasus
Fyrirtækið Pegasus veitti þær upp-
lýsingar að fram undan væru tökur á
kvikmyndinni Sumarljós í leikstjórn
Elfars Aðalsteins, en sú er byggð á
bókinni Sumarljós og svo kemur nótt-
in eftir Jón Kalman Stefánsson. Er
vonast til þess að tökur geti farið sem
mest fram á Vestfjörðum í lok sum-
ars. Vegna samninga má ekki greina
frá erlendum verkefnum sem Pega-
sus er nú með í skoðun.
Kvikmyndir og erlend
verkefni fram undan
Elfar
Aðalsteins
Ása Helga
Hjörleifsd́óttir