Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 58

Morgunblaðið - 07.05.2020, Page 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ Arna Kristín Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri kanadísku þjóðar- hljómsveitarinnar í Ottawa (Nat- ional Arts Centre Orchestra), mælir með listaverkum sem hægt er að njóta innan veggja heimilis- ins meðan kófið vegna kórónu- veirunnar stend- ur yfir. „Enn og aftur höfum við fengið að upplifa mikil- vægi listanna fyrir mannlífið. Á tímum sam- komubanns eru það listamenn sem létta okkur stundir, setja hlutina í samhengi og dýpka skilning okkar á lífinu, hvort sem það er við lest- ur góðra bóka, kvikmyndaáhorf eða að hlusta á Víking Ólafsson leika Debussy og Rameau. Það er erfitt að ímynda sér síðustu vikur án Spotify eða Netflix! Samkomubann reynir á okkur öll og kemur sérstaklega illa við okkur sem vinnum við tónleika- og viðburðahald. Það hefur hins veg- ar verið magnað að fylgjast með þeirri sprengju sem orðið hefur í aðgengi að menningarefni á net- inu; endalausir heimatónleikar, zoomtónlistarmyndbönd og jafnvel galatónleikar með heimsfrægum stórsöngvurum. Daginn sem New York-fílharmónían aflýsti því sem eftir var af starfsári sínu var opn- aður vefurinn NY Phil Plays On (https://nyphil.org/playson) þar sem hægt er að nálgast 500 klukkustundir af tónlistarefni hljómsveitarinnar. Berlinar- fílharmónían hefur líka boðið upp á frían aðgang að sínum heims- fræga rafræna tónleikasal (https://www.digitalconcert- hall.com/en/home). Það er af nógu að taka og verð- ur spennandi að sjá hvort hér séu falin, eins og oft vill vera í krísum, ný tækifæri. Tækifæri til að ná til nýrra áheyrenda, þróa framsetn- ingu tónleika og auka aðgengi. Þannig hefur verið áhugavert að fylgjast með viðtökum #Canada- Performs sem er samstarfsverk- efni Kanadíska menningarhússins (Canada’s National Arts Centre) þar sem undirrituð starfar, og FacebookCanada. Þar sækja tón- listarmenn um að koma fram og fá greitt fyrir. Þeir halda 45-60 mín- útna tónleika heima í stofu í beinu streymi á facebooksíðu NAC (https://nac-cna.ca/en/canadaper- forms). Verkefnið átti fyrst að standa yfir í nokkrar vikur en hef- ur verið framlengt um óákveðinn tíma enda fengið fádæma viðtökur 3,6 milljóna manna. Á #CanadaPerforms má líka finna listamannaspjall Alexanders Shelleys hljómsveitarstjóra, þar sem hann ræðir um lífið og listina við tónlistarmenn á borð við kan- adíska fiðluleikarann James Ehnes og venesúelska píanóleikarann Gabrielu Montero (www.you- tube.com/ watch?v=xqQu2vHn4RI). Fyrir mér er það þó flutningur Benedikts Kristjánssonar og fé- laga á Jóhannesarpassíunni eftir Bach sem fram fór í Tómasarkirkj- unni í Leipzig á föstudaginn langa sem stendur upp úr (www.you- tube.com/watch?v=2Zwy1Gi4ob4). Benedikt er að sönnu kominn í hóp fremstu tónlistarmanna og skipar sér þar á bekk með fleiri Íslend- ingum, þökk sé íslenskri tónlistar- menntun og menningu. Að lokum langar mig að mæla með vef National Theatre of Eng- land. Fyrir aðdáendur Benedicts Cumberbatch má nálgast á vefnum næstu tvær vikur magnaða sýn- ingu á Frankenstein í leikstjórn Dannys Boyles. Ekki missa af því! (www.nationaltheatre.org.uk/nt- at-home?queueittoken og www.youtube.com/ watch?v=tl8jxNrtceQ). Mælt með í kófinu Ljósmynd/National Theatre Live Frankenstein Benedict Cumberbatch sem skrímslið og Jonny Lee Miller í hlutverki vísindamannsins Victors Frankensteins í útsendingu NT Live. Aukið menning- arefni á netinu Morgunblaðið/Einar Falur Flinkur Víkingur Heiðar Ólafsson. Arna Kristín Einarsdóttir Magnaður Benedikt Kristjánsson ásamt félögum í Tómasarkirkju í Leipzig á föstudaginn langa þar sem þau fluttu Jóhannesarpassíuna eftir J.S. Bach. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Í samkomubanni undanfarinna vikna var söfnum landsins lokað. Þau hafa flest verið opnuð að nýju, eða verða opnuð um næstu helgi, með þeim samkomutakmörkunum sem gilda. Ástandið hefur vitaskuld haft mikil áhrif á sýningahald listasafna, sem ýmist framlengja sýningar sem höfðu verið opnaðar, og jafnvel fresta eða hætta við aðrar. Þá hefur fjar- vera erlendra ferðamanna áhrif á rekstur allra, því þeir hafa verið stór hluti gestahópsins undanfarin ár. Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir að í Hafnarhúsinu og á Kjarvalsstöðum verði sýningar framlengdar, enda hafi þær verið lokaðar í sex vikur og standi fyllilega undir því að vera að- gengilegar lengur. „Listahátíðar- sýningin okkar „The Great Exhibi- tion“ með verkum eftir listamanna- tvíeykið Gilbert og George verður opnuð 6. ágúst og vonandi verður þá andrúmsloftið orðið léttara og við getum fagnað þessari viðamiklu sýn- ingu á veglegan hátt,“ segir Ólöf. „Við ætlum að vera nær upphaf- legum áætlunum á Kjarvalsstöðum, hýsa lokasýningu BA-nema í mynd- list og síðan í lok júní opnum við spennandi sýningu um raunsæi í ís- lensku málverki eftir 1970. Í Ás- mundarsafni verða ekki breytingar og við opnum nýja sýningu á fæðingardegi Ásmundar 20. maí.“ Ólöf bætir við að vissulega hafi dagskrá ársins raskast talsvert. „Við erum að verða fyrir gríðarlegu tekju- tapi og það er nokkur óvissa um áform ársins.“ Enn er ekki staðfest hvort verði af sýningu verðlaunaverksins frá Fen- eyjatvíæringnum í fyrra, hins lithá- íska Sun & Sea sem stendur til að sýna í porti Hafnarhússins. Síðar á árinu stendur til að sýna þar gjörn- ing Libiu Castro & Ólafs Ólafssonar, „Í leit að töfrum“. Verk Gustafson sýnd til hausts Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Lista- safns Íslands, gleðst yfir því að hafa getað opnað safnið að nýju og segir næstu vikur verða mjög spennandi og margt áhugavert að sjá. Ókeypis aðgangur er að safninu út helgina. Sýningin „Solastalgia“ verður framlag safnsins til Listahátíðar og opnuð í lok júní. Það er viðamikil inn- setning í gagnvirkum veruleika þar sem gestum býðst að kanna jörðina eftir endalok mannkyns. Í sal 2 var opnuð á mánudag fram- kvæmdin Fjársjóður þjóðar – Fyrir opnum tjöldum. Þar geta gestir fylgst með starfsfólki vinna með og huga að hinum verðmæta safnkosti, en aðeins lítill hluti safneignarinnar, sem telur um 13.500 verk, er alla jafna aðgengilegur. Sýning sænska vatnslitamálarans Mats Gustafson á efri hæðinni hefur verið framlengd og stendur út ágúst. Þar er líka vinsæl innsetning Katr- ínar Sigurðardóttur, High Plain. Þá er opið alla daga í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar og Ásgrímssafni. Þrjár framlengdar á Akureyri Í Listasafninu á Akureyri hafa þrjár sýningar verið framlengdar. Sköpun bernskunnar 2020 til 10. maí; sýningin Línur til 17. maí og sýningin Elín Pjét. Bjarnason, Handanbirta / Andansbirta til 24. maí. Áfram mun verða hægt í sumar að njóta sýning- anna Faðmar, sem er verk Hrafn- hildar Arnardóttur / Shoplifter, sýn- ingar Eiríks Arnar Magnússonar, Turnar, og sýningar á verkum úr safneign. Fimm nýjar sýningar verða opnaðar 6. júní. Ný til heiðurs Vigdísi Aðgangur verður ókeypis að Þjóð- minjasafni Íslands til 18. maí. Þar eru fimm sérsýningar sem munu standa til hausts: ný sérsýning til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur for- seta, í Bogasal er Saga úr jörðu – Hofsstaðir í Mývatnssveit, í Mynda- sal Í Ljósmálinu með verkum áhuga- ljósmyndarans Gunnars Péturs- sonar, á Veggnum sýning Jessicu Auer, Horft til norðurs, og þá er í safninu sýningin Kirkjur Íslands – leitin að klaustrunum. Í Safnahúsinu á Hverfisgötu er grunnsýningin vinsæla Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim op- in og eins eru tvær sérsýningar uppi til loka maímánaðar, Óravíddir – orðaforðinn í nýju ljósi og Ganý- medes eftir Bertel Thorvaldsen. Sýningar í Marshall-húsinu verða opnaðar á nýju á laugardag. Morgunblaðið/Eggert Ferðalag „Að utan“, sýning með verkum eftir Jóhannes S. Kjarval á Kjar- valsstöðum, er ein sýninganna í söfnum sem hægt er að njóta að nýju. Sýningar framlengdar  Söfn landsins hafa flest verið opnuð eftir samkomubann  Dagskrá hefur breyst og verið lengt í mörgum sýningum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.