Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 1

Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 1
Viljum komastupprétt í mark Nýtt tísku-merki Þórólfur Guðnasoeinföldu 10. MAÍ 2020SUNNUDAGUR Ótrúlegt safn mynda Áslaug Magnús-dóttir kynntinýja fatalínuundir merkinuKötlu meðpompi ogprakt. 18 Órofin bræðraböndBubbi og Tolli hafa fylgst að í lífinu í gegnum súrt og sætt. Afar fallegt samband ríkir á milli þeirra. 14 Fjórða kynslóðin er farin að leita í síðustu kvikmyndaleiguna á höfuðborgarsvæðinu. 12 L A U G A R D A G U R 9. M A Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  109. tölublað  108. árgangur  HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · Hekla.is/kjarakaup KJARAKAUP Takmarkað magn!Byrjaðu sumarið á nýjum bíl! Fyrstur kemur fyrstur fær! SIGRÍÐUR BJÓ YFIR ÓBILANDI BARÁTTUKRAFTI KAFLASKIL Í SÖGU ÍSLANDS 80 ÁR FRÁ HERNÁMINU 20DAGLEGT LÍFF 16 Baldur Arnarson baldur@mbl.is Fulltrúar ungverska lággjaldaflug- félagsins Wizz Air hafa undanfarið skoðað möguleika á flugi til Banda- ríkjanna með við- komu á Íslandi. Félagið hefur nýverið hafið flug milli Bandaríkj- anna og Evrópu. Tilgangurinn var að sækja strand- aða farþega í Bandaríkjunum, eftir að kórónuveirufaraldurinn braust út, en vélarnar millilentu í Keflavík til að taka eldsneyti. Hafa fulltrúar félagsins gefið til kynna að ferðirnar eigi eftir að verða fleiri. Upphaflega stóð til að annað flug- félag færi þessi flugferðir en sú áætl- un breyttist. Þekkja vel til Íslands Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa fulltrúar ungverskra stjórnvalda vakið athygli á þessum ferðum í samtölum við Íslendinga. Fulltrúar Wizz Air þekkja íslensku flugfélögin vel. Viðræður stóðu yfir milli eigenda félagsins og WOW air en þeim var slitið snemma árs 2019. WOW air fór svo í þrot 28. mars sama ár. Nú, rúmu ári síðar, eru fulltrúar Icelandair að endurskipuleggja félag- ið. Sama má segja um flugfélagið Norwegian. Norwegian flýgur beint yfir hafið en Wizz Air skoðar að milli- lenda á Íslandi eða annars staðar. Skoða flug með viðkomu á Íslandi  Wizz Air flýgur milli Evrópu og Bandaríkjanna  Í annað sinn síðan 17. mars kallar framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins eftir því að ríki sambands- ins framlengi bann við „ónauðsyn- legum“ ferðalögum um einn mánuð. Núna til 15. júní. Markmið Evrópusambandsins er að koma aftur á frjálsu flæði fólks innan Schengen-svæðisins áður en sameiginleg landamæri svæðisins eru opnuð út á við. Slíku flæði verð- ur þó ekki komið á fyrr en það er talið öruggt. »23 Fyrst frjálst flæði innan Schengen Kringlukast hófst í vikunni og virðast versl- unarglaðir Íslendingar hafa tekið vel við sér við tilboðin sem Kringlukasti fylgja og fréttir af til- slökunum samkomubanns ef marka má þann fjölda bíla sem hvíldi sig á planinu við versl- unarmiðstöðina í gær. Þegar samkomubann hófst lýstu verslunareigendur og forsvarsmenn Kringlunnar áhyggjum af samdrætti en gestum fækkaði um 30-45% eftir að það tók gildi. Morgunblaðið/Eggert Bíll við bíl á planinu við Kringluna Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Til greina kemur að Vinnumálastofn- un krefji fyrirtæki sem ekki eru í rekstrarvanda en hafa samt sótt um hlutabætur fyrir starfsfólk sitt um að endurgreiða Vinnumálastofnun bæt- urnar. Þetta segir Unnur Sverrisdótt- ir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Dæmi eru um að stöndug fyrirtæki, til dæmis Össur, Skeljungur, Festi og Hagar, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina þó hún sé einungis ætluð fyrirtækjum í rekstrarvanda. Eftir fréttaflutning af því hafa Skeljungur og Hagar ákveðið að end- urgreiða hlutabæturnar og Festi ákveðið að hætta að nýta sér hluta- bótaleiðina. Unnur segir að í ljósi umræðunnar um málið verði nánari skoðun Vinnu- málastofnunar á þeim fyrirtækjum sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina flýtt en hingað til hefur Vinnumála- stofnun ekki haft tök á að kanna hvort þau fyrirtæki sem sótt hafa um séu í rekstrarvanda. Því hefur stofnunin almennt greitt bæturnar út til þeirra fyrirtækja sem sótt hafa um án þess að kanna hver staða þeirra sé. „Það stóð til að gera þetta þegar rykið væri aðeins sest en við flýtum því í ljósi umræðunnar. Við erum ekki að falla á tíma,“ segir Unnur og bætir því við að strax í næstu viku muni Vinnumálastofnun ráðast í þessa út- tekt. „Það hefur í raun ekki gefist tími til að ganga úr skugga um það að fyrir- tækin séu raunverulega í rekstrar- vanda.“ Gera má ráð fyrir því að heildar- atvinnuleysi verði nálægt 18% í apríl en það er rúmu prósenti hærra en spáð var í upphafi apríl, samkvæmt nýju minnisblaði Vinnumálastofnun- ar. Í lok aprílmánaðar var heildar- fjöldi þeirra sem voru í þjónustu Vinnumálastofnunar vegna atvinnu- leysistrygginga um 52.500. Í sama minnisblaði segir að erfitt sé að spá um þróun atvinnuleysis í maí. Gert er ráð fyrir því að fjölmarg- ir muni afskrá sig úr hlutabótaleiðinni en töluverður fjöldi nýskráninga muni berast vegna almenna bótakerf- isins. Flýta úttekt vegna bóta  Verða mögulega krafin um endurgreiðslu  Búast við fleirum í almenna kerfið M„Það eru alltaf einhverjir… »2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.