Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 2
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fornleifarannsókn á Stjórnarráðs- reitnum hófst á ný 1. apríl. Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur, sem stjórnar rannsókninni, sagði stefnt að því að nýta sumarið og vinna að uppgreftrinum til loka ágúst. „Svæðið er um 1.300 fer- metrar og við erum búin með um það bil 500 fermetra,“ sagði Vala. Til þessa hafa verið rannsakaðar minjar frá 18., 19. og byrjun 20. aldar. Sjö vinna að rannsókninni á vettvangi og einn starfsmaður er í skráningu og gagnaöflun. Eins og sjá má á myndinni er komið í ljós mannvirki frá fyrri tíð. Vala sagði að þarna væri um að ræða drenlögn, þ.e. frárennsli fyrir jarðvatn, sem er hlaðin úr grjóti og lítur út eins og lágur veggur. Undir er skurður. Drenið nær frá Hverfisgötu, utan við þetta svæði, og alveg að Stjórn- arráðshúsinu. Svo er önnur alveg eins lögn nær Bankastræti. „Það er til mynd af þessu dreni frá 1905. Steyptur grunnur sem sést einnig á myndinni er af húsi sem var reist 1904. Það var byggt við það 1915 og húsið rifið 1967. Það þjónaði sem geymsluhús og íveruhús seinna meir,“ sagði Vala. Stjórnarráðshúsið var reist á árunum 1765-1770 og hefur lík- lega verið reist ofan á eldri mann- virkjum, að sögn Völu. „Við erum ekki komin það langt niður en vonandi kemur það í ljós í byrjun júní hvort svo er,“ sagði Vala. Hún sagði að þarna undir gætu leynst eldri leifar frá 14.-15. öld eða þar um bil. Eftir er að sjá hvort eldri minjarnar hafa verið fjarlægðar eða skildar eftir. „Eins og oft er um Reykjavík þá eru engar heimildir, hvorki frá miðöldum né fyrr. Nú er orðið ljóst að Reykjavík var stærra landnám en áður var talið. Það hefur fundist töluvert mikið af minjum í Kvos- inni, við Lækinn, á Alþingis- reitnum og Landsímareitnum. Maður er viðbúinn öllu,“ sagði Vala. Er viðbúin öllu í uppgreftrinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnarráðsreitur Fornleifarannsókn stendur nú yfir við Stjórnarráðshúsið og þar verður unnið til loka sumarsins. Mannvirki hafa komið þarna í ljós.  Áfram grafið upp við Stjórnar- ráðshúsið 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vinnumálastofnun vinnur nú að því að fá þá sem þiggja hlutabætur en eru ekki gjaldgengir í hlutabótakerf- ið lengur til að afskrá sig, að sögn Unnar Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. „Ég er að vona að það muni skila heilmiklum árangri,“ segir Unnur en Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir all- miklum afskráningum úr hlutabóta- leiðinni eða breytingum á bótahlut- falli til minnkunar. Á sama tíma má búast við töluverðum fjölda nýskrán- inga í almenna bótakerfið. Unnur segir fyrirséð að skilyrði til hlutabóta verði hert í nýju frumvarpi ríkisstjórnarinnar vegna hlutabóta en stöndug fyrirtæki hafa nýtt sér hana þrátt fyrir að hún sé ætluð þeim sem eru í rekstrarvanda. „Mér finnst þessi leið hafa virkað mjög vel. Það eru alltaf einhverjir svartir sauðir í mörgu fé en 6.700 fyrirtæki hafa nýtt sér hlutabótaleið- ina,“ segir Unnur. Vinnumálastofnun telur sig hvorki hafa heimild til að afhenda né birta lista yfir þau fyrirtæki sem gert hafa samkomulag við starfsmenn sína um minnkað starfshlutfall. Stúdentar hafa um tíma krafist þess að þeir fái rétt til atvinnuleys- isbóta eins og flestir aðrir þjóð- félagshópar. Í tilkynningu sem Landssamtök íslenskra stúdenta sendu frá sér í gær kemur fram að gera megi ráð fyrir því að um 7.000 stúdentar hafi enga atvinnu í sumar. Tillaga um að stúdentar fái bætur í sumar var felld á Alþingi á fimmtu- dag. ragnhildur@mbl.is „Það eru alltaf einhverjir svartir sauðir í mörgu fé“  Skilyrði til hlutabóta verða hert  Stúdentar krefjast bóta Morgunblaðið/Eggert Bót 36.000 hafa sótt um hlutabætur. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við höfum orðið vör við umtals- verða fjölgun umsókna, en þó ekki eins mikla og við mátti búast sé horft til talna frá Vinnumálastofnun. Það er fjöldi á hlutabótaleiðinni auk þess sem margir starfa nú á upp- sagnarfresti sem ekki klárast fyrr en í haust,“ segir Katrín S. Óladótt- ir, framkvæmdastjóri ráðninga- og ráðgjafarfyrirtækisins Hagvangs. Vísar hún í máli sínu til ástandsins sem skapast hefur á vinnumarkaði sökum áhrifa og útbreiðslu kórónu- veirunnar hér á landi. Nú þiggja nær 60 þúsund manns atvinnuleysisbæt- ur frá Vinnu- málastofnun, í formi hlutabóta eða fullra bóta. Viðlíka ástand hefur aldrei áður raungerst á ís- lenskum vinnu- markaði, en vonir eru þó bundnar við að hápunkti hafi verið náð. Að sögn Katrínar hef- ur ástandið orðið til þess að einstak- lingar í atvinnuleit eru nú opnari fyrir fleiri störfum. „Stærsta breyt- ingin er kannski sú að fólk er dug- legt að sækja um og þegar störf eru auglýst berst alveg ótrúlegur fjöldi umsókna. Fólk er þess utan talsvert opnara fyrir því að skoða störf á nýj- um vettvangi. Einstaklingar hafa kannski verið að leita sér að ákveðnu starfi en eru nú að átta sig á því að þeir geta ekki endilega leyft sér að einskorða leitina við ákveðið svið,“ segir Katrín. Hvetur fólk til að halda rútínu Aðspurð segir hún afar mikilvægt að fólk hugi sem fyrst að atvinnuleit. Leitin geti tekið tíma og því sé best að byrja strax. „Við erum að segja fólki að kanna þessi mál fyrr en síð- ar. Það eru miklu fleiri að sækja um hvert laust starf þannig að þetta getur tekið tíma,“ segir Katrín og bætir við að óvissuástand síðustu mánaða hafi orðið til þess margir hafi verið skildir eftir milli steins og sleggju. Fyrirtækjum hafi verið lok- að sem jafnframt olli því að fjöldi starfsmanna bíður nú eftir því að fá upplýsingar um hvort opnað verði að nýju. „Þetta er óvissuástand sem ekki er ljóst hversu lengi varir eða hversu margir starfsmenn munu halda vinnunni. Fólk hefur því verið í þeim sporum að bíða og sjá hvað gerist,“ segir Katrín. Spurð hvort ekki sé mikilvægt að einstaklingar komist sem fyrst í rút- ínu og fasta vinnu kveður Katrín já við. Þó sé einnig hægt að nýta tím- ann til að auka við þekkingu og koma þannig öflugri að nýju inn á vinnumarkaðinn. „Við hvetjum fólk til að vera opið fyrir öllu og hafa í huga að atvinnuleit getur tekið tíma. Það skiptir hins vegar máli að gefast ekki upp og halda áfram því það er alltaf möguleiki á að tækifæri opn- ist. Þetta getur farið illa með and- legu hliðina þannig að það er best fyrir fólk að sýna virkni og reyna að halda dagskrá í stað þess að bíða,“ segir Katrín sem kveðst horfa björt- um augum til framtíðar. „Ef þetta heldur áfram að ganga svona vel að ná utan um veiruna þá vonar maður að við komumst fyrr af stað,“ segir Katrín. Gríðarleg ásókn í auglýst störf Katrín S. Óladóttir  Byrja verður atvinnuleit sem fyrst  Hvetur fólk til að vera opið fyrir sem flestum möguleikum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.