Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 9

Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Yfirlit yfir afkomu ársins 2019 2019 2018 Efnahagsreikningur (í milljónum kr.) A deild V deild B deild Samtals Samtals Eignarhlutir í félögum og sjóðum 58.159 10.836 3.951 72.946 53.234 Skuldabréf 129.166 24.066 10.135 163.367 152.239 Bundnar bankainnstæður 3.383 630 0 4.013 7.137 Kröfur 1.065 198 238 1.501 1.402 Óefnislegar eignir 122 23 0 145 150 Varanlegir rekstrarfjármunir 119 22 0 141 142 Handbært fé 5.405 1.007 972 7.384 2.692 Skuldir -222 -41 -131 -394 -610 Hrein eign til greiðslu lífeyris 197.197 36.741 15.165 249.103 216.386 Breyting á hreinni eign (í milljónum kr.) Iðgjöld 11.072 3.233 2.117 16.422 14.547 Lífeyrir -3.501 -303 -2.817 -6.621 -5.671 Hreinar fjárfestingatekjur 18.494 3.369 1.577 23.440 12.905 Rekstrarkostnaður -354 -60 -110 -524 -512 Aðrar tekjur 0 0 0 0 6 Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 25.711 6.239 767 32.717 21.275 Hrein eign frá fyrra ári 171.484 30.503 14.399 216.386 190.559 Sameining við lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar/ER 0 0 0 0 4.552 Hrein eign til greiðslu lífeyris 197.195 36.742 15.166 249.103 216.386 Kennitölur Nafnávöxtun 10,3% 10,3% 10,4% 10,4% 6,2% Hrein raunávöxtun 7,5% 7,5% 7,6% 7,5% 2,9% Raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,8% 4,8% 4,1% 4,8% 4,2% Raunávöxtun (10 ára meðaltal) 4,2% 4,2% 4,2% 3,6% Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -14.071 -1.876 -11.695 Virkir sjóðfélagar 13.772 4.589 186 18.548 17.692 Fjöldi lífeyrisþega 4.846 1.243 1.773 7.862 7.136 Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar 15,6% 1,2% Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -4,1% 1,2% Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I lifbru@lifbru.is Ársfundur 2020 B ir t m e ð fy ri rv a ra u m p re n tv ill u r. Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn mánudaginn 25. maí kl. 16.30 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en óskað er eftir að þeir tilkynni mætingu til sjóðsins á netfangið lifbru@lifbru.is eða í síma 540 0700. Reykjavík 30. apríl 2020 Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur 2019 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt 5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna 6. Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins 7. Önnur mál Allar fjárhæðir í milljónum króna Á árinu 2019 greiddu að meðaltali 18.547 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins og námu heildariðgjöld ársins 16.422 m.kr. með aukaframlagi launagreiðenda. Að meðaltali fengu 7.862 einstaklingar greiddan lífeyri frá sjóðnum og nam hann 6.621 m.kr. Í stjórn sjóðsins eru: Benedikt Þór Valsson, formaður stjórnar, Garðar Hilmarsson, varaformaður, Auður Kjartansdóttir, Halldóra Káradóttir, Sonja Ýr Þorbergsdóttir og Þorkell Heiðarsson. Framkvæmdastjóri er Gerður Guðjónsdóttir. Sveitarstjórn Dalabyggðar vill í ályktun að Vegagerðin hefjist handa í sumar um að leggja klæðn- ingu eða slitlag á svonefndan Klofn- ingsveg. Verði framkvæmdin til- raunaverkefni á landsvísu við að leggja bundið slitlag á malarvegi með sem minnstum hönnunarkostn- aði. Klofningsvegur er lengsti sam- felldi tengivegurinn í Dölum; 93 kílómetra leið um Fellsströnd og Skarðsströnd sem liggur úr Hvammssveit, um Klofning og í Saurbæinn. Dalamenn segja að leið þessi hafi um langt árabil verið svelt um fjár- muni til viðhalds. Þó sé vegurinn nauðsynleg samgönguæð í Dala- byggð og bundið slitlagið geti orðið vítamínsprauta fyrir eflingu byggð- ar á Fellsströnd og Skarðsströnd. Nýverið var leiðin svo skilgreind sem hluti af Vestfjarðaleið, nýrri ferðaleið um Dali, Vestfirði og Strandir sem verið er að markaðs- setja. Dalabyggð sé eins með til skoðunar að flytja Byggðasafn Dalamanna á Staðarfell, sem stend- ur við veginn á Fellsströnd. Allt geri þetta samgöngubætur á svæð- inu þarfar. Klofnings- vegurinn verði klæddur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fellsströnd Enn malarvegur en heimamenn vilja úrbætur. Landsréttardómararnir Hervör Þorvaldsdóttir og Aðalsteinn E. Jónasson voru á mánudag úrskurð- uð vanhæf í tveimur málum. Þetta kemur fram í úrskurði Hæsta- réttar. Verður viðkomandi málum því vísað á ný til lögfræðilegar meðferðar, en í báðum tilvikum eru dómarnir taldir ómerkir. Snúa málin bæði að lánasamningi milli Landsbankans og Hydra ehf., sem síðar fékk heitið Eignarhalds- félagið City S.A. ehf. Lánasamning- urinn var tilkominn vegna uppgjörs á sjálfskuldarábyrgð tveggja ein- staklinga. Höfðu umræddir ein- staklingar því tekið lán vegna upp- gjörs á fyrstnefnda láninu. Fyrstnefnda lánið var að upphæð 80 milljónir króna og var veitt í sterlingspundum. Í kjölfarið var lánið samþykkt af 25 sjálfskuldar- ábyrgðaraðilum og var ábyrgð þeirra hlutfallsleg. Umrædd mál snúa að ábyrgð tveggja framan- greindra aðila, Einars Dagbjarts- sonar og Sigmars Júlíusar Eðvarðs- sonar. Í málunum var m.a. deilt um hvort upphaflega lánið hefði verið í erlendum gjaldmiðlum eða í ís- lenskum krónum með ólögmætri gengistryggingu. Í héraðsdómi var niðurstaðan sú að víkja ætti síðari lánssamningnum til hliðar. Dómi héraðsdóms var þó snúið í Lands- rétti og var þar vísað til dóma- fordæma Hæstaréttar. Nú er hins vegar ljóst að framangreindir dóm- arar voru vanhæfir og því er dóm- urinn ómerkur. Málinu hefur því verið vísað til löglegrar meðferðar að nýju. Vanhæfir í tveimur málum Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Dómarar við Landsrétt voru taldir vanhæfir í tveimur málum.  Tveir dómar taldir ómerkir vegna vanhæfis sömu dómara Sumarstörfum í Kópavogi verður fjölgað úr 425 í 750 í sumar eða um tæplega 76% miðað við í fyrra. Bæjarstjórn Kópavogs sam- þykkti fyrr í vor aðgerðir til að bregðast við af- leiðingum farald- ursins og er fjölgun sumarstarfa hluti af þeim aðgerðum. Allir sem uppfylla skilyrði um ráðningu fá starf hjá Kópavogsbæ. Verður tekið mið af fyrirhuguðum stuðningi Vinnumálastofnunar í skipulagningu sumarstarfa en stofn- unin stýrir átaki stjórnvalda um tímabundna fjölgun starfa fyrir námsmenn. Sumarstarfsmenn, eldri en 18 ára, koma flestir til starfa í byrjun júní og verður þeim tryggð vinna í að minnsta kosti sex vikur. 76% fleiri sumarstörf í Kópavogi Það er gott að búa í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.