Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Sigríður hefur verið að kallameira og meira á mig,sérstaklega núna þegar égsé þessi líkindi með henni
og Gretu Thunberg. Þær voru ekki
aðeins áþekkar í úliti heldur einnig
í lundarfari. Sigríður var gríðar-
lega þrjósk og óskaplega fylgin
sér ef hún tók eitthvað í sig. Hún
var einþykk, félagsfælin og fór
sínar eigin leiðir, rétt eins og
Greta. Ég er ekkert viss um að
það hafi verið auðvelt að búa með
Sigríði, hún hafði mjög ákveðnar
skoðanir, en hún var góð kona.
Hún hefur mótast mikið af því að
alast upp í þó nokkurri einangrun
þarna upp við heiðina, hún var
mikið náttúrubarn og listræn,“
segir Eyrún Ingadóttir sagnfræð-
ingur sem vinnur nú að sögulegri
skáldsögu um Sigríði Tómasdóttur
í Brattholti, konuna barðist fyrir
verndun Gullfoss.
„Sigríður er fyrsta konan á
Íslandi sem beitir sér fyrir nátt-
úruvernd. Það er stórmerkilegt að
kona á þessum tíma rísi upp gegn
valdinu, hún er fædd á nítjándu
öldinni, árið 1871. Gullfossmála-
ferlin voru ekki þau fyrstu sem
hún stóð í, það var deila um girð-
ingu sem átti sér stað áður. Þá
leitaði Sigríður til Sveins Björns-
sonar lögfræðings í Reykjavík eft-
ir aðstoð, en hún þurfti á endanum
að biðja bændur afsökunar á að
hafa rifið niður girðingu sem þeir
höfðu sett upp milli Tungufljóts og
Hvítár við Tunguheiði. Sigríður og
Tómas faðir hennar töldu að
Brattholt yrði óbyggilegt ef þessi
girðing risi. Sigríður tók upp á sitt
eindæmi að rífa niður girðinguna,
og þegar hún var spurð hvort hún
hefði gert þetta, þá svaraði hún
því játandi, enda var ekki til í
henni fals eða lygi. Hún var hrein
og bein og áhugaverð manneskja.“
Vakti fólk til meðvitundar
Sigríður varð fræg á þeim
tíma sem Gullfossmálaferlin stóðu
yfir.
„Stórvirki Sigríðar er að bar-
átta hennar fyrir Gullfossi varð til
þess að fólk áttaði sig á að kannski
væru sumir fossar of góðir til að
þeim væri fargað í virkjanir.
Þannig vakti hún fólk til meðvit-
undar um náttúruvernd. Hún
þekkti fossinn manna best, en það
var ekki fyrr en á seinni hluta
nítjándu aldar sem fólki fór að
þykja eitthvað til Gullfoss koma og
fór að leggja leið sín til hans til að
skoða hann. Fram að því vissi eng-
inn af honum, þetta var bara ein-
hver foss uppi á hálendi, fjarri
mannabyggðum. Þegar kóngurinn
kom 1874 var ekki farið með hann
að Gullfossi, en þremur áratugum
síðar, árið 1907, þegar Friðrik
kóngur kemur, þá var honum sér-
staklega sýndur fossinn,“ segir
Eyrún og bætir við að Sigfús Ey-
mundsson hafi verið fyrstur til að
koma með erlenda gesti til að
skoða Gullfoss.
Baráttan um girðinguna
Ertu ekkert hrædd um að fólk
sé með fastar hugmyndir um Sig-
ríði og verði viðkvæmt fyrir því að
þú skáldir í eyðurnar, eins og þarf
að gera í sögulegum skáldsögum?
„Ég verð að sýna kjark og
þor, rétt eins og Sigríður,“ segir
Eyrún og hlær. „Í grúski mínu um
sögu Sigríðar hef ég rekið mig á
að ég þarf að skálda á milli, því
það eru ekki skýringar á öllu. Til
dæmis af hverju Tómas faðir
hennar skrifaði undir að leigja
fossafélögum Gullfoss til 150 ára,
eða fram til ársins 2062. Hann
hafði áður harðneitað að selja foss-
inn fyrir stórfé, sagðist ekki selja
vin sinn. Ég verð að geta mér til
um ástæðurnar og ég held að hann
hafi hreinlega verið vélaður til að
gera þetta. Hann hafði engan til
að verja sína hagsmuni eða leið-
beina sér við samningsgerðina.
Þetta er því miður enn svo hér á
landi að stórfyrirtæki sitja við
borðið öðrum megin en menn hin-
um megin í svipaðri stöðu og Tóm-
as, sem hafa ekki forsendur eða
kunnáttu til að gæta hagsmuna
sinna.“
Eyrún segist hafa skoðað sér-
staklega seinni hluta ævi Sigríðar,
því þar sé önnur barátta sem hafi
ekki verið gerð skil, en hún muni
gera það í sinni bók.
„Einar fósturbróðir Sigríðar,
sem bjó með henni í Brattholti og
fékk jörðina frá henni, seldi Gull-
foss í óþökk Sigríðar árið 1945 til
ríkisins. Þar eru engin ákvæði um
að vernda hann, en þau gerðu
munnlegt samkomulag um að hún
ætti fossinn. Þetta samkomulag
sveik hann, sem hlýtur að hafa
verið afar sárt fyrir Sigríði, en
hún fór ekki í hart við Einar.“
Þurfum að vera á varðbergi
Hvað getum við nútímafólk
lært af þessari mögnuðu konu,
Sigríði í Brattholti?
„Að við þurfum að halda
áfram að berjast fyrir íslenska
náttúru. Við stöndum alltaf
frammi fyrir þessum álitaefnum
sem varða umhverfi okkar og
ákveðna staði á landinu, rétt eins
og Sigríður barðist fyrir Gullfossi
á sínum tíma. Ég held að það sé
mikilvægt að spyrja spurninga
eins og hvað ef allir fossar og
vatnsföll hér á landi væru núna í
eigu erlendra aðila sem hefðu
virkjað og ættu þá allar auðlindir
Íslands og allur arður af þeim far-
ið úr landi? Í byrjun tuttugustu
aldar var það raunhæfur mögu-
leiki, því megum við ekki gleyma.
Fossafélögin sem Tómas leigði
fossinn til 150 ára, þau höfðu
keypt eða leigt virkjunarrétt
margra fossa á Íslandi og erlendir
aðilar áttu hlut í þessum félögum.
Menn sáu hagnaðarvon og keyptu
upp hverja einustu sprænu með
von um að það yrði sú sem yrði
virkjuð. Ef Fossafélögin hefðu
haldið velli og farið að virkja fossa
og fallvötn, þá væri staða okkar
allt önnur en hún er í dag. Við
þurfum bara að vera á varðbergi.
Það er ástæða til að halda sögu
Sigríðar á lofti, nú sem aldrei
fyrr.“
Í skinnskóm og pilsklædd
Eyrún verður önnur þeirra
kvenna sem leiða pílagrímagöngu
sem farin verður í júní í spor Sig-
ríðar, frá Brattholti til Reykjavík-
ur.
„Þessi leið er um 130 kíló-
metrar og stundum fór Sigríður
þetta gangandi í þeim mörgu ferð-
um sem hún gerði sér til höfuð-
staðarins til að berjast fyrir því að
Gullfoss yrði ekki virkjaður. Hún
hefur örugglega verið fljótari á
sínum skinnskóm og pilsum en við
sem gefum okkur viku til að ganga
þessa leið. Þetta verður sögu-
ganga, við byrjum á hlaðinu í
Brattholti og ég ætla að segja sög-
ur af Sigríði og samtímafólki
hennar á leiðinni. Til er saga af
því þegar Sigríður var að vaða yfir
Hólá, hún fór yfir hana til móts við
Laugardalshóla, en bóndinn var
búinn að dæma hana ófæra, því
það var svo mikið af ís í henni.
Hann horfði á Sigríði fara gang-
andi yfir,“ segir Eyrún og bætir
við að Margrét Sveinjörnsdóttir
frá Heiðarbæ í Þingvallasveit taki
við leiðsögninni frá Þingvöllum, en
hún er einn af höfundum Árbókar
Ferðafélags Íslands um Mosfells-
heiði.
Gengið í spor Sigríðar í Brattholti
Þær eru sláandi líkar,
Greta Thunberg og Sig-
ríður í Brattholti. Þær
búa báðar yfir óbilandi
baráttukrafti fyrir náttúr-
una. Eyrún Ingadóttir
vinnur að sögulegri
skáldsögu um merkiskon-
una Sigríði í Brattholti
sem barðist fyrir vin sinn
Gullfoss. Eyrún leiðir
pílagrímagöngu í júní
þar sem gengið verður í
fótspor Sigríðar frá Bratt-
holti til Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Eggert
Sagnfræðingur Eyrún segir ástæðu til að halda sögu Sigríðar í Brattholti á lofti, nú sem aldrei fyrr.
Ljósmynd/LandsbókasafnAFP
Áþekkar Þær eru báðar einarðlegar á svip með flétturnar sínar, Greta
Thunberg og Sigríður í Brattholti. Náttúruvernd ofarlega í huga þeirra.
Nánar um pílagrímagönguna á
vefslóðinni mundo.is/gangan.Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
BOTANIC Model 3185
L 162 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,-
L 192 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
L 162 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 192 cm Áklæði ct. 70 Verð 299.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.