Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Sigríður hefur verið að kallameira og meira á mig,sérstaklega núna þegar égsé þessi líkindi með henni og Gretu Thunberg. Þær voru ekki aðeins áþekkar í úliti heldur einnig í lundarfari. Sigríður var gríðar- lega þrjósk og óskaplega fylgin sér ef hún tók eitthvað í sig. Hún var einþykk, félagsfælin og fór sínar eigin leiðir, rétt eins og Greta. Ég er ekkert viss um að það hafi verið auðvelt að búa með Sigríði, hún hafði mjög ákveðnar skoðanir, en hún var góð kona. Hún hefur mótast mikið af því að alast upp í þó nokkurri einangrun þarna upp við heiðina, hún var mikið náttúrubarn og listræn,“ segir Eyrún Ingadóttir sagnfræð- ingur sem vinnur nú að sögulegri skáldsögu um Sigríði Tómasdóttur í Brattholti, konuna barðist fyrir verndun Gullfoss. „Sigríður er fyrsta konan á Íslandi sem beitir sér fyrir nátt- úruvernd. Það er stórmerkilegt að kona á þessum tíma rísi upp gegn valdinu, hún er fædd á nítjándu öldinni, árið 1871. Gullfossmála- ferlin voru ekki þau fyrstu sem hún stóð í, það var deila um girð- ingu sem átti sér stað áður. Þá leitaði Sigríður til Sveins Björns- sonar lögfræðings í Reykjavík eft- ir aðstoð, en hún þurfti á endanum að biðja bændur afsökunar á að hafa rifið niður girðingu sem þeir höfðu sett upp milli Tungufljóts og Hvítár við Tunguheiði. Sigríður og Tómas faðir hennar töldu að Brattholt yrði óbyggilegt ef þessi girðing risi. Sigríður tók upp á sitt eindæmi að rífa niður girðinguna, og þegar hún var spurð hvort hún hefði gert þetta, þá svaraði hún því játandi, enda var ekki til í henni fals eða lygi. Hún var hrein og bein og áhugaverð manneskja.“ Vakti fólk til meðvitundar Sigríður varð fræg á þeim tíma sem Gullfossmálaferlin stóðu yfir. „Stórvirki Sigríðar er að bar- átta hennar fyrir Gullfossi varð til þess að fólk áttaði sig á að kannski væru sumir fossar of góðir til að þeim væri fargað í virkjanir. Þannig vakti hún fólk til meðvit- undar um náttúruvernd. Hún þekkti fossinn manna best, en það var ekki fyrr en á seinni hluta nítjándu aldar sem fólki fór að þykja eitthvað til Gullfoss koma og fór að leggja leið sín til hans til að skoða hann. Fram að því vissi eng- inn af honum, þetta var bara ein- hver foss uppi á hálendi, fjarri mannabyggðum. Þegar kóngurinn kom 1874 var ekki farið með hann að Gullfossi, en þremur áratugum síðar, árið 1907, þegar Friðrik kóngur kemur, þá var honum sér- staklega sýndur fossinn,“ segir Eyrún og bætir við að Sigfús Ey- mundsson hafi verið fyrstur til að koma með erlenda gesti til að skoða Gullfoss. Baráttan um girðinguna Ertu ekkert hrædd um að fólk sé með fastar hugmyndir um Sig- ríði og verði viðkvæmt fyrir því að þú skáldir í eyðurnar, eins og þarf að gera í sögulegum skáldsögum? „Ég verð að sýna kjark og þor, rétt eins og Sigríður,“ segir Eyrún og hlær. „Í grúski mínu um sögu Sigríðar hef ég rekið mig á að ég þarf að skálda á milli, því það eru ekki skýringar á öllu. Til dæmis af hverju Tómas faðir hennar skrifaði undir að leigja fossafélögum Gullfoss til 150 ára, eða fram til ársins 2062. Hann hafði áður harðneitað að selja foss- inn fyrir stórfé, sagðist ekki selja vin sinn. Ég verð að geta mér til um ástæðurnar og ég held að hann hafi hreinlega verið vélaður til að gera þetta. Hann hafði engan til að verja sína hagsmuni eða leið- beina sér við samningsgerðina. Þetta er því miður enn svo hér á landi að stórfyrirtæki sitja við borðið öðrum megin en menn hin- um megin í svipaðri stöðu og Tóm- as, sem hafa ekki forsendur eða kunnáttu til að gæta hagsmuna sinna.“ Eyrún segist hafa skoðað sér- staklega seinni hluta ævi Sigríðar, því þar sé önnur barátta sem hafi ekki verið gerð skil, en hún muni gera það í sinni bók. „Einar fósturbróðir Sigríðar, sem bjó með henni í Brattholti og fékk jörðina frá henni, seldi Gull- foss í óþökk Sigríðar árið 1945 til ríkisins. Þar eru engin ákvæði um að vernda hann, en þau gerðu munnlegt samkomulag um að hún ætti fossinn. Þetta samkomulag sveik hann, sem hlýtur að hafa verið afar sárt fyrir Sigríði, en hún fór ekki í hart við Einar.“ Þurfum að vera á varðbergi Hvað getum við nútímafólk lært af þessari mögnuðu konu, Sigríði í Brattholti? „Að við þurfum að halda áfram að berjast fyrir íslenska náttúru. Við stöndum alltaf frammi fyrir þessum álitaefnum sem varða umhverfi okkar og ákveðna staði á landinu, rétt eins og Sigríður barðist fyrir Gullfossi á sínum tíma. Ég held að það sé mikilvægt að spyrja spurninga eins og hvað ef allir fossar og vatnsföll hér á landi væru núna í eigu erlendra aðila sem hefðu virkjað og ættu þá allar auðlindir Íslands og allur arður af þeim far- ið úr landi? Í byrjun tuttugustu aldar var það raunhæfur mögu- leiki, því megum við ekki gleyma. Fossafélögin sem Tómas leigði fossinn til 150 ára, þau höfðu keypt eða leigt virkjunarrétt margra fossa á Íslandi og erlendir aðilar áttu hlut í þessum félögum. Menn sáu hagnaðarvon og keyptu upp hverja einustu sprænu með von um að það yrði sú sem yrði virkjuð. Ef Fossafélögin hefðu haldið velli og farið að virkja fossa og fallvötn, þá væri staða okkar allt önnur en hún er í dag. Við þurfum bara að vera á varðbergi. Það er ástæða til að halda sögu Sigríðar á lofti, nú sem aldrei fyrr.“ Í skinnskóm og pilsklædd Eyrún verður önnur þeirra kvenna sem leiða pílagrímagöngu sem farin verður í júní í spor Sig- ríðar, frá Brattholti til Reykjavík- ur. „Þessi leið er um 130 kíló- metrar og stundum fór Sigríður þetta gangandi í þeim mörgu ferð- um sem hún gerði sér til höfuð- staðarins til að berjast fyrir því að Gullfoss yrði ekki virkjaður. Hún hefur örugglega verið fljótari á sínum skinnskóm og pilsum en við sem gefum okkur viku til að ganga þessa leið. Þetta verður sögu- ganga, við byrjum á hlaðinu í Brattholti og ég ætla að segja sög- ur af Sigríði og samtímafólki hennar á leiðinni. Til er saga af því þegar Sigríður var að vaða yfir Hólá, hún fór yfir hana til móts við Laugardalshóla, en bóndinn var búinn að dæma hana ófæra, því það var svo mikið af ís í henni. Hann horfði á Sigríði fara gang- andi yfir,“ segir Eyrún og bætir við að Margrét Sveinjörnsdóttir frá Heiðarbæ í Þingvallasveit taki við leiðsögninni frá Þingvöllum, en hún er einn af höfundum Árbókar Ferðafélags Íslands um Mosfells- heiði. Gengið í spor Sigríðar í Brattholti Þær eru sláandi líkar, Greta Thunberg og Sig- ríður í Brattholti. Þær búa báðar yfir óbilandi baráttukrafti fyrir náttúr- una. Eyrún Ingadóttir vinnur að sögulegri skáldsögu um merkiskon- una Sigríði í Brattholti sem barðist fyrir vin sinn Gullfoss. Eyrún leiðir pílagrímagöngu í júní þar sem gengið verður í fótspor Sigríðar frá Bratt- holti til Reykjavíkur. Morgunblaðið/Eggert Sagnfræðingur Eyrún segir ástæðu til að halda sögu Sigríðar í Brattholti á lofti, nú sem aldrei fyrr. Ljósmynd/LandsbókasafnAFP Áþekkar Þær eru báðar einarðlegar á svip með flétturnar sínar, Greta Thunberg og Sigríður í Brattholti. Náttúruvernd ofarlega í huga þeirra. Nánar um pílagrímagönguna á vefslóðinni mundo.is/gangan.Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla BOTANIC Model 3185 L 162 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,- L 192 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- L 162 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 192 cm Áklæði ct. 70 Verð 299.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.