Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nýr vefur, ferdalandid.is, sem á að
hjálpa Íslendingum að finna áhuga-
verða áfangastaði og afþreyingu
innanlands í sumar, er kominn í
loftið. Verkefnið er unnið af ný-
sköpunarfyrirtækinu Getlocal, og
er notkun vefjarins öllum að
kostnaðarlausu, bæði þeim ferða-
þjónustufyrirtækjum sem þar
kynna þjónustu sína sem og al-
mennum notendum. Allar bókanir
og greiðslur fara beint og milliliða-
laust til fyrirtækjanna án aðkomu
þriðja aðila.
Hugmynd kviknaði í mars
Einar Þór Gústafsson, einn
stofnenda Getlocal, segir í samtali
við Morgunblaðið að hugmyndin
hafi kviknað stuttu áður en stjórn-
völd kynntu til sögunnar ferða-
ávísun fyrir ferðir innanlands í lok
mars. „Við sáum fljótt í hvað
stefndi og fengum þá hugmynd að
búa til vef sem væri eingöngu fyrir
Ísland og Íslendinga. Jafnframt
ákváðum við að vefurinn yrði ekki
gerður í hagnaðarsjónarmiði. Í
staðinn gætu ferðaþjónustufyrir-
tæki sem kynntu þjónustu sína
frítt á vefnum lækkað hjá sér verð-
ið á móti og hvatt þannig fólk enn
frekar til ferðalaga innanlands,“
segir Einar Þór í samtali við
Morgunblaðið.
Einar Þór segist hafa byrjað að
tala við nokkur fyrirtæki sem Get-
local hafði verið að vinna með áður,
og viðbrögð voru mjög góð að hans
sögn. „Það kom fljótlega í ljós að
tugir fyrirtækja vildu vera með.
Þessi mikli áhugi og stuðningur
hefur hvatt okkur áfram.“
Fyrst hét verkefnið „Heima er
best“ en breyttist svo að sögn Ein-
ars Þórs yfir í Ferðalandið. „Vefur-
inn fór í loftið um páskana en nán-
ast daglega bætast við ný fyrirtæki
á vefinn og úrval ferða og afþrey-
ingar sem í boði eru eykst hratt.“
Fjölbreyttir valkostir
Þegar vefurinn er skoðaður kem-
ur á óvart hve fjölbreytta og
áhugaverða afþreyingu og ferðir er
hægt að finna á Íslandi. „Fólk áttar
sig almennt ekki á því hvað það er
mikið af upplifunum í boði um land
allt. Sem dæmi má nefna kajak-
ferðir í Ísafjarðardjúpi og Stykkis-
hólmi, hundasleðaferðir við Mývatn
og fjórhjólaferðir í Reynisfjöru.“
Einar Þór bætir við að mögulega
sé eftir töluverðu að slægjast fyrir
íslensk ferðaþjónustufyrirtæki í
sumar. „Samkvæmt rannsóknar-
sviði Ferðamálastofu eyddu Íslend-
ingar tæpum 200 milljörðum króna
á ferðalögum erlendis í fyrra. Það
eru 60% þess sem erlendir ferða-
menn eyddu hér á landi á sama
tíma.“
Einar Þór ítrekar að verkefnið
sé hugsað sem átaksverkefni. „Við
erum ekki að fara í samkeppni við
ferðaskrifstofur. Hugsunin er sú að
við verðum með upplýsingar fyrir
fólk á Íslandi á íslensku. Þegar al-
heimsfaraldurinn er genginn yfir
getur vel verið að vefurinn hafi
engan tilgang lengur og honum
verði lokað. En það kemur í ljós
síðar.“
Tekur tíma að matreiða
Á Íslandi eru hundruð fyrirtækja
í ferðaþjónustu, hvort sem það eru
upplifunarfyrirtæki, gistihús, hótel
eða annað. Yfir 100 fyrirtæki hafa
nú þegar sótt um að komast inn á
ferdalandid.is að sögn Einars Þórs.
„Nokkur fjöldi fyrirtækja er þegar
kominn inn á vefinn. Það tekur
smá tíma að matreiða upplýsing-
arnar til birtingar á vefnum en ég
hef bent á að núna sé ef til vill
besti tíminn fyrir fyrirtækin að
vinna svona vinnu.“
Ferdalandid.is er byggt á vef-
sölukerfi Getlocal, en nú þegar eru
fyrirtæki í yfir tuttugu löndum að
nota kerfið til að selja ferðir og af-
þreyingu á eigin vefjum. Kerfið er
sérstaklega hannað með ferðaþjón-
ustuna í huga og mörg af stærstu
ferðaþjónustufyrirtækjum Íslands
nota kerfið í dag. Getlocal-kerfið
tengist síðan beint við miðlæg
birgðastöðukerfi eins og Bókun.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli
fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu að
vera með góðan vef fyrir eigin sölu
á netinu. Þannig eru fyrirtækin
ekki eins bundin sölu í gegnum
milliliði, sem taka oft tugi prósenta
í þóknun. Getlocal-kerfið hefur ver-
ið í þróun í tæp fimm ár og hefur
þá sérstöðu að það er nánast eng-
inn stofnkostnaður og hægt er að
setja nýjan vef í loftið á mjög
skömmum tíma. Dæmi eru um að
viðskiptavinir hér á landi hafi séð
hátt í tvöföldun á sölu í gegnum
eigin vef eftir að hafa tekið kerfið í
notkun,“ segir Einar Þór og bendir
á í lokin að hægt sé að prófa Get-
local-kerfið ókeypis með því að
sækja um á vefsíðunni getlocal-
.com.
Kynna ferðir innanlands
Þjónusta sem er ókeypis fyrir ferðaþjónustuaðila og almenning 100 umsækjendur nú þegar
Segja að nú sé góður tími til að huga að kynningarefni Fimm ára gamalt kerfi tekur flugið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Teymi Starfsmenn Getlocal: Standandi eru Sigmundur Halldórsson, Egill Erlendsson, Fannar Snær Harðarson og
Sam Daniels. Sitjandi eru Emil Emilsson, Einar Þór Gústafsson og Finnur Magnússon.
Ævintýri Á Ferðalandið.is er hægt er að kaupa klukkutíma langa buggy-
ferð við Esjurætur, með leiðsögn, hjá fyrirtækinu Buggy Adventures.
Ferðaþjónusta
» Kerfið er sérstaklega hann-
að með ferðaþjónustuna í
huga.
» Ferðalandið.is verður starf-
rækt a.m.k. þar til kórónu-
faraldurinn er genginn yfir.
» Íslendingar eyddu tæpum
200 milljörðum króna á ferða-
lögum erlendis í fyrra.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Makríllinn sem veiðist við Íslands-
strendur hefur verið erfiður til úr-
vinnslu sökum þess að á þeim árs-
tíma sem hann er að finna hér við
land er makríllinn mjög viðkvæmur
og þránar auðveldlega. Með breytt-
um aðferðum er hægt að auka virðis-
aukningu hér á landi, segir Hildur
Inga Sveinsdóttir. Hún varði dokt-
orsritgerð sína í matvælafræði í síð-
ustu viku. „Ég lagði áherslu á mögu-
leika á flakavinnslu með tilliti til
geymsluþols, breytileika í vöðvanum
og áhrifum þess og hvort hægt væri
að framleiða roðlaus flök,“ segir
Hildur Inga um rannsóknina.
Hún segir makrílinn hafa verið að
vissu leyti erfitt viðfangsefni
vinnslna hér á landi. „Það þarf að
meðhöndla hann öðruvísi en fisk
sem er veiddur á öðrum tíma árs.
[…] Það þarf einhverja pökkunar-
lausn með þráavarnarefni sem getur
veitt þann stöðugleika og geymslu-
þol sem markaðurinn gerir kröfu
um.“
Breyta þurfi regluverki
Hildur Inga segir að prófaðar hafi
verið umbúðir sem takmarki að-
gengi súrefnis og að það hafi gefið
góða raun í að lengja geymsluþol.
„Einnig prófuðum við þráavarnaefni
[…] og þetta var að gefa okkur mikla
aukningu í geymsluþoli og náðum
við geymsluþoli upp í allt að 15 mán-
uði við mínus 25 gráður á laus-
frystum flökum. Þetta veitir iðn-
aðinum tækifæri til þess að skoða
þessa nýju möguleika í vinnslu.“
Hún segir eina vandamálið við að
hefja hagnýtingu niðurstaðna verk-
efnisins vera að reglugerðir Evrópu-
sambandsins heimili ekki notkun
þráavarnaefnisins sem gaf bestu
niðurstöðuna í makrílvinnslu. „En
það er notað í karfavinnslu og kjöt-
vinnslu vegna þess að það hefur
ákveðna eiginleika til þess að við-
halda lit, sem hefur verið eftirsótt í
þeirri vinnslu. […] Það er kannski
framhaldið af þessari rannsókn að
við þurfum að koma því á framfæri
við viðeigandi aðila að mögulega
endurskoða [regluverkið].“
Meiri verðmæti
Það getur skipt verulegu máli fyr-
ir Íslendinga að geta lengt geymslu-
þol makríls og þar með auka getu
sjávarútvegsins til þess að vinna og
flytja út flakaðann makríl sem
veiðist á Íslandsmiðum, að sögn
Hildar Ingu. „Flökun hefur verið að
aukast og ég vona að það haldi
áfram því að sú virðisaukning sem á
sér stað við flakavinnslu tengist ekki
bara því að hærra verð fæst fyrir
flökin heldur líka að við fáum þá allt
þetta hliðarhráefni inn í vinnslu hér
á landi.“
Verkefnið var unnið í samstarfi
milli Háskóla Íslands, Matís, Síldar-
vinnslunnar og Ísfélags Vestmanna-
eyja. Það var styrkt af Tækni-
þróunarsjóði Rannís, AVS og
Norræna Iðnþróunarsjóðnum.
Virðisauki
makríls háður
geymsluþoli
Rannsókn sýnir að hægt sé að selja
verðmætari afurð í auknum mæli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hagnýting Ónýtt tækifæri eru í makrílvinnslu, að sögn Hildar Ingu.