Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 20

Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Á morgun, sunnudaginn 10. maí, eru 80 ár liðin frá því að Ísland var her- numið af Bretum. Seinni heimsstyrj- öldin var þá hafin og tilgangur her- námsins var að koma í veg fyrir að Þjóðverjar næðu landinu á sitt vald og kæmu hér upp bækistöðvum fyrir flota sinn og flugher. Þeir höfðu þá hertekið Danmörku og Noreg og fleiri lönd og beindu sjónum hingað norður. Óhætt er að segja að allur þorri landsmanna hafi fagnað því að það voru breskar hersveitir en ekki þýskar sem stigu á land í Reykjavík og dreifðu sér síðan um landið. Síðar um sumarið komu á þriðja þúsund kanadískir hermenn hingað til að styrkja breska herliðið. Þegar mest var 1941 voru hér um 28 þúsund breskir hermenn. Það ár var gerður herverndarsamningur á milli Íslands og Bandaríkjanna og leystu banda- rískir hermenn smám saman næstu misserin hina bresku af hólmi að miklu leyti. Þegar mest var sumarið 1943 voru samtals um 50 þúsund breskir og bandarískir hermenn hér. Voru um 80% þeirra suðvestanlands. Íslendingar voru aðeins um 120 þús- und um þær mundir og þar af voru Reykvíkingar um 40 þúsund. Markar kaflaskil Hernámið hafði gífurleg áhrif á allt þjóðlíf og efnahagslíf á Íslandi og markar kaflaskil í sögu Íslands á síð- ari tímum. Íslendingar höfðu búið við kreppu og talsvert atvinnuleysi nær allan fjórða áratuginn, en í kjölfar hernámsins fengu allar vinnufúsar hendur verk að vinna og kjör launa- fólks gerbreyttust til batnaðar. Her- setunni fylgdu miklar framkvæmdir og margvísleg viðskipti her- mannanna við Íslendinga. Mestu skiptu þó samningar sem tókust við Breta og Bandaríkjamenn um utan- ríkisverslunina, en þeir tryggðu að allar útflutningsvörur landsmanna seldust. Landsmenn höfðu nóg að bíta og brenna öll styrjaldarárin og bjuggu við kjör sem styrjaldarþjóð- irnar í Evrópu gátu ekki látið sig dreyma um. Friðþór Eydal, sem rannsakað hef- ur umsvif erlendu herliðanna hér á landi og skrifað um það bækur, segir að viðbúnaður Breta og Bandaríkj- anna hér hafi miðast við að hefta sigl- ingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir á Atlantshafi. Varn- irnar hafi fyrst og fremst miðast við svæði þar sem voru hafnir eða að- staða til flugvallagerðar og starf- rækslu sjóflugvéla með vegarteng- ingu við aðra landshluta svo sem á Suðvesturlandi, við Húnaflóa, Eyja- fjörð og á Austurlandi. Viðbúnaðurinn var mestur á höfuð- borgarsvæðinu en Reykjavíkurhöfn var lykillinn að liðs- og birgðaflutn- ingum til landsins. Bretar lögðu flug- velli í Kaldaðarnesi og í Reykjavík en Bandaríkjamenn reistu stóra flug- bækistöð við Keflavík og lék hún stórt hlutverk í loftflutningum þeirra til Bretlands. Eftirlitsskip og fylgd- arskip skipalesta höfðu aðstöðu í Hvalfirði og áðu einnig í Seyðisfirði. Hvalfjörður lék stórt hlutverk í sigl- ingum skipalesta með hergögn og birgðir frá Bretlandi og Bandaríkj- unum til sovéskra hafna á Kólaskaga og við Hvítahaf þegar mest á reið á árunum 1941 og 1942. Minjar frá stríðsárunum Friðþór segir að herliðin hafi flutt ógrynni tækja og búnaðar til Íslands, t.d. rúmlega 4 þúsund bifreiðar og önnur farartæki auk fjölda flugvéla. Reistar voru um 12 þúsund bragga- byggingar ásamt um eitt þúsund smærri stein- og timburhúsum í rúm- lega 300 íbúðahverfum. Friðþór segir að um þrjú þúsund farartæki hafi verið flutt aftur úr landi ásamt marg- víslegum búnaði. Árið 1944 hafi sam- ist við stjórnir Bretlands og Banda- ríkjanna um að íslenska ríkið annaðist kaup og endursölu á öllum fasteignum og búnaði sem ekki yrði fjarlægður til þess að tryggja inn- heimtu lögboðinna aðflutningsgjalda. Hafi ríkissjóður fengið eignirnar á vægu verði en jafnframt tekið yfir skuldbindingar gagnvart landeig- endum. Hafi Sölunefnd setuliðseigna verið sett á fót til að annast verkið ásamt því að bæta skemmdir á land- eignum fyrir ágóða af endursölu til landsmanna. Hann segir að í all- mörgum tilvikum hafi landeigendur fengið greitt fyrir að sjá sjálfir um landlögun en sumir heykst á því og séu það nánast einu staðirnir þar sem mannvirki eða minjar standi eftir frá hersetunni fyrir utan flugvellina í Reykjavík og í Keflavík og olíu- og hvalstöðina í Hvalfirði sem voru áfram í notkun. Að sögn Friðþórs varð hermönn- unum alls ekki eins vel ágengt í sam- skiptum við íslenskar stúlkur og oft er látið í veðri vaka. „Ástandið“ svo- nefnda hafi í raun ekki verið neitt frá- brugðið því sem jafnan gerist á stöð- um þangað sem ungir vermenn hópast eða í síldarplássum, þótt fjöldi aðkomumanna næði óþekktum hæð- um á stríðsárunum. Hann segir að langflestir hermannanna hafi ekki átt neinn „séns“ í stúlkurnar sem flestar hafi ekki virt þá vilits. Bandaríkjaher hafi þegar á leið lagt bann við gift- ingum liðsmanna sinna. Ákvörðunin hafi ekki verið einskorðuð við Ísland og byggst á því að stjórnvöld vildu forðast að þurfa að annast fram- færslu fjölskyldna sem stofnað væri til með óvissa framtíð og e.t.v. í ein- manaleik fjarri heimahögum. Íslendingar voru ekki beinir þátt- takendur í hernaðinum en bækistöðv- ar bandamanna og aðstaða í landinu áttu þátt í að flýta fyrir sigri í styrj- öldinni. Landsmenn veittu mikil- vægan stuðning, t.d. með sölu mat- væla og annarra framleiðsluvara sem kom Bretum afar vel. Ekki varhluta af ógnunum Þótt styrjöldin færði þjóðinni auð- sæld og umbætur fór hún ekki var- hluta af ógnum hennar. Alls fórst að sögn Friðþórs 151 Íslendingur af hernaðarvöldum svo fullvíst sé talið og skjótur efnahagsuppgangur og herseta höfðu langvarandi þjóðfélags- umrót í för með sér. Bandamenn misstu alls nærri 900 manns hér við land og í stríðslok hvíldu 510 erlendir hermenn og sjómenn í íslenskri mold. Þar af voru rúmlega 200 Bandaríkja- menn en líkamsleifar þeirra voru síð- ar fluttar til heimalandsins. Friðþór segir að allmikið sé til af lýsingum á viðhorfi hermannanna til landkosta eða ókosta og dvölinni í landinu almennt, en fremur lítið um viðhorf til landsmanna. Þetta stafi einfaldlega af því að sárafáir kynntust í raun eða áttu náin samskipti við landsmenn. „Nú gerir fólk sér vart grein fyrir hversu tungumálakunnáttan var lítil og erfiðlega gekk að eiga gagnleg samtöl þannig að fólk kynntist högum hvert annars í raun. Flest viðhorfin á báða bóga eru því byggð á því sem fólk sá úr fjarlægð, og upplifði í ein- hverjum tilvikum, en ekki síst á sögu- sögnum og getgátum sem gengu manna á milli í fásinninu enda frétta- flutningi strangar skorður settar. Þeir sem kynntust í raun sínum lík- um, t.d. liðsforingjar eða mennta- menn, báru hverjir öðrum jafnan vel söguna og sama er að segja um þá sem áttu í viðskiptum eða bjuggu í návígi,“ segir Friðþór. Hernámið gerbreytti þjóðlífinu  80 ár liðin frá því að Ísland var hernumið af Bretum  Bandaríkjamenn leystu þá síðar af hólmi  Allt að 28 þúsund breskir hermenn þegar mest var 1941 og um 50 þúsund samtals sumarið 1943 Ljósmynd/Svavar Hjaltested. Birt með leyfi Erlu Hjaltested. Hernámið Sögufræg mynd frá hernámsdeginum 10. maí 1940. Alvopnaðir breskir hermenn hafa komið sér fyrir við Herkastalann í Kirkjustræti. Umhverf- is þá eru nokkrir forvitnir Íslendingar. Ólafur Guðmundsson heitir sé sem er lengst til vinstri og Brynjólfur Árnason lögfræðingur er til hægri við hann. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Stríðsárin Vopnaðir hermenn vakta umferð við Þingvallaveginn. Þótt Íslendingar væru ekki beinir þátttakendur í seinni heimsstyrj- öldinni sigldu íslenskir sjómenn um átakasvæði á farskipum sem fluttu vörur til landsins og fiskiskipum með afla til sölu á mörkuðum í Bretlandi. Þjóðverjar litu svo á að þessar siglingar væru í þágu óvin- arins og gerðu allt sem þeir gátu til að stöðva þær og granda skip- unum. Friðþór Eydal segir að alls hafi um 410 íslenskir sjómenn og farþegar látist af almennum slys- förum eða hernaðarvöldum á styrj- aldarárunum sex auk fjögurra sem urðu fyrir banaskotum hermanna eða sprengjubrotum. Hann segir að svo virðist sem sú heildartala hafi snemma ranglega verið höfð til marks um fórnir Íslendinga í sam- anburði við aðrar þjóðir. Til sam- anburðar við þá 260 sjómenn og farþega sem ekki fórust af hern- aðarvöldum, svo víst sé talið, hafi samkvæmt gögnum Slysavarna- félagsins að meðaltali um 200 ís- lenskir sjómenn farist á þremur sex ára tímabilum á áratugnum fyrir stríð. Að teknu tilliti til mjög auk- innar sóknar og ástands skipa- stólsins á stríðsárunum telur Frið- þór að álykta megi að hlutfallslegur mannskaði af öllum orsökum á sjó hafi í reynd verið lítið tíðari á styrj- aldarárunum en áratugina þar á undan. Álíka og á friðartímum MANNSKAÐI ÍSLENDINGA Á STYRJALDARÁRUNUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.