Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vísindamenn nota öskulag sem varð til við Heklugos fyrir nær 27 þúsund árum til viðmiðunar við rannsókn á skyndilegum loftslagsbreytingum sem urðu á norðurhveli jarðar á síð- ustu ísöld. Öskulagið finnst bæði í ís- kjörnum úr Grænlandsjökli og set- lögum á hafsbotninum suðvestur af Íslandi. Þetta kemur fram í grein eftir Sunnivu Rutledal, við Háskól- ann í Bergen, á vefnum geoforskn- ing.no. Hún er að rannsaka loftslag á norðurslóðum á síðustu ísöld. Í greininni kemur m.a. fram að loftslagskerfið sé flókið og háð sam- spili margra þátta. Vandi vísinda- manna sé að skilja þetta samspil og það geti hjálpað að rannsaka lofts- lagsbreytingar í fortíðinni. Mikil- vægur liður í því er að finna fastan viðmiðunarpunkt í loftslagssögunni sem hægt er að ganga út frá. Eldgos hafa orðið á Íslandi um milljóna ára skeið og spúð ösku upp í loftið sem oft hefur dreifst yfir mjög stór svæði. Öskulög finnast enn þar sem hún féll. Þar mynda öskulögin það sem kalla má loftslagsdagbækur eins og í setlögum á hafsbotni, botni stöðuvatna og djúpt í iðrum stórra jökla eins og Grænlandsjökuls. Hitasveiflur á ísöld Hópur loftslagsvísindamanna fór í rannsóknarleiðangra sumurin 2015 og 2016 til að safna sýnum úr setlög- um á hafsbotninum sunnan og aust- an við Grænland, frá Grænlands- sundi í norðri og suður í Labradorhaf. Setlagasýnin átti að nota til að rannsaka snöggar lofts- lagsbreytingar sem merki sáust um í ísborakjörnum úr Grænlandsjökli. Ískjarnarnir benda til þess að á síðustu ísöld, fyrir u.þ.b 25-40 þús- und árum, kunni lofthiti á Grænlandi að hafa hækkað um 10-15°C á skömmum tíma, jafnvel ekki nema tveimur áratugum. Þessar hitasveifl- ur eru kenndar við Dansgaard- Oeschger (D/O sveifla). Hliðstæðar loftslagsbreytingar Í grein Rutledal segir að ef til vill séu D/O sveiflurnar eina þekkta hlið- stæðan við loftslagsbreytingar á norðurslóðum í dag. Þess vegna geti þekking á D/O sveiflunum verið mik- ilvæg til að skilja afleiðingar lofts- lagsbreytinga sem nú eru að verða á þessum slóðum. Rannsóknir á tengslum breytinga á ástandi hafsins annars vegar og Grænlandsjökuls hins vegar kalla eftir því að fundinn verði sameiginlegur snertipunktur þessara náttúrufyrirbæra sem bæði geyma upplýsingar um loftslag fyrri tíma. Þar gegnir eldfjallaaska lykil- hlutverki. Hún féll um leið bæði á jökulinn og í hafið. Fram kemur í greininni að ekki sé aðeins hægt að greina frá hvaða eldfjalli askan kom heldur oft úr hvaða eldgosi, því ask- an beri eins konar fingrafar eldfjalls- ins. Í þessari rannsókn leituðu vísinda- mennirnir að öskulagi sem myndað- ist fyrir nærri 27 þúsund árum við Heklugos. Aska úr gosinu hafði fundist í setlögum á hafsbotni austan við Ísland, í borkjarna úr Græn- landsjökli en ekki fyrr en nú með fullri vissu í setlögum hafsbotnsins suðvestur af Íslandi. Þar fannst öskulag sem var 5 mm þykkt og korn öskunnar voru 25-80 míkrómetra stór. Efnagreining staðfesti uppruna öskunnar úr Heklu. Rutledal segir að nú sé hægt að rannsaka áhrif loftslagsbreytinga á stóru svæði í hafi og á landi og skera úr um hvort hafið breytist á undan lofthjúpnum eða hvort breytingarn- ar verða samtímis. Hekluaska og loftslagsrannsókn  Vísindamenn nota 27.000 ára öskulag í jökulís og setlögum á hafsbotni til tímaviðmiðunar  Hita- sveiflur á ísöld eru taldar geta gefið vísbendingar um möguleg áhrif loftslagsbreytinga á okkar tímum Morgunblaðið/RAX Hekla Aska sem barst frá þessu þekkta eldfjalli Íslands fyrir um 27 þúsund árum myndaði öskulag. Það hefur bæði fundist í ískjörnum úr Grænlandsjökli og setlögum á hafsbotni. Hægt er að tímasetja þróunina út frá öskulaginu. Sigfús J. Johnsen (1940-2013), eðlis- og jöklafræð- ingur, var einn af frum- kvöðlum ís- kjarnaborana á Græn- landsjökli. Hann greiddi mörg- um íslenskum vísindamönnum leið til þátttöku í borverkefn- inu og í rannsóknum á sögu veðurfars og eldgosa og eig- inleikum jökulíss, að því er sagði í fréttabréfi Jöklarann- sóknafélagsins 2010. Það ár var haldin alþjóðleg ráðstefna Sigfúsi til heiðurs í Háskóla Íslands (HÍ). Hann var heims- þekktur vísindamaður á sínu sviði og hlaut fjölda við- urkenninga fyrir störf sín. Sigfús hóf ísrannsóknir sín- ar í samvinnu við Willi Dansgaard prófessor. Ís- kjarnaverkefnið á Grænlands- jökli gerði kleift að rekja veð- urfarssögu norðurslóða um 100 þúsund ár aftur í tímann. Þá kom m.a. í ljós að fimb- ulvetur ísaldar var rofinn af um 25 mildari skeiðum, þ.e. D/O sveiflum. Sagan lesin úr ískjörnum FRUMKVÖÐULL Sigfús J. Johnsen Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hrönn og Bylgja Hafþórsdætur, tví- burasysturnar á bókasafninu á Siglufirði, eru líkar bæði í sjón og raun. Svipurinn er sá sami og eins smekkur þeirra fyrir bókum, en báð- ar hafa þær verið lestrarhestar al- veg síðan í æsku. Ungar drukku þær í sig hinar vinsælu ævintýrabækur Enid Blyton og af íslensku efni voru Öddubækur Jennu og Hreiðars Stef- ánssonar og sögur Ármanns Kr. Einarssonar í uppáhaldi. Á ung- lingsárum fóru systurnar svo að lesa skáldverk, ævisögur og svo mætti áfram telja; bækur í öllum sínum fjölbreytileika eru þverskurður af veröld sem breytist hratt. Bókasafnið í Fjallabyggð er á tveimur stöðum; á Siglufirði og Ólafsfirði en þessir tveir kaupstaðir voru sameinaðir í eitt sveitarfélag fyrir mörgum árum. Í hvorum bæ um sig eru þjónustustofnanir sem þarf svo að samfélagið virki og víst er að bækur, andi og sögur eru leið til að lifa af. Vinna vel saman „Ég get með sanni sagt að við systur séum aldar upp hér á safninu á Siglufirði,“ segir Hrönn. „Bóka- verðirnir sem hér störfuðu fyrr á tíð, þeir Gísli Sigurðsson og Óli Blöndal, voru okkur ákaflega góðir. Völdu og fundu til bækur sem þeir vissu að okkur hæfðu. Þetta jók líka áhugann og við hurfum bókstaflega inn í spennandi heim bóka og ævintýra.“ Hrönn er fædd 1964, en fluttist suður liðlega tvítug. Nam bóka- safnsfræði og starfaði sem slík í Hafnarfirði um langt árabil. Langaði þó alltaf norður og þegar starf for- stöðumanns bókasafnanna í Fjalla- byggð var auglýst árið 2014 sótti Hrönn um og fékk. Þegar svo vant- aði safnvörð til afgreiðslustarfa þremur árum síðar sótti systir henn- ar Bylgja um og var ráðin. „Við systur vinnum ákaflega vel saman. Við erum alætur á bók- menntir sem er nauðsynlegt í starf- inu hér. Gestir safnsins spyrja margs og vilja umsagnir okkar og álit á hinum og þessum bókum og hvort vert sé að lesa þær. Samskipti við fólkið eru einn af skemmtileg- ustu þáttunum í þessu starfi,“ segir Bylgja. Bókabær sveipaður ævintýraljóma Í nýafstöðnu samkomubanni var bókasafnið á Siglufirði lokað, enda þótt systurnar mættu til starfa alla daga. Nýttist tíminn vel í pappírs- vinnu, tiltektir og að strjúka sótt- hreinsivökva yfir hverja einustu bók og allar hillur. Gestir máttu svo aft- ur mæta á safnið sl. mánudag og var þá mikið að gera á safninu. „Gestir voru glaðir í bragði; marg- ir höfðu tekið stóran bunka af bók- um fyrir samkomubannið og skiluðu aftur nú. Það er gott að lífið sé aftur að komast í rútínu,“ segir Bylgja. Í margra vitund er Siglufjörður bær sveipaður ævintýraljóma. Margir höfundar hafa, hver með sín- um stíl og hætti, skráð sögu stað- arins og þar eru síldarárin, ástir og auður áberandi þema. Hin hliðin á þeim peningi er svo vitnisburður um vonbrigði og að margt í henni veröld fer öðruvísi en ætlað er. Siglufjörður er líka sögusvið ým- issa skáldverka í seinni tíð, svo sem í spennusögum Ragnars Jónassonar, Snjóblinda og Náttblinda. Siglu- fjörður er í bakgrunni í Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason. Þar heitir bærinn reyndar Segul- fjörður, en engum dylst hvað við er átt. Þá voru spennuþættirnir Ófærð, sem sýndir voru á RÚV fyrir nokkr- um misserum, að stórum hluta tekn- ir upp á Siglufirði. „Já, bókmenntir hafa mikið að- dráttarafl á ferðafólk. Bækur Ragn- ars Jónassonar hafa verið gefnar út í mörgum löndum og oft kemur hing- að á bókasafnið fólk langt að, jafnvel frá Ástralíu, til þess að kynna sér sögusviðið. Við höfum því látið útbúa kort með helstu kennileitum úr sög- um Ragnars og vísum fólki veginn. Munum gera slíkt hið sama varðandi Ófærð svo Íslendingarnir, sem væntanlega flykkjast hingað í sum- ar, geti fundið hvar einstaka mynd- skeið í þeim þáttum voru tekin,“ seg- ir Hrönn. Hún getur ennfremur Siglufjarðarþátta Egils Helgasonar sem sýndir voru í sjónvarpi í vetur við miklar vinsældir. Vænta megi að þættirnir hafi vakið áhuga fólks sem komi norður í sumar til þess að kynna sér staðinn. Megi þá ganga að mörgu vísu á upplýsingamiðstöð ferðamanna í bænum, sem er á sama stað og bókasafnið. Hjarta og sál bæjarins „Við erum hér í miðjunni á Siglu- firði, undir sama þaki og bæjarskrif- stofurnar við Gránugötu alveg í hjarta bæjarins. Raunar má segja að bókasafnið sé að sumu leyti hjarta og sál bæjarins. Hingað koma marg- ir, ekki bara til að ná sér í bækur heldur líka til að líta í blöðin, hitta fólk og spjalla. Á heimleið úr leik- skólanum koma foreldrar með börn- in sín oft hér við – og þá er leik- hornið hér vinsæll staður,“ segir Hrönn að síðustu. Við hurfum inn í heim bókanna  Tvíburasysturnar Hrönn og Bylgja sjá um bókasafnið á Siglufirði  Fjöl- breytileiki veraldar  Ferðafólkið mætir á slóðir Náttblindu og Ófærðar Ljósmynd/Björn Valdimarsson Bókakonur Bylgja safnstjóri til vinstri og Hrönn Bergþórsdætur líta í gögn á bókasafninu á Siglufirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.