Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Gullsmári 10, 201 Kópavogur Opið hús þriðjudaginn 12. maí kl. 17.00–17.30 Verð 42,5 m. Stærð 89 m2 Upplýsingar veita Óskar Bergsson lgfs í síma 893 2499, oskar@eignaborg.is og Vilhjálmur Einarsson lgfs í síma 864 1190, villi@eignaborg.is Góð þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Tvö svefnherbergi, yfirbyggðar svalir og þvottaherbergi innan íbúðar. Íbúðin snýr í suðvestur. Forstofa er með ljósum flísum og skápum. Dökkt parket á gólfum. Rúmgóð svefnherbergi með góðu skápaplássi. Flísalagt baðherbergi með sturtuskilrúmi í baðkari og hvítri inréttingu. Sérþvottaherbergi og geymsla í sameign. Eldhúsið er í opnu rými og innréttingin úr ljósum hlyn. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Evrópudómstóllinn lýsti því yfir í gær að hann einn hefði lögsögu yfir evrópska seðlabankanum. Hafnaði dómstóllinn þar með alfarið niður- stöðu þýska stjórnlagadómstólsins, þar sem bæði bankinn og Evrópu- dómstóllinn voru gagnrýndir fyrir afstöðu sína gagnvart skuldabréfa- kaupum bankans. Í tilkynningu dómstólsins sagði meðal annars að til þess að hægt væri að tryggja að lög Evrópusam- bandsins væru alls staðar túlkuð á sama hátt hefði dómstóllinn einn „lögsögu til að skera úr um að að- gerð stofnunar ESB sé í trássi við lög sambandsins“. Þá sagði að skoðanamunur milli dómstóla hvers og eins aðildarríkis um lögmæti slíkra gjörða myndi vera líklegur til að setja hina laga- legu skipan sambandsins úr skorð- um og draga úr réttaröryggi. Úrskurður stjórnlagadómstólsins á þriðjudaginn var sérstaklega harðorður í garð Evrópudómstóls- ins, sem að sögn þýsku dómaranna hafði farið fram úr lagalegum heim- ildum sínum þegar hann fjallaði um mál seðlabankans, og hefði í raun gerst „afgreiðslustofnun“ fyrir bankann. Þá áréttaði stjórnlagadómstóllinn þá afstöðu sína að aðildarríki sam- bandsins væru „ábyrg fyrir sáttmál- um þess“, og að Evrópusambandið væri ekki sambandsríki. Stjórnlagadómstóllinn gaf Seðla- banka Evrópu þrjá mánuði til þess að réttlæta stórtæk kaup sín á ríkis- skuldabréfum vegna kórónuveiru- faraldursins, ellegar yrði þýska seðlabankanum meinað að taka frekari þátt í magnbundinni íhlutun á vegum evrópska seðlabankans. Ólíklegt er hins vegar talið að evr- ópski bankinn vilji svara þýska dóm- stólnum beint, heldur muni þýski seðlabankinn fá það hlutverk, ef úr- skurður stjórnlagadómstólsins stendur óhaggaður. Munu aðrir ganga á lagið? Embættismenn innan Evrópu- sambandsins, sem hafa tjáð sig við AFP-fréttastofuna, hafa lýst því yfir að þeir telji niðurstöðu þýska stjórn- lagadómstólsins bjóða hættunni heim, og hvetji önnur ríki sem lent hafi upp á kant við Evrópudómstól- inn til þess að ganga á lagið. Er þar einkum horft til Póllands og Ungverjalands, en stjórnvöld í ríkjunum tveimur hafa gripið til meintra umbóta á réttarfari sínu, sem Evrópusambandið hefur litið á sem aðför að sjálfstæði dómstól- anna þar. Sebastian Kaleta, aðstoð- ardómsmálaráðherra Póllands, fagnaði í vikunni niðurstöðu þýska stjórnlagadómstólsins á twitter- síðu sinni, og sagði Þjóðverja hafa varið fullveldi sitt. Lýsti hann því einnig yfir að Pól- verjar myndu gera slíkt hið sama og setja stjórnarskrá Póllands ofar túlkun Evrópudómstólsins. Hafnar niðurstöðu stjórnlagadómsins  Evrópudómstóllinn segir að hann geti einn haft lögsögu yfir stofnunum Evrópusambandsins Skoski höfuðsmaðurinn Andy Reid lék í gær á sekkjapípur sínar við hina hvítu kletta Dover á meðan tvær Spitfire-vélar flugu hjá. Var þeirra merku tímamóta minnst víða um Evrópu, þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hefði sett nokkurt strik í hátíðahöldin. Gjörningnum var ætlað að minnast þess að í gær voru liðin 75 ár frá skilyrðislausri uppgjöf Þjóðverja í síðari heimsstyrjöld. AFP 75 ár liðin frá uppgjöf Þjóðverja Donald Trump Bandaríkja- forseti hafnaði í gær öllum ásök- unum um að Bandaríkin hefðu staðið að meintri „innrás“ kólumbískra skæruliða í Venesúela, þrátt fyrir að tveir Bandaríkjamenn hefðu verið hand- teknir í kjölfarið. Sagði Trump að ef hann léti til skarar skríða þyrfti enginn að velkjast í vafa um að Bandaríkin hefðu gert innrás. „Ef ég vildi fara inn í Venesúela myndi ég ekki fara í neinn feluleik,“ sagði Trump við Fox-fréttastöðina. „Ég myndi fara inn og þeir myndu ekki gera neitt, þeir myndu gefast upp. Ég myndi ekki senda einhvern lítinn hóp. Ó nei, það yrði kallaður her. Þetta yrði kallað inn- rás,“ sagði Trump. Nicolas Maduro, sem nú situr í stóli forseta í Venesúela, hefur sak- að Bandaríkjastjórn um samsæri með Juan Guaido, leiðtoga stjórn- arandstöðunnar, um að steypa sér af stóli. 17 manns hafa verið hand- teknir vegna „innrásarinnar“. Trump hafnar allri aðild Bandaríkjanna Donald Trump VENESÚELA Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hvatti í gær aðildarríki sambandsins til þess að framlengja ferðabann ríkjanna inn í Schengen- svæðið um einn mánuð, eða til 15. júní næstkomandi. Sagði í tilkynningu framkvæmda- stjórnarinnar að þrátt fyrir að nú væri hægt að létta á þeim aðgerðum sem gripið hefði verið til vegna kór- ónuveirufaraldursins væri ástandið enn viðkvæmt, bæði í Evrópu sem og í heiminum öllum. Ferðabannið var sett á 17. mars síðastliðinn og var framlengt um einn mánuð í apríl. Lokunin nær til ytri landamæra Evrópusambands- ins og Schengen-svæðisins, en ferðalög frá EFTA-ríkjunum fjórum og Bretlandi eru undanþegin lok- ununum. Ylva Johansson, framkvæmda- stjóri Evrópusambandsins í innan- ríkismálum, sagði að það þyrfti að draga úr ferðatakmörkunum á innri landamærum ríkjanna áður en hægt væri að opna sameiginleg landa- mæri þeirra út á við. „Fyrsta tak- mark okkar er að koma aftur á fót frjálsri för manna innan Schengen- svæðisins um leið og ástandið leyf- ir,“ sagði Johansson. Vilja framlengja ferðabann ESB AFP Eftirlit Mörg ríki Schengen hafa tekið upp eftirlit á innri landamærunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.