Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Sá sem þessar línur ritar hef-ur tvisvar átt þess kost aðtefla í Armeníu, bæði skipt-in í höfuðborginni Jerevan. Hið fyrra var undir lok Sovéttímans á minningarmóti um Tigran Petrosj- an og í síðara skiptið á Ólympíu- skákmótinu 1996. Þetta rifjaðist sem snöggvast upp þegar fréttir bárust af því að sterkasti skákmaður Ar- mena, Levon Aronjan, tefldi þessa dagana með úrvalsliði Evrópu í al- þjóðlegri liðakeppni FIDE á Chess- .com ásamt landsliði Kína, Rúss- lands, Bandaríkjanna, Indlands og heimsliðsins. Tvöföld umferð og tímamörk eru 25 10. Aronjan varð fyrir miklu áfalli í ársbyrjun er hann missti eiginkonu sína í bílslysi. Þetta er fyrsta skák- mótið sem hann tekur þátt í um nokkurt skeið. Og það rifjaðist líka upp þegar greinarhöfundur gekk til leiks í keppni Íslands við Armeníu 2 á téðu ólympíumóti, að feimnislegt ung- menni heilsaði mér, en að baki stóð hópur stoltra ættmenna. Skákinni lauk með jafntefli og okkar andlegi leiðtogi, Gunnar Eyjólfsson heitinn, var hreint ekki ánægður með þau úrslit. „Helgi, þetta er barn,“ sagði hann hneykslaður. Ég átti svo sem ekkert yfir því, en tautaði með sjálf- um mér að menn ættu nú ekki að vanmeta Armena; þeir hefðu nú ald- eilis stofnað fyrstu kristnu deildina og þar að auki höggvið í klett heila kirkju. Löngu síðar rakst ég á þessa viðureign í gagnagrunni og þá kom í ljós að umrætt barn var enginn ann- ar en Levon Aronjan. Á FIDE-mótinu hefur hann hlotið 4 vinninga eftir sex skákir. Þessi staða kom upp í skák hans við einn besta Indverjann: Liðakeppni FIDE á netinu; 3. um- ferð: Aronjan – Vidit Hvítur leikur og vinnur. Það er útbreiddur misskilningur að mislitir biskupar tryggi oft jafn- tefli. Hvítur getur brotið upp stöð- una með … 47. b4! axb3 48. Bb2! Lokar á möguleikann b3-b2 og svarti biskupinn sleppur út. 48. … h5 49. g5! h4 50. a4 Frípeðið tekur á rás og svartur getur sig h vergi hrært. 50. … Kg8 51. a5 Kh7 52. a6 Bd1 53. Kxd1 d2 54. Dxg7+! Dxg7 55. Bxg7 Kxg7 56. Kxd2 - og svartur gafst upp. Tveir fyrrverandi heimsmeistarar standa á hliðarlínunni; fyrirliði Evr- ópuliðsins er enginn annar en Garrí Kasparov og Vladimir Kramnik hef- ur sömu stöðu hjá liði Indlands. En Viswanathan Anand er ekki hættur nýorðinn fimmtugur. Hann bók- staflega ruslaði Nepo upp í 5. um- ferð í aðeins 17 leikjum: Liðakeppni FIDE á netinu; 5. um- ferð: Viswanathan Anand – Jan Nepo- mniachtchi Grünfelds vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Bd2 Bg7 6. e4 Rxc3 7. Bxc3 c5 8. d5 Bxc3 9. bxc3 Dd6 10. Dd2 O-O 11. f4 e6 12. Rf3 exd5 13. Bc4! Skemmtilegt leikbragð í þekktri stöðu. Hvítur nýtir sér leppunina og reynir að koma biskupinum í áhrifa- stöðu á d5. 13. … Be6 14. O-O d4? Svartur varð að leika 14. .. Rc6. það er eins og að Nepo hafi ekki átt- að sig á sleggjunni sem nú kemur… 15. f5! Vinnur! 15. … Bxc4 Eða 15. .. gxf5 16. Dg5+ Kh8 17. Df6+ Kg8 18. Rg5! og vinnur, t.d. 18. .. Rd7 19. Dh6! o.s.frv. 16. e5 Dd7 17. f6 - Svartur gafst upp. Það finnst engin vörn, t.d. 17. .. Kh8 18. Dh6 Hg8 19. Rg5 og mátar. Eftir sjöttu umferð voru Kínverj- ar efstir með 11 stig, Evrópuliðið var með 9 stig í 2. sæti og Bandaríkja- menn í 3. sæti með 7 stig. Tafl- mennskan hefst dag hvern kl. 13 að íslenskum tíma. Levon Aronjan snýr aftur Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Háspenna Aronjan hafði betur gegn Kasparov í hraðskákarhluta Reykja- vik Rapid á NASA árið 2004. Sigurður Bjarni Haraldsson fæddist á Syðra-Rauðamel í Hnappadalssýslu 9. maí 1930. Foreldrar hans voru Úlfhild- ur Hannesdóttir, f. 1897, d. 1982, og Haraldur Lífgjarns- son, f. 1896, d. 1959, en Sig- urður ólst upp hjá móðursystur sinni, Helgu Hannesdóttur, og eiginmanni hennar, Sigurði Haraldssyni, í Reykjavík Sigurður lauk efnaverk- fræðiprófi frá Háskólanum í Glasgow árið 1958. Hann starf- aði hjá Fiskifélagi Íslands í tvö ár og var framkvæmdastjóri Ferskfiskeftirlitsins í tíu ár. Hann vann að undirbúningi stofnunar Fiskvinnsluskólans, sem tók inn fyrstu nemendur sína árið 1970. Sigurður var skólastjóri þess skóla þar til hann lét af störfum vegna heilsubrests árið 1995. Sigurður var einn af stofn- félögum Rótarýklúbbs Sel- tjarnarness og var forseti klúbbsins 1989-1990. Hann tók virkan þátt í byggingu Sel- tjarnarneskirkju ásamt konu sinni, en hún var fyrsti for- maður sóknarnefndar kirkj- unnar. Eiginkona Sigurðar er Krist- ín Friðbjarnardóttir, f. 9.4. 1929, búsett á Seltjarnarnesi. Synir þeirra eru Friðbjörn og Haraldur Hlynur. Sigurður lést 13. apríl 2002. Merkir Íslendingar Sigurður B. Haraldsson Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Eilífur snjór í augu mín út og suður og vestur skín, samur og samur út og austur, einstaklingur! vertu nú hraustur. Dauðinn er hreinn og hvítur snjór, hjartavörðurinn gengur rór og stendur sig á blæju breiðri, býr þar nú undir jörð í heiðri. Víst er þér, móðir! annt um oss; aumingja jörð með þungan kross ber sig það allt í ljósi lita lífið og dauðann, kulda’ og hita. Rétt er að taka strax fram að tvö eiginhandrit eru að ljóði þessu: KG 31 b V og JS 129. Hér er kvæðið birt eins og best fer á samkvæmt handritum þessum. Um þau verður ekki fjallað að þessu sinni. Það er ekki annað en satt sem sagt hefur verið að kvæði Jónasar eru flest auðskiljanleg en svo bregð- ur undarlega við með það sem birtist hér og er eitt af hans síðustu ljóðum að seilst er langt um hurð til lok- unnar til útskýringa á því þegar flest liggur nokkuð ljóst fyrir ef að er gáð. Vissulega er snjór tákn dauðans en á einnig við um erfiðleika sem við er að etja, leiða og bölsýni auk þess að vera einhver skýrasta táknmynd kókaíns. 1. erindi. Endurtekningar út og samur og nokkuð óvænt notkun upp- hrópunarmerkis og úr takti. Það sama gildir um upphrópunarmerki önnur í textanum. Þau kunna þó að vísa til hugtaka um nokkuð almennt og hugstætt hlutskipti flestra og þá jafnvel Íslendinga í Danmörku. Orð- ið einstaklingur vísar sennilega til þess að menn skyldu reiða sig á sjálfa sig, þeir standa einir og sér og þeim eins gott að sýna hvað í þeim býr. Merking: Hvert sem litið er þá blasa við erfiðleikar sem ekki sér út úr, engu virðist hafa verið áorkað af því sem uppsprettuna dreymdi um; bölsýni og leiði virðist grafa um sig við sífellda endurtekningu hlutanna þar sem gáski og gaman er nú að baki en dagleg rútína tekur við þar sem allt end- urtekur sig upp aftur og aftur. 2. erindi. Dauðinn er endir þessa alls og þá fyrst fær hugur og sál gengið frjáls af þeim fjötrum sem hún hefur mátt þola svo lengi. Líkið er lagt á líkklæði (blæju) og hvílir jörðu undir í grafarhelgi sinni. 3. erindi. Móðir náttúra er ávörpuð og á það minnt að maðurinn er af jörðu fæddur og hverfur þangað til við lok æviskeiðs. Til þess er einnig vísað að ævin er ósjaldan barátta við grimm og ill örlög og jörðin að nokkru guðlegrar náttúru í þessu til- liti þar sem hún stynur undan slíku álagi, harmur mannsins er hennar líka. Þá er vísað til litbrigða allra í þessu sambandi og það knýtt lífi og dauða sem og þeirri velgengni sem varir um stund sem og þegar napur veruleikinn blasir við. Þó svo að ég hafi kosið að skýra kvæðið út án þess að gera ráð fyrir kókaíni eða neinu slíku enda stenst það þannig þá er grunur minn sá að undir liggi vísun til kókaíns enda notkun embættismanna og annarra á slíku efni alkunn og nokkuð jöfn þeirri vitneskju sem menn þykjast búa yfir varðandi notkun rithöfunda ósjaldan af amfetamíni til að andinn kæmi frekar yfir þá og í báðum til- vikum eru staðfest tilfelli sem ekki virðist ástæða til að efast um. Kvæðið Alsnjóa eftir Jónas Hallgrímsson Eftir Guðna Björgólfsson »… seilst er langt um hurð til lokunnar til útskýringa á því þegar flest liggur nokkuð ljóst fyrir ef að er gáð. Guðni Björgólfsson Höfundur er fyrrverandi skólastjóri og kennari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.