Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 14, sími 551 0400 · www.gallerifold.is
Þ
akkið Drottni, því að
hann er góður, mis-
kunn hans varir að
eilífu.“
Þessa dagana er
mikið og einlægt þakklæti í
mínum huga. Ég var
að eignast mitt
fimmta barnabarn,
lítinn dreng. Og
hann er fallegasti
drengur í heimi.
Þegar ég tjái fólki
þetta, sérstaklega
öfum og ömmum,
kemur bros og þau
segja góðlátlega:
„Velkominn í hóp-
inn.“
Í annan stað er ég
svo þakklátur fyrir
hve vel hefur tekist
að hemja farsóttina.
Ég er þakklátur
fyrir stjórnvöld,
sem leyfðu sótt-
varnalækni og land-
lækni undir styrkri
forystu ríkislög-
reglustjóra að ráða
ferðinni. En umfram
allt er ég þakklátur
fyrir þá mannúð og
mannhelgi, sem
kemur fram í stefnu
þríeykisins. Þeim
hefur tekist að
marka stefnu sem virðir hið
veika og fatlaða til jafns við hið
sterka og heilbrigða. Skjaldborg
hefur verið reist um þau sem
eru veikust fyrir, aldraða og
þau sem eru með undirliggjandi
sjúkdóma. Það hefur verið
aðdáunarvert að fylgjast með
heilbrigðisþjónustunni um allt
land. Það er svo greinilegt að
allir, jafnt stjórnendur sem
vaktmenn, hafa einhent sér í
verkefnið og hvergi dregið af
sér. Fyrir það ber að þakka.
Vissulega höfum við ekki enn
séð hvernig þjóðfélagið muni
fara út úr þessari farsótt. En
við höfum þegar séð hvernig
hægst hefur á sóttinni. Og mið-
að við viðbrögð stjórnvalda og
stefnu, þá vonumst við til þess
að tjón verði lágmarkað og það
takist að halda heimilunum á
floti.
Í þeim vanda sem við höfum
staðið frammi fyrir hafa margir
lyft bæn sinni til Guðs. Það hef-
ur verið heiður að fá að biðja
Guð að blessa og leiða heil-
brigðisstarfsfólk og sjúkraflutn-
ingamenn í krefjandi og hættu-
legum aðstæðum. Við í
kirkjunni tókum það alvarlega
að vera beðin um að biðja dag
hvern. Og það höfum við gert í
fjölmörgum söfnuðum um allt
land. Í samkomubanni hafa
helgistundir og guðsþjónustur
verið sendar út á netinu og
ánægjulegt hvað áhorf reynist
mikið. Ég veit einnig að frá
kirkjunum er reglulega hringt í
þau sem hafa tekið þátt í kirkju-
starfinu til að fylgjast með líðan
og heyra hvernig
gengur. Það er
mikilvæg þjónusta
og fyrir það ber að
þakka.
Ég sé fagrar
dyggðir skína víða í
kringum mig.
Dyggðir eins og
visku, þekkingu,
hugrekki, staðfestu
og miskunnsemi.
Það er fagur vitnis-
burður. Ég hef einn-
ig séð dyggðirnar
trú, von og kærleika
blómstra. Trúna á
góðan Guð, sem
leiðir í gegnum erf-
iðleika og hættur.
Vonina sem sér ljós-
ið og sumarið hand-
an myrkurs og
vetrarkulda. Og
kærleika sem svo
víða kemur fram í
verkum fólks. Ekki
endilega því stóra,
heldur einnig í því
hvernig við komum
fram hvert við ann-
að, í brosi úr tveggja metra
fjarlægð, með því að kinka kolli
og bjóða góðan daginn. Fyrir
það er ég þakklátur.
Við skiljum ekki alltaf af
hverju vondir hlutir gerast, en
við eigum kærleiksríkan Guð og
föður að leita til í bæninni. Með
honum berjumst við trúarinnar
góðu baráttu fyrir betri og rétt-
látari heimi. Megi vers úr sálmi
Linu Sandell vera okkur
styrkur.
Hann, sem er mér allar stundir
nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér:
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
(Sandell-Berg –
Sigurbjörn Einarsson)
Guð blessi Ísland og heiminn
allan á komandi vikum og mán-
uðum.
Kirkjan til fólksins
Ljósmynd/Vigdís Pálsdóttir
Breiðholtskirkja.
Þakklæti
Hugvekja
Magnús Björn
Björnsson
Höfundur er prestur í Breiðholts-
prestakalli.
magnus@breidholtskirkja.is
Magnús Björn
Björnsson
Ég sé fagrar
dyggðir skína
víða í kringum
mig. Dyggðir
eins og visku,
þekkingu, hug-
rekki, staðfestu
og miskunn-
semi.
Síðustu mánuði hef-
ur heimsbyggðin ver-
ið undir áhrifum lífs-
hættulegrar farsóttar.
Glíman við hana hef-
ur reynt á samfélög
og heilbrigðiskerfi og
ýmist birt styrk eða
afhjúpað veikleika
þeirra. Mikið þakkar-
efni er hve vel hefur
tekist hér á landi að
hamla háskanum, enda ráðum
hæfustu fag- og vísindamanna ver-
ið fylgt og kosta heilbrigðiskerfis
notið er gætir að heilsu allra sam-
félagsþegna. Fólk hefur kunnað að
meta viðbrögðin og sýnt lofsverða
samstöðu, tekið tilmælum og gerst
virkt í almannavörnum og valið
framar öðru að vernda lífið. Sorg-
legt er að veikin hafi kostað
mannslíf, einnig hér á landi, þótt
allt væri reynt til að lækna. En
þakkarvert að mun fleirum hefur
tekist að bjarga vegna sam-
ræmdra aðgerða, hæfni og fórn-
fýsi hjúkrunarliðs.
Vart er hægt að ímynda sér hve
átakanlegt hefur verið í fámennu
og vanbúnu íslensku samfélagi að
fást við hörmungar spænsku veik-
innar fyrir nær réttri öld. Þá lét-
ust um 500 manns. Fyrr um árið
höfðu fimbulkuldi og eldgos lam-
andi áhrif á lífsþrótt landsmanna.
Flestir létust í illa upphituðum og
rökum húsakynnum. Læknar
máttu sín lítils og mjög reyndi á
presta við sálusorgun. Fullveldi
þjóðar í aðventubyrjun vakti þó
vonir um betri tíð. Íslandssagan
greinir frá mannskæðum farsótt-
um fyrr á öldum. Og fjöldi barna
og ungmenna lést úr berklum á
nýliðinni öld.
Vegna framfara í læknavís-
indum hefur nútímakynslóðum á
Vesturlöndum fundist sem þær
kæmust undan mannskæðum sýk-
ingum. Ótíðindi úr stríðshrjáðum
löndum og hungurlendum virðast
snerta þær lítt og samkenndin
rista grunnt. Stríð og manndráp
eru þeim vinsælt afþreyingarefni í
kvikmyndum og tölvuleikjum og
munur á gerviheimi og oft sárum
raunveruleika hefur mjög máðst
úr vitund þeirra.
Hættumerkin mörgu
um lífsógnandi um-
hverfisvá vegna lofts-
lagshlýnunar hafa enn
ekki vakið og knúið
ráðamenn og efna-
hagsráðgjafa til að
hafna ósjálfbæru og
mengandi hagkerfi og
stuðla markvisst að
vistvænu efnahagslífi,
og viðurkenna að heil-
brigt og fjölbreytt
vistkerfi sé verðmæt-
asta auðlindin. Þrátt fyrir varn-
aðarorð og samþykktir loftslags-
ráðstefna virðist mengandi
brennsla jarðefnaeldsneytis hafa
aukist ár frá ári.
Skyndilega, vegna útbreiðslu
veirunnar, er stigið svo fast á
bremsur á hraðri ferð að efna-
hagslíf heimsins fer harkalega af
spori og samgöngur og samskipti
lamast. Jafnframt léttir til við
skuggaskil er mengunarskýjum
fækkar. Himalæjafjöll sjást að
nýju frá nálægum löndum og vötn
og síki verða tærari en verið hafa
lengi.
Brugðist er við með því að
miðla færni og þekkingu um heim-
inn í sameiginlegu átaki svo að
þrátt fyrir lokun landamæra finnst
meiri samkennd og samstaða en
oftast áður. Og er ekki sem skiln-
ingur vaxi á því að það séu svik
við lífið að framleiða og safna
sýkla,- efna- og kjarnavopnum og
fáránleg blekking að halda því
fram að þau stuðli að lífsöryggi og
friði?
Það er reyndar sem dregið hafi
úr stríðsátökum um sinn. Aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna hefur
hvatt til að lægja ófriðaröldur og
hætta öllum stórskota- og loft-
árásum. Hann hefur ákallað trúar-
leiðtoga um að sameinast til að
beita áhrifum sínum við að stuðla
að friði á átakasvæðum og sigrast
á vágestinum illa. „Allt sem gert
verður í þessari krísu og að henni
lokinni,“ segir hann, „verður að
miða að réttlátara og sjálfbærara
efnahagskerfi en viðgengist hefur
og byggja upp samfélög sem hafi
styrk og getu til að fást við plág-
ur, umhverfisvá og aðrar ógnir er
að kunna að steðja.“
Þetta getur virst fjarlæg
draumsýn þótt knýjandi sé, enda
öflin sterk sem krefjast óhefts
fjármagnsfrelsis til að hefja
óbreyttan leik sinn að nýju í sókn
eftir auknum áhrifum og arði þótt
stefnt sé á heljarbrún. Brýnt er að
koma hjólum efnahagslífsins aftur
í gang en gæta verður að ferðinni,
og þegar greitt er úr samfélags-
sjóðum til bjargar fyrirtækjum í
rekstrarvanda ber jafnframt að
huga að sanngjarnri tekjuskipt-
ingu og almannahag og líka þörf-
um lífríkisins. Ekki má gleymast
að verðmeta rétta umönnun og að-
hlynningu lífs, er svo sannarlega
hefur sannað gildi sitt síðustu
mánuði, og einnig þýðingu þrosk-
andi uppeldis til siðvits og lífsvirð-
ingar og skilnings á verðmætum
trúar, vonar og elsku.
Þar fær kristin kirkja gegnt
mikilvægu hlutverki fái hún
hljómgrunn fyrir sígildan boðskap
Frelsarans um ábyrga og kær-
leiksríka umönnun lífs og náttúru
og glæði skilning á meiri verð-
mætum en þeim er ryð og mölur
eyða. Þau felast í því að glæða
samvisku og samkennd og gefa af
sjálfum sér meðbræðrum og systr-
um til gagns og gleði, því að að-
eins það sem gert er og gefið til
lífsheilla eiga menn varanlega.
Þess ber að óska og fyrir því að
biðja að samtaka barátta við ill-
vígan vágest hafi sýnt fram á gildi
þessara verðmæta og hægt sé að
fagna vorbirtu, nýjum gróðri og
gleðidögum páska í trausti þess að
þrátt fyrir tímabundnar þreng-
ingar batni hagur og þau umskipti
verði sem leiði til aukinnar lífs-
virðingar og sjálfbærni er bjargi
og bæti líf á jörðu.
Léttir til við skuggaskil
Eftir Gunnþór
Ingason » Og er ekki sem skiln-
ingur vaxi á því að
það séu svik við lífið að
framleiða og safna
sýkla,- efna- og kjarna-
vopnum…
Gunnþór Ingason
Höfundur er fyrrverandi sóknar-
prestur.
gunnthor.ingason@gmail.com