Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Birki (Betula pubes-
cens) vex um allt land
og er eina innlenda
trjátegundin sem
myndar samfellda
skóga. Hæst vex birkið
yfir sjávarmáli á Ís-
landi í rúmlega 550 m
hæð t.d. í Stórahvammi
fremst í Austurdal í
Skagafirði og í Fljóts-
gili við Skjálfandafljót.
Blómin á birkinu eru
einkynja og eru í reklum. Birki hef-
ur sumsé bæði karlrekla og kven-
rekla. Reklarnir þroskast á haustin
og eru uppréttir karlreklarnir vel
sýnilegir á birki bæði á haustin og á
vorin. Frjótíminn birkisins hefst að
jafnaði í maí en fer nokkuð eftir
landshlutum og tíðarfari. Frjó-
tímabilið stendur oftast yfir í 2-3 vik-
ur og er háð úrkomu, veðri og
vindum.
Um þessar mundir má sjá óvenju
mikinn fjölda karlrekla á birkitrjám
á höfuðborgarsvæðinu og getur það
verið vísbending um að óvenjumikið
verði um birkifrjó í byrjun sumars.
Kenningin er því sú að ef veður hald-
ist þurrt og hlýtt með hægum vindi
megi spá óvenju miklu magni birki-
frjóa.
Mikið frjómagn getur leitt af sér
mikla og góða frjóvgun og mikla og
góða uppskeru á birkifræi í haust.
Fræið sjálft eða aldin birkisins er lít-
il vængjuð hneta sem borist getur
langar vegalengdir,
eins og náttúruleg út-
breiðslu birkis á
Skeiðarársandi ber
glöggt vitni um.
Birkifrjó geta verið
skæður ofnæmisvaldur
hér á landi, en ekki síð-
ur annars staðar á
Norðurlöndum þar
sem vaxa víðáttumiklir
birkiskógar. Auk birki-
frjósins eru á Íslandi
einkum tvær gerðir
frjókorna sem koma af stað ofnæmi,
en það eru grasfrjó og súrufrjó.
Frjóofnæmi er mjög algengt
vandamál sem fer vaxandi hjá ung-
mennum fram að tvítugsaldri en
dregur úr eftir tvítugt. Sjaldgæft að
fólk fái einkenni frjóofnæmis í fyrsta
sinn eftir fertugt. Samkvæmt niður-
stöðum úr íslenskri rannsókn sýnir
u.þ.b. 4% fólks næmi fyrir trjám.
Slagviðri getur þó sett strik í
reikninginn og dregið úr frjómagni í
lofti og hamlað fræuppskeru.
Sveppir og mygla geta herjað á
rekla birkisins þegar þeir taka að
þroskast.
Birkihnúðmý (Semudobia betul-
ina) getur herjað á fræið, en birki-
hnúðmý er fluga sem verpir í ný-
myndaða kvenrekla birkisins og
lirfur flugunnar nærast á fræhvítu
fræsins. Lirfurnar ná fullum þroska
á haustin og púpa sig að vori. Sýkt
fræ er bólgið og vængir þess van-
skapaðir og smáir. Varnaraðgerðir
vegna óværunnar eru ekki við-
hafðar.
Birkifeti, (Rheumaptera hastata)
birkiþéla, (Scolioneura betuleti)
birkikemba (Heringocrania uni-
maculella) og ryðsveppir (Me-
lampsoridium betulinium) geta líka
herjað á birkið og hamlað vexti og
fræmyndun.
Líkur á miklu birkifrjói í sumar?
Eftir Stein Kárason
»Mikill fjölda karl-
rekla á birkitrjám í
vor getur verið vísbend-
ing um að mikið verði
um birkifrjó í sumar.
Líkur eru á miklu
birkifræi í haust.
Steinn Kárason
Höfundur er garðyrkjufræðingur og
M.Sc. í umhverfisfræðum.
Ljósmynd/Steinn Kárason
Karlreklar á birki, örlítið
farnir að þrútna.
Hugtakið gaslýsing
hefur iðulega komið
upp í umræðunni á
síðustu árum, oft í
tengslum við síendur-
teknar yfirlýsingar
forseta BNA um að
fréttamenn þarlendis
beri takmarkaða virð-
ingu fyrir sannleik-
anum. Þetta hugtak á
uppruna sinn í sam-
nefndu leikriti frá 1938 og merkir
að reyna að hafa áhrif á upplifun
annarra af veruleikanum og fá
menn til að trúa einhverju sem ekki
er rétt. Hvað Trump varðar þá er
það ekki gaslýsing að fjölmiðla-
menn í BNA ljúgi, mistúlki og fari
rangt með. Þess eru fjölmörg
dæmi.
Eftir því sem hugtakið hefur orð-
ið mönnum tamara þá finnst mér
stöðugt oftar að gaslýsingu sé beint
að mér (og öðrum). Utanríkis-
ráðherrar okkar hafa t.d. sagt okk-
ur að Rússar hafi ekki rétt til
Krímskagans og að ekki megi leyfa
BNA að flytja sendiráð sitt til Jerú-
salem vegna þess að það gæti trufl-
að friðarviðræður Palestínumanna
og Ísraela.
Það sem mest fer í taugarnar á
mér er þó hræðsluáróðurinn um
hamfarahlýnun og eyðileggingu líf-
kerfa jarðarinnar þar sem koldíoxíð
á að vera helsti skaðvaldurinn.
Er ég var yngri þá var það óvé-
fengt að jörðin hefði gengið í gegn-
um fjölmörg hlýinda- og kulda-
skeið, löngu áður en maðurinn hóf
að brenna kolum og olíu. Fornleifa-
fræðingar segja að á mínóska hlý-
skeiðinu 1.500 – 1.200 árum f.Kr.
hafi hirsi (sem er hitabeltisplanta)
verið ræktað í Skandinavíu og að
sítrustré hafi vaxið á N- Englandi á
rómverska hlýskeiðinu. Talið er að
á hlýskeiðum hafi magn CO2 verið
aðeins 280 ppm að jafnaði.
Í fyrstu skýrslu Alþjóðaloftslags-
nefndarinnar (IPCC), 1990, mátti
líta graf sem sýndi hlýskeiðið er
gerði landnám Íslands og Græn-
lands auðveldara og einnig litlu ís-
öldina, kuldaskeiðið sem fór svo illa
með okkur. Árið 2001 var það
horfið. Hitamælingar á
Íslandi sýna hita- og
kuldaskeið skiptast á
en engin hlýnun er í
kortunum nú um
stundir.
Árið 1999 kom
Michael Mann fram
með hokkíkylfugrafið
sitt sem hann byggði á
rannsóknum á trjá-
hringjum. Það sýndi
jafna kólnun frá árinu
1000 en hraða hlýnun
á 20. öld. Graf þetta
varð svo hinn nýi sannleikur og
notaði Al Gore það m.a. í mynd
sinni sem sönnun þess að aukning
CO2 í andrúmsloftinu ylli hlýnun.
Það er trúlegt að 97% sagn- og
fornleifafræðinga trúi því að land-
námshlýskeiðið okkar og litla ísöld-
in hafi verið alþjóðleg fyrirbæri en
annað dæmi um gaslýsingu er þeg-
ar reynt er að telja okkur trú um
að hlutverk CO2 í hlýnun jarðar sé
fullsannað af því að 97% vísinda-
manna segi svo. Samt eru vísindi
ekki þess eðlis að skoðanir meiri-
hlutans skipti máli. Það er nóg að
einn maður hafi rétt fyrir sér svo
sem var með flekakenninguna svo-
nefndu, en það liðu um 50 ár þar til
kenning Alfreds Wegener um
hvernig heimsálfurnar mynduðust
varð almennt samþykkt. Við nánari
skoðun reyndist líka niðurstaða
John Cook (2013) um að 97% vís-
indamanna væru sammála um að
aukning CO2 ylli hlýnun jarðar tóm
tjara.
Loftslagsspekingarnir hjá IPCC
vilja meina að CO2 sé hættulegur
mengunarvaldur en samt vitum við
að CO2 eykur vöxt plantna og hjálp-
ar til við að brauðfæða heiminn.
CO2 er aðeins 0.04% lofthjúpsins og
alls ekki öflugasta gróðurhúsa-
lofttegundin, sem er vatnsgufa. Að
auki grípur CO2 aðeins geisla á
ákveðnu tíðnisviði og á þar í sam-
keppni við aðrar lofttegundir.
Okkur er sagt að víxlverkun CO2 og
hitastigs geti gert jörðina óbyggi-
lega en samt er vitað að áhrif CO2
minnka lógaritmískt með auknu
magni. Ef 100 ppm af CO2 bætast
við í lofthjúpinn fara áhrifin eftir
því hversu mikið er fyrir.
Það er hreint útilokað að CO2
stjórni loftslagi á jörðinni. Sveiflur í
hitastigi fara mun frekar saman við
breytingar á hafstraumum, útgeisl-
un sólar, möndulhalla jarðar og
fleiru.
Dæmin um gaslýsingu leynast
víða. Nýlega las ég um hvítu
klettana við Dover á Wikipediu.
Þar sagði að vegna súrnunar sjávar
væri hætta á að þeir eyddust, en
þar sem þeir mynduðust á Krítar-
tímanum þegar bæði hitastig og
magn CO2 í andrúmsloftinu var
mun hærra en nú þá er sú fullyrð-
ing augljóslega út í hött. Ísbirnir
eru sagðir vera í hættu vegna
bráðnunar hafíss en þar sem talið
er að þeir hafi verið til í a.m.k.
110.000 ár þá er augljóst að þeir
hafi lifað af hlýrri tíma en eru nú.
Spámenn IPCC hafa staðið sig
svo illa að það er ekki takandi neitt
mark á þeim. Jöklar Himalaja áttu
að vera að bráðna og hverfa, marg-
ar Kyrrahafseyjar farnar á kaf,
norðurskautið íslaust, tíðni skógar-
elda og fellibylja átti að aukast – en
ekkert af þessu gerist.
Eftir aldamótin síðustu höfum við
séð loftslagsvísindi niðurlægð og
misnotuð í nafni pólitískra og fjár-
hagslegra hagsmuna og má rekja
upphaf þess til að Maurice Strong
sem var í forsvari fyrir Jarðar-
ráðstefnunni í Ríó 1992 náði ásamt
félögum sínum völdum í heimi lofts-
lagsvísindanna, og þar með valdi til
að útiloka „afneitara“ og minnir það
á er Lysenko náði völdum yfir líf-
fræðivísindum á Stalínstímanum.
Þeir sem ekki voru sammála honum
voru útilokaðir eða þaðan af verra.
Það er í raun gott að gaslýsing
skuli vera svo mikið í umræðunni.
Menn eru þá fremur meðvitaðir um
að ef til vill sé verið að ýta að þeim
falskri mynd raunveruleikans.
Gaslýsing
Eftir Ingibjörgu
Gísladóttur » Það er gaslýsing að
koldíoxíð stjórni
loftslagi á jörðinni en
það þjónar hagsmunum
valdamikilla hópa að við
trúum því.
Ingibjörg Gísladóttir
Höfundur starfar við umönnun
aldraðra.
Ég hóf máls á spill-
ingu í síðasta pistli mín-
um í Morgunblaðinu en
mig langar nú að fjalla
örlítið nánar um hvað
forseti getur gert til að
vinna gegn spillingu.
Spillingin er því miður
landlæg á Íslandi og
teygir hún anga sína
inn um allt stjórnkerfið
og setur sínar ljótu
krumlur í kökukrúsina á ólíklegustu
stöðum. Ég hef heitið því að vinna
gegn henni og það mun ég gera, verði
ég kosinn forseti.
Málskotsrétturinn
Það fyrsta sem þarf að gera til að
vinna gegn spillingu er að nýta mál-
skotsréttinn til að setja hver þau lög í
þjóðaratkvæðagreiðslu sem vafi leik-
ur á að séu til hagsbóta fyrir þjóðina.
Í því samhengi er augljóst að hnýta
slíkum þjóðaratkvæðagreiðslum sam-
an við boðaðar kosningar svo þær
þurfi ekki að kosta ríkissjóð mikið.
Með þessi móti veitir þjóðin, í sam-
vinnu við forseta, ríkisstjórninni og
þinginu aðhald og mun hún jafnframt
hafa mun meira um málefni er hana
varðar að segja.
Þetta er að mínu mati fyrsta skref-
ið í að koma á beinu lýðræði á Íslandi
en ég vonast til að þingið myndi í kjöl-
farið velta fyrir sér möguleikum á að
nýta rafrænu skilríkin til að setja sem
flest mál í þjóðaratkvæðagreiðslu að
svissneskri fyrirmynd. Því yrði að
sjálfsögðu að fylgja að þingið leitaði
leiða við að kynna þau málefni og gera
upplýsingarnar sem aðgengilegastar
sem og hlutlausastar fyrir þjóðina.
Aukið upplýsingaflæði
Það næsta víkur að upplýsingum til
fólksins en forseti á að nýta sér þann
vettvang sem hann hefur til að upp-
lýsa þjóðina ef þingið stendur ekki í
stykkinu hvað þann hluta varðar. Er
mér sérstaklega hugsað til þriðja
orkupakkans í því samhengi en sár-
lega vantaði á upplýsingaflæðið frá
þinginu til þjóðarinnar og stóð RÚV
sig hreint út sagt hræðilega í því máli.
Þar vísa ég til þess þegar afstaða
ríkisstjórnarinnar bergmálaði dag
eftir dag á ríkisfjölmiðlinum og þjóð-
inni var ekki gefinn kostur á að kynna
sér málið frá öllum hliðum.
Nytsamlegar tillögur
Þegar ég bauð mig fram til emb-
ættis forseta hafði ég sett saman til-
lögu að aðgerðaáætlun til að bregðast
við þeim efnahagsvandræðum sem
fylgja veirunni. Sumum fannst ég þar
stíga út fyrir ramma forsetaembætt-
isins en ég er því alfarið ósammála
enda hyggst ég efla
embættið. Markmiðið
með þessum tillögum
var að opna augu þings-
ins fyrir öðrum leiðum
til að leysa vandamálið
og stuðla þannig að já-
kvæðum áhrifum fyrir
þjóðina.
Nú eru ekki margir
dagar liðnir frá því að
ég bauð mig fram og sá
ég í dag að bæði ríkis-
stjórnin sem og
stjórnarandstaðan hafa nýtt sér atriði
úr aðgerðáætlun minni fyrir sínar eig-
in hugmyndir um hvernig hjálpa megi
þjóðinni og notast meira við almenn-
ari aðgerðir. Þarna er gott dæmi um
hvernig forseti getur lagt sitt lóð á
vogarskálarnar án þess að þurfa að
grípa til stærri aðgerða en að setja
fram tillögur í ræðu eða riti.
Alvarlegri málefni
Eins og við höfum ítrekað séð þá
kemur upp sú staða að grípa þurfi til
harðari aðgerða til að opna augu
ríkisstjórnarinnar fyrir þeim axar-
sköftum sem hún hyggst framkvæma
og kemur Icesave þar fyrst upp í hug-
ann. Nú var hægt að stöðva Icesave
með málskotsréttinum, þar sem um
lagafrumvarp var að ræða, en það er
því miður ekki alltaf sem sú er raunin
og mistökin hafa t.d. átt sér stað í
formi þingsályktunartillagna. Í því til-
felli getur forseti ekki vísað málinu til
þjóðarinnar.
Í þessu tilfelli þarf forsetinn að
nýta sér önnur ákvæði í stjórnar-
skránni til að setja ríkisstjórninni
stólinn fyrir dyrnar og vekja hana til
umhugsunar. Forsetaembættið er
nefnilega vannýtt eins og sakir standa
og væri hægt að nota það mun betur í
þágu þjóðarinnar en hefur verið gert.
Þar er ég ekki að tala um að forsetinn
setji sig á háan hest og þykist vera
einvaldur heldur að hann reyni að
spyrna við og gera það sem hann get-
ur til að hvetja þingið til umhugsunar
ef það er það sem þjóðin vill. Hlutverk
hans er nefnilega ávallt að vinna fyrir
hana og í hennar þágu.
Betur sjá
augu en auga
Eftir Guðmund
Franklín Jónsson
»Markmiðið með
þessum tillögum var
að opna augu þingsins
fyrir öðrum leiðum til að
leysa vandamálið og
stuðla þannig að já-
kvæðum áhrifum fyrir
þjóðina.
Guðmundur F. Jónsson
Höfundur er viðskipta-
og hagfræðingur.
gundi.jonsson@gmail.com