Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 35

Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ur og gerði allt fyrir alla. Hann læddist sjaldan með veggjum enda stór persóna sem fyllti ávallt herbergið af kraftmikilli og jákvæðri orku. Hann sá alltaf það góða í fólki, var hlýr og kærleiksríkur og með einstak- lega fallega nærveru. Við Sæmi sóttum mikið í að umgangast þau hjónin, hvort sem það var heima hjá þeim í Keflavík, uppi í sumarbústað eða erlendis. Alltaf var stutt í brandarana og lífsgleðin var mikil. Sjaldan sat hann auðum höndum, oftast kominn í vinnugallann, farinn að þrífa bílana, þvo stéttina eða byggja við bústaðinn Sæmund- arkot í Norðurárdal. Hann var alltaf með puttann á púlsinum í fréttamálum og ef maður þurfti að vita eitthvað tengt veðri var hann rétti maðurinn til að tala við. Hann var mikill morgunhani og hann hlakkaði alltaf til að byrja daginn, við áttum það sameiginlegt. Oddur var til fyrirmyndar, var frábær afi og krakkarnir okkar Sæma, þau Saga Björk, Oddur Logi og Aron Pétur, dýrkuðu hann. Það var aðdáun- arvert að fylgjast með honum í veikindaferlinu síðustu árin og hvernig hann tókst á við allt með jákvæðni og seiglu fram á síðasta dag. Elsku Oddur, takk fyrir allt. Við munum halda minningu þinni á lofti. Edda Björk. Það er ekki sjálfgefið að fólk- ið sem býr þér við hlið þegar þú búsetur þig á nýjum stað og byggir upp heimili frá grunni verði vinir þínir. Lóðarmörk ber að virða, nema erindi sé brýnt, annað er rof á einkalífi. Ágeng- ar plöntur virða ekki endilega slíkan boðskap, heldur geta teygt úr sér til allra átta og í sumum tilfellum valdið deilum. Sumar, eins og góðir berjarunn- ar, geta þó veitt öllum gleði þar sem greinar sem teygja sig yfir lóðamörkin teljast til afnota fyr- ir grannana. Góðir grannar vita hverjir af öðrum án þess að hnýsast um hagi hinna. Þeir eru til staðar þegar á þarf að halda og geta tengst sterkum böndum, sérstaklega ef afkvæmin eru á sama reki með sameiginleg áhugamál. Þess höfum við feng- ið að njóta ríkulega undanfarna áratugi. Við sem búum hér hlið við hlið og á móti hvert öðru í enda Heiðarhorns höfum horft upp á baráttu góðs, litríks granna við illvígan sjúkdóm undanfarin misseri. Þeirri bar- áttu er nú lokið og grannarnir sem við eðlilegar aðstæður myndu skiptast á orðræðu yfir limgerðin horfa nú hnípnir niður í moldina um leið og illgresið er fjarlægt. Við söknum glæsi- mennis sem sópaði að þegar af sjónum var komið, fjölskyldu- föður sem lét sig velferð fjöl- skyldunnar miklu varða. Hann deildi með sér gæðum, sótti moldarhlöss á vörubifreið sem við hin fengum að renna í. Hann var sannur Keflvíkingur og af lífi og sál stuðningsmaður íþróttafélaga bæjarins. Við sem deilum hér bílskúrsvegg höfum í áranna rás dáðst að vinnusemi og færni sjómannskonunnar, sem með eldmóði tókst á við all- ar áskoranir sem á vegi birtust, úti og inni. Nú þegar hallaði undan hélt þessi aðdáunarverða fjölskylda þétt saman eins og ætíð, þrátt fyrir hindranir kórónuveirunn- ar. Það hafa verið sönn forrétt- indi að deila þessum bílskúrs- vegg í gegnum tíðina og fá að skiptast á orðum og gjörðum síðustu vikurnar. Megi minning- in um góðan mann lifa. Við vott- um Jónínu og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Konráð Lúðvíksson og Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir. ✝ Svanhildurfæddist 15. mars 1931 á Víði- dalsá í Hólmavíkur- hreppi. Hún lést á LHS 4. apríl 2020. Hún ólst upp hjá móður sinni, ömmu og Einari fóstra sín- um í Tungugröf, auk þess að vera hjá Jóhönnu og Halli í Tröllatungu þegar móðir hennar fór í skóla að Laugum í Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Karólína S. Sumar- liðadóttir, f. 21.6. 1912, d. 12.4. 1994, og Sigurður Helgason, f. 21.8. 1895, d. 10.11. 1975. Alsyst- ir María Guðrún Sigurðardóttir, f. 10.9. 1938, d. 1.2. 2002. Systkini samfeðra; Margrét, f. 1918, Björn, f. 1919, Helgi, f. 1921, Benedikt, f. 1922, Sigríður, f. 1924, Jón, f. 1927, Jónatan, f. 1929, Þuríður Sigurrós, f. 1931, Maggi Sigurkarl, f. 1933, Haukur Heiðdal, f. 1936. Þau eru öll látin. Fóstursystur Alda Jensdóttir, f. 1933, látin. Guðrún Jensdóttir, f. 5.9. 1936, maki Halldór Stein- grímsson. Hinn 27.12. 1951 giftist hún Jóni Guðna Daníelssyni, f. 25. apríl 1923, d. 13. janúar 1982. Foreldrar hans voru Ragnheiður J. Árnadóttir, f. 25. júní 1890, og Daníel Ólafsson, f. 8. okt. 1894, bændur í Tröllatungu. Börn Svanhildar og Jóns; Aðalbjörn Þ., f. 13.3. 1951, maki Anna Torfadóttir, f. 10.11. 1953. Synir Önnu; Kristján K. Júlíusson, f. maki Jakob Einarsson, eiga þau 3 börn. Gunnar O. Halldórsson, f .1979. Maki Sólrún H. Heið- arsdóttir, eiga þau 3 börn. Frið- rik Þ. Halldórsson, f. 1983, maki Dagný L. Sigurðardóttir, skilin, eiga þau 2 börn. Hafrún L. Hall- dórsdóttir, f. 1990, maki Kári Þorleifsson, eiga þau 3 börn. Hlynur F. Halldórsson, f. 1994, maki Perla Ö. Jónsdóttir, eiga þau 1 barn. Bergþór G., f. 24.7. 1962. Svanhildur gekk í farskóla í sveitinni eins og þá tíðkaðist og fór síðan í Húsmæðraskólann á Löngumýri. Svanhildur og Jón hófu bú- skap í Tröllatungu 1950 í fé- lagsbúi við foreldra Jóns og tvo bræður hans, hún var virk í kvenfélagi Tungusveitar. Vorið 1965 keyptu þau Ingunnarstaði í Geiradal og þar bjuggu þau til haustsins 1981 þegar þau fluttu til Patreksfjarðar. Svanhildur sinnti öllum almennum bústörf- um meðan hún bjó á Ingunnar- stöðum auk þess að vera ráðs- kona í sláturhúsi Kaupfélags Króksfjarðar nokkur haust. Hún var virk í kvenfélagi sveit- arinnar. Eftir að þau Jón fluttu á Patreksfjörð vann hún við fisk- vinnslu í Odda hf. þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Á Pat- reksfirði gekk hún einnig í kven- félagið Sif, eins var hún virk í starfi eldri borgara á Patreks- firði. Jarðsett verður frá Patreks- fjarðarkirkju í dag, 9. maí 2020, klukkan 14. Streymt er frá útför- inni á YouTube. Slóð á streymið: youtu.be/JCIVOyQ3VoU. Slóð- ina má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat. 1972, maki Lucyna Gnap, eiga þau 1 barn. Ketill M. Júl- íusson, f. 1973, maki Elín B. Birg- isdóttir, eiga þau 3 börn. Jóhann H., f. 16.9. 1952, maki Ev- lalía S. Kristjáns- dóttir, f. 1.6. 1951. Börn; Salvar Ó. Sveinsson, sonur Evlalíu f. 1973, maki Guðrún Á. Einarsdóttir, Salvar á 2 börn frá fyrra sam- bandi. Jón S. Jóhannsson, f. 1974, maki Hulda S. Hólm, eiga þau 4 börn og 1 barnabarn. Kristján H. Jóhannsson, f. 1979, maki Jessica Jóhannsson, eiga þau 2 börn. Ragnar K. Jóhannsson, f. 1982, maki Sigurlaug H. Traustadóttir, eiga þau 3 börn. Daníel H., f. 9.7. 1954, maki Margrét Emilsdóttir, skilin. Börn þeirra; Berglind K. Daníelsdóttir, f. 1981, maki Víðir Ö. Gunnarsson, eiga þau 4 börn, Freydís Ó. Daníelsdóttir, f. 1982, maki Hjörtur Traustason, eiga þau 3 börn. Kjartan G. Daní- elsson, f. 1985, maki E. Ebba Gunnarsdóttir, eiga þau 4 börn. Björgvin P. Daníelsson, f. 1992, unnusta Sóley H. Guðbjörns- dóttir. Snædís L. Daníelsdóttir, f. 1995. Sambýliskona Daníels, Soffía S. Jónsdóttir, f. 2.5. 1962. Karólína G., f. 16.10. 1955, maki Halldór Gunnarsson, f. 11.12. 1946. Börn; Svanhildur J. Áskels- dóttir, f. 1975, maki Kristján Á. Kristjánsson, eiga þau 3 börn. Fanney I. Halldórsdóttir, f.1977, Í dag verður elsku Svana amma lögð til hinstu hvílu. Ég var svo lánsöm að fá að eiga margar gæðastundir með ömmu, sérstak- lega þegar ég var yngri. Ég var alltaf mikil ömmustelpa og var tíð- ur gestur hjá henni á Aðalstræt- inu og fékk oft að gista. Við sátum þá og dunduðum okkur eitthvað með handavinnu, en áhugi minn á handavinnu er örugglega frá ömmu kominn, enda var það hún sem kenndi mér handtökin. Amma átti alltaf eitthvað í poka- horninu sem ég mátti dunda mér með, garnafganga til að prjóna og hekla dúkkuföt, eða efnisbúta sem ég mátti nota til að æfa mig á saumavélina. Amma átti yfirleitt eitthvert heimabakað góðgæti í frystinum og bakaði heimsins bestu pönnukökur. Eftir að ég flutti á höfuðborg- arsvæðið reyndi ég alltaf að hitta ömmu þegar hún var á ferðinni, hún kom í heimsókn og við kíktum saman í búðir. Eftir að ég flutti til Danmerkur hitti ég hana ekki eins oft, hún kom þó í heimsókn til okk- ar árið sem hún varð áttræð og við áttum nokkra góða daga saman. Ég var svo heppin að fá að eiga nokkra daga með ömmu síðastlið- ið haust þegar við vorum á Íslandi til að halda upp á ferminguna hennar Dagnýjar og er ég afar þakklát fyrir þann tíma. Það var mjög skrítið að fá ekki símtal frá ömmu á afmælinu mínu, en hún mundi afmælisdaga allra afkomenda sinna og maður gat alltaf treyst á að fá afmælissímtal frá henni. Ég á eftir að sakna sím- talanna frá henni, við spjölluðum oft lengi saman um allt milli him- ins og jarðar. Hvíl í friði, elsku amma, þín er sárt saknað Svanhildur Jónný Áskelsdóttir. Elsku amma, það er ótrúlega erfitt að skrifa þessi orð til þín. Ég trúi því varla að þú sért farin en veit að þú ert sátt að vera komin til afa, sem fór allt of snemma. Mér er minnisstætt þegar Halldór minn var eitt sinn hjá þér á Brunnunum og sá að loftið í eld- húsinu var orðið heldur lélegt. „Amma, getur þú ekki bara prjón- að þetta saman?“ sagði hann, enda sannfærður um að amma Prjóna, eins og hann kallaði þig alltaf, gæti prjónað hvað sem var. Þann- ig er og verður það alltaf í mínum huga, elsku amma Svana gat ein- faldlega allt. Ef mig vantaði að- stoð leitaði ég alltaf til þín, og allt- af gafst þú réttu ráðin. Ég átti það til að „gleyma“ handavinnunni minni hjá þér. Næst þegar ég leit við var hún bara tilbúin og þá slapp ég við að gera það sem ég þóttist ekki kunna. Ég kunni það alveg en bara fannst betra að þú gerðir það. Árin sem ég bjó á Barðaströnd komst þú og gerðir slátur með mér (það var eitt af því sem að ég þóttist ekki kunna) og voru það dásamlegar stundir. Oft- ar en einu sinni kom Kobbi seint heim og ég sagði honum að hann gæti bara hitað matinn sinn sjálf- ur. Það fannst þér ekki nógu gott og varst ekki lengi að gefa honum heitan mat. Ég verð seint talin mikil handavinnukona en það sem ég kann kenndir þú mér. Fyrir nokkrum dögum sat ég með prjónana og rakti upp villu sem ég efast þó um að nokkur hefði rekið augun í. En mér varð hugsað til þín og brosti við tilhugsunina um að þú hefðir alltaf látið mig laga þetta. Mér fannst alltaf vænt um það þegar þú hældir mat eða bakkelsi sem ég færði þér, því þú varst hrein og bein og maður gat treyst því að þú segðir þína skoð- un. Sérstaklega átti þetta við þeg- ar ég spreytti mig á ástarpungum og pönnukökum, því enginn stóðst þér snúning í þeim fræðum. Eitt sinn bakaði ég pönnukökur og taldi þær ágætlega heppnaðar, allt þar til Oddur Aðalbjörn minn kom að smakka og lét þessi orð falla í kjölfarið: „Mamma, ég get svo sem alveg fengið mér eina vonda há þér, en amma lang gerir bestu pönnukökurnar.“ Þú varst svo stolt þegar Díana Sól gekk í kvenfélagið í vetur og ekki síður þegar ég var kosin formaður fé- lagsins. Þú varst svo stolt af öllum þínum afkomendum og fylgifisk- um, alltaf með puttann á púlsinum og með það á hreinu hvað hver og einn var að gera í lífinu. Í vetur fórum við saman á Ísafjörð til að fylgja frænda þínum til grafar. Færðin var ekki góð og hafði ég á orði að við hefðum frekar átt að keyra í myrkri um morguninn, því þá hefði ég ekki séð hvað það var mikil hálka. Tveimur dögum síðar hringdir þú og baðst mig að koma snöggvast yfir til þín. Varstu þá búin að föndra skraut í bílinn minn, með eftirfarandi bæn: Blessaðu, Drottinn, bílinn minn, bjargaðu mér frá skaða, lát mig velja veginn þinn og vera á réttum hraða. Ég skildi alveg sneiðina. Ég á svo ótrúlega margar minningar um þig og gæti skrifað endalaust, en læt þetta duga. Elsku amma, takk fyrir allt. Ég veit að þú ert sátt hjá elsku Jóni afa. Þín Fanney Inga. Elsku amma mín. Tilfinningin um að eiga þig ekki að er nánast óbærileg, en minningarnar um allt sem við gerðum saman hugga mig. Ég er svo ánægð að börnin mín hafi fengið að kynnast þér, þú varst þeim svo góð. Í 30 ár varstu í lífi mínu og alltaf til staðar fyrir mig og mína. Oft á tíðum hafðir þú áhyggjur af mér þegar ég var á fullu í skóla og barneignum. Þá hringdir þú oft bara til þess að at- huga hvernig gengi. Þú varst skilningsrík og svo gott að tala við þig. Ég er svo innilega þakklát fyrir þennan tíma sem við fengum sam- an og hann nýttum við vel í sam- veru sem síðar breyttust í mjög regluleg símtöl þegar ég flutti frá Patreksfirði. Það þótti stundum sérstakt þegar ég var í mennta- skóla og eyddi heilu kvöldunum í að tala við þig, ömmu mína. En ég þekkti ekkert annað en að geta ráðfært mig við þig. Á síðari árum varst þú gjörn á að hringja í mig til að fá ýmsar ráðleggingar, hafð- ir fulla trú á því að ég hefði svör fyrir þig. Þú varst dugleg að segja mér hversu mikið þú saknaðir þess að hafa mig ekki nær þér og var sá söknuður svo sannarlega gagnkvæmur. Ég hefði svo viljað geta eytt meiri tíma með þér síðustu ár, koma oftar í heimsókn og fá mér þunnt kaffi og nýbakað bakkelsi með þér. Það voru sannkallaðar gæðastundir fyrir okkur báðar. Ég á þér mikið að þakka varð- andi lærdóm, kom nánast alltaf til þín eftir skóla í nokkur ár. Þú varst mjög strangur kennari en það skilaði árangri og ekki skemmdi fyrir að koma alltaf í heitan mat eftir skóla. Það er mér ómetanlegt að þú gerðir þér ferð alla leið til Akur- eyrar til að vera viðstödd útskrift mína úr Háskólanum 2017. Þig hafði svo lengi langað að koma til mín. Þú fórst í ógleymanlegan bíl- túr með Kára þar sem þið gerðuð mikla leit að húsinu sem þú dvald- ir í hér á Akureyri fyrir mörgum áratugum. Þú talaðir oft um tím- ann fyrir norðan og mundir allt eins og það hefði gerst í gær. Þú varst svo glöð eftir rúntinn og Kári margs vísari um Akureyri fyrri tíma. Í mínum huga var ekkert sem þú gast ekki gert. Trú mín á handavinnuhæfileikum þínum var takmarkalaus, enda fékkstu alls konar pantanir frá mér. Útkoman var alltaf nákvæmlega eins og ég sá fyrir mér, jafnvel betri. Allar flíkurnar sem þú lagfærðir fyrir mig komu til baka eins og nýjar, þótt þú tilkynntir mér gjarnan að þetta væri nú ekki nógu vel gert. Síðasta símtalið okkar var í styttri kantinum, sennilega ekki nema tæp klukkustund. Þá rædd- ir þú vanlíðan þína síðustu daga en varst alveg hörð á því að það væri nú sennilega bara leti sem væri að hrjá þig. Síðustu ár reynd- ir þú oft að sannfæra mig um að þú værir löt. Þá komst þú ekki öllu í verk sem þú hafðir ætlað þér, en í mínum augum varst þú dugleg- asta kona sem ég þekkti. Man ég aldrei eftir að hafa komið í heim- sókn til þín án þess að þú gætir boðið mér eitthvað nýbakað, vær- ir með mat á eldvélinni og sitthvað af handavinnu í vinnslu við sjón- varpið. Elsku amma, þú ert ein af stærstu fyrirmyndum mínum. Ég mun ætíð sakna þín. Hafrún Lilja. Svanhildur Kjartans Ég kynntist Svanhvíti í gegnum Maríu konu mína sem er barnabarnið hennar. Sá tími sem við fjölskyld- an höfum eytt saman með henni hefur verið einkar ánægjulegur og einkennst af gagnkvæmri virðingu og væntumþykju. Það er mér, konu minni og börnum afar þungbært að sjá á eftir henni. Stelpurnar hafa sagt að langamma sé komin til guðs og sé núna engill. Nú geti hún hitt eig- inmann sinn og Halldór litla, sem er gott því hún er búin að sakna þeirra svo mikið. Svanhvíti er hægt að lýsa sem skynsamri konu og með árunum og þeirri reynslu sem hún fékk úr lífinu jókst viska hennar að sama skapi. Það var hægt að ræða við hana um hluti og leita ráða hjá henni, án undantekninga komst hún að bestu lausninni. Hún var hreinskilin og blátt áfram. Svan- Svanhvít Skúladóttir ✝ SvanhvítSkúladóttir fæddist 16. júlí 1926. Hún lést 12. apríl 2020. Útför hennar fór fram í kyrrþey 7. maí 2020. hvít var blíð og góð við börn. Gat sinnt þeim án þess að vera upptekin af öðru, eins og svo al- gengt er hjá full- orðnum í dag. Hún hafði góða kímni- gáfu og var skemmtilegur fé- lagsskapur. Hún var reglumanneskja og hófsöm, sem hægt var að taka sér til fyrir- myndar. Það er að mínu mati erf- itt að finna heilsteyptari mann- eskju en hana Svanhvíti. Fyrir henni gerði menntun eða ríki- dæmi ekki fólk að betra fólki, það var hvernig það hagaði sér og kom fram við aðra sem skipti mestu máli. Henni fannst þó gott að geta fengið sér eitthvað sætt öðru hverju. Henni fannst rjómaís úr vél góður, hún vildi ekki ídýfu og ekkert nammi blandað saman við. Það einfalda var oft best! Lamba- læri um helgar og hefðbundinn heimilismatur á virkum dögum. Henni fannst skemmtilegt að horfa á James Bond, þær sögur innihalda góðan endi, spennu og rómantík í bland. Það kunni hún vel að meta. Hún las einnig tals- vert sér bæði til skemmtunar og fróðleiks. Svanhvít hélt um árabil jólaboð hjá sér þar sem stórfjöl- skyldan safnaðist saman og fagn- aði jólum. Fjölskyldan skipti hana miklu máli og bera börn hennar uppkomin þess merki að hafa hlotið gott uppeldi, ástúð og athygli. Sem þau síðan hafa getað veitt börnum sínum sem síðan hafa orðið að góðu og gegnu fólki. Á þessum þungbæru tímamót- um, kveðjum við Svanhvíti okkar. Hennar saga og líf var oft erfitt, hún eins og aðrir upplifði áföll og erfiðleika, bæði í bernsku sem og á fullorðinsárum. Hún og maður hennar, Andrés heitinn, bjuggu sér til gott líf og heimili með dugnaði og eljusemi. Við fjöl- skyldan vildum óska þess að við hefðum getað átt meiri tíma sam- an með þér, Svanhvít mín. En einhvern tímann þurfa allir að kveðja. Henni þótti mjög vænt um dætur okkar. Við spurðum stelpurnar hvað þær myndu gera ef langamma kæmi til okkar í heimsókn sem engill. Mónika sagði að hún vildi segja við þig að hún elskaði þig og myndi faðma þig. Manúela vildi láta nægja að segja að hún elskaði þig, það væri erfitt að faðma þig með svona stóra vængi, og Ísabella var sömu skoðunar. Takk fyrir tímann saman og við söknum þín mjög mikið. Minning þín mun lifa með okkur um ókomna tíð. Svavar Einarsson, Mónika, Manúela og Ísabella.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.