Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Elsku amma. „Viltu ekki fá eitthvað að borða Aggi minn?“ Þessi orð eru skrifuð föst í minningu mína af þér, elsku amma, með tóninum þínum og ímyndinni af þér að opna alla skápa í eldhúsinu og rífa fram kræsingar þó svo að svarið oftar en ekki væri þegar komið: „Nei takk, amma mín, ég er ekki svo svangur.“ „Jú hvað er þetta, þú verður að borða eitthvað, þú ert að vaxa! Á ég að steikja egg og beikon eða viltu ekki fá smá sætt, kannski kökusneið?“ Ó, hvað ég sakna allra hlýju faðmlaganna þinna, elsku amma, og hlátursins sem alltaf var stutt í sama hvað á bjátaði. Hvernig þú hlóst svo innilega og lengi að þú varla gast hætt að hlæja. Þú vildir alltaf vera með og alltaf hafa alla nálægt þér og þegar þú ekki varst á fullu við að bera fram kræs- ingar eða í miðjum samræðum stóðstu í eldhúsglugganum og fylgdist með öllu því sem gerð- ist. Jónína Bryndís Jónsdóttir ✝ Jónína BryndísJónsdóttir fæddist 29. maí 1923. Hún lést 28. apríl 2020. Útför Jónínu fór fram 7. maí 2020. Allar samveru- stundirnar með þér, Agnari afa og Jonna frænda eru mér ofarlega í huga. Hvernig þú hugsaðir alltaf um okkur og þá sér- staklega hvernig þú stóðst eins og klettur í gegnum lífið með Jonna. Með forvitni þinni, hreinskilni, félagslyndi þínu, andlegum styrk og lífskrafti ertu leiðarljós sem ég hef og mun alltaf hafa sem fyrirmynd. Elsku amma, ég veit að það er eigingjarnt og að við fengum meiri tíma en flestir fá, en það er sárt að kveðja. Það er sárt að útskýra fyrir dóttur minni að við getum ekki farið í heimsókn til langömmu, að hugsa til þess að þú getir ekki spillt henni áfram eins og þú spilltir mér með því að lauma nammi í vas- ann eða koma með skál fulla af súkkulaðirúsínum án þess að spyrja foreldrana. Að sjá hversu sárt henni finnst að þú kveðjir og þurfa að hughreysta hana vitandi að við fáum ekki hlýju faðmlögin sem eru mér svo dýr- mæt og ég mun sakna meira en orð geta lýst. Efst í huga mér er samt þakklæti, elsku amma, þakklæti fyrir allan þann tíma sem ég fékk með þér, fyrir allar útileg- urnar, öll þau skipti sem ég gisti hjá ykkur, fyrir alla hádeg- isverðina í fjölbraut, fyrir allt skutlið hingað og þangað um Akranes, fyrir allar djúpu sam- ræðurnar um daginn og veginn og fyrir þína hlýju nærveru. Jafnvel þegar ég var fluttur út fyrir landsteinana og þó að þú værir alltaf að segja mér að nú væri nú tími til að koma heim varst þú alltaf ofarlega í huga og nærvera þín mikil þegar ég kom í heimsókn til Íslands. Hvernig þú tókst alltaf opnum örmum á móti mér og dóttur minni og hversu augljóst það var að þú hugsaðir til okkar þegar þú sendir okkur bangsa og púða sem þú gerðir sjálf. Ég er líka þakklátur fyrir að hafa fengið að segja þér að ég væri loksins á heimleið. Að þú fékkst að heyra það, þó svo að ég gráti það sárt að þú fengir ekki að upplifa það fékkstu allavega að heyra það, „Elsku amma, ég er að koma heim!“ Elsku amma, þú ert klett- urinn sem stóð af sér mikla bar- áttu í næstum 100 ár í góðu en erfiðu lífi á norðurhjara verald- ar. Þú skilur eftir stóra hjörð afkomenda fulla af minningum og ást til þín. Nú tekur þú þér stað við hlið Agnars afa og Jonna frænda og færð loksins að hvíla lúin bein. Hvíl í friði, elsku amma. Agnar Sigurjónsson. Langamma Jóna var algjört yndi. Hún var umhyggjusöm, dugleg og ekki síst gjafmild. Alltaf þegar maður fór að heim- sækja hana fékk maður eitthvað gott í gogginn. Hún gaf mér alltaf súkku- laðirúsínur í skál og kex með. Þegar hún spurði mig hvað ég vildi að drekka, sagði ég oftast vatn og þá sagði hún: „Viltu ekki fá mjólk? Það er engin næring í þessu vatni.“ Maður sagði ekki nei við því og fékk sér mjólk eftir allt saman. Seinasta daginn sem ég talaði við ömmu var tveimur dögum fyrir andlát hennar. Þá var ég að hjóla fram hjá Höfða og ákvað að kíkja á hana og sjá hvernig henni liði. Við spjöll- uðum um hvað það væri stutt eftir af þessu samkomubanni og hlökkuðum bæði mikið til sum- arsins og sólarinnar. Maður fór ekki í gegnum samtal með ömmu án þess að hún spurði hvernig öðru fólki liði í kringum mig. Í þetta skipti spurði hún hvernig amma og afi í Súlunesi hefðu það og ég sagði henni frá því hvernig sauðburðurinn væri að bresta á. Ef amma hefur kennt mér eitthvað í lífinu þá er það að halda áfram lífinu sama hvað, gera allt það sem maður getur gert til að halda hamingju og að vera ávallt jákvæður. Ég er mjög þakklátur fyrir árin sem ég fékk með ömmu og að hafa kynnst henni svona vel. Það er alls ekki gefið að maður fái 16 ár með langömmu sinni. Hvíldu í friði, elsku amma mín, og skilaðu kveðju til afa og Jonna. Helgi Rafn Bergþórsson Mig setti hljóða þegar ég frétti af andláti Fróða Plo- der. Sárt var að hlusta á sársauk- ann hjá elsta syninum og að vinasamband þeirra væri bara á svipstundu orðið minning ein. Svo sannarlega falleg minning sem á eftir að fylgja okkur alla tíð. Leiðir þeirra lágu saman í Skerjafirði sem litlir guttar og það var strax frá fyrsta degi fallegt vinasamband. Skerja- fjörðurinn var fyrir þeim eins og ein stór ævintýraeyja eða með öðrum orðum: þorp í borg- inni. Fyrir börn voru það for- réttindi að fá að alast upp á stað sem þessum. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn og ekki veitti af með svona uppá- tækjasöm börn eins og þeir voru. Það var fljótt ljóst að Fróði var hæfileikaríkur af guðsnáð. Það var alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur; Fróði Ploder ✝ Fróði Ploderfæddist 27. febrúar 1992. Hann lést af slysförum 7. apríl 2020. Útförin fór fram í kyrrþey. hann varð færastur í öllu. Hann hafði alveg ótrúlega færni hvort sem var á hjóli, hjóla- bretti, línuskaut- um, trampólíni, söng, hljóðfæra- spili og seinna á mótorhjólum. Hans náttúrulegu hæfi- leikar voru magn- aðir og hann var aldrei hræddur við að prófa eitthvað nýtt. Það voru ekki bara hæfileikarnir, hann var einnig fallegasta barnið í hverf- inu með sinn gullbrúna húðlit og mjallahvítu tennur. Þegar ég heyri í hjólabretti vekur það ljúfsárar minningar um góða tíma þar sem tveir uppátækjasamir vinir léku sér saman og munduðu brettin frá morgni og fram á kvöld, eða al- veg þangað til Þóra nágranna- kona birtist í glugganum og sagði að nú væri alveg komið nóg! Við áttum margar fallegar stundir saman við eldhúsborðið þar sem þeir hámuðu í sig pönnukökur eða eitthvað orku- ríkt til að fylla á orkuforðann, til að halda út í daginn og leika meira. Hann ávarpaði mig alltaf þegar hann kom inn: „sæl Kaja mín, hvað segir þú gott?“ og umræðurnar við borðið voru alltaf mjög eftirminnilegar. Hann var verkalýðsfulltrúi hverfisins og passaði upp á að ekki væri brotið á neinum á neinn hátt eða reglugerðir ekki virtar í árlega kassabílarallinu. Hann var alveg óhræddur við að láta í sér heyra. Þau voru ófá símtölin sem við mæðurnar áttum saman um uppátæki pörupiltanna, en við áttum oftast krók á móti bragði sem kom þeim oftar en ekki í opna skjöldu. Þá voru góð ráð dýr eins og sonur minn sagði einu sinni ógleymanlega í spjalli við Fróða þegar upp komst að þeir hefðu verið hjálmlausir á skellinöðrum: „Þær finna það á lyktinni ef maður gerir eitthvað af sér.“ Já við þekktum okkar heimafólk. Síðast þegar ég hitti Fróða þá vatt hann sér að mér, þessi fallegi ungi maður, og tók með hlýjum faðmi utan um háls mér þéttingsfast og sagði: „Sæl Kaja mín, hvað segir þú gott, mikið er gott að sjá þig.“ Það fór ekki á milli mála í hjarta mínu hversu stóran þátt í lífi okkar þessi drengur átti og hversu fallegt og gott uppeldi hann fékk frá dásamlegum for- eldrum. Þessir erfiðu tímar sem herja á heiminn núna fá mann til að staldra við og hugsa um það sem virkilega skiptir máli í lífinu og að við fáum ekki marga sénsa. Þess vegna eigum við að nýta tímann vel og vera dugleg að minna þá á sem við elskum hversu mikils virði þeir eru. Hjörtu okkar eru hjá fjöl- skyldu Fróða, ástvinum, vinum og öllum sem áttu eitthvað í þessum stórkostlega dreng. Megi minning hans lifa um ókomin ár. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göf- uga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Sigrún Kaja Eyfjörð og fjölskylda. Við Nanna kynntumst vel við vinnu í rækju- vinnslunni á Eski- firði þar sem ég fékk heldur bet- ur að sjá þvílík hamhleypa til verka hún var. Það átti að taka Nanna Kolbrún Bjarnadóttir ✝ Nanna KolbrúnBjarnadóttir fæddist 2. sept- ember 1938. Hún lést 11. apríl 2020. Jarðsungið var frá Eskifjarð- arkirkju í kyrrþey. til hendinni ef eitt- hvað var að gera, ekki gaufa við hlut- ina eins og einhver aumingi. Vinskapurinn dafnaði og dýpkaði svo þegar ég flutti aftur heim á Eski- fjörð 2012. Þá fór ég að venja komur mínar meira og meira inn á Bleiks- árhlíð 18. Það var sama á hvaða tíma dags maður heimsótti Nönnu og Kidda. Alltaf var töfrað fram hlað- borð veitinga sem minnti á ferm- ingarveislu, og gerði Nanna það leifturhratt á meðan hún gant- aðist við okkur. Þegar ég tók saman við Evu sagði ég fljótlega við hana að hún yrði að koma með mér til Nönnu og Kidda þegar við fær- um til Eskifjarðar. Það tókst strax góður vinskapur með þeim og var eins og þær hefðu alltaf þekkst. Það var svo gott að finna hvað Nanna átti í okkur hvert bein og hvað henni var umhugað um okkur. Það fundum við sér- staklega þegar Eva var ólétt núna í vetur og svo þegar Anna Dóra okkar var komin í heiminn. Nanna rukkaði okkur reglu- lega um myndir af henni og var eins og hún væri ein af ömmu- börnunum, svo mikil hlýja var í öllum hennar orðum til barnsins. Stoltir foreldrarnir hringdu myndsímtöl í vinkonu sína til að sýna henni frumburðinn og viss- um við ekki þá hve dýrmætar stundir það voru. Við höfðum ráðgert að fara svo í heimsókn við fyrsta tækifæri til að kynna þær vinkonur formlega, en það tækifæri kemur víst ekki úr þessu. Við eigum góðar minningar um gæðakonu sem stóð sínu fólki nærri og lét ekkert eiga inni hjá sér. Ennþá sjáum við ljóslifandi fyrir okkur hlýja brosið, prakkaraglampann í aug- unum og heyrum filterslausan Camelhláturinn. Stórt skarð stendur eftir í tilveru allra þeirra sem þekktu Nönnu Bjarnadóttur. Fjölnir og Eva. Það var haustið 1967 að leiðir okkar verðandi bekkjar- félaga í Samvinnu- skólanum á Bifröst lágu saman. Þetta var óvenju fjölmennur árgang- ur. Ungt fólk víða að sem hugði á tveggja ára skólanám á Bif- röst. Samvinnuhreyfingin var á þessum tíma umsvifamesta fyrirtæki landsins með bakland í kaupfélögum allt í kringum landið. Þetta endurspeglaðist í samsetningu nemenda sem komu úr öllum landsfjórðung- um. Við vorum 38 sem hófum nám í 1. bekk þetta haustið og áttum eftir að dvelja á Bifröst næstu tvo vetur. 13 stúlkur og 25 piltar. Bjarni Ólafsson sem hér er kvaddur var einn úr þessum hópi, kominn frá Króksfjarðar- nesi. Snemma var ljóst að í Bjarna bjó mannkostamaður. Hann var í senn glæsilegur á velli, greiðvikinn og hrókur alls fagnaðar. Í Samvinnuskólanum var öfl- ugt félagslíf og þar blómstraði Bjarni. Á síðara námsárinu á Bifröst kom við sögu skólamær úr yngri bekknum, Rannveig Guðmundsdóttir. Þau Bjarni rugluðu saman reytum, giftu sig 1972 og sama ár fæddist þeim sonurinn Guðmundur. 1973 ræðst Bjarni til starfa hjá Bifreiðadeild Sambandsins sem þá var. Bílasala átti eftir að verða hans helsti starfsvett- vangur og lengst af hjá B&L meðan heilsa og orka leyfðu. Þrátt fyrir að hafa í áratugi glímt við illvígan heilsubrest var Bjarni jafnan hress í bragði. „Heilsugóður“ var ávarpið sem hann notaði gjarnan þegar fund- um okkar bar saman. Við vottum Rannveigu og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Bjarna. Bifrastarfélagar 1969, Kristján Pétur Guðnason og Sigríður Árnadóttir. Nú kveðjumst við kæri vinur og fóstri. Það var fyrir rúmum 40 árum að ég fór að vinna sem sölumað- ur hjá Véladeild SÍS og var svo heppinn að fá sem yfirmann og síðar góðan félaga Bjarna Ólafs- son. Við fengum að vinna meira og minna saman þar til hann lét af störfum sem bifreiðasali þá hjá BL. Í einni af okkar fjölmörgu ferðum um landið fyrir mörgum árum tókum við loforð hvor af öðrum – þótt það hafi verið sagt í léttum dúr og fléttast inn í eitthvert samtal okkar – um að sá sem færi á undan myndi skrifa um hinn. Nú þegar komið er að því er það ekki eins létt og við létum þá. Við fengum að fara margar sýningarferðir hingað og þangað um landið, sem sumar hverjar eru ógleymanlegar. Þá fengum við innsýn í lífið hvor hjá öðrum. Þótt hann hafi verið nokkrum árum eldri var Bjarni Ólafsson ✝ Bjarni Ólafssonfæddist 29. júní 1948. Hann lést 10. apríl 2020. Útförin fór fram 5. maí 2020. það ekki að sjá í vinnu; kappið og eljan gagnvart vinnu var ótrúleg. Hvað sem á hann var lagt, öll þessi veikindi og áföll, var hann allt- af reistur og virðu- legur og snyrti- mennskan í fyrirrúmi. Ég gæti senni- lega setið og skrifað margar síð- ur um sögur úr ferðum okkar og samvinnu í gegnum tíðina en læt kyrrt liggja og geymi þær í huga mér. Ég kveð þig með söknuði, minn kæri. Guð veri með þér og fjölskyldu þinni. Jóhann Berg Þorgeirsson. Ég kynntist Bjarna fyrst í kringum 1975, en þá kom Jón bróðir hans í Vogaskóla og lent- um við saman í bekk. Mikill og góður vinskapur myndaðist í milli okkar Jóns, sem haldið hef- ur síðan. Vegna vinskapar okkar vorum við mikið inni á heimilum hvor annars og smátt og smátt kynntist ég systkinum Jóns og foreldrum. Það var svo nokkrum áratugum síðar að ég var svo heppinn að kynnast Bjarna mjög vel, en ég var ráðinn til Ingvars Helgasonar sem fram- kvæmdastjóri 2007. Þar endur- nýjuðum við Bjarni kynni frá fyrri tíð, en við höfðum þó alltaf vitað af hvor öðrum enda keppi- nautar í mörg ár, þar sem ég hafði verið hjá Toyota til margra ára. Mig langar að minnast þessa ótrúlega drengs sem svo mikið var reynt á í gegnum tíðina með alls konar verkefnum sem flest sneru að heilsu hans og atgervi. Ég ætla ekki að tíunda hér hver þessi verkefni voru, en þau voru bæði mörg og erfið. Það verður að segjast eins og er að Bjarni var einn mesti nagli sem ég hef kynnst. Aldrei kvartaði hann í okkar eyru og alltaf var hann kominn í vinnu aftur löngu áður en búist var við honum, miðað við um- fang verkefnisins. Ég var reyndar ekki hissa, enda hef ég ekki unnið með betri mönnum, þótt margir af vinnufélögum mínum hafi verið framúrskarandi fólk. Bjarni var einfaldlega frábær starfsmaður og yndislegur vinnufélagi. Alltaf jákvæður og vildi allt fyrir alla gera, enda átti hann orðið hundruð, ef ekki þúsundir, viðskiptavina sem ekki vildu tala við neinn annan sölumann. Bjarni var farinn að hlakka til að hætta að vinna um sjötugt og ætlaði að gera svo margt þegar hann væri kominn á eftirlaun, en örlögin gripu inn í og breyttu öllu með slysi sem hafði mikil áhrif á áform hans og getu til að gera það sem hann langaði að gera á eftirlaunaárunum. Mig langar að kveðja Bjarna og þakka fyrir yndisleg ár sem við áttum saman í bílasölunni og um leið senda Rannveigu eig- inkonu hans, Guðmundi syni þeirra og fjölskyldu Bjarna mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Takk fyrir að hafa fengið að hafa hann öll þessi ár. Skúli K. Skúlason. Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.