Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Elsku afi Jónas, okkur systrum þykir vænt um all- ar þær yndislegu stundir sem við fengum að eiga með þér. Það eru ótal margar minningar sem við munum geyma. Í okkar minningum varstu ávallt góður, kátur og málglaður. Það var alltaf stutt í spaug og glens. Við áttum margar einstakar stundir þegar við fjölskyldan fórum saman til Limone á Ítal- íu og auðvitað má ekki gleyma þeim skiptum sem þú komst með okkur til Flórída. Í Flórída breyttist þú ávallt í íþróttaálf og hikaðir ekki við að láta okk- ur draga þig í alls kyns vit- leysu, allt frá því að koma út að hlaupa yfir í kajak- og snorkl- unarferðir með hákörlunum og öðru sem því fylgdi – sem við systur vorum misánægðar með. Þegar við vorum yngri varstu duglegur að passa okkur og við lærðum margt af því að horfa á gular og rauðar myndir á Stöð 2 með þér. Hvað eft- irminnilegast er þegar þú út- skýrðir að það væri ekki al- Jónas Runólfsson ✝ Jónas Runólfs-son fæddist 11. júní 1937. Hann lést 22. apríl 2020. Útför Jónasar fór fram 8. maí 2020. vörufólk sem hákarlarnir í Jaws væru að éta heldur bara barbídúkkur og tómatsósa til að gera það raunveru- legra. Þetta hefur fylgt okkur áfram í gegnum árin og önnur okkar stígur ekki lengra en upp að hnjám út í sjó. Þú sýndir okkur að það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt og lést ekkert hægja á þér með árunum held- ur skelltir þér í ferðamálafræði og spænsku í Háskóla Íslands um það bil 80 ára gamall. Þú ætlaðir ekki að missa af framþróun í ferðamannaiðnað- inum. Þessar og margar aðrar góð- ar minningar munu hlýja okkur um hjartarætur þegar við minnumst þín. Afi, þú varst með hjarta úr gulli, varst alltaf til staðar fyrir okkur og fjöl- skylduna og það eru forréttindi að hafa átt þig að sem afa. Hvíldu í friði elsku afi, við munum sakna þín sárt. Þínar afastelpur, Elín Rós og Guðrún. Elsku Jónas afi, við vorum svo lánsöm að eignast þig fyrir afa þegar dóttir þín Hulda kynnist pabba okkar, en fyrir áttum við ekki afa á lífi. Við viljum þakka þér fyrir góðar stundir og munum við sakna samveru þinnar, þá sérstaklega að eyða með þér jólunum og fara með þér í utanlandsferðir. Þú hafðir skemmtilegan húmor og höfðum við gaman af skondnu sögunum sem þú sagð- ir. Okkur eru sérstaklega minnisstæðar ferðirnar til Flór- ída. Þið Ingólfur voru góðir saman í að stytta ykkur stund- irnar í verslunarmiðstöðvunum þar sem farið var á allar „skrif- stofur þínar“ sem var dulmerki fyrir að prófa alla nuddstólana. Á seinni árum þínum tók El- ísabet viðtal við þig fyrir skóla- verkefni þar sem þú deildir skemmtilegum sögum úr lífi þínu, meðal annars um ævin- týrin þín í Bandaríkjunum, áhugaverðu tímana sem þú starfaðir sem þjónn og annað brask sem þú stundaðir. Það var áhugavert að fræðast um líf þitt á yngri árum. Elsku Jónas afi, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar. Hvíldu í friði. Elísabet Ásta Guðjónsdóttir, Ingólfur Hannes Guðjónsson. Afi hafði mörg áhugamál, það var alltaf mikið að gera hjá honum og hann hafði frá mörgu að segja. Hann var með alla nýjustu tækni á hreinu og vildi vera með nýjustu smáforritin í símanum sínum. Við héldum lít- il pönnukökupartí saman, nú síðast í nýja húsinu hans ská á móti því gamla. Ein uppáhalds- utanlandsferðin okkar afa var ferðin til Mallorca, en seint að kvöldi var ákveðið að fara með flugi þá um nóttina. Við hringdum í afa til að kanna hvort hann vildi koma með og þrátt fyrir stuttan fyrirvara sló hann til og skellti fötum í ferðatösku. Í ferðinni leigði afi bát handa okkur sem var með rennibraut sem hægt var að renna sér af ofan í heit- an sjóinn. Okkur þótti gaman að horfa á bíómyndir saman og eitt kvöldið horfðum við á myndina Tomb Raider með Angelina Jolie og þá sagði afi okkur skemmtilega sögu frá því þegar hann var við tökur á myndinni við Jökulsárlón. Við eigum eftir að sakna afa mikið, erum þakklát fyrir góðu stundirnar okkar saman. Góða ferð, elsku afi. Þín afabörn, Kristín Guðjónsdóttir og Jónas Guðjónsson. ✝ Inga Björgfæddist á Val- þjófsstöðum í Núpasveit 16. nóv- ember 1944. Hún andaðist á Heil- brigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi 2. maí 2020. Foreldrar Ingu voru Guðrún Sig- urðardóttir, hús- móðir og síma- stúlka, f. 20.5. 1921, og Ragnar Helgason, organisti og póst- og símstöðvarstjóri, f. 15.7. 1918, d. 28.2. 1990. Inga var elst fimm systkina. Þau eru Helga Sigfríður Ragn- Eyþórsson tölvunarfræðingur, f. 1.8. 1979. Þeirra barn er Unnur Hildur, f. 2013; d) Sig- urrós, lyfjafræðingur, f. 20.1. 1981, maki Arnar Svarfdal Þor- kelsson viðskiptafræðingur, f. 23.6. 1981. Þeirra börn eru Helena Björg, f. 2009, og Hösk- uldur Svarfdal, f. 2011. Inga fluttist 13 ára gömul með fjölskyldu sinni á Kópa- sker. Þar bjó hún þar til hún hélt til náms í Hússtjórnarskól- anum á Löngumýri í Skagafirði árið 1961. Eftir það vann hún hin ýmsu störf, m.a. á sjúkra- húsinu á Akureyri sem ganga- stúlka. Árið 1967 fluttist Inga til Reykjavíkur og starfaði um hríð í mötuneyti Sjónvarps- hússins. Árið 1972 fluttist Inga á Sauðhúsvöll og hóf búskap með Sigmari og bjó þar alla tíð. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey frá Ásólfsskálakirkju. arsdóttir, f. 27.12. 1947, Árni Páll Ragnarsson, f. 3.6. 1951, Anna Þur- íður Ragnarsdóttir, f. 9.12. 1957, og Sigurður Ragn- arsson, f. 18.5. 1962. Inga giftist Sig- mari Sigurðssyni frá Sauðhúsvelli undir Vestur- Eyjafjöllum þann 20. nóvember 1976. Þeirra börn eru a) Einar, íslenskufræðingur, f. 6.8. 1974; b) Rúnar, búfræðingur, f. 1.9. 1975; c) Unnur, efnafræðingur, f. 31.7. 1979, maki Þorsteinn Elsku mamma, nú ertu horf- in yfir móðuna miklu. Þú varst alltaf svo hjartahlý og umburð- arlynd, hjálpsöm og fórnfús, nægjusöm og sannsögul, hrein- skilin og blátt áfram. Þú varst líka lífsglöð enda naustu hins litla og einfalda og varst æv- inlega sátt við hlutskipti þitt , hvert svo sem það var þá og þá stundina. Það var á balli í Reykjavík 1972 að þú kynntist manninum sem átti eftir að verða lífsföru- nautur þinn allar götur síðan. Sama ár fluttirðu á fósturbýli hans, Sauðhúsvöll undir Vest- ur-Eyjafjöllum, og áttir þar heima í hartnær fimmtíu ár. Á þeim tíma varð ykkur fjögurra barna auðið og skemmst er frá því að segja að fyrir börnin og barnabörnin vildir þú allt gera. Sjálfur á ég mér ótal fagrar minningar um þig. Sem snáði sá ég þig lauma góðgæti í skó- inn minn og fékk að hjálpa þér við bakstur og tiltekt, ekki síst fyrir jól og páska. Jólin fyrir fermingu gafstu mér Jóla- draum Dickens – sögu um það hvernig maðurinn getur um- breyst til hins betra – sögu sem átti eftir að verða mér æ kær- ari. Sem ungur maður fór ég eitt sinn í vaktavinnu og þurfti að vakna í rauðabítið; þá fórst þú á fætur fyrir allar aldir til að bera mér morgunverð. Man líka ferðirnar mörgu þegar ég ók þér í bæinn og til baka; þær voru ávallt upplífgandi. Stund- um sáum við norðurljósin sam- an, en báðum var okkur kært að sjá norðursins ljós dansa um himinhvolfið. Minnist þess einnig hvernig þú skynjaðir jafnan á mér ef eitthvað amaði að, þótt ég reyndi að láta á litlu bera, og spurðir þá hvort nokkuð væri hægt að bæta úr. Er þá fátt eitt talið af hjart- fólgnum minningum um þig. Þakka þér fyrir allt, mamma mín. Megi ljósið fylgja þér allar stundir. Einar. Þakklæti er það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um þann tíma sem ég þekkti Ingu tengdamóður mína. Þau fjórtán ár sem ég hef verið hluti af fjölskyldunni á Sauð- húsvelli var hún ekki aðeins tengdamóðir mín heldur einnig vinur sem ég gat ávallt talað við og leitað til. Ég minnist þess þegar ég kom fyrst á heimili þeirra Ingu og Sigmars á Sauðhúsvelli árið 2006. Ég og Unnur vorum þá ný- byrjuð í sambandi og bauð hún mér að koma austur á þorra- blót. Þá gæti ég hitt foreldra hennar og systkini og séð heimasveit hennar, sem ég vissi lítið um. Ég var nokkuð stress- aður fyrir því að hitta foreldra hennar í fyrsta sinn og gista á heimili þeirra. Sá ótti reyndist óþarfur, þar sem Inga og Sig- mar tóku mér opnum örmum frá fyrsta degi. Fyrir það verð ég ávallt mjög þakklátur. Við Unnur höfum alltaf farið reglulega austur á Sauðhúsvöll í heimsókn og reynt að vera þar annaðhvort yfir jól eða ára- mót. Það eru margar minning- arnar sem ég á þar sem við Inga sátum saman í eldhúsinu á Sauðhúsvelli yfir kaffibolla og ræddum saman. Inga var mjög glaðlynd kona og hafði gaman af því að ræða um lífið og til- veruna. Hún var skoðanaföst og hreinskilin og hikaði ekki við að segja meiningu sína ef henni fannst þörf á. Fjölskyldan var henni allt og sá hún alltaf til þess að allir í fjölskyldunni hefðu nóg í sig og á. Það var aðalsmerki hennar, hún hugsaði alltaf fyrst um alla aðra en sjálfa sig. Barnabörnin hennar þrjú áttu sérstakan stað í hjarta hennar. Inga var frá Valþjófsstöðum í Núpasveit og ólst upp á Kópa- skeri. Henni þótti vænt um heimasveit sína og talaði ávallt vel um hana. Árið 2008 útskrif- aðist Unnur með burtfararpróf frá Söngskólanum í Reykjavík og af því tilefni hélt hún tón- leika á Kópaskeri. Við Unnur ákváðum að nýta tækifærið og keyra hringinn í kjölfarið og kom Inga með okkur. Þessi ferð er mér mjög minnisstæð og sérstaklega sá tími sem við dvöldum á Kópaskeri og þar í kring. Inga var svo ánægð að vera komin aftur á heimaslóðir. Mér hefur alltaf þótt vænt um að hafa farið í þetta ferðalag með þeim mæðgum. Árið 2017 greindist Inga með krabbamein og var það mikið reiðarslag fyrir alla í fjölskyld- unni. Ljóst var snemma að sjúkdómurinn var langt geng- inn og lítið var hægt að gera annað en að halda honum í skefjum. Inga tókst á við sjúk- dóminn af miklu æðruleysi og hélt áfram sínu striki. En nú er komið að kveðju- stund og kveð ég Ingu með söknuði í hjarta. Eftir lifir minning um yndislega móður, tengdamóður og ömmu. Takk fyrir allt. Þorsteinn Eyþórsson. Elsku tengdamamma. Ég kynntist þér ekki fyrr en á þín- um efri árum. Alveg strax var gott og óþvingað að koma í heimsókn til þín í sveitina. Allt- af var maður svo velkominn og kaffið eins og í fermingarveislu. Þú varst iðjusöm og sjaldan mátti vera dauð stund. Nátt- úruunnandi og mikill dýravin- ur. Þú dekraðir líka extra vel við barnabörnin. Það voru alltaf til ávaxtakaramellur í krukkunni fyrir þau og allt í lagi að stelast í þær og svo ís eftir matinn á sunnudögum. Þú safnaðir líka alls konar dóti saman fyrir krakkana í stórglæsilegt drullubú svo þau gætu dundað sér. Öllum var tekið eins og þeir eru og þau fengu að vera óheft og frjáls. Já, það var ekki ama- legt að koma í dekrið í sveitina. Það verður mjög skrítið að koma í heimsókn þegar þig vantar. Þín verður saknað. Takk fyrir samveruna. Arnar Svarfdal og fjölskylda. Inga Björg Ragnarsdóttir ✝ Árni ArnarSæmundsson fæddist 3. nóv- ember 1944 á Strönd í Ólafs- firði. Hann lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 21. apríl 2020 eftir löng veikindi. Foreldrar hans voru Halldóra Gestsdóttir, f. 9.3. 1924, d. 17.6. 1986, og Sæ- mundur Pálmi Jónsson, f. 12.9. 1922, d. 16.12. 2012. Árni var næstelstur sex bræðra en þeir eru: Jón Steingrímur, f. 23.12. 1941, Gestur Heimir, f. 3.8. 1946, Hafsteinn Þór, f. 16.12. 1948, Matthías, f. 17.8. 1952, og Brynjar, f. 19.1. 1967. Árni ólst upp í Ólafsfirði hjá fóstur- foreldrum sínum Danilínu Önnu Sæmundsdóttur, f. 4.7. 1912, d. 1.7. 1994, og Agnari Björnssyni, f. 16.7. 1913, d. 23.5. 1986 frá eins og hálfs árs aldri. Lína var frænka Árna. Þann 12.10. 1963 kvæntist Árni eftirlifandi maka sínum, Hönnu Maronsdóttur, f. 17.7. 1940. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Nanna, f. 2.7. 1963, maki Sigurlaugur V. Ágústs- son. Börn þeirra eru Svanborg Anna, Ágúst Kolbeinn og Arna Marín. 2) Agnar, f. 4.7. 1966, maki Ólöf Björk Sigurð- ardóttir. Börn þeirra eru Agnar Dan og Hafdís Ólöf. Agnar á þrjú börn með fyrri maka sínum, Val- gerði B. Stef- ánsdóttur: Stefán Atli, Birna og Heiðdís Fríða. 3) Jón Arnar, f. 1.2. 1969, maki Krist- rún Þorvalds- dóttir. Börn þeirra eru Orri Fannar, Ingigerður Lilja og Daði Hrannar. 4) Sæmundur, f. 21.7. 1970, maki María H. Þorgeirsdóttir. Börn þeirra eru Lucy Anna, Árni Arnar og Alice Ösp. Auk þess gekk Árni syni Hönnu, Maroni Björns- syni, f. 28.10. 1959, í föð- urstað. Maki Marons er Hall- dóra Garðarsdóttir. Börn þeirra eru Hanna Dögg og Hjörvar. Árni lauk hefðbundnu námi, fór í Iðnskóla og fékk meist- araréttindi í vélvirkjun. Sjó- mennsku stundaði hann til fjölda ára á hinum ýmsu bát- um, einnig var hann með sína eigin smábátaútgerð. Að síð- ustu var hann í veitinga- rekstri. Útför hans fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 9. maí 2020, klukkan 14. Vegna aðstæðna verður fjöldi við- staddra takmarkaður. Þar sem ég er fastur erlendis og get ekki fylgt þér síðasta spöl- inn, elsku pabbi minn, vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum árin. Stuðninginn og ráðleggingarn- ar sem ég hef haft að leiðarljósi í lífinu. Þótt síðustu ár hafi verið þér erfið líkamlega var hugurinn allt- af sá sami og baráttuandinn til staðar sem lýsir þér kannski best, eins og þú sagðir alltaf: „Það þýðir ekkert að vera með eitthvert væl.“ Spakir menn vilja meina að maður velji sér foreldra, að valið snúist um að velja þá sem kenna manni mest og leiðbeina í gegn- um lífsins verkefni. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta er svona. Þar sem líf mitt hefur verið ein allsherjar óþolinmæði og „ strax“-veiki finnst mér að ég hafi með engu móti getað valið mér betri foreldra en þig og mömmu. Ég verð að játa að fyrir harð- skelja mann eins og mig sem er ekki sá opnasti þegar kemur að því að tjá tilfinningar mínar er það þyngra en tárum taki að kveðja þig. En jafnframt er ég guðunum þakklátur fyrir allt sem þú gafst mér. Þannig að best er fyrir mig að tjá mig með ljóði sem segir það sem mér liggur á hjarta. Föðurminning Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skín inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkar fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. Hvíl þú í friði, elsku pabbi minn. Þinn sonur, Sæmundur. Árni Arnar Sæmundsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÓLÖF BJÖRGVINSDÓTTIR lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. maí. Útför hennar verður auglýst síðar. Helga Lilja Tryggvadóttir Sigurjón Magnússon Magnús B. Tryggvason Elsa Maria Alexandre Þórhallur Tryggvason Þórhalla Guðmundsdóttir Hanna Tryggvadóttir Torfi Ragnar Vestmann barnabörn og barnabarnabörn Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.