Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
✝ Fjóla Gunn-arsdóttir fædd-
ist í Bakkagerði,
Reyðarfirði, 14.
maí 1935. Hún lést
á heimili sínu í
Hafnarfirði 14.
apríl 2020.
Foreldrar Fjólu
voru Gunnar Bóas-
son útvegsbóndi
frá Stuðlum í
Reyðarfirði, f. 10.5.
1884, d. 28.7. 1945, og seinni
kona hans, Margrét Stefanía
Friðriksdóttir, f. á Mýrum í
Skriðdal 7. 7. 1899, d. 4.5. 1975.
Fjóla var sautjánda í röð
nítján systkina. Faðir hennar
missti fyrri konu sína, Unu Sig-
ríði Jónsdóttur, f. 11.6. 1884, d.
4.1. 1922.
Eldri systkini Fjólu: Sig-
urbjörg, f. 1907, d. 1963, Jón, f.
1908, d. 1961, Lára, f. 1909, d.
1996, Sólborg, f. 1910, d. 1991,
Ásgeir, f. 1912, d. 1985, Anna,
f. 1913, d. 1958, Hjalti, f. 1914,
d. 1986, Páll, f. 1916, d. 1916,
Páll, f. 1917, d. 2007, og Ingv-
d. 1.2. 2000, maki Páll S. Krist-
jánsson. Börn: Kristján, barns-
móðir Birna Ingadóttir. Börn:
Ása Margrét og Símon. Ása, f.
16.8. 1983, d. 4.5.1999.
Gunnar, f. 8.7. 1960, maki
Margrét Ólafsdóttir. Börn: Pét-
ur, maki Hjördís Guðrún Brynj-
arsdóttir. Börn: Gunnar Atli,
Bóas Óli og Andri Fannar.
Ólafur, maki Maja Raabye
Füchsel. Börn: Frans Magnus,
Viktoria og Hugo Boas. Bóas,
maki Camilla Bai. Börn: Siva
Viola og Silke Viola. Fjóla
Valdimar f. 9.10. 61, maki
Ingibjörg Jóhannesdóttir. Börn:
Fanndís Huld, maki Dagbjartur
Ketilsson. Börn: Hróar Indriði
og Agnes Eva. Ásdís Dröfn,
maki Skúli Pálsson. Börn: Alex
Örn og Sandra Ósk. Pétur
Indriði.
Jón Emil, f. 13.3. 1970.
Börn: Loki og Sif.
Heiðdís, f. 3.5. 1972, maki
Hreiðar Bjarni Hreiðarsson.
Börn: Fanney Sól, Hreiðar,
Þórdís Anna og Pétur Snær.
Fjóla ólst upp í Bakkagerði
og lauk fullnaðarprófi frá
Barnaskóla Reyðarfjarðar og
síðan landsprófi frá Laugum í
Reykjadal 1953.
Fyrstu hjúskaparárin
bjuggu Fjóla og Pétur á Ak-
ureyri. Að loknu vélvirkj-
anámi Péturs fluttu þau til
Reykjavíkur árið 1957. Fjóla
flutti út til Danmerkur 1960
með skipi frá Neskaupsstað
með Gunnar 6 vikna gamlan,
Önnu Margréti 2 ára, Evu 4
ára og Pétur Már 5 ára. Pét-
ur hafði farið á undan í nám í
tæknifræði í Odense sem
hann lauk 1963 og fluttu þá
aftur til Akureyrar og bjuggu
þar til 1994.
Fjóla fór í tækniteikn-
aranám árið 1973 og lauk því
tveimur árum síðar. Hún vann
við það með eiginmanni sín-
um á skrifstofu þeirra í
Þrastalundi á Akureyri.
Árið 1994 fluttu Fjóla og
Pétur til Odense og bjuggu
þar til ársins 2000 er þau
fluttu aftur til Íslands og sett-
ust að í Hafnarfirði.
Fjóla verður jarðsungin frá
Reyðarfjarðarkirkju á morg-
un, 10. maí 2020, klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna verður at-
höfnin í kyrrþey en streymt
verður úr kirkjunni á face-
booksíðu Reyðarfjarð-
arkirkju.
Slóð á streymið: https://
www.facebook.com/
reydarfjardarkirkja. Stytt
slóð: https://n9.cl/soksv.
Slóðina má einnig nálgast á
www.mbl.is/andlat.
ar, f. 1919, d. 1991.
Yngri systkinin:
Una Sigríður, f.
1924, d. 2018, Sig-
rún, f. 1925, d.
2005, Aðalheiður,
f. 1927, d. 2018,
Friðrik, f. 1929, d.
1938, Reynir, f.
1931, d. 2010,
Bóas, f. 1932, d.
2015, Ragnhildur,
f. 1937, d. 2017, og
Sólveig, f. 1944.
10. maí 1954 giftist Fjóla
Pétri Valdimarssyni, f.
22.7.1932, frá Eskifirði. For-
eldrar hans voru Valdimar
Indriði Ásmundsson og Eva
Pétursdóttir. Fjóla og Pétur
eignuðust sjö börn:
Pétur Már, f. 4.1. 1955, maki
Arndís Bjarnadóttir. Börn: Pét-
ur Bjarni og Eva María, maki
Smári D. Hallgrímsson, börn
Franz Logi og óskírð dóttir.
Eva, f. 12.4.1956, maki Mog-
ens U. Andersen, barnsfaðir
Abdel Naby. Barn: Fjóla.
Anna Margrét, f. 9.9. 1958,
Yndislega ástarblóm.
Nú þegar ég kveð þig í hinsta
sinn í þessari jarðvist þakka ég
þér fyrir öll 67 dásamlegu árin
sem við áttum saman og ég mun
hugsa til þessa ljóðs eftir James
McNifty þegar treginn verður of
mikill.
Gættu þess vin, yfir moldunum mín-
um,
að maðurinn ræður ei næturstað
sínum
og þegar þú hryggur úr garðinum
gengur,
ég geng þér við hlið, þó ég sjáist ei
lengur.
En þegar þú strýkur burt tregafull
tárin,
þá teldu í huganum yndisleg árin,
sem kallinu gegndi ég kátur og glað-
ur,
það kæti þig líka, minn sam-
ferðamaður.
Ástarkveðja, þinn
Pétur (Péti).
Minning um móður
Í hjarta mínu er lítið ljós,
sem logar svo skært og rótt.
Í gegnum torleiði tíma og rúms
það tindrar þar hverja nótt.
Það ljósið kveiktir þú, móðir mín,
af mildi, sem hljóðlát var.
Það hefur lifað í öll þessi ár,
þótt annað slokknaði þar.
Og þó þú sért horfin héðan burt
og hönd þín sé dauðakyrr,
í ljósi þessu er líf þitt geymt,
– það logar þar eins og fyrr.
Í skini þess sífellt sé ég þig
þá sömu og þú forðum varst,
er eins og ljósið hvern lífsins kross
með ljúfu geði þú barst.
(Jóhannes úr Kötlum)
Ástar- og saknaðarkveðjur,
elsku móðir.
Fyrir hönd barna, tengda-
barna, barnabarna og barna-
barnabarna,
Pétur Már Pétursson.
Með söknuði og óskaplega góð-
um minningum um yndislega afa-
systur kveðjum við Fjólu frænku.
Margar góðar minningar eru
frá stóra húsinu í Þrastarlundin-
um; gullfiskabúrið, stóri fallegi
garðurinn sem bauð upp á ýmis
ævintýri, steiktur fiskur með
miklu smjöri og afmæliskanínu-
tertan með ofsalega góðu kremi
og lakkrísreimunum.
Það var alltaf settur rjómi út í
kaffið og risastórt oststykki haft
á borðum.
Þó að Fjóla hafi verið ættmóð-
ir Stuðlaþrjóskunnar, þá voru
það ljúfmennskan og elskuleg-
heitin sem einkenndu alltaf heim-
sóknir í Þrastarlund. Við munum
eftir henni brosandi og elsku-
legri.
Pétri og afkomendum sendum
við hlýjar kveðjur með kærleik til
allra.
Kjartan, Aðalheiður,
Ingi Lár og Harpa börn
Vilbergs og Jennýjar.
Minningar um Fjólu, föður-
systur okkar, eru samofnar
bernskuminningunum, því þá
bjuggu Fjóla og Pétur á Akureyri
með börnunum sínum sem voru á
líkum aldri og við og þar var gott
að koma þegar sveitafólk fór í
kaupstaðarferð.
Heimili þeirra, Þrastalundur,
hafði ekki ólíkan blæ og Stuðla-
heimilið.
Þar var líf og fjör, gestir alltaf
velkomnir og alltaf tími til að
spjalla. Það voru ríkulegar veit-
ingar á borðum, þó samræðurnar
drægjust á langinn því samfélag-
ið var það sem skipti máli – ekki
tímasetningar.
Garðurinn stóri var eins og
töfragarður og meira að segja
hægt að gista úti í dúkkuhúsi
Heiðdísar, ef þau ekki leyfðu
stelpunum bara að sofa í stóra
vatnsrúminu sínu.
Fjóla og Pétur umgengust
börn með sama áhuga og virðingu
og fullorðið fólk en það var ekki
sjálfsagt í þá tíð. Heimsóknir
þeirra eða þegar þau komu við á
leið austur á Reyðarfjörð eða á
bakaleið voru alltaf tilhlökkunar-
efni.
Fjóla og pabbi voru samrýnd.
Þau fóru saman í Laugaskóla árið
1950 og allt fram til andláts
pabba árið 2015 sýndu þau Fjóla
og Pétur honum mikla ræktar-
semi og vináttu með heimsóknum
og símtölum.
Fjólu var flest til lista lagt;
handavinna, matargerð og garð-
yrkja, en sannarlega er það hlýja
hennar og elskusemi sem gerðu
hana einstaka frænku í okkar vit-
und.
Guð blessi minningu hennar
og huggi Pétur og allan stóra
hópinn þeirra.
Margrét og systkinin
í Stuðlum.
Elskulega Fjóla systir pabba-
tengdapabba-afa Bóasar hefur
kvatt þennan heim.
Þessi fallega og hlýja kona
sýndi okkur hjónunum og börn-
unum okkar ætíð mikla ástúð og
umhyggju. Fyrir það erum við
þakklát. Í huga okkar eru Fjóla
og Pétur eitt, þess vegna eru
þessar hugleiðingar um þau
bæði.
Þegar við fórum með börnin
okkar lítil til Akureyrar var
Þrastarlundur hjá Fjólu og
Pétri sá staður sem okkur þótti
best að koma á til að skipta um
bleyju eða næra börnin. Alltaf
tóku þau okkur opnum örmum
og sýndu okkur mikla hlýju og
áhuga og buðu upp á alls konar
góðgæti.
Seinni ár hafa Fjóla og Pétur
oft komið við hjá okkur í Dala-
kofanum, ýmist á leiðinni austur
á Reyðarfjörð eða til baka. Alltaf
jafn yndisleg og svo gott að fá
hlý og notaleg faðmlög frá þeim
báðum og finna væntumþykjuna
streyma frá þeim. Gaman að
spjalla við þau og einnig að finna
áhuga þeirra á að vita
hvernig gengi hjá börnunum
okkar.
Börn Fjólu og Péturs hafa
sannarlega fengið þessa elsku-
semi í arf og höfum við hjónin og
börnin okkar notið þess.
Við höfum heimsótt Evu og
Molla og líka Gunnar og Mar-
gréti í Óðinsvé. Þar fundum við
þessa sömu hlýju, ástúð og
miklu gestrisni eins og hjá Fjólu
og Pétri.
Yngri börnin okkar hafa líka
fengið að njóta elskusemi þessa
góða frændfólks í Danmörku
sem hafa allt viljað fyrir þau
gera og ber sannarlega að þakka
það.
Ómetanlegt var að Fjóla og
Pétur ásamt Gunnari, Margréti
og Örnu Kristínu okkar skyldu
fyrir tveimur árum fara á tón-
leika hjá danska kórnum Vocal
Line sem
Gunnar sonur okkar syngur í.
Þar sýndu þau enn þessa miklu
ást, umhyggju og frændrækni.
Elsku Pétur og fjölskylda, við
sendum ykkur öllum innilegar
samúðarkveðjur.
Okkur þykir mjög vænt um
ykkur öll og biðjum góðan Guð
að blessa minningu elsku Fjólu.
Haraldur Bóasson,
Þóra Fríður Björnsdóttir
og fjölskylda.
Fjóla
Gunnarsdóttir
Okkar ástkæri
GUNNAR NIKULÁSSON
fv. bóndi á Másstöðum,
Höfðabraut 3, Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða Akranesi
mánudaginn 27. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum vinsemd og hlýhug.
Aðstandendur
Okkar ástkæri
MARJAN ZAK,
framreiðslumaður,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
1. maí. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram
fimmtudaginn 14. maí í kyrrþey.
Þökkum öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug.
Irena Puhar Zak
Sandra Zak
Ágúst Zan Zak
Amilía Petronela Zak
Alenka Zak
Birkir Marinósson
Bergur Leó Zak Birkisson
drengur Zak Birkisson
Inga Ágústsdóttir
Okkar kæri bróðir,
ÞORSTEINN GUTTORMUR
HALLDÓRSSON
húsasmíðameistari,
Mávahlíð 11, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 30. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jörgen Þór Halldórsson Hrefna Kristbergsdóttir
Halldóra Halldórsdóttir Baldur Sigfússon
Margrét Halldórsdóttir Sigurður Skúlason
Arnþrúður Halldórsdóttir
Stefanía Halldórsdóttir
Daníel Halldórsson
Guðmundur Halldórsson Anna Kristín Björnsdóttir
Elsku maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RAGNAR H. GUÐMUNDSSON
Arnarási 15
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
fimmtudaginn 30. apríl. Jarðarförin mun
fara fram 14. maí, í kyrrþey í ljósi aðstæðna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið.
Guðrún S. Jóhannsdóttir
Jóhann H. Ragnarsson
Ingvar H. Ragnarsson Ásta Sölvadóttir
Jökull Tinni Ingvarsson
Ástkær amma, tengdaamma, langamma
og systir okkar,
VILBORG KRISTÓFERSDÓTTIR
bóndi,
Læk í Leirársveit,
lést á dvalarheimilinu Höfða mánudaginn
4. maí. Útför fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 15. maí
klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu fer hún fram í
kyrrþey en verður streymt á vefsíðu Akraneskirkju:
www.akraneskirkja.is.
Vilhjálmur Ólafsson
Elín Björnsdóttir
Ylfa Maren Vilhjálmsdóttir
Jón Kr. Magnússon
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGFINNUR GUNNARSSON
Hagatúni 3, Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
fimmtudaginn 7. maí. Í ljósi aðstæðna
fer útförin fram í kyrrþey frá Hafnarkirkju laugardaginn 16. maí.
Sigurbjörg Ragnarsdóttir
Gunnar Sigfinnsson Guðný Dóra Ingimundardóttir
Ragna Sigfinnsdóttir Friðrik Karlsson
Björn Sigfinnsson Ester Þorvaldsdóttir
Guðrún Sigfinnsdóttir
barnabörn og langafabörn
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.