Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.05.2020, Qupperneq 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 ✝ Fjóla Gunn-arsdóttir fædd- ist í Bakkagerði, Reyðarfirði, 14. maí 1935. Hún lést á heimili sínu í Hafnarfirði 14. apríl 2020. Foreldrar Fjólu voru Gunnar Bóas- son útvegsbóndi frá Stuðlum í Reyðarfirði, f. 10.5. 1884, d. 28.7. 1945, og seinni kona hans, Margrét Stefanía Friðriksdóttir, f. á Mýrum í Skriðdal 7. 7. 1899, d. 4.5. 1975. Fjóla var sautjánda í röð nítján systkina. Faðir hennar missti fyrri konu sína, Unu Sig- ríði Jónsdóttur, f. 11.6. 1884, d. 4.1. 1922. Eldri systkini Fjólu: Sig- urbjörg, f. 1907, d. 1963, Jón, f. 1908, d. 1961, Lára, f. 1909, d. 1996, Sólborg, f. 1910, d. 1991, Ásgeir, f. 1912, d. 1985, Anna, f. 1913, d. 1958, Hjalti, f. 1914, d. 1986, Páll, f. 1916, d. 1916, Páll, f. 1917, d. 2007, og Ingv- d. 1.2. 2000, maki Páll S. Krist- jánsson. Börn: Kristján, barns- móðir Birna Ingadóttir. Börn: Ása Margrét og Símon. Ása, f. 16.8. 1983, d. 4.5.1999. Gunnar, f. 8.7. 1960, maki Margrét Ólafsdóttir. Börn: Pét- ur, maki Hjördís Guðrún Brynj- arsdóttir. Börn: Gunnar Atli, Bóas Óli og Andri Fannar. Ólafur, maki Maja Raabye Füchsel. Börn: Frans Magnus, Viktoria og Hugo Boas. Bóas, maki Camilla Bai. Börn: Siva Viola og Silke Viola. Fjóla Valdimar f. 9.10. 61, maki Ingibjörg Jóhannesdóttir. Börn: Fanndís Huld, maki Dagbjartur Ketilsson. Börn: Hróar Indriði og Agnes Eva. Ásdís Dröfn, maki Skúli Pálsson. Börn: Alex Örn og Sandra Ósk. Pétur Indriði. Jón Emil, f. 13.3. 1970. Börn: Loki og Sif. Heiðdís, f. 3.5. 1972, maki Hreiðar Bjarni Hreiðarsson. Börn: Fanney Sól, Hreiðar, Þórdís Anna og Pétur Snær. Fjóla ólst upp í Bakkagerði og lauk fullnaðarprófi frá Barnaskóla Reyðarfjarðar og síðan landsprófi frá Laugum í Reykjadal 1953. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Fjóla og Pétur á Ak- ureyri. Að loknu vélvirkj- anámi Péturs fluttu þau til Reykjavíkur árið 1957. Fjóla flutti út til Danmerkur 1960 með skipi frá Neskaupsstað með Gunnar 6 vikna gamlan, Önnu Margréti 2 ára, Evu 4 ára og Pétur Már 5 ára. Pét- ur hafði farið á undan í nám í tæknifræði í Odense sem hann lauk 1963 og fluttu þá aftur til Akureyrar og bjuggu þar til 1994. Fjóla fór í tækniteikn- aranám árið 1973 og lauk því tveimur árum síðar. Hún vann við það með eiginmanni sín- um á skrifstofu þeirra í Þrastalundi á Akureyri. Árið 1994 fluttu Fjóla og Pétur til Odense og bjuggu þar til ársins 2000 er þau fluttu aftur til Íslands og sett- ust að í Hafnarfirði. Fjóla verður jarðsungin frá Reyðarfjarðarkirkju á morg- un, 10. maí 2020, klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verður at- höfnin í kyrrþey en streymt verður úr kirkjunni á face- booksíðu Reyðarfjarð- arkirkju. Slóð á streymið: https:// www.facebook.com/ reydarfjardarkirkja. Stytt slóð: https://n9.cl/soksv. Slóðina má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat. ar, f. 1919, d. 1991. Yngri systkinin: Una Sigríður, f. 1924, d. 2018, Sig- rún, f. 1925, d. 2005, Aðalheiður, f. 1927, d. 2018, Friðrik, f. 1929, d. 1938, Reynir, f. 1931, d. 2010, Bóas, f. 1932, d. 2015, Ragnhildur, f. 1937, d. 2017, og Sólveig, f. 1944. 10. maí 1954 giftist Fjóla Pétri Valdimarssyni, f. 22.7.1932, frá Eskifirði. For- eldrar hans voru Valdimar Indriði Ásmundsson og Eva Pétursdóttir. Fjóla og Pétur eignuðust sjö börn: Pétur Már, f. 4.1. 1955, maki Arndís Bjarnadóttir. Börn: Pét- ur Bjarni og Eva María, maki Smári D. Hallgrímsson, börn Franz Logi og óskírð dóttir. Eva, f. 12.4.1956, maki Mog- ens U. Andersen, barnsfaðir Abdel Naby. Barn: Fjóla. Anna Margrét, f. 9.9. 1958, Yndislega ástarblóm. Nú þegar ég kveð þig í hinsta sinn í þessari jarðvist þakka ég þér fyrir öll 67 dásamlegu árin sem við áttum saman og ég mun hugsa til þessa ljóðs eftir James McNifty þegar treginn verður of mikill. Gættu þess vin, yfir moldunum mín- um, að maðurinn ræður ei næturstað sínum og þegar þú hryggur úr garðinum gengur, ég geng þér við hlið, þó ég sjáist ei lengur. En þegar þú strýkur burt tregafull tárin, þá teldu í huganum yndisleg árin, sem kallinu gegndi ég kátur og glað- ur, það kæti þig líka, minn sam- ferðamaður. Ástarkveðja, þinn Pétur (Péti). Minning um móður Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, af mildi, sem hljóðlát var. Það hefur lifað í öll þessi ár, þótt annað slokknaði þar. Og þó þú sért horfin héðan burt og hönd þín sé dauðakyrr, í ljósi þessu er líf þitt geymt, – það logar þar eins og fyrr. Í skini þess sífellt sé ég þig þá sömu og þú forðum varst, er eins og ljósið hvern lífsins kross með ljúfu geði þú barst. (Jóhannes úr Kötlum) Ástar- og saknaðarkveðjur, elsku móðir. Fyrir hönd barna, tengda- barna, barnabarna og barna- barnabarna, Pétur Már Pétursson. Með söknuði og óskaplega góð- um minningum um yndislega afa- systur kveðjum við Fjólu frænku. Margar góðar minningar eru frá stóra húsinu í Þrastarlundin- um; gullfiskabúrið, stóri fallegi garðurinn sem bauð upp á ýmis ævintýri, steiktur fiskur með miklu smjöri og afmæliskanínu- tertan með ofsalega góðu kremi og lakkrísreimunum. Það var alltaf settur rjómi út í kaffið og risastórt oststykki haft á borðum. Þó að Fjóla hafi verið ættmóð- ir Stuðlaþrjóskunnar, þá voru það ljúfmennskan og elskuleg- heitin sem einkenndu alltaf heim- sóknir í Þrastarlund. Við munum eftir henni brosandi og elsku- legri. Pétri og afkomendum sendum við hlýjar kveðjur með kærleik til allra. Kjartan, Aðalheiður, Ingi Lár og Harpa börn Vilbergs og Jennýjar. Minningar um Fjólu, föður- systur okkar, eru samofnar bernskuminningunum, því þá bjuggu Fjóla og Pétur á Akureyri með börnunum sínum sem voru á líkum aldri og við og þar var gott að koma þegar sveitafólk fór í kaupstaðarferð. Heimili þeirra, Þrastalundur, hafði ekki ólíkan blæ og Stuðla- heimilið. Þar var líf og fjör, gestir alltaf velkomnir og alltaf tími til að spjalla. Það voru ríkulegar veit- ingar á borðum, þó samræðurnar drægjust á langinn því samfélag- ið var það sem skipti máli – ekki tímasetningar. Garðurinn stóri var eins og töfragarður og meira að segja hægt að gista úti í dúkkuhúsi Heiðdísar, ef þau ekki leyfðu stelpunum bara að sofa í stóra vatnsrúminu sínu. Fjóla og Pétur umgengust börn með sama áhuga og virðingu og fullorðið fólk en það var ekki sjálfsagt í þá tíð. Heimsóknir þeirra eða þegar þau komu við á leið austur á Reyðarfjörð eða á bakaleið voru alltaf tilhlökkunar- efni. Fjóla og pabbi voru samrýnd. Þau fóru saman í Laugaskóla árið 1950 og allt fram til andláts pabba árið 2015 sýndu þau Fjóla og Pétur honum mikla ræktar- semi og vináttu með heimsóknum og símtölum. Fjólu var flest til lista lagt; handavinna, matargerð og garð- yrkja, en sannarlega er það hlýja hennar og elskusemi sem gerðu hana einstaka frænku í okkar vit- und. Guð blessi minningu hennar og huggi Pétur og allan stóra hópinn þeirra. Margrét og systkinin í Stuðlum. Elskulega Fjóla systir pabba- tengdapabba-afa Bóasar hefur kvatt þennan heim. Þessi fallega og hlýja kona sýndi okkur hjónunum og börn- unum okkar ætíð mikla ástúð og umhyggju. Fyrir það erum við þakklát. Í huga okkar eru Fjóla og Pétur eitt, þess vegna eru þessar hugleiðingar um þau bæði. Þegar við fórum með börnin okkar lítil til Akureyrar var Þrastarlundur hjá Fjólu og Pétri sá staður sem okkur þótti best að koma á til að skipta um bleyju eða næra börnin. Alltaf tóku þau okkur opnum örmum og sýndu okkur mikla hlýju og áhuga og buðu upp á alls konar góðgæti. Seinni ár hafa Fjóla og Pétur oft komið við hjá okkur í Dala- kofanum, ýmist á leiðinni austur á Reyðarfjörð eða til baka. Alltaf jafn yndisleg og svo gott að fá hlý og notaleg faðmlög frá þeim báðum og finna væntumþykjuna streyma frá þeim. Gaman að spjalla við þau og einnig að finna áhuga þeirra á að vita hvernig gengi hjá börnunum okkar. Börn Fjólu og Péturs hafa sannarlega fengið þessa elsku- semi í arf og höfum við hjónin og börnin okkar notið þess. Við höfum heimsótt Evu og Molla og líka Gunnar og Mar- gréti í Óðinsvé. Þar fundum við þessa sömu hlýju, ástúð og miklu gestrisni eins og hjá Fjólu og Pétri. Yngri börnin okkar hafa líka fengið að njóta elskusemi þessa góða frændfólks í Danmörku sem hafa allt viljað fyrir þau gera og ber sannarlega að þakka það. Ómetanlegt var að Fjóla og Pétur ásamt Gunnari, Margréti og Örnu Kristínu okkar skyldu fyrir tveimur árum fara á tón- leika hjá danska kórnum Vocal Line sem Gunnar sonur okkar syngur í. Þar sýndu þau enn þessa miklu ást, umhyggju og frændrækni. Elsku Pétur og fjölskylda, við sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Okkur þykir mjög vænt um ykkur öll og biðjum góðan Guð að blessa minningu elsku Fjólu. Haraldur Bóasson, Þóra Fríður Björnsdóttir og fjölskylda. Fjóla Gunnarsdóttir Okkar ástkæri GUNNAR NIKULÁSSON fv. bóndi á Másstöðum, Höfðabraut 3, Akranesi, lést á dvalarheimilinu Höfða Akranesi mánudaginn 27. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum vinsemd og hlýhug. Aðstandendur Okkar ástkæri MARJAN ZAK, framreiðslumaður, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 1. maí. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram fimmtudaginn 14. maí í kyrrþey. Þökkum öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug. Irena Puhar Zak Sandra Zak Ágúst Zan Zak Amilía Petronela Zak Alenka Zak Birkir Marinósson Bergur Leó Zak Birkisson drengur Zak Birkisson Inga Ágústsdóttir Okkar kæri bróðir, ÞORSTEINN GUTTORMUR HALLDÓRSSON húsasmíðameistari, Mávahlíð 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 30. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jörgen Þór Halldórsson Hrefna Kristbergsdóttir Halldóra Halldórsdóttir Baldur Sigfússon Margrét Halldórsdóttir Sigurður Skúlason Arnþrúður Halldórsdóttir Stefanía Halldórsdóttir Daníel Halldórsson Guðmundur Halldórsson Anna Kristín Björnsdóttir Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAGNAR H. GUÐMUNDSSON Arnarási 15 lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold fimmtudaginn 30. apríl. Jarðarförin mun fara fram 14. maí, í kyrrþey í ljósi aðstæðna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið. Guðrún S. Jóhannsdóttir Jóhann H. Ragnarsson Ingvar H. Ragnarsson Ásta Sölvadóttir Jökull Tinni Ingvarsson Ástkær amma, tengdaamma, langamma og systir okkar, VILBORG KRISTÓFERSDÓTTIR bóndi, Læk í Leirársveit, lést á dvalarheimilinu Höfða mánudaginn 4. maí. Útför fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 15. maí klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu fer hún fram í kyrrþey en verður streymt á vefsíðu Akraneskirkju: www.akraneskirkja.is. Vilhjálmur Ólafsson Elín Björnsdóttir Ylfa Maren Vilhjálmsdóttir Jón Kr. Magnússon Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFINNUR GUNNARSSON Hagatúni 3, Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði fimmtudaginn 7. maí. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey frá Hafnarkirkju laugardaginn 16. maí. Sigurbjörg Ragnarsdóttir Gunnar Sigfinnsson Guðný Dóra Ingimundardóttir Ragna Sigfinnsdóttir Friðrik Karlsson Björn Sigfinnsson Ester Þorvaldsdóttir Guðrún Sigfinnsdóttir barnabörn og langafabörn Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.