Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 46

Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Skapið varð jafnara og hitakófi „Ég er svo ánægðmeð Femarelle a mínar vinkonur og ég veit að nokk Femarelle hefur hjálpaðmér alveg líðanminni“. Valgerður Kummer Erlingsdóttir Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna hormónabreytinga Háþróuð vara semmiðar á tauga- og innkirtlakerfið – hefur jákvæð áhrif á lund og dregur úr þreytu. Recharge Margar konur hafa upplifað eftirfarandi eftir að þær byrjuðu á FEMARELLE RECHARGE 50+ ■ Slær hratt á einkenni (hitakóf og nætursviti minnka) ■ Stuðlar að reglulegum svefni ■ Eykur orku ■ Eykur kynhvöt 50 ára Svanhildur er Borgnesingur. Hún er leikskólakennari að mennt frá Háskólanum á Akureyri og er í meistaranámi í sér- kennslufræðum við HÍ. Svanhildur er leikskóla- kennari á Uglukletti í Borgarnesi. Maki: Fausto Bianchi, f. 1962 á Ítalíu, hárgreiðslumeistari með eigin stofu í Reykjavík. Börn: Eyþór Freyr, f. 1994, Smári Hrafn, f. 1995, Dagbjört Diljá, f. 1999, Haralds- börn, og Þorvaldur Jónsson, f. 2007. Foreldrar: Ólafur Örn Kristjánsson, f. 1948, búsettur í Hafnarfirði, og Sigríður Björk Þórisdóttir, f. 1951, d. 2011. Stjúp- faðir var Þorvaldur Þorvaldsson, f. 1948, d. 2009. Þau voru búsett í Borgarnesi. Svanhildur Margrét Ólafsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er engin ástæða til þess að láta smáatriði standa í veginum fyrir því að tilskilinn árangur náist. Gerðu náunganum greiða, þú munt ekki sjá eftir því. 20. apríl - 20. maí  Naut Peningar vaxa ekki á trjánum – þeir vaxa í garði hugmyndaflugsins. Einhver kemur inn í líf þitt eins og stormsveipur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Að hlusta er besta leiðin til að brúa bil milli þín og makans. Þú finnur hlut sem þú hélst að væri endanlega glataður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það lítur út fyrir að draumur þinn um ferðalag geti ræst fljótlega. Eitthvert daður er í gangi og þér finnst það ekki leiðinlegt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gríptu þau tækifæri sem þér gefast til að gera öðrum gott. Settu þér markmið og skrifaðu þau niður og vittu til, þau ræt- ast þannig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki dæma fólk út frá fyrstu kynnum. Manneskjan er svo flókið fyrir- bæri að það tekur tíma að kynnast. Hættu að hafa áhyggjur, það kemur alltaf dagur eftir þennan. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhverjir vandamenn eru óánægðir með það hversu lítinn gaum þú gefur þeim. Peningarnir fljúga út af reikningnum þínum í stað þess að koma reglulega inn á hann. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu aðra taka þátt í hús- verkunum, þú ert ekki þjónn annarra. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Góður vinur biður um ráð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef þú veist að þú getur staðið við þitt áttu ekki í vandræðum með að sannfæra aðra. Lífið er ekki bara vinna – það má leika sér líka. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hlutirnir gerast hraðar í kring- um þig en þér finnst þægilegt. Gættu þess að lofa ekki upp í ermina á þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hlutirnir reynast oft aðrir og erfiðari en manni virðist við fyrstu sýn. Fólk er farið að taka eftir þér og lítur á þig sem fyrirmynd. 19. feb. - 20. mars Fiskar Stundum á maður að taka af skarið og stundum er best að gera ekki neitt. Reyndu að fá frið frá öllu dag hvern þó ekki sé nema í hálftíma. ur stjórnað honum til þessa dags. „Ég stjórna því þremur kórum í dag, en ég hef stofnað tíu-tólf kóra,“ segir Hilmar aðspurður. „Ég er með kóradellu.“ Hilmar hefur starfað með fjöl- mörgum listamönnum úr ólíkum listagreinum, innlendum sem er- lendum. „Ég hef átt mikið og far- sælt samstarf með Megasi og stýrði m.a. heildarfrumflutningi á lögum hans við Passíusálmana í til- Laugarvatni, endurreisti Skálholts- kórinn og stofnaði Kammerkór Suðurlands 1997 og stjórnar honum enn. Árin 2009-2012 var Hilmar dómorganisti í Kristskirkju og stjórnaði þar Kór Dómkirkju Krists konungs í Kristskirkju. Frá 2012 hefur hann verið organisti og kórstjóri við Grafarvogskirkju og stjórnað þar ungmennakórnum Vox Populi. Haustið 2011 stofnaði hann tónleikakórinn Söngfjelagið og hef- H ilmar Örn Agnarsson er fæddur 9. maí 1960 í Reykjavík og ólst upp til tíu ára aldurs í Álfheimum og til unglingsáranna í Fossvogi. „Ég var í sveit á sumrin sem barn og unglingur á Hnjóti í Örlygshöfn, í byggðasafninu hjá Agli Ólafs- syni,“ segir Hilmar. „Ég vann við garðyrkju á unglingsárum í Skóg- ræktinni í Reykjavík og hafði unun af því. Það munaði litlu að ég færi í Garðyrkjuskólann eftir gagnfræða- próf frá Réttó, en þá var ekki tekið inn nema annað hvert ár svo ekki varð af því.“ Hilmar gekk í Langholtsskóla, Breiðagerðisskóla og Réttarholts- skóla. Hann hóf 10 ára að læra á orgel/harmóníum í Tónskóla Sig- ursveins. Eftir grunnskóla lá leiðin í Tónskóla Þjóðkirkjunnar til org- elnáms og í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann stundaði nám við Tónmenntakennaradeild skólans á árunum 1977-1983 og út- skrifaðist þaðan sem tónmennta- kennari. Árin 1985-1991 stundaði hann framhaldsnám í Hamborg í orgelleik og kórstjórn. Hann hefur sótt ýmis námskeið síðan, m.a. í tónheilun. Hilmar hóf tónlistarferilinn snemma. „Fyrsta bandið var sveitaballabandið Frostrósir þar sem ég hafði meiri laun 16 ára en faðirinn sem ráðunautur!“ Hann var síðan bassaleikari í hinni goð- sagnakenndu hljómsveit Þeyr. Hilmar hóf organista- og kór- stjóraferilinn í Þorlákshöfn eftir út- skrift sem tónmenntakennari og lék við Þorlákskirkju, Strand- arkirkju og Hjallakirkju í Ölfusi. Hann stofnaði Barnakór Þorláks- hafnar og gaf út hljóðsnælduna Vor – Þorlákur. „Ég held að þetta sé fyrsti barnakirkjukórinn sem var stofnaður.“ Eftir útskrift frá Hamborg 1991 var Hilmar kallaður til Skálholts sem dómorganisti og kantor Skál- holtskirkju og einnig Haukadals-, Bræðratungu- og Torfastaðakirkju. Hann stofnaði Barnakór Biskups- tungna, Kór Menntaskólans að efni 400 ára fæðingarafmælis Hall- gríms Péturssonar árið 2014.“ Hilmar hefur gefið út fjölda geisla- diska með kórum sínum og árið 2010 kom út Heilagur draumur með tónlist eftir breska tónskáldið sir John Tavener í flutningi Kamm- erkórs Suðurlands. Kórinn frum- flutti verk eftir Tavener á minning- artónleikum um hann í London sem vöktu heimsathygli. Hilmar hefur haldið tónleika með með eiginkonu sinni, Björgu Þór- hallsdóttur sópransöngkonu, og El- ísabetu Waage hörpuleikara víða um land síðastliðin níu ár sem og víða í Evrópu. Hann hefur enn fremur unnið mikið starf með Björgu við tónlistarhátíðina Engla og menn í Strandarkirkju. Næsta stóra verkefni Hilmars er söngleikurinn Galdur eftir Helga Þór Ingason, sem Söngfjelagið frumflytur í haust. „Ég hef ennþá mikinn áhuga á garðyrkju. Við hjónin vorum að kaupa okkur hús við Hafravatn og því fylgir skrúðgarður. Þar er ég í essinu mínu og það þarf að toga mig í háttinn á kvöldin. Tónlist og garðyrkja fara vel saman, þetta er eiginlega sami hluturinn – annað garðrækt og hitt mannrækt – það eru mín stærstu áhugamál.“ Hilmar Örn Agnarsson, organisti og kórstjóri – 60 ára Kórstjórinn Hilmar á æfingu með Kammerkór Suðurlands. Tónlist og garðyrkja fara vel saman Hjónin Björg og Hilmar Örn í Strandarkirkju. Fjölskyldan Synirnir, tengdadóttir og barnabarn um jólin 2019. 40 ára Kolbrún ólst upp í Kópavogi og býr þar. Hún lærði einka- þjálfarann og til förð- unarmeistara í Mílanó, sem leiddi hana í tísku- og fjölmiðla- heiminn sem hún hef- ur starfað við í 20 ár. Kolbrún hefur ný- lokið við sjónvarpsþættina Ást sem má nálgast í Sjónvarpi Símans. Hún er að taka við kaffihúsi í Listasafni Íslands ásamt maka sínum og fleirum. Maki: Jón Haukur Baldvinsson, f. 1976, veitinga- og markaðsmaður. Börn: Sigurður Viðar, f. 2004 og Tinna Karítas, f. 2009, Þrastarbörn. Foreldrar: Helgi Þórisson, f. 1953, og Ingibjörg Þorkelsdóttir, f. 1957. Þau eru búsett í Kópavogi. Kolbrún Pálína Helgadóttir Til hamingju með daginn Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að rangt var farið með aldur Bjarna Torfa Álfþórssonar. Hann er 60 ára. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Leiðrétting Hjónin Bjarni Torfi og Erla í hjólaferð á Ítalíu, en Bjarni átti 60 ára afmæli í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.