Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
Gamalreyndur vinnufélagi
minn vatt sér upp að mér í gær
(hélt samt tveggja metra fjar-
lægð) og bað mig um að koma á
framfæri skilaboðum frá vini sín-
um, Ellliða, með þremur L-um,
sem væri með böggum hildar
þessa dagana vegna ástandsins í
enska fótboltanum.
Með þremur L-um, hváði ég.
Hvaða vitleysa er nú það?
Jú, sjáðu til. Í fyrsta lagi heldur
hann með Leeds, sem er búið að
vera besta liðið í B-deildinni í vet-
ur, sér loksins fram á að komast
aftur í úrvalsdeildina eftir sextán
ára eyðimerkurgöngu, en á svo á
hættu að tímabilið verði lýst ógilt
og ekkert lið fari upp.
Í öðru lagi er Liverpool hans
lið í úrvalsdeildinni. Strákarnir
hans Klopp hafa haft gríðarlega
yfirburði í vetur, eru með 25 stiga
forystu og félagið hefur ekki orðið
Englandsmeistari í þrjátíu ár. En
svo verður tímabilið kannski strik-
að út.
Í þriðja lagi hreifst hann svo
mjög af Leicester City þegar liðið
varð enskur meistari árið 2016 að
hann hefur haft sterkar taugar til
þess síðan. Leicester hefur geng-
ið frábærlega í vetur og er í
dauðafæri til að komast í Meist-
aradeild Evrópu. En svo verður
það kannski allt saman til einskis.
Ég óttast mjög um andlega
heilsu Ellliða ef ekki verður hægt
að ljúka þessu tímabili í enska
fótboltanum, sagði félagi minn,
sprittaði sig vel og vandlega og
rölti síðan út í sólina með kaffi-
bollann.
Ellliði kemst innan tíðar að því
hvernig þetta endar hjá Leeds,
Liverpool og Leicester, en breska
ríkisstjórnin mun tilkynna næstu
skref í baráttunni við kórónu-
veirufaraldurinn á allra næstu
dögum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Landsliðskonan Rut Arnfjörð Jóns-
dóttir sneri heim úr atvinnu-
mennsku á dögunum þegar hún
skrifaði undir tveggja ára samning
við handknattleiks lið KA/Þór sem
leikur í úrvalsdeild kvenna.
Rut, sem er 29 ára gömul, kemur
til félagsins frá Danmerkurmeist-
urunum Esbjerg, en hún hefur ver-
ið atvinnumaður í Danmörku frá
árinu 2008 og sá leikmaður sem
hefur leikið lengst samfleytt er-
lendis af íslenskum handknatt-
leikskonum á seinni árum.
Rut er í sambúð með Ólafi
Gústafssyni, landsliðsmanni í hand-
knattleik, en hann skrifaði einnig
undir samning við KA á dögunum.
Saman eiga þau svo soninn Gústaf
Bjarka Ólafsson, sem varð tveggja
ára gamall í lok febrúar á þessu
ári.
„Það er frekar óþægilegt að vera
í óvissu með framtíðina og þess
vegna er frábært að hafa neglt
þetta niður og skrifað undir samn-
ing á Akureyri,“ sagði Rut í samtali
við Morgunblaðið. „Eins og ég hef
sagt áður erum við bæði í hand-
bolta og með lítinn strák í þokkabót
þannig að við höfum aðeins þurft að
ákveða næstu skref með tilliti til
heildarpakkans ef svo má segja. Ég
á einhverja ættinga hér fyrir norð-
an en annars erum við ekki með
neina þannig tengingu. Ég get
samt alveg viðurkennt það að eftir
að hafa búið í útlöndum breytist
hugsunarhátturinn umtalsvert.
Vissulega erum við á Akureyri
en við erum samt sem áður nær
fjölskyldu og vinum sem eru á
höfuðborgarsvæðinu en áður. Ég
hef verið úti frá árinu 2008 og mér
finnst þess vegna bara æðislegt að
vera komin heim í smá ró og næði.
Þetta snerist fyrst og fremst um
það hvað væri best fyrir okkur öll
sem fjölskyldu og það er því frábær
lausn fyrir okkur að fara til Akur-
eyrar.“
Góð blanda í liðinu
Rut er uppalin hjá HK í Kópa-
vogi en var aðeins átján ára gömul
þegar hún hélt út í atvinnu-
mennsku til Danmerkur. Hún skrif-
aði undir tveggja ára samning á
Akureyri og er spennt að fara inn í
tímabilið með ungu liði KA/Þór.
„Ég hef reynt að fylgjast með
deildunum hérna heima í gegnum
tíðina og það hefur stundum gengið
og stundum ekki. Maður hefur
sjálfur verið á fullu og undanfarin
ár hef ég kannski ekki náð að fylgj-
ast jafn vel með og ég hefði viljað.
Ég á hins vegar mjög góðar vin-
konur úr landsliðinu
sem eru að spila hérna
heima og fæ þess
vegna reglulega fréttir
frá þeim.
Ég vona að við í KA/
Þór getum gert betur
á næsta tímabili en í
ár þótt það hafi vissu-
lega verið frábært
hjá liðinu að fara
alla leið í úr-
slit bikar-
keppninnar.
Það væri
líka gaman
að geta
strítt aðeins
liðunum í
efri hlut-
unum en ég
er fyrst og
fremst
spennt að
vinna með
þessum ungu og
efnilegu stelpum sem
og eldri og reyndari
leikmönnum liðsins.
Blandan í leikmanna-
hópnum er mjög góð og við
sem eldri erum getum vonandi
hjálpað yngri leikmönnunum
eins og best verður á kosið.“
Á von á jafnari deild
Rut lék með Tvis Holstebro,
Randers, Midtjylland og nú síð-
ast Esbjerg á tólf ára
atvinnumannaferli sínum í Dan-
mörku en eftir að sonur þeirra
Ólafs fæddist í febrúar 2018 við-
urkennir hún að hugurinn hafi
farið að leita heim. Rut er hins
vegar ekki eina landsliðskonan sem
er á heimleið og hún á von á því að
úrvalsdeildin verði jafnari og meira
spennandi í ár en oft áður.
„Ég var orðin hálfpartinn vön því
að vera erlendis enda búin að eyða
nánast einum þriðja ævinnar er-
lendis. Eftir á að hyggja er það
fyrst og fremst ótrúlega gaman að
hafa átt jafn góðan feril og raun
ber vitni. Það var heiður að spila
með þeim liðum sem ég fékk tæki-
færi til að spila með en eftir að við
urðum fjölskylda og Gústaf Bjarki
kom í heiminn fórum við aðeins að
leiða hugann að því að snúa aftur
heim. Svo fær maður auka löngun
líka í að snúa aftur þegar ástandið
er eins og það er í heiminum í dag
vegna kórónuveirufaraldursins.
Eins og staðan er í dag á ég erf-
itt með að meta styrkleika deildar-
innar, með tilliti til þess þegar ég
var hérna síðast. Nánast allir þeir
leikmenn sem hafa spilað erlendis
undanfarin ár eru á leiðinni heim
og ég hef fulla trú á því að deildin
verði sterkari á næstu leiktíð en á
síðasta tímabili, miðað við þá leik-
menn sem eru á leiðinni heim í
það minnsta. Ég á von á
hörkukeppni og að deildin
verði jafnari en oft áður.“
Horfir stolt til baka
Rut vann EHF-Evr-
ópukeppnina með Holstebro ár-
ið 2013 og þá varð hún danskur
bikarmeistari með Randers árið
2016. Þá varð hún Danmerk-
urmeistari með Esbjerg tíma-
bilið 2018-19 og tímabilið
2019-20 eftir að því var af-
lýst vegna kórónuveir-
unnar.
„Ég hef lítið pælt í þessu í
gegnum tíðina en þegar ég er
minnt á ferilinn og fólk fer að
tala um hann er ég gríðarlega
stolt af þessum fína og flotta
ferli. Ég hef upplifað marga sigra
á handboltavellinum og eins hef ég
lært og þroskast mikið sem mann-
eskja. Ég hef kynnst fullt af frá-
bæru fólki sem ég verð ævinlega
þakklát og ég horfi mjög sátt til
baka yfir atvinnumannaferil minn.
Ég mæli hiklaust með því fyrir
unga og efnilega leikmenn að taka
þetta skref og fara í atvinnu-
mennsku. Ég er ótrúlega ánægð
með að hafa tekið slaginn og farið
út árið 2008. Maður lærir ótrúlega
mikið á því að búa í öðru landi og
kynnast annarri menningu. Ekki
það að lífið í Danmörku sé eitt-
hvað gríðarlega frábrugðið lífinu
á Íslandi en þú lærir bara svo
mikið á því að standa á eigin fót-
um. Það er alltaf hægt að koma
aftur heim ef hlutirnir ganga ekki
upp,“ bætti Rut við í samtali við
Morgunblaðið.
Frábær lausn fyrir okk-
ur að fara til Akureyrar
Rut Jónsdóttir segir að það verði spennandi verkefni að spila með KA/Þór
Akureyri Rut Jónsdóttir og Gústaf
Bjarki Ólafsson sonur hennar og Ólafs
Gústafssonar eftir að Rut varð dansk-
ur meistari með Esbjerg vorið 2019.
Nú er fjölskyldan á leið til Akureyrar.
Körfuknattleiksdeild Þórs í Þor-
lákshöfn hefur samið við banda-
rískan leikstjórnanda, Jahii Carson,
um að leika með liðinu í úrvals-
deildinni. Þetta kom fram í Hafn-
arfréttum í gær. Carson er 26 ára
og lék með Arizona State háskóla
til 2014. Hann hefur síðan komið
víða við og leikið með Wollongong
Hawks í Ástralíu, Metalac Valjevo í
Serbíu, Adanaspor í Tyrklandi, Isl-
and Storm í Kanada, Koroivos í
Grikklandi, Moncton Magic í Kan-
ada og síðustu tvö árin með BCM
Piesti í Rúmeníu.
Leikstjórnandi til
Þorlákshafnar
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Þorlákshöfn Lárus Jónsson þjálfar
lið Þórsara á næsta tímabili.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék
með HK upp yngri flokkana og
hafði þegar spilað þrjú tímabil
með liðinu í úrvalsdeild áður en
hún fór 18 ára til Danmerkur árið
2008.
Rut lék 59 úrvalsdeildarleiki
með HK á þessum þremur árum
og skoraði í þeim 178 mörk.
Hún fór til Tvis Holstebro 2008
og lék með liðinu til 2014. Þar
varð hún EHF-Evrópumeistari
árið 2013.
Rut lék með Randers
tvö tímabil, 2014 til
2016, og var þar dansk-
ur bikarmeistari árið 2016.
Hún lék með Midtjylland tíma-
bilið 2016-17.
Rut lék með Esbjerg 2017-20
og varð danskur meistari með lið-
inu 2019. Það verður væntanlega
einnig meistari 2020 og er komið í
fjögurra liða úrslit Meistaradeild-
ar Evrópu.
Rut hefur leikið 89 landsleiki og
skorað í þeim 184 mörk og hún
var í íslenska landsliðinu sem lék
á EM í Danmörku og Noregi
2010, á HM í Brasilíu
2011 og EM í Serbíu
2012.
Tólf ár í atvinnumennsku
Ensku úrvalsdeildarfélögin verða
vöruð við því á fundi á mánudaginn
að það gæti komið þeim verulega í
koll að leggjast gegn því að síðustu
níu umferðir deildarinnar verði
leiknar á hlutlausum völlum í sumar.
Sky Sports greinir frá þessu.
Sex neðstu liðin, Brighton, West
Ham, Watford, Bournemouth, Aston
Villa og Norwich, hafa öll lýst yfir
óánægju með að ekki skuli vera leik-
ið á heimavöllum liðanna í þessum
síðustu níu umferðum. Forráða-
menn þeirra hafa sagt að það setji
spurningarmerki við heilindi móts-
ins í heild sinni og það gæti reynst
þeim dýrt að missa af því að spila á
heimavelli á þessum mikilvæga loka-
spretti.
Til þess að heimilað verði að leika
á hlutlausum völlum þurfa fjórtán
félög af tuttugu í deildinni að sam-
þykkja tillögu þess efnis.
Sky Sports segir að þær ráðstaf-
anir sem settar verða upp til þess að
leikirnir geti fram í sumar verði nær
örugglega áfram til staðar þegar
næsta tímabil hefst, og það gæti því
haft alvarlegar afleiðingar fyrir öll
lið ef þessi tillaga yrði felld.
Fundur úrvalsdeildarliðanna
verður haldinn í kjölfarið á vænt-
anlegri tilkynningu bresku ríkis-
stjórnarinnar um hvernig staðið
verði að því að aflétta samkomu-
banni í landinu.
Botnliðin
vöruð við
fyrir fundinn
Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði knatt-
spyrnuliðs Fjölnis, hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sem Fjölnir og
Bergsveinn sendu frá sér í gær. Berg-
sveinn er aðeins 27 ára gamall og hef-
ur verið í lykilhlutverki í Fjölnisliðinu
um árabil, m.a. á síðasta tímabili þar
sem það endurheimti sæti í úrvals-
deildinni eftir eins árs fjarveru. Hann
segir að ástríða sín fyrir fótboltanum
hafi minnkað töluvert á sama tíma og
ástríðan fyrir sálfræði, fyrirlestra-
haldi og námskeiðum hafi aukist
verulega í staðinn.
Fyrirliðinn hjá
Fjölni hættur
Ljósmynd/Fjölnir
Hættur Bergsveinn Ólafsson leikur
ekki meira með Fjölni.