Morgunblaðið - 15.05.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.05.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarkonan Special-K, réttu nafni Katrín Helga Andrésdóttir, sendir í dag frá sér EP-plötuna LUnatic thirST en það er fyrirtækið Street Pulse Records sem gefur út. Í tilkynningu segir að ef fyrsta plata hennar, I Thought I’d Be More Famous by Now, væri unglingur þá væri LUnatic thirST fullorðin manneskja. Special-K kafi nú dýpra í sjálf- skoðun sinni, al- varleg í bragði en þó eilítið hortug. Special-K er sólóverkefni og fyrsta plata Katrínar var dæmigert eins-manns-bílskúrs-verkefni, að hennar sögn. „Smám saman er ég búin að vera að sanka að mér ýmsum samstarfsaðilum sem ljá mér hæfi- leika sína við og við, eins og til dæmis Sölku Valsdóttur sem tók upp og hljóðblandaði með mér LUnatic thirST og Kristínu Helgu Ríkharðs- dóttur sem á stóran þátt í sjónrænni framsetningu Special-K,“ segir hún. Óraunhæfar væntingar – Hvers vegna valdirðu þetta nafn, Special-K? „Þegar ég gerði fyrstu plötuna mína, I Thought I’d Be More Fam- ous by Now, var ég mikið að pæla í aldamótakynslóðinni. Eitt af því sem er sagt einkenna okkur er að við séum öll sannfærð um að við séum einstök. Platan var hálfgert uppgjör við þessar mikilmennskuhugmyndir – leið til að horfast í augu við óraun- hæfar væntingar og sætta sig við strangheiðarlega meðalmennsku. K-ið er svo vísun í Katrínu, nafnið mitt. Seinna komst ég að því að Special K er í dag mest notað í sam- hengi við hið vinsæla eiturlyf keta- mín, sem er vafalaust gott fyrir rokkstjörnuímyndina,“ svarar Katr- ín og sendir sólgleraugnabroskall, sem er því miður ekki að finna í tjáknasafni umbrotskerfis Morgun- blaðsins. Plata úr viði en ekki plasti eða málmi  Special-K sendir frá sér EP-plötuna LUnatic thirST  Lögin fjalla um innri togstreitu þess sem þráir nánd en er hrædd/ur við að fórna sjálfstæði sínu og/eða vera skilinn eftir með sárt ennið Fjölbreytt „Lögin eru fjölbreytt hvað varðar stemningu og stílbrögð en eiga það sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um innri togstreitu þess sem þráir nánd en er hræddur við að fórna sjálfstæði sínu og/eða vera skilinn eftir með sárt ennið,“ segir Katrín, sem kallar sig Special-K, um EP-plötuna sína sem kemur út í dag. – Óttastu ekkert að Kellogg’s fari í mál við þig? „Það væri þá til marks um að ég væri búin að slá í gegn ef svo stórt fyrirtæki myndi nenna að eltast við mig, einhvern grasrótarlistamann á Íslandi, og ég tæki því fagnandi!“ svarar Katrín en til skýringar þá framleiðir Kellogg’s morgunverðar- korn sem nefnist Special K. Kynfræðslutónlist – Segðu lesendum aðeins frá þér, hver er Katrín Helga Andrésdóttir og hvað fékk þig til að feta þessa braut, að gerast tónlistarkona? „Ég ákvað að verða tónlistarkona þegar ég var um það bil 15 ára og upplifði mig dálítið á skjön við jafn- aldra mína á sama tíma og ég var að uppgötva íslensku tónlistarsenuna. Ég sá hana í hillingum sem vettvang þar sem ég gæti átt heima. Ég hef reyndar verið að semja lög frá því að ég man eftir mér; þegar ég var í fyrsta bekk mætti ég einu sinni með kassettu í skólann fulla af frum- sömdu efni sem ég lét kennarann spila fyrir bekkinn. Ég var líka í kór og alls kyns hljóðfæranámi sem barn. Einhverra hluta vegna ákvað ég að sveigja út af tónlistarbrautinni eftir að hafa keppt í úrslitum Músík- tilrauna 2009, þá sextán ára. Ég held ég hafi einfaldlega ekki þorað að halda áfram. Blessunarlega dróst ég aftur inn í hringiðuna þegar eldri systir mín plataði mig til að stofna með sér hina umdeildu hljómsveit Hljómsveitt, sem sérhæfði sig í því sem við kölluðum „kynfræðslu- tónlist“. Stuttu seinna var ég allt í einu með í því að stofna Reykjavíkurdætur og einhverju seinna bauð Sóley Stefáns- dóttir mér að ganga til liðs við hljóm- sveit sína og spila með sér á tónleika- ferðalögum um heiminn. Það held ég að hafi átt upptök sín í fyrirspurn sem ég sendi henni á Facebook um hvernig maður færi að því að verða tónlistarkona. Lítið sofið og mikil kaffidrykkja Samhliða þessu öllu kláraði ég myndlist í LHÍ og framhaldspróf í klassískum píanóleik frá Tónlistar- skóla FÍH og stakk svo af til Berlínar þar sem ég stofnaði meðal annars nýjustu hljómsveitina mína, Ultra- flex, sem er einmitt að gefa út sitt fyrsta lag og myndband viku eftir að LUnatic thirST kemur út. Vikuna þar á eftir kemur svo út önnur breið- skífa Reykjavíkurdætra, Soft Spot. Það er því lítið sofið og mikið kaffi drukkið þessa dagana, sem mér finnst alltaf gaman!“ svarar Katrín, létt í bragði. Grallaralegur heiðarleiki – Í lýsingu á tónleikum með Speci- al-K, sem þá var hljómsveit, árið 2018 skrifar Arnar Eggert Thorodd- sen m.a. að tónlistin hafi afvopnað mannskapinn í grallaralegum heiðar- leika. Er það lýsandi fyrir tónlist þína, er hún grallaralega heiðarleg? „Mér þykir vænt um þessa lýsingu og finnst hún vera til marks um það að Arnar Eggert skilji mig, haha. Ég myndi segja að þetta væri vel orðað og vona að fleiri hafi þessa sýn á það sem ég er að gera.“ – Segðu mér frá þessari plötu sem er að koma út, hvað hefur hún að geyma mörg lög, hvernig eru útsetn- ingar og um hvað ertu að syngja? „Þetta er stutt EP-plata, bara fjögur lög en hún er þó ansi massív, að mínu mati. Lögin eru fjölbreytt hvað varðar stemningu og stílbrögð en eiga það sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um innri tog- streitu þess sem þráir nánd en er hrædd/ur við að fórna sjálfstæði sínu og/eða vera skilinn eftir með sárt ennið. Ef þið þekkið lagið „Cactus Tree“ með Joni Mitchell þurfið þið líklega ekki að hlusta á þessa plötu, það segir allt sem segja þarf.“ Seiðandi sírenusöngur, varúð! Katrín heldur áfram: „LUnatic thirST var tekin upp í hljóðveri og hefur því aðeins fínpússaðra yfir- bragð en síðasta plata mín, en hún er engu að síður nokkuð áþreifanlega akústísk og einhvern veginn úr viði en ekki plasti eða málmi ef það er hægt að orða það þannig. Ég spilaði á flest hljóðfærin sjálf en fékk svo vini til að spila meðal annars á klarinett, básúnu og þeramín. Ef ég ætti að lýsa hverju og einu lagi í þremur orð- um þá myndi ég segja: 1. Quest to Impress: Grallaralegt barokk- ævintýri. 2. Post Coital: Nístandi áferðarmjúkur jarðarfararmars. 3. Dinner For 1: Sjálfstæðisyfirlýsing eða uppgjöf? 4. Bubble Wrap: Seið- andi sírenusöngur, varúð!“ Ljósmynd/Kristín Helga Ríkharðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.