Morgunblaðið - 15.05.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Madison stóll kr. 104.400
boli hliðarborð
kr. 28.800
denza skenkur
kr. 69.900
áhersla á að borgargötur séu hann-
aðar heildstætt með aðliggjandi
byggð í huga, þ.e. hús, götur og opin
rými mynda órofa heild, til að skapa
aðlaðandi og mannvænt borgar-
umhverfi. Er hér verið að vinda ofan
af þróun 20. aldarinnar og hags-
munir annarra þátta en bíla-
umferðar fái aukið vægi,“ segir þar.
Magnús Örn Guðmundsson, for-
seti bæjarstjórnar, lagði þá fram
sérbókun vegna þessa.
„Það er með ólíkindum að horfa
upp á fulltrúa Samfylkingarinnar í
skipulags- og umferðarnefnd, sem
starfar sem forstöðumaður hjá
Reykjavíkurborg, leggjast á sveif
með borginni í stað þess að gæta
hagsmuna Seltirninga um sam-
komulag um greiðar samgöngur
milli sveitarfélaganna. Viðbrögð
bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar
koma svo ekki á óvart. Aðalatriði
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Meirihluti sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn Seltjarnarness lýsir yfir
vonbrigðum með útfærslu á biðskýli
fyrir strætó á Geirsgötu í Reykjavík
og kallar eftir tafarlausum breyt-
ingum. Kemur þetta fram í bókun
sem lögð var fram á fundi bæjar-
stjórnar síðastliðinn miðvikudag.
Eins og greint hefur verið frá hér
í Morgunblaðinu hefur framkvæmd
Reykjavíkurborgar við Geirsgötu
vakið mikil viðbrögð og hafa bæði
bæjarstjóri Seltjarnarness og for-
seti bæjarstjórnar sagt hana vera
samningsbrot af hálfu borgarinnar
þar sem tafir á umferð eru fyrir-
séðar vegna hennar. Er þá verið að
vísa til samkomulags á milli Reykja-
víkurborgar og Seltjarnarness um
skipulag Geirsgötu, sem undirritað
var 12. nóvember 2013. Mun stoppi-
stöðin, að mati Seltjarnarnesbæjar,
valda svo mikilli truflun að það sam-
rýmist engan veginn tilgangi sam-
komulagsins og þeim skuldbind-
ingum sem borgin tók á sig með
gerð þess. Þá hefur skipulags- og
umferðarnefnd Seltjarnarness sagt
framgöngu borgarinnar ámælis-
verða sökum samráðsleysis og hefur
borgarstjóra verið sent formlegt
erindi frá bæjarstjóra þar sem ósk-
að er eftir breytingum á stoppistöð-
inni.
Sagður standa með borginni
Á fundi bæjarstjórnar var bókun
Karenar Maríu Jónsdóttur, fulltrúa
Samfylkingarinnar, lögð fram. Er
þar ekki gerð nein athugasemd við
framkvæmdina á Geirsgötu.
„Legið hefur fyrir í fjölda ára,
með samþykktu deiliskipulagi fyrir
Austurhöfn, að Geirsgötu verði
breytt þannig að hún verði falleg
borgargata, hafði Seltjarnarnes
rými til að koma sínum athuga-
semdum á framfæri í skipulagsferl-
inu. Borgargötur eru skilgreindar
sem lykilgötur hverfa og mikilvægar
samgöngutengingar við borgarhluta
fyrir alla helstu ferðamáta. Lögð er
málsins er þó að samkomulagið sem
í gildi er milli borgarinnar og Sel-
tjarnarness sé virt,“ segir þar.
Stefna um „tímaskatt“
Marta Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
það vera hlutverk Vegagerðarinnar
að sjá til þess að samgöngur séu
greiðar á milli sveitarfélaga.
„Til þess rekur Vegagerðin þjóð-
vegi, bæði í dreifbýli og þéttbýli.
Geirsgata er og hefur verið þjóð-
vegur í þéttbýli. Framkvæmdin á
Geirsgötu er enn ein aðgerð Reykja-
víkurborgar við að hindra greiðar
samgöngur og þannig tengingar á
milli sveitarfélaga. Á sama tíma og
þrengt er að umferð um Geirsgötu
er fyrirhuguð mikil íbúðauppbygg-
ing vestast í Vesturbænum. Öll sú
viðbótarumferð sem fylgir þeirri
íbúafjölgun, upp á 2.000 til 3.000
manns, mun bætast við þá miklu
umferð sem nú þegar er á Hring-
braut og Geirsgötu. Þetta mun
lengja ferðatíma fólks enn frekar og
ýta undir umferðaröngþveiti. Þessar
framkvæmdir eru enn einn liðurinn í
því sem ég kalla „tímaskattastefnu“
meirihlutans; að lengja ferðatíma
fólks með öllum hugsanlegum
hætti,“ segir Marta.
Geirsgata er nú flokkuð sem skila-
vegur en samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni hefur lengi verið
ágreiningur um slíka vegi. „[E]n Al-
þingi hefur tekið á því með lagasetn-
ingu. Vegagerðin býst ekki við því
að það verði frekari ágreiningur um
að Reykjavík taki við Geirsgötunni,
sérstaklega nú í ljósi þessara fram-
kvæmda sem ekki hafa verið bornar
undir Vegagerðina,“ segir G. Pétur
Matthíasson, upplýsingafulltrúi
Vegagerðarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Deilumál Tvö sveitarfélög eru komin í hár saman vegna þessarar biðstöðvar og hefur bæjarstjóri Seltjarnarness
sent borgarstjóra erindi þar sem kallað er eftir breytingum. Borgarfulltrúar minnihlutans hafa lýst sömu skoðun.
Deilt var um stoppistöðina
Bæjarstjórn Seltjarnarness ræddi umdeilda framkvæmd við Geirsgötu
Fulltrúi Samfylkingarinnar sagður leggjast á sveif með Reykjavíkurborg
Ásmundur Einar Daðason félags-
og barnamálaráðherra, Birna Þór-
arinsdóttir, framkvæmdastjóri
UNICEF á Íslandi, og Sævar Freyr
Þráinsson, bæjarstjóri Akraness,
undirrituðu í gær samstarfssamn-
ing um verkefnið Barnvæn sveitar-
félög. Með undirskriftinni bætist
Akraneskaupstaður í flokk sveitar-
félaga sem hefja nú vinnu við að
innleiða Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna í stjórnsýslu sína.
„Það er ánægjulegt að bæjar-
stjórn Akraness hafi nú samþykkt
að taka þátt í verkefni UNICEF og
félagsmálaráðuneytisins. Verk-
efnið kemur á réttum tímapunkti
því unnið er að gerð menntastefnu
hjá Akraneskaupstað og því tilvalið
að vinna þessi verkefni samhliða,
með réttindi barna og Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna að leið-
arljósi,“ segir Sævar Freyr.
Skaginn barnvænn
Akranes Frá undirrituninni í gærdag.
Gunnar Már Sigurfinnsson, fram-
kvæmdastjóri fraktflutningafyrir-
tækisins Icelandair Cargo, segir að
fyrirtækið flytji í dag 70% af því
magni sem það flutti áður en kór-
ónuveiran fór að setja strik í reikn-
inginn í rekstrinum fyrr á árinu.
„Við höfum náð að halda ótrúlega
miklu af því magni sem við erum
með í kerfinu og erum í dag að flytja
allt að 70% af því sem við fluttum
fyrir COVID. Það er merkilegt
vegna þess að við fluttum um 70% af
ferska fiskinum í farþegakerfinu
fyrir faraldurinn,“ segir Gunnar í
samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að í dag sé Icelandair
aðeins með um fimm prósent af
leiðakerfi farþegaflugsins í gangi og
því hafi þurft að hugsa allt kerfið
upp á nýtt á skömmum tíma.
„Við vorum t.d. hættir að fljúga til
Norður-Ameríku á fraktvélum, en
nú fljúgum við allt upp í tvisvar á
dag til Boston. Það sama á við um
Liege í Belgíu. Við erum með tvær
fraktvélar sem fljúga meira og
minna allan sólarhringinn til og frá
Íslandi með fisk, og svo til baka til
landsins með ýmiskonar varning,
eins og læknavörur,“ sagði Gunnar
Már. tobj@mbl.is
Ljósmynd/Icelandair
Flutningar Tekið á móti vél Icelandair Cargo á Keflavíkurflugvelli.
Magn fraktflutninga
70% af því sem var
Ekkert nýtt smit
kórónuveirunnar
greindist á Ís-
landi frá hádegi
á miðvikudag til
jafnlengdar í
gær. Alls var 551
sýni greint á
Landspítalanum
og hjá Íslenskri
erfðagreiningu.
Þetta kemur
fram á covid.is.
Virk smit eru 12 talsins og hafa
ekki verið færri síðan 2. mars síð-
astliðinn. Alls 1.780 hafa náð sér af
kórónuveirunni hérlendis. Enginn
er á sjúkrahúsi vegna veirunnar en
tíu hafa látist af völdum hennar.
Alls hafa 55.626 sýni verið tekin
frá því sýnatökur hófust. 681 er í
sóttkví en 19.778 hafa lokið henni
og eru komin út í vorið.
Ekkert nýtt smit og
enginn á sjúkrahúsi
Skimun Virk smit
eru aðeins tólf.