Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Útlit er fyrir að um 19 þúsund manns
verði á hlutabótum um mánaðamótin.
Með því hefur þeim fækkað um 15
þúsund síðan fjöldinn náði hámarki í
apríl. Þeir voru um 32.800 í lok apríl.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, áætlar að jafnt og
þétt muni fækka á hlutabótaskránni í
sumar. Það megi lauslega áætla að
um 9 þúsund manns í viðbót fari af
skránni í júní og hinir 10 þúsund í júlí
og ágúst.
„Við gerum ráð fyrir að það fækki
jafnt og þétt á skránni til loka ágúst,
mest trúlega í júní. Meira er ekki
hægt að segja á þessu stigi,“ segir
Karl um horfurnar fyrir sumarið.
Helmingurinn aftur í fullt starf
Að sögn Karls bendir greining á
fyrstu 8 þúsund einstaklingunum
sem hættu á hlutabótaleiðinni til að
um helmingur snúi aftur til vinnu en
að hinum helmingnum sé verið að
segja upp að fullu. Hins vegar megi
áætla að næstu mánuði muni heldur
hærra hlutfalli vera sagt upp að fullu.
„Gera verður ráð fyrir að stór hluti
þeirra muni fara á atvinnuleysis-
bætur þegar líður á sumarið og því
viðbúið að almenna atvinnuleysið
muni aukast, ekki síst í ágúst og sept-
ember,“ segir Karl.
Gengi ferðaþjónustunnar sé stór
óvissuþáttur í þessum spám. Taki
greinin við sér í sumar geti það haft
mikil áhrif á atvinnustigið. Meðal
annars hafi á þriðja þúsund starfs-
menn Icelandair misst vinnuna.
„Þetta er mjög háð því hvað gerist í
ferðaþjónustunni. Við gerum í spánni
ráð fyrir að mörg fyrirtæki í ferða-
þjónustu fari ekki í gang fyrr en í vet-
ur eða næsta vor,“ segir Karl.
Varðar um 18 þúsund störf
En áætlað er í frumvarpi vegna
þessara aðgerða að bein störf í ferða-
þjónustu séu um 25 þúsund og að hlut-
ur erlendra ferðamanna í verðmæta-
sköpun greinarinnar sé um 70%. Því
kunni fækkun ferðamanna að hafa
áhrif á um 18 þúsund störf.
Til upprifjunar var með hlutabóta-
leiðinni boðið upp á greiðslu atvinnu-
leysisbóta samhliða skertu starfshlut-
falli. Tilefnið var samdráttur vegna
veirunnar. Boðið var upp á allt að 75%
bætur gegn 25% starfshlutfalli. Tekj-
urnar komu ekki til skerðingar at-
vinnuleysisbóta. Frá og með 1. júlí
þarf starfshlutfallið að vera minnst
50%. Úrræðið verður að óbreyttu í
boði til 1. september.
Þá er í undirbúningi að fyrirtæki
fái styrk til að greiða starfsmönnum
full laun á uppsagnarfresti, þegar
þeir hætta á hlutabótaleiðinni.
Stuðningur vegna uppsagnar
Samkvæmt frumvarpinu mun at-
vinnurekandi, sem uppfyllir tiltekin
skilyrði, geta óskað eftir stuðningi úr
ríkissjóði vegna greiðslu launakostn-
aðar á uppsagnarfresti:
„Stuðningurinn nemur að hámarki
85% af launakostnaði launamanns á
uppsagnarfresti, miðað við ráðning-
arkjör hans 1. maí 2020, þó að há-
marki 633.000 kr. á mánuði vegna
launa og að hámarki 85.455 kr. á
mánuði vegna lífeyrissjóðsiðgjalds-
hluta atvinnurekanda, fyrir fullt starf
og hlutfallslega fyrir hlutastarf.“
15 þúsund afskráð af hlutabótaskrá
Þegar mest var voru um 34 þúsund manns á hlutabótaskrá Áætlað er að þeir verði 19 þúsund í lok vikunnar
Sérfræðingur segir að ef ferðaþjónustan fer af stað muni það hafa mikil áhrif á atvinnustigið næstu mánuði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúðahótel á Hverfisgötu Þúsundir hótelherbergja standa nú auðar í Reykjavík. Ferðaþjónustan varð fyrir gífurlegu tekjufalli í faraldrinum.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUMMINNINGANNA
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Þetta var ekki alltaf auðvelt, en eftir á er mjög ánægju-
legt að hafa afrekað þetta. Ætli megi ekki segja að þetta
hafi bjargað mér úr þessu kóvidástandi, “ segir Birna Dís
Vilbertsdóttir á Akureyri, en þegar líkamsræktarstöðvum
var lokað út af kórónuveirufaraldrinum í mars síðast-
liðnum fékk hún lánað hjól hjá æf-
ingastöðinni sinni, Crossfit Hamri,
stillti því upp í stofunni heima og hjól-
aði svo gott sem alla morgna á lok-
unartímabilinu. Stöðin var opnuð á ný í
vikunni og Birna hefur skilað hjólinu.
Þegar upp var staðið hafði hún hjólað
1.212 kílómetra.
Birna segir að í fyrstu hafi hún ekki
verið með nein önnur markmið í huga
en að nota hjólið og helst á hverjum degi sér til heilsubót-
ar. Hún og eiginmaðurinn, Hannes Bjarnason, starfa hjá
Hjálpræðishernum á Akureyri og þar lá öll starfsemi niðri
líkt og víða annars staðar á meðan samkomubann var í
gildi í landinu. Þau voru bæði í sjálfskipaðri sóttkví heima.
Datt fyrst í hug að „hjóla“ til Reykjavíkur
„Ég hjólaði alltaf á morgnana og hlustaði og horfði á
morgunútvarpið í leiðinni. Fyrstu dagana hjólaði ég í 15
mínútur, en smám saman jókst úthaldið og ég var komin
upp í 60 mínútur í lokin. Þegar á leið og mér óx kraftur og
ég sá kílómetrana hrannast upp á mælinum, datt mér í
hug að setja markmið um að ná 500 kílómetrum áður en
yfir lyki. Hjóla sem sagt nokkurn veginn leiðina milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur. Það tókst alveg ágætlega og því
varð að setja ný markmið. Þá bætti ég við og horfði til þess
að ná 750, þegar sú tala var í augsýn ákvað ég að reyna við
1.000 kílómetra. Nú er þetta búið og hjólið komið á sinn
stað á æfingastöðinni og ég er hæstánægð með árangur-
inn. Ég náði markmiðinu og gott betur en það, 1.212 kíló-
metrar eru að baki,“ segir Birna og bætir við að hjóla-
túrinn langi hafi líka forðað henni frá því að bæta við sig
hinum frægu „kóvidkílóum“. Buxurnar hafi hins vegar
þrengst aðeins yfir lærin, vöðvarnir enda orðnir mun
stæltari en áður var.
„Hér á stöðinni er lagt upp með að leggja aðeins auka-
lega á sig, þetta sem maður hélt að ekki væri hægt og ætli
sá hugsunarháttur hafi ekki verið mitt leiðarljós í þessu
ferli.“ Hún kveðst einnig hafa farið langt á jákvæðri hvatn-
ingu félaga sinna, m.a. æfingafélaga af stöðinni.
Ekki alltaf upplögð
Birna játar fúslega að hún hafi ekki verið upplögð alla
daga til að setjast á bak hjólinu og byrja æfingu dagsins.
Fréttir af ástandinu bæði hér heima og í útlöndum hafi
verið þess eðlis að auðvelt væri að finna til depurðar. Engu
að síður hafi hún haldið sínu striki, enda geri hreyfing
henni sérlega gott. Hún er með vefjagigt en hefur liðið
betur eftir að hún hóf æfingar í crossfit-stöðinni, nær að
verkjastilla sig betur en áður, úthald hefur aukist sem
hvort tveggja hefur jákvæð áhrif á lífsgæði. „Á meðan ég
hef heilsu til mun ég halda áfram að hreyfa mig,“ segir
hún að endingu.
Lagði að baki rúmlega
1.200 kílómetra
Fékk lánað æfingahjól og
hjólaði nánast alla morgna
þegar æfingastöðin var lokuð
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hreyfing Birna Dís Vilbertsdóttir fékk lánað æfingahjól
frá Crossfit Hamri á Akureyri á meðan stöðin var lokuð.