Morgunblaðið - 27.05.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.05.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 BÍLAMERKINGAR Vel merktur bíll er ódýrasta auglýsingin Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Hvergi eru te-bollar fleiri á fermetra en í Bret- landi og þar er því ákjósanlegur staður fyrir átök í slíkum. Bresk yfirvöld hafa staðið í styrjöld við kórónuveiru og jafnframt í minni orrustum og nú allt niður í storm í te- bolla.    Síðasti storm-urinn er um Cummings ráðgjafa, sem er ólík- indatól en þykir snjall áróðurs- maður. Grammið í slíkum er marg- fallt þyngra en gramm af gulli að mati stjórnmálamanna.    Cummings hafði ekið sjálfurheim til pabba og mömmu og til baka (rúmlega til Akureyrar úr Rvk.) án þess að spyrja kóng (Boris) eða óþekktan prest um leyfi. Cummings var kominn með veiruna og kona hans líka og þau með lítil börn og uppnám í fjölskyldunni. Þetta taldi Cummings fella málið undir undanþáguákvæði innilok- unarreglna vegna veiru.    Boris telur, að skoðuðu máli,þetta rétt, eðlilegt og ærlegt mat. En óvinirnir vilja höfuðleður Cummings. Þeir telja leðrið vera þeirrar náttúru að náist að flá það af skalla Cummings þá muni Borisi blæða mest. Óvinirnir eru bæði í hefðbundinni stjórnarandstöðu, þ.e. lögmætir óvinir, og evrópusinnar í flokki ráðherrans, þ.e. ólögmætir óvinir.    Boris hefur neitað því að ráðgjaf-inn verði rekinn. Þá vaknar upp ein grundvallarregla breskra stjórnmála: Ekki telst víst að ráð- gjafar víki fyrr en forsætisráðherra hefur neitað brottrekstri hans þrisvar. Þá er að byrja að telja. Boris Johnson Byrjaðir að telja STAKSTEINAR Dominic Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Álagningu opinberra gjalda á einstak- linga 2020 vegna tekna ársins 2019 er að ljúka hjá Skattinum. Álagningin mun verða aðgengileg á þjónustusíðu hvers og eins einstaklings á vefnum www.rsk.is á morgun, fimmtudaginn 28. maí. Álagningin sýnir líkt og áður stöðu inneigna og/eða skulda niður á hvern gjalddaga. Þá verður hægt að skoða einstaka liði álagningarinnar til að sjá útreikninga og nánari upplýsingar. Þannig er m.a. mögulegt að skoða út- reikninga barnabóta, vaxtabóta, tekjuskatts og útsvars. Auk þess er að finna upplýsingar um hve hátt hlutfall skatta, sem lagðir eru á tekjur einstaklinga, er af tekjuskattsstofni og hvernig skattgreiðslurnar skiptast á milli ríkissjóðs og sveitarfélags. Þá bætist við liður frá í fyrra hjá þeim sem hafa barn/börn á framfæri en það er sérstakur barnabótaauki. Elín Alma Arthursdóttir, sviðs- stjóri hjá Skattinum, segir að í dag muni birtast á vefnum ítarlegri leið- beiningar en áður um hvernig fólk geti lesið út úr niðurstöðunni. Þær verða á íslensku, ensku og pólsku. Inneignir (vaxtabætur, barnabæt- ur og sérstakur barnabótaauki, auk ofgreiddrar staðgreiðslu) verða greiddar inn á bankareikninga föstu- daginn 29. maí. sisi@mbl.is Álagning skatta birt á morgun  Inneignir verða lagðar inn á banka- reikninga skattgreiðenda á föstudaginn Morgunblaðið/Eggert „Það er að verða uppselt hjá okkur í tveimur flokkum af fjórum. Við ger- um ráð fyrir að allt að 400 manns mæti í hlaupið,“ segir Ívar Trausti Jósafatsson, skipuleggjandi Íslands- maraþons. Hlaupið fer fram 6. júní nk. og hlaupið verður í fjórum flokk- um. Boðið verður upp á styttri hlaup, fimm og tíu kílómetra, en að auki verður hálft og heilt maraþon á dagskrá. Nú þegar er að verða upp- selt í tíu kílómetra hlaup og hálft maraþon, en hámarksfjöldi í hverj- um flokki er hundrað einstaklingar. Sökum ástandsins sem skapast hefur vegna faraldurs kórónuveiru verður hlaupið útfært með óvenju- legum hætti. Tryggt verður að ein- staklingar geti haldið tveggja metra fjarlægð auk þess sem notast verður við „rúllandi byrjun“. Að sögn Ívars er nauðsynlegt að vera með viðeig- andi viðbúnað. „Maður þarf að passa sig á ástandinu. Af þeim sökum verðum við með útfærslu þar sem við reynum að halda í tveggja metra regluna, en svo verður auðvitað hver og einn að passa sig,“ segir Ívar. Íslandsmaraþon var haldið fyrsta sinn í fyrra og var þátttaka nokkuð góð. Einungis er hlaupið á göngu- stígum og því ætti bílaumferð lítið að trufla þátttakendur. Þá hefjast og enda öll hlaupin við Nauthólsvík. Að sögn Ívars er kærkomið fyrir hlaup- ara að geta tekið fram skóna og hlaupið snemma í júnímánuði. „Við héldum þetta í fyrsta skipti í fyrra og þá tókst vel til. Við erum að hlaupa á skemmtilegum leiðum frá Nauthólsvík. Það eru ekki mörg hlaup svona snemma sumars þannig að það er mjög jákvætt að bjóða hlaupurum upp á eitt slíkt,“ segir Ívar. aronthordur@mbl.is Halda maraþon í byrjun júní  Gera ráð fyrir að allt að 400 manns taki þátt í hlaupinu Hlaup Íslandsmaraþon verður hald- ið í byrjun júnímánaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.