Morgunblaðið - 27.05.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 27.05.2020, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þau tíðindiurðu í liðinniviku að sautján af þing- mönnum En Marche-flokksins tilkynntu að þeir hefðu yfirgefið hann og myndað nýjan hóp sem þeir vildu kenna við umhverfi, samstöðu og lýðræði. Sögðu þingmennirnir í tilkynningu að kórónuveiran hefði breytt öllu og að þeir teldu sig geta gert betur á þjóðþingi Frakka. Ákvörðun þingmannanna þýð- ir í stuttu máli að flokkurinn, sem stofnaður var til stuðnings Emm- anuel Macron Frakklands- forseta, er ekki lengur einn með meirihluta í neðri deild franska þjóðþingsins, en hún hefur oftast lokaorðið um lagasetningu í Frakklandi. Þrátt fyrir þetta voru forvígismenn flokksins ekki á því að þetta væri mikið áfall, því að hann nýtur enn meirihluta á þingi í skjóli minni flokka, sem halda áfram að styðja við stjórnarstefnuna. Engu að síður er ljóst, að það er ekki til bóta fyrir Macron að þurfa að treysta á aðra flokka við að koma mikilvægri lagasetningu í gegnum þingið, einkum þar sem nú er farið að síga á seinni hluta kjörtímabilsins. Einungis tvö ár eru þar til kosið verður næst til forseta Frakklands, og þó að sitj- andi forseti standi að einhverju leyti betur en sumir fyrir- rennarar hans er heldur ekki hægt að segja að stjórnartíð Macrons hafi verið náðug. Mótmæli „gulu vestanna“ 2018-2019 settu mikinn og allt annað en jákvæðan svip á for- setatíðina og kórónuveiru- faraldurinn hefur sett þrýsting á efna- hag Frakklands, líkt og flestra annarra ríkja. Verkföll, mótmæli og efnahagsáföll þykja í flestum tilfellum ekki vera sterkt veganesti ef sóst er eftir endur- kjöri, og nýleg skoðanakönnun benti til þess að einungis um þriðjungur Frakka treysti Mac- ron til þess að leysa þau vanda- mál er nú steðja að frönsku þjóð- inni. Macrons bíða erfiðar ákvarð- anir og slíkt býður upp á að fleiri af samherjum hans stökkvi frá borði, sem aftur gæti gert róð- urinn þyngri. Á hinn bóginn ber að líta til þess, að flestir þeir sem þegar eru hrokknir úr skaftinu hafa komið yst úr vinstri væng En Marche-flokksins, en þar telja menn Macron hafa sveigt sig allt of langt til hægri í við- brögðum sínum gegn öllum mót- mælunum og verkföllunum sem dunið hafa á honum. Í því sambandi er vert að geta þess, að Macron auglýsti flokk sinn í kosningunum 2017 sem frjálslyndan miðjuflokk, þó að hann drægi til sín mest fylgi frá rústum franska Sósíalistaflokks- ins. Þá virðist nýleg reynsla frá bæði Bretlandi og Þýskalandi benda til þess, að þeir flokkar sem leita um of til vinstri gjaldi þess frekar þegar almennir kjós- endur eru spurðir álits. Brott- hvarf þingmannanna sautján þarf því ekki að vera til marks um að dagar Macrons í pólitík séu senn taldir, þó að róðurinn verði vissulega erfiðari héðan í frá. Macron missir þingmeirihlutann}Enn eitt áfallið HæstirétturÞýskalands dæmdi í byrjun vik- unnar að bílafram- leiðandanum Volkswagen bæri að taka við og endurgreiða dís- elbifreið einkaeiganda. Almennt má telja þessa niðurstöðu mikinn ósigur fyrir fyrirtækið, en þetta er fyrsti dómurinn sem fellur gegn Volkswagen í Þýskalandi vegna díselhneykslisins mikla sem skók fyrirtækið fyrir fimm árum. Þá kom í ljós að verkfræð- ingar Volkswagen höfðu forritað einhverjar af díselbifreiðum fyrirtækisins til þess að gefa frá sér hreinni útblástur þegar verið var að prófa þær en reyndin var í almennum akstri. Með réttu má halda því fram að einhverjir neytendur hafi verið narraðir til þess að kaupa bílana, m.a. á grundvelli þess að þeir væru um- hverfisvænni en raun bar vitni. Niðurstaðan þykir gefa for- dæmi um lyktir annarra svipaðra dómsmála í Þýskalandi en nú eru um 60.000 mál gegn Volkswagen sem bíða úrlausnar þar, og er þá ótalinn fjöldi mála, sem reiðir bílaeig- endur í öðrum ríkj- um hafa höfðað gegn fyrirtækinu. Ljósi punkturinn, ef svo má kalla, er að fyrirtækið hefur gengið frá sínum málum gagnvart Bandaríkjastjórn og bandarískum neytendum, en það kostaði Volkswagen litla 20 milljarða bandaríkjadala. Það er þó skammgóður verm- ir, því talið er að allt að 15.000 manns gætu ákveðið að slást í hóp þeirra, sem höfða vilja mál á hendur fyrirtækinu eða jafnvel sölustöðum Volkswagen í Þýska- landi, og enginn endir virðist í sjónmáli. En fjárhagslegi skaðinn er ekki sá eini, því að atburðir sem þessir hafa vitanlega áhrif á það traust sem neytendur bera til viðkomandi fyrirtækja. Jafnvel þó að Volkswagen standi af sér skellinn, sem skaðabótamálin fela í sér, gæti það tekið mörg ár fyrir fyrirtækið að vinna aftur það trúnaðartraust sem fyrir- tækið fórnaði fyrir stundarhags- muni. Volkswagen tapar fyrsta skaðabóta- málinu af mörgum} Enginn endir í sjónmáli E ftir frækilega frammistöðu heil- brigðisstarfsfólks og annarra viðbragðsaðila sem lengi verður í minnum höfð hillir nú undir að unnt sé að opna Ísland að nýju. Þetta tilkynnti ríkisstjórnin nýlega á hefð- bundinn hátt án samráðs og án nokkurrar áætlunar. Ákvörðunin kom nokkrum læknum sem rætt var við greinilega á óvart en að vanda eru allir boðnir og búnir að leggjast á árar og gera það besta úr ástandinu. Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess að færa ástandið til fyrra horfs. Rekstraraðilar í ferðaþjónustu og utan hennar hafa beðið og bíða enn milli vonar og ótta eftir betri tíð. Í þeirri stöðu sem nú er uppi felast ákveðin tækifæri fyrir Ísland. Íslendingar hafa fengið mjög vinsamlega og mikla umfjöllun í þekkt- um fjölmiðlum víða um heim vegna þess hve vel hefur gengið hér að ná stjórn á útbreiðslu COVID-19- veirunnar. Það er því næsta víst að fólk sem óttast veir- una og er jafnvel að flýja hana mun sjá Ísland sem öruggan ákvörðunarstað. Við þurfum að viðhalda þessu örugga ástandi okkar sjálfra vegna fyrst og fremst og einnig vegna gesta okkar. Í þeim hópi sem getur valið sér ákvörðunarstað án tillits til kostnaðar er fólk sem er vel stætt og vel upplýst. Kostum því kapps um að horfa til þeirra tekna sem hver og einn ferðamaður skilar en ekki til fjölda þeirra. Vonandi er að sá breski samstarfs- aðili sem ríkisstjórnin valdi nú nýlega til að byggja Ís- land upp að nýju leggi áherslu á slík markmið en taki ekki undir þá framtíðarsýn sem gat að líta á netinu í vikunni að Ísland ætti að stefna að því að eftir 2-3 ár kæmu hér jafnmargir ferðamenn og þegar best lét. Markmiðið hlýt- ur að vera að eftir 2-3 ár verði tekjur af ferða- mönnum jafn miklar eða meiri en þegar mest var. Nú gefst okkur tækifæri til að sækja fram í móttöku ráðstefnugesta í auknu alþjóðlegu fundarhaldi og skipulagningu viðburða stórra og smárra. Þar eigum við margt að bjóða auk öryggis sem áður er nefnt. Náttúran er söm og áður, unnt er að leggja meiri áherslu á menningu og sögu, örugg heimafengin mat- væli og svo mætti lengi telja. Til skamms tíma þarf fyrst og fremst að tryggja að nýju flugsamgöngur við landið. Einnig þarf að leggja áherslu á að sem flest fyrirtæki í ferða- þjónustu vakni af dvalanum lífvænleg og albúin til að takast á við ný tækifæri. Áhersla okkar til skamms tíma verður fyrst og fremst að snúast um að sem flestir sem nú búa við atvinnuleysi eða skert starfshlutfall geti snúið til starfa að nýju eða fengið nýtt starf við hæfi. Til lengri tíma þurfum við að gera markvissa áætlun um frekari at- vinnuuppbyggingu í ferðaþjónustu, með aukinni græn- metisframleiðslu, auknu landeldi, aukningu í tækni- og tölvuiðnaði og aukinni úrvinnslu í sjávarútvegi og land- búnaði. Við höfum allt að vinna! Þorsteinn Sæmundsson Pistill Opnum Ísland – með varúð Höfundur er alþingismaður Miðflokksins í Reykjavík suður. thorsteinns@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég hef unnið við þetta lengi og hef oft fundið fyrir þörf fólks til að láta vita af nýjum orðum,“ segir Ágústa Þorbergsdóttir, ritstjóri nýyrðavefs Árnastofnunar. Nýyrða- vefurinn var opn- aður á degi ís- lenskra tungu árið 2018. For- vitnilegt er að fletta í gegnum nýyrðavefinn því greinilegt er að talsvert er sent inn af orðum. Mörg nýleg orð tengjast þannig kórónuveiru- faraldrinum og síðustu misseri hafa áberandi mál getið af sér ýmis ný- yrði. Ágústa segir að markmið vefs- ins séu að gefa almenningi tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif. Viðmót vefs- ins býður upp á að skrifa athuga- semdir við nýyrði sem aðrir hafa sent inn og leggja mat á þau. Sum orð slá strax í gegn „Vefurinn endurspeglar oft um- ræður í samfélaginu um ný orð en ég hefði reyndar oft viljað sjá meiri um- ræður. Hugmyndin var þó alls ekki að fara í samkeppni við slangur- orðabókina,“ segir Ágústa. Meðal þeirra orða sem miklar umræður hafa skapast um eru ipod, farsími, app og núna síðast sam- skiptafjarlægð. Af öðrum orðum sem send hafa verið inn í tengslum við kórónuveiruna má nefna sóttkvíði, nálægðartakmörkun, fjarsamvera, skjávera, hreinangrun og kóviti. „Það er erfitt að sjá fyrir hvort nýyrðið nái að festa rætur í málinu. Sum verða samstundis á allra vörum, önnur oft jafngóð komast ekki lengra en á orðalista,“ segir Ágústa og bætir við að ekki sé alltaf ljóst hvað ráði sigri nýyrða. Fjöl- miðlar og samfélagsmiðlar hafi mik- ið að segja um útbreiðslu orðanna en framtíðin ein geti leitt það í ljós hvort orðið festi rætur. „Orðaforðinn breytist og orð geta horfið úr mál- inu,“ segir Ágústa og rifjar upp að fyrir fáum árum hafi talsvert verið rætt um þyrilsnældu. Bumbubuna og blökkudagur Hún segir að kórónuveiru- faraldurinn sé ekki eina dæmið þar sem stór mál í samfélaginu geti af sér nýyrði. Klausturmálið hafi til að mynda leitt af sér orð á borð við klausturkjaftur og klausturbleikja. Ekki þarf þó stór mál til að hreyfa við þjóðinni. Margir leggja til ný orð um ýmsa hluti í daglegu lífi. Má þar nefna orð á borð við bumbu- buna, sem nýtist í stað enska hug- taksins Baby Shower. Þá hefur einn- ig verið stungið upp á svörtudegi og blökkudegi í stað hins vinsæla versl- unardags Black Friday. Nýyrði verða til á tímum kórónuveiru Nýyrði úr kófi nu Ýmis nýyrði Fjarsamvera Að vera í samskiptum við aðra/nemendur í fjarfundi Skjáumst Að sjást á tölvuskjá Útréttur/ burtmatur Matur sem viðskipta- vinur kaupir, fer burt með og snæðir annars staðar Kóviti Einstaklingur sem er sjálfskipaður sérfræðingur í sóttvörnum og veirufræðum Sundrot Svefn barna eftir að þau eru búin í sundi Síðsólarsalvi Kremið sem maður ber á sig eftir að hafa legið í sólinni Klausturbleikja Máttlausar tilraunir til að hvítþvo stjórnmálafólk eftir að það hefur orðið uppvíst að skandal – og á sér í raun enga málsvörn Skuldagildruríkiserindrekstur Að leiða aðra þjóð í skuldagildru með notkun ríkiserindreksturs Afmissisótti Sú tilfi nning þegar maður hefur misst af einhverju Höskuldarviðvörun Viðvörun um að upplýsingar muni mögulega spilla upplifun á t.d. skáldverki, sjónvarps- efni eða kvikmynd. Dregið af því þegar Höskuldur Þórhallsson tilkynnti óvart í beinni útsendingu breytingar á ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Kjötviskubit samvisku- bit yfi r að borða kjöt Sótt- kvíði Ótti við að verða farsótt eða öðrum veikindum að bráð Líkar þetta • Svara • 1 klst. Heimild: Nýyrðavefur Árnastofnunar Ágústa Þorbergsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.