Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Útlit Þessi ágæti hundur leit út um glugga þegar ljósmyndari átti nýverið leið um Klapparstíg. Horfði hvutti beint í linsuna og tók sig vel út sem fyrirsæta.
Eggert
Kommúnistaflokk-
urinn í Kína hefur lagt
til atlögu gegn sjálf-
stjórn Hong Kong.
Þannig er brotið sam-
komulag frá 1997 þeg-
ar Bretar afhentu kín-
verskum stjórnvöldum
borgina. Samkomulagið
átti að tryggja sjálf-
stjórn borgarinnar –
eitt land, tvö kerfi –
Hong Kong réði og bæri ábyrgð á
eigin innri málum og öryggi.
Stjórnvöld í Peking stefna að því
að leiða í lög heimild til að blanda
sér með beinum hætti í sjálfstjórn
borgarinnar. Til að standa vörð um
þjóðaröryggi verði öryggisstofn-
unum kínverskra stjórnvalda heim-
ilað að starfa innan borgarmarka
Hong Kong. Löggjöfinni er ætlað
að vinna gegn landráðum, aðskiln-
aðarhyggju, uppreisnaráróðri, nið-
urrifsstarfsemi, hryðjuverkum og
afskiptum erlendra afla af málum
Hong Kong.
Á sunnudag hópuðust mótmæl-
endur út á götur borgarinnar. Þeim
var mætt af hörku. Óeirðalögregla
beitti táragasi og vatnsbyssum gegn
mótmælendum og hundruð voru
handtekin.
Hvað óttast almenningur í Hong
Kong?
Efnahagsleg
velgengni
Öryggislögin heim-
ila að fólki verði refs-
að fyrir það eitt að
gagnrýna kínversk
stjórnvöld líkt og gert
er á meginlandi Kína.
Lýðræðissinnar óttast
að málfrelsi verði
skert og réttur til
mótmæla einnig. Í
Kína er litið á gagn-
rýni, málfrelsi og mót-
mæli sem niðurrif. Ákall þeirra sem
vilja verja sjálfstjórn borgarinnar
um stuðning annarra landa verður
glæpsamlegt athæfi og talið land-
ráð. Óttast er að sjálfstætt dóms-
kerfi, sem byggist á engilsax-
neskum hefðum og sterkum
eignarrétti heyri sögunni til.
Opið sjálfstætt dómskerfi, við-
skiptafrelsi og málfrelsi hafa verið
hornsteinar þeirrar efnahagslegu
velgengni sem Hong Kong hefur
notið á undanförnum árum. Að mati
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var
þjóðarframleiðsla á mann í Hong
Kong sú þrettánda mesta í heim-
inum á síðasta ári – langt fyrir ofan
Kína sem var í 65. sæti. Þjóðar-
framleiðslan var nær fimm sinnum
meiri á hvern íbúa í Hong Kong en í
Kína.
Fyrri tilraunum ráðamanna í
Peking til að koma á sérstakri ör-
yggislöggjöf hefur verið mætt af
fullri hörku. Árið 2013 fóru lýðræð-
issinnar í fjöldamótmæli um götur
borgarinnar og 2014 sameinuðust
mótmælendur undir regnhlífum.
Nær allt síðasta ár var öllum til-
raunum stjórnvalda í Peking um að
herða tökin á Hong Kong mótmælt.
Kveikjan að mótmælunum á síðasta
ári var lagafrumvarp þar sem heim-
ilað var að framselja grunaða saka-
menn til Kína. Þrátt fyrir að frum-
varpið væri dregið til baka héldu
mótmælin áfram þar sem krafist
var aukins sjálfstæðis borgarinnar.
Björn Bjarnason segir í nýlegri
dagbókarfærslu að mótmælin hafi
verið „fleinn í holdi einræðis-
stjórnar kommúnista á meginland-
inu“ og grafið „undan sjálfsöryggi
hennar og stuðluðu að því að hert
voru tökin á kínversku þjóðinni með
rafrænu eftirliti og ofstjórn“.
Vel tímasett atlaga
Aðför kínverska kommúnista-
flokksins að sjálfstjórn Hong Kong
er vel tímasett að þessu sinni. Lýð-
ræðissinnar sem höfðu uppi öflug
mótmæli allt síðasta ár eiga óhægt
um vik vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Þá virðist sem löngun annarra
landa til að standa með íbúum borg-
arinnar sé í besta falli takmörkuð.
Auðvitað munu einhver lýðræðis-
ríki og einstaka áhrifamenn mót-
mæla framferði alræðisstjórnar-
innar í Peking. En það verður af
veikum mætti, frekar á kurteisum
diplómatískum nótum. Mótmælin og
samstaðan með lýðræðisöflunum í
Hong Kong verða bitlaus og án
sannfæringar. Þetta vita ráðamenn
í Peking.
Það eru því meiri líkur en minni á
að enn einu sinni verði hinn frjálsi
heimur áhrifalaus áhorfandi þegar
alræðisstjórn leggur til atlögu við
frelsi. Valdamenn kínverska komm-
únistaflokksins hafa sýnt og sannað
að þeir beita fullkominni hörku
gagnvart eigin borgurum, telji þeir
valdi sínu ógnað. Árið sem komm-
únisminn riðaði til falls í Evrópu,
beitti kínverska valdaklíkan full-
kominni hörku gagnvart almenningi
og heimurinn stóð á öndinni. Á
Torgi hins himneska friðar í Peking
voru mótmæli, undir forystu stúd-
enta, brotin á bak aftur með her-
valdi árið 1989. Þúsundir lágu í
valnum og fjöldi var handtekinn.
Líkt og alltaf þegar alræðisstjórnir
verja völdin var í kjölfarið gripið til
hreinsana, embættismönnum var
vikið úr starfi, erlendum blaða-
mönnum vísað úr landi, ritskoðun
hert og öryggislögreglan styrkt.
Efnahagslegir hagsmunir ráða
Ekkert land hefur hernaðarburði
eða pólitískan vilja til að verja frelsi
íbúa Hong Kong. Í efnahagslegum
þrengingum er lítill vilji til að grípa
til viðskiptaþvingana gagnvart efna-
hagslegu stórveldi. Kínverski
kommúnistaflokkurinn hefur hins
vegar beitt efnahagslegum hótunum
til að tryggja pólitíska og efnahags-
lega hagsmuni. Evrópusambandið
hefur þannig látið undan og rit-
skoðað eigin skýrslur til að styggja
ekki alræðisstjórn. Til þess er Kína
of mikilvægt efnahagslega.
Sagan geymir of mörg dæmi um
hvernig frelsi og almennum mann-
réttindum er fórnað þegar efna-
hagslegir hagsmunir ráða för.
Vesturlönd hafa verið ófær í 70 ár
að tryggja sjálfstæði Tíbet frá vald-
höfum í Peking. Því miður bendir
allt til þess að íbúar Hong Kong
geti aðeins treyst á sjálfa sig, líkt og
flestar aðrar smáþjóðir sem berjast
gegn kúgun alræðishyggjunnar. Og
það er barnaskapur að ætla að
stjórnarherrarnir í Peking láti sér
nægja að koma hlekkjum á íbúa
Hong Kong.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það eru því meiri
líkur en minni á að
enn einu sinni verði
hinn frjálsi heimur
áhrifalaus áhorfandi þeg-
ar alræðisstjórn leggur
til atlögu við frelsi.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Atlaga að sjálfstæði í skjóli faraldurs