Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar M.Benz Sprinter 511. 1/2008 ek. 287 þús. km. Með kassa og lyftu. Ný skoðaður og í fínu standi. Verð aðeins 1.490.000 með vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Vantar þig pípara? FINNA.is Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera   Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Suðurgata 16, Keflavík, fnr. 209-0686, þingl. eig. Kristín Valgerður Gallagher, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og Arion banki hf. og Íslands- banki hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 09:00. Heiðarendi 6, Keflavík, fnr. 225-1207, þingl. eig. Jóna Guðný Þórhalls- dóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 09:20. Hafurbjarnarstaðir C1, Sandgerði, fnr. 209-4492, þingl. eig. Pétur Ingi Jakobsson, gerðarbeiðandi TM hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 10:00. Norðurvör 11, Grindavík, fnr. 209-2171 , þingl. eig. Ása Dóra Ragnars- dóttir og Jón Magnús Guðmundsson, gerðarbeiðendur Aur app ehf. og Framtíðin lánasjóður hf. og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 11:00. Skólabraut 7, Njarðvík, fnr. 227-3941, þingl. eig. Guðrún Ósk Ragnars- dóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 12:00. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 25. maí 2020 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Ytri-Valdarás 144638, Húnaþing vestra, fnr. 213-5441, þingl. eig. Valdarás ehf, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 10:30. Syðri-Valdarás 144639, Húnaþing vestra, fnr. 213-5451, þingl. eig. Valdarás ehf, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 10:45. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 26. maí 2020 Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Spænskukennsla kl. 13.30. Hámarksfjöldi 20 manns, það verður að skrá sig í síma 411-2600. Spritta sig þegar komið er inn og farið er út. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf verður á þessu vori í ljósi aðstæðna, við munum ekki taka neina sénsa. Ekki verður messað á uppstigningardag í Bústaðakirkju en helgistund verður streymt á heimasíðu og facebook-síðu kirkjunnar. Við sjáumst hress í haust, vonandi eigið þið gott sumar. Kærleikskveðja, Hólmfríður djákni. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara; miðvikudaginn 27. maí kl. 12 bjóðum við ykkur kæru félagar í helgistund og söng í kirkjunni. Síðan förum við inn í safnaðarheimili og borðum saman súpu og brauð, kaffi og konfekt á eftir kr. 1000 á mann. Hlökkum til að sjá ykkur. Kær kveðja, sr. Leifur Ragnar, sr. Pétur, Hrönn og Lovísa. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Korpúlfar Förum af stað með hádegisverð af mikilli varkárni, matar- gestum er skipt niður á tíma, því er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram og virða 2 metra regluna og hvetjum alla til að kynna sér vel Sam- félagssáttmála Covid. Spritta hendur og fara varlega. Gönguhópar kl. 10 mánudaga frá Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10 miðvikudaga, föstudaga frá Borgum. Petan Gufunesbæ fyrir Korpúlfa mánudaga kl. 13. Velkomin. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12. Handavinna á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlaug- inni kl. 18.30. Á morgun fummtudag verður bingó í salnum á Skóla- braut kl. 13.30. Vinsamlega takið með ykkur eigin penna. Velkomin. Félagsstarf eldri borgara atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Smá- og raðauglýsingar ✝ Guðbjörg Páls-dóttir fæddist 26. september 1928 í Reykjavík. Hún lést 17. maí 2020. Hún var dóttir hjónanna Ingunnar Guðjónsdóttur frá Laugarbökkum í Ölfusi, f. 1903, d. 1962, og Páls Ein- arssonar raf- magnseftirlits- manns frá Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 1904, d. 1958. Alsystur Guðbjargar eru Guðríður, f. 1925, Ruth, f. 1926, d. 2020, og Guðrún, f. 1929, d. 2018. Ingunn og Páll slitu sam- vistum. Samfeðra systkini voru Grettir, f. 1935, d. 2019, og Hallgerður, f. 1943, d. 1993. Síðar hóf Ingunn sambúð með býliskona Óskars er Ágústa Þorbergsdóttir, f. 1960. 3) Ingi- björg, f. 1959, maki Friðrik Steinn Kristjánsson, f. 1956. Dætur þeirra eru Liv Elísabet, f. 1993, og Áshildur, f. 1996. 4) Þórunn María, f. 1965, maki Hávarður Tryggvason, f. 1961. Börn þeirra eru Hildur Franz- iska, f. 1998, og Tryggvi Kor- mákur, f. 2006. Barnabarna- börnin eru orðin níu talsins. Guðbjörg útskrifaðist með gagnfræðapróf frá Lindargötu- skóla. Hún kynntist Jóni Inga á Þjóðveldishátíðinni á Þingvöll- um 1944 og er einn kaflinn í bók Þórs Jakobssonar, Lýðveld- isbörnin, um þeirra fyrstu kynni. Jón Ingi var klæð- skerameistari og síðar verk- smiðjustjóri Fataverksmiðj- unnar Gefjunar í Reykjavík. Guðbjörg starfaði við ýmis störf í gegnum tíðina en lengst af í verslun Íslensks heimilisiðnaðar í Hafnarstræti. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 27. maí 2020, klukkan 15. Óskari N. Erlends- syni klæðskera- meistara, f. 1896, d. 1978. Árið 1949 giftist Guðbjörg Jóni Inga Rósantssyni klæð- skerameistara, f. 1928, d. 1987. Börn þeirra eru: 1) Þór- laug Rósa, f. 1946, maki Stefán Svav- arsson, f. 1946. Sonur Þórlaugar og Hákonar Guðmundssonar er Jón Ingi, f. 1971. Synir Þórlaugar og Stef- áns eru Egill Vignir, f. 1975, og Svavar Gauti, f. 1981. 2) Óskar, f. 1951, maki Ingveldur Hafdís Aðalsteinsdóttir, f. 1951, d. 2008. Börn þeirra eru Guðbjörg Hrönn, f. 1975, Styrmir, f. 1978, og Halla Þórlaug, f. 1988. Sam- Í dag kveðjum við móður mína, eftir langa og farsæla ævi. Hún var ein þeirra Íslendinga sem ól- ust upp í sárri fátækt á tímum efnahagskreppu og stríðsátaka; á tímum þegar enginn gerði kröfu um að eiga sjálfsagðan rétt til neinna lífsgæða og lífið var stöð- ug barátta. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður færðist gjarnan bros yfir andlit hennar þegar hún minntist upp- vaxtaráranna. Þær bjuggu sam- an, iðulega bara í einu litlu her- bergi, amma okkar, Ingunn Guðjónsdóttir, með dætur sínar fjórar, uns síðar að Óskar afi varð hluti af fjölskyldunni. Það sem virtist ætíð vera efst í huga hennar var gleðin, sam- heldnin og vinátta þeirra systra og sem lítið barn fékk ég svo sannarlega að njóta þess. Ég fæddist ungum foreldrum heldur of fljótt til þess að um kjörað- stæður gæti verið að ræða, en hvorki þrengsli né aðrir erfiðleik- ar komu í veg fyrir að frá fyrsta degi eignaðist ég fimm mömmur í stað einnar, því opnir armar móð- ursystra minna og ömmu biðu mín. Þær tóku mér allar eins og ég væri barnið þeirra, tilbúnar að láta lítið telpukorn njóta þeirrar ástar og umhyggju sem börn þurfa og fyrir það verð ég þeim ævinlega þakklát. Hvernig hefði líf þeirra systra hefði orðið, hefðu þær fæðst á öðrum tímum þar sem konur geta menntað sig og látið til sín taka á öllum sviðum? Þær hefðu gert sig gildandi með öðrum hætti í sam- félaginu, því þrátt fyrir alls kyns erfiðleika og hindranir hafa þær allar átt sérlega farsælt líf. Tíminn er stundum harður húsbóndi og nú fækkar enn í þessu sérstaka og frábæra systrasamfélagi. Allar hafa þær náð háum aldri og vekja stundum spurningar um hvort kenningar fræðimanna um að hollir lífs- hættir skipti sköpum fyrir heils- una, og þá vakna minningar um lýsingar þeirra á því hvernig þær barnungar sátu og dýfðu tvíbök- um í kaffibollann í hádegismat, hjálpuðu móður sinni sjö ára gamlar að bera níðþunga þvotta- bala á milli hæða eða moka kolum í kolaeldavél. En öll erum við börn okkar tíma og verðum að sæta þeim kjörum sem samtím- inn býður okkur. Bernskuminningar eru fyrst og fremst um gott heimili, en ekki síður um fallegt samband for- eldra minna. Þau voru rétt sextán ára þegar þau kynntust og þeim tókst að varðveita neistann sem þá kviknaði þar til dauðinn að- skildi þau. Þau voru miklir fé- lagar, glæsileg og stolt hvort af öðru og ófeimin við að láta það í ljós. Makamissirinn var mömmu afar erfiður, en hún tókst á við hann af því æðruleysi sem ein- kenndi hana alla tíð. Lengst af ævinnar bjó mamma við góða heilsu. Hún var einstak- lega jákvæð og dugleg og fram undir nírætt ók hún um á eigin bíl, fór daglega í sund og stundaði líkamsrækt og jóga lengi. Tilbúin að njóta alls þess sem lífið hafði að bjóða. Síðustu misserin urðu henni þó erfið, lífið orðið meiri byrði en gleði og tilhugsunin um að missa sjálfstæði sitt var nánast óbæri- leg í hennar huga. Hún lést eftir fárra vikna dvöl á hjúkrunar- heimili, sátt við Guð og menn. Ég er óumræðilega stolt yfir því að hafa átt þessa konu að móður og þakka henni fóstrið. Hennar verður sárt saknað. Þórlaug Jónsdóttir. Látin er í hárri elli tengdamóð- ir mín Guðbjörg Pálsdóttir. Ég Hitti Guðbjörgu og Jón Inga fyrst fyrir um fjörutíu árum þeg- ar ég kynntist dóttur þeirra og fór að venja komur mínar á heim- ili þeirra. Mér var tekið með hlýju og gestrisni og ekki hefur borið skugga á þau kynni síðan. Ég tók strax eftir væntum- þykju þeirra til hvors annars og barna sinna sem þau voru afar stolt af. Guðbjörg og Jón Ingi kunnu að njóta lífsins og gæða hversdaginn ákveðnum ljóma sem fæst þegar fólk vandar sig við að lifa og takast á við verkefni lífsins. Jón Ingi lést um aldur fram fyrir þrjátíu og þremur ár- um. Það var mikil sorg og eftirsjá fyrir Guðbjörgu en þá þraut leysti hún eins og aðrar sem á vegi hennar urðu með æðruleysi og styrk. Ári eftir að eldri dóttir okkar fæddist þurfti Ingibjörg konan mín að ganga í gegnum stóran uppskurð eftir veikindi. Guð- björg tók ekki annað í mál en að taka sér nokkurra mánaða frí frá vinnu til að gæta ömmubarnsins og hjúkra dóttur sinni, þetta var okkur ómetanlegt. Fyrir þetta og svo ótalmargt annað verð ég henni ævinlega þakklátur. Jákvæð afstaða og þakklæti fyrir gjafir lífsins voru henni eðl- islæg. Hún tók öllum, háum sem lágum, sem jafningjum enda var hún vinsæl og vinmörg. Bjart- sýni, hlýja, æðruleysi og seigla eru orðin sem koma í hugann þegar ég hugsa til tengdamóður minnar nú við leiðarlok. Kærar þakkir fyrir samfylgd- ina. Friðrik Steinn Kristjánsson. Þú varst rétt rúmlega fertug þegar þú varðst amma. Sunnu- dagurinn 24. janúar 1971 var kaldur og bjartur og tjörnin var ísilögð. Elsta dóttir þín var búin að vera alla helgina á fæðingar- heimilinu og þið afi ákváðuð að fara í síðasta sinn á skauta á Tjörninni sem ungt fólk. Ég sé ykkur fyrir mér svífa um svellið, þú á hvítum skautum, hann á svörtum, þú með rauðan trefil um hálsinn flaksandi í andvaranum, hann eltir þig og nær að nappa treflinum, þið brosið og flissið. Ég fékk þann heiður að bera nafnið hans afa míns og þú hélst mér undir skírn í Bogahlíðinni. Frá upphafi var sterkur strengur á milli okkar. Ég minnist þess að sitja í rauðu aftursætinu á svört- um Prins Valíant þeysast um allt á meðan afi og amma í Bogó sungu saman í framsætinu lög eins og „Hún hét Abba-labba-lá“. Í minningunni er ég með ykkur á leiðinni á skíði í Skálafelli eða í bústaðinn í Grafningnum. Það er ljósmynd á vegg heima hjá okkur Laufeyju, tekin árið 1946. Á henni er Rut systir þín þar sem hún heldur á móður minni pínulítilli. Í fyrstu hélt ég að þetta værir þú á myndinni en myndasmiðurinn varst þú. Þegar ég horfi á myndina finnst mér hún dýrmætari fyrir vikið því á veggnum er sjónarhornið þitt. Við brölluðum ýmislegt í gegn- um tíðina. Fyrir nokkrum árum tókum við upp á því að taka allar slædsmyndirnar þínar í gegn, fórum í gegnum þær og héldum svo sýningu í jólaboði hjá Tótu Mæju. Þar komu í ljós þínir miklu hæfileikar sem ljósmyndari. Ótrúlega fallegar og merkilegar myndir sem birtust okkur. Þegar ég minntist á það hversu flottar myndirnar voru fórstu bara hjá þér og sagðir að þetta væri nú ekkert merkilegt, af þinni al- kunnu hógværð. Þú ert og verður alltaf ein af stóru fyrirmyndunum mínum í lífinu. Sterk, sjálfstæð, fé- lagslynd, glaðvær, tignarleg, fal- leg og góð. Nú ertu farin í ferðina handan sólarinnar. Þar bíður þín renni- slétt skautasvell, hvítir skautar og rauður trefill. Þar mun draumaprinsinn finna þig aftur og nappa af þér treflinum og ei- lífðin mun hefjast. Góða ferð og bið að heilsa. Ég elska þig. Lambakóngurinn þinn. Jón Ingi Hákonarson. Elsku amma. Nú ert þú komin á betri stað til afa. Þú varst alltaf svo góð og jákvæð. Lést ekkert koma í veg fyrir að lifa lífinu til fulls. Dagurinn varð alltaf betri við að hitta þig og við munum sakna þess að koma í kaffi til þín og ræða málin. Þú varst góð fyr- irmynd og hvattir okkur til að gera það sem hugur okkar stóð til, setja okkur markmið og nýta tímann vel. Eitt af því sem þú kenndir okkur var að takast á við verkefni lífsins enda varstu mesta hörkutól sem við höfum kynnst. Við munum alltaf geyma allar fallegu og skemmtilegu minningarnar sem við eigum um þig og þær munu fylgja okkur út lífið. Takk fyrir samfylgdina elsku amma. Áshildur og Liv. Guðbjörg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.